Morgunblaðið - 11.08.1988, Page 30
Framkvæmdir hafnar við jarð-
göng um Olafsfjarðarmúla
FRAMKVÆMDIR eru nú hafnar í Ólafsfjarðarmúla þar sem unnið
verður við gerð jarðganga næstu þijú árin. Það er fyrirtækið Kraft-
tak sf., sem átti lægsta tilboðið í verkið, um 530 milljónir króna, og
eru menn frá fyrirtækinu og hluti af vélaflotanum nú þegar á Ólafs-
firði. Starfsmenn við verkið verða allt frá 20 og upp í 40 manns
þegar mest verður, íslenskir og norskir, en Krafttak sf. er í 70%
eigu norska fyrirtækisins Astruphayer og 30% eigu Ellerts Skúlason-
ar hf. í Njarðvík.
. Fyrstu vinnuvélunum var skipað
á land úr Esjunni á mánudagskvöld
og von er á farmi með skipi frá
Noregi þann 22. ágúst nk. auk
vinnuskúra sem á að setja upp
vegna verksins. Hafist var handa
strax á þriðjudagsmorgun og verður
fyrsta verkið vegalagning frá
gangamunnanum og inn á Aðalgöt-
una á Ólafsfirði, um 1600 metra
leið. Vegurinn verður síðan lagður
bundnu slitlagi í lok gangagerðar-
innar, en samkvæmt samningi á
henni að vera lokið í síðasta lagi í
marsmánuði 1991.
Yfirumsjón með verkinu hafa
þeir Björn Jónasson jarðfræðingur
og Stieg Frammarsvik bygginga-
verkfræðingur frá Noregi. Göngin
sjálf verða rúmlega þrír kílómetrar
að lengd. Bjöm sagði í samtali við
Morgunblaðið að notað yrði dýn-
amít til að sprengja upp leiðina í
gegnum Múlann. Þá þyrfti enn-
fremur að reisa veggskála beggja
vegna Múlans og búa þyrfti til veg-
arkafla Dalvíkurmegin frá munnan-
um og inn á þann veg sem nú er
fyrir hendi. Sá kafli er um eins km
langur. „Við leggjum vegina hvom
sínu megin við Múlann nú í sumar,
en leggjum þá ekki bundnu slitlagi
fyrr en í lokin. Síðan má búast við
að við ráðumst á Múlann um miðjan
september þegar allri forvinnu er
lokið. Um er að ræða 2,6 km í vega-
gerð, þijá km í gangagerð og 250
metrar í veggskálum," sagði Bjöm.
Krafttak sf. hefur nýlega unnið
sambærilegt verk við Blönduvirkj-
un. Þar vom útbúin þriggja km
stöðvarhússhvelfíng og lóðrétt göng
upp á tæpa 300 metra. Göngin
verða 5,7 metrar á hæð og 5 metr-
ar á breidd. Alls verða 100.000
rúmmetrar af bergi íosaðir út úr
Múlanum og verður það nýtt sem
vegfylling. Sprengingavipnan er
gerð á hefðbundinn hátt, en ný
tækni, svokölluð ásprautun, er not-
uð í hvelfinguna m.a. til að holu-
fylla eftir að sprengt hefur verið.
Jaðarsvöllur:
• •
Oldung’ameistaramót í golfi
Öldungameistaramót íslands
verður haldið á Jaðarsvelli um
helgina og eru yfir eitt hundrað
þátttakendúr væntanlegir á mótið.
Leiknar verða 54 holur án forgjaf-
ar og 36 holur með forgjöf. Mótið
hefst kl. 9.00 á morgun, föstudag,
og er opið konum 50 ára og eldri
og körlum 55 ára og eldri. Mótið er
haldið árjega og fór fram í Keflavík
í fyrra. íslandsmeistari karla síðan
þá er Gísli Sigurðsson úr Garðabæ
og í flokki kvenna varð Jakobína
Guðlaugsdóttir úr Vestmannaeyjum
sigurvegari.
Blaðburðarfólk
óskast í eftirtalin hverfi:
Bjarkarstíg, Helgamagrastræti, Munka-
þverárstræti, Brekkugötu, Klapparstíg.
Uppl. á afgreiðslu Morgunblaðsins, Hafnarstræti 85,
________Akureyri, sími 23905.
Hlýjast norðanlands
Norðlendingar fengu aftur að sjá til sólar í gær eftir rnikið sólar-
leysi undanfarna daga. Hiti nálgaðist 20 gráðu markið á Akureyri
í gær og nutu margir veðurblíðunnar enda mikið um ferðafólk
í bænum. Veðurfræðingar eru hvað hliðhollastir Norðlendingum
næstu daga ef marka má veðurspá í gær. Spáð er austlægri átt
í dag, björtu veðri og skýjum á köflum norðanlands og hlýjast
verður á Norðurlandi, 10 til 18 stig. Á föstudag er búist við au-
stangolu, en björtu veðri og ef til vill smáskúrum og súld við
strendur.
siðasta hali Sléttbaks EA voru 40 tonn, sem áhöfnin náði að vinna
á aðeins 20 tímum.
Unnu 40 tonna
hal á 20 tímum
LÍTIÐ var sofið um borð í Slétt-
baki EA í lok síðustu veiðiferðar
togarans. Síðasta halið innihélt
svo mikið sem 40 tonn af þorski
svo snar handtök þurfti til að
vinna allan þann afla.
Gunnar Jóhannsson var skipstjóri
í ferðinni. Hann sagði í samtali við
Morgunblaðið að undir venjulegum
kringumstæðum stæðu menn
frívaktir. Tuttugu og sex manna
áhöfn væri á skipinu og skiptu menn
með sér sólarhringnum. „Þegar
svona höl koma inn, hugsar enginn
um vaktafyrirkomulag heldur vinna
allir eins og brjálæðingar þar til fisk-
urinn er kominn í frystingu og það
tókst að vinna þessi 40 tonn á 20
tímum," sagði Gunnar. Skipveijar
sjálfir þurfa að flaka, snyrta, stærð-
arflokka, pakka og frysta þar sem
Sléttbakurinn er frystitogari.
Sléttbakur EA hélt á veiðar á ný
síðdegis í gær. Alls öfluðust í síðustu
veiðiferð 268 tonn á 24 dögum og
nam aflaverðmæti um 30 milljónum
króna.
Vistheimilið Sólborg:
Tvær milljónir vantar til að
ljúka sundlaugarbyggingunni
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fimm starfsmenn á Sólborg standa fyrir lokaátaki i byggingu sund-
laugar við Sólborg. Frá vinstri eru Þóroddur Þóararinsson þroska-
þjálfi, Dagný Sigurjónsdóttir starfsstúlka, Þráinn Brjánsson starfs-
maður, Anna Árnadóttir fóstra og Rakel Bragadóttir ritari.
NEFND áhugafólks úr röðum
starfsmanna Sólborgar hefur
ákveðið að beita sér fyrir loka-
átaki í söfnun fyrir byggingu
sundlaugar á vistheimilinu Sól-
borg á Akureyri. Sundlaugin er
ætluð heimilisfólkinu og öðrum
þroskaheftum á Akureyri og ná-
grenni. Stærð hennar er 8x4 metr-
ar og gert er ráð fyrir að ská-
braut og lyfta auðveldi fötluðum
að komast ofan í laugina. Á barmi
hennar verður rými fyrir nudd-
pott, sem Iðnaðarbankinn gaf
stofnuninni, og að auki er gert ráð
fyrir æfingarplássi og vinnuað-
stöðu fyrir sjúkraþjálfa við enda
laugarinnar.
Bygging sundlaugar á Sólborg
hófst sumarið 1983 og er byggingin
mikið hagsmunamál fyrir þá 42 íbúa,
sem þar eru til heimilis, að sögn
þeirra fimm starfsmanna er standa
fyrir söfnuninni. Ríkisútvarpið, Rás
2, verður með útsendingu á morgun,
föstudag, sem tileinkuð verður söfn-
uninni alfarið. Ætlunin er að gefa
fyrirtækjum, sveitarfélögum og ein-
staklingum kost á að hringja inn og
leggja fram fé. Svæðisútvarp Akur-
eyrar og nágrennis tileinkar söfnun-
inni tíma sinn milli kl. 18.00 og 19.00
í kvöld og þá verður jafnframt tekið
á móti framlögum. Auk þessa hefur
verið opnaður póstgíróreikningur nr.
544655 gagngert fyrir þetta lokaá-
tak byggingarinnar.
Útvarpsstöðin Hljóðbylgjan stóð
síðastliðið sumar fyrir söfnun vegna
sundlaugarinnar við Sólborg og söfn-
uðust þá tæpar 840.000 krónur.
Fyrir það fé tókst að gera bygging-
una tilbúna undir tréverk. Þriðja
áfanganum af fjórum er lokið, en
eftir er að ganga frá byggingunni
að innan, leggja flísar, ganga frá
sundlaug og búningsklefum, útbúa
aðstöðu fyrir þjálfun og annað þess
háttar. I þennan lokaáfanga vantar
tvær milljónir króna. Samkvæmt út-
reikningum kostar lokaáfanginn 3,6
millj. kr., en Framkvæmdasjóður
fatlaðra veitti í fyrsta sinn í vor fé
til framkvæmdanna, 1,5 millj. kr. auk
þess sem lionsklúbbar, Styrktarfélag
vangefinna, Samband norðlenskra
kvenna og aðrir aðilar hafa styrkt
málefnið.
Þegar fyrstu þijú sambýlin fyrir
þroskahefta tóku til starfa fluttist
sá hluti íbúa Sólborgar sem minnst
var fatlaður út af vistheimilinu. Þar
eru því eftir.tiltölulega mikið þroska-
heftir og fatlaðir einstaklingar með
mikla alhliða þjálfunarþörf. Sú að-
staða, sem nú er fyrir hendi, tak-
markast að mestu leyti við líkamsæf-
ingar, sem gerðar eru við ófullnægj-
andi aðstæður inni á herbergjum íbú-
anna eða í setustofu. Vegna þess hve
sund er gott til slökunar og þjálfunar
hefur verið ekið með hluta íbúanna
í sund í Þelamerkurskóla og á Sval-
barðseyri, en þar er aðstaðan ónóg
og aksturinn erfiður fyrir þá mest
fötluðu.