Morgunblaðið - 11.08.1988, Blaðsíða 52
^ upplýsingar um vörur og 1 -
# jffií þjónustu. W ÞtTTA
HRtSSANDI. FRÍSKA BRACÐ
FIMMTUDAGUR 11. AGUST 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
Refabú:
Grunur
um smit-
andi lifr-
arbólgu
GRUNUR leikur á að smitandi lifr-
arbólga sé kornin upp í refabúi á
bænum Hlið i Tunguhreppi, en þar
hafa rúmlega þrjú hundruð dýr
drepist í sumar. Sjúkdómur þessi
er landlægur í hundum og villta
refastofninum, og hefur hann
einu sinni komið upp á refabúi
hér á Iandi áður.
Að sögn Sigurðar Gunnlaugssonar
bónda í Hlíð hafa á milli 10 og 20
fullorðin dýr drepist og um 300
hvolpar. „Það er ekki að sjá nein
óeðlileg einkenni á dýrunum, þau
bara drepast allt í einu. Mér er sagt
að hér sé um lifrarbólgu að ræða,
en sýni eru nú í ræktun á Keldum.
Sennilega sker ég allan refinn nið-
ur í haust þar sem maður þolir ekki
svona skakkaföll ofan á allt annað.
Rekstrargrundvöllurinn er slæmur í
refaræktinni núna, og það virðist
ekkert annað en gjaldþrot blasa við
hjá mér,“ sagði Sigurður.
Suðursveit:
70 mm regn
á tæpum
3 tímum
Sólarhringsúrkoman mæld-
ist mest á landinu 135,4 mm á
Kviskeijum í Suðursveit i rign-
ingunni, sem gekk yfir sunnan-
vert landið siðastliðinn mánu-
dag. Þar af rigndi 70 mm milli
klukkan 17:30 og 20:10.
„Ég held að þessi úrkoma sé
sú mesta sem hefur mælst á jafn
skömmum tíma. Rigningin var
þétt og dropamir stórir allan
tímann sem ringdi," sagði Sigurð-
ur Bjömsson bóndi á Kvískeijum.
Hann sagði að þar rigndi oft
mikið í austanátt en þá stæði
vindur beint á fjallið og myndaði
logn við bæinn þó rok væri í
næsta nágrenni. „Það er eins og
rigningin safnist upp í logninu,"
sagði Sigurður. Á mánudaginn
var nánast logn á Kvískeijum í
rigningunni þegar 9 vindstig
mældust á Fagurhólsmýri.
Jarðgöng í Ólafsfjarðarmúla
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Framkvæmdir eru hafnar við jarðgöng í Ölafsfjarðarmúla en
í fyrsta áfanga verður lagður vegur frá göngunum að Aðal-
götu á Ólafsfírði. Jarðýta vinnur við að hreinsa frá munnan-
um. í september er áætlað að hefja vinnu við sprenginar
fyrir göngunum sjálfum. Áætlaður kostnaður við heildarfram-
kvæmdir er um 530 milljónir króna og á verkinu að vera lokið
í mars 1991. í forgrunni sjást skriður sem féllu á veginn í
Múlanum í vetur en í baksýn sést til kaupstaðarins.
Sláturhús standast ekki kröfur EB:
Enginn kj ötútflutningiir til
Evrópubandalagsins í haust
HORFUR eru á því að ekki verði
um að ræða neinn kjötútflutning
á markað Evrópubandalagsins
nú í haust, en í fyrra var farið
fram á miklar endurbætur á
þeim sláturhúsum sem höfðu
leyfi til útflutnings þangað.
Veigamiklar breytingar standa
nú yfir í sláturhúsinu í Borgar-
nesi, en ekki er talið liklegt að
þeim verði lokið fyrir haustið.
Að sögn Gunnars Guðbjartssonar
sem starfar fyrir Landssamtök slát-
urleyfíshafa höfðu þijú sláturhús
Kjaradeila flugmanna Landhelgisgæslunnar:
Ákveðið að greiða 10%
hækkun frá 1. mars
ÁKVEÐIÐ hefur verið að borga 10% hækkun á laun flugmanna
Landhelgisgæslunnar frá og með 1. mars síðastliðnum, að sögn
Ásmundar Vilhjálmssonar hjá launadeild fjármálaráðuneytisins.
Áfangahækkanir koma síðan á þessi laun, eins og kveðið er á um i
bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar. Fundi sem vera átti með deilu-
aðilum á þriðjudag var frestað og hafa flugmenn ekki óskað eftir
öðrum fundi, að sögn Ásmundar.
Ekki verður farið að kröfu flug-
manna um breytingu á fyrirkomu-
lagi handbókargjalds, né hvað varð-
ar 25 þúsund króna eingreiðslu til
flugmanna, en ákvæði um þetta
hvort tveggja eru í samkomulagi,
sem Félag íslenskra atvinnuflug-
manna gerði við Flugleiðir fyrr í
sumar. Hins vegar hækkar hand-
bókargjaldið í samræmi við hækkun
launataxta, þar sem það er 5% af
launum.
Ásmundur sagði að farið yrði
eftir reglum ríkisskattstjóra hvað
varðaði staðgreiðslu skatts af dag-
peningum. Flugmenn Landhelgis-
gæslunnar fá greiddar um 20 þús-
und krónur í dagpeninga á mánuði
og hefur launadeildin tekið af þeim
skatta á sama hátt og af launum
síðan staðgreiðslukerfíð gekk í gildi
um áramót. Ásmundur sagði að flug
þyrfti að uppfylla það skilyrði að
vara í sex klukkustundir til þess
að dagpeningar væru undanþegnir
staðgreiðslu og það kunni vel að
vera að einhveijir dagar fullnægi
því skilyrði. Sjá bls. 4.
sérstök leyfí til að flytja út til Evr-
ópubandalagsins, en í fyrrahaust
kom eftirlitsmaður af þess hálfu og
skoðaði húsin.
„Hann gerði umtalsverðar at-
hugasemdir varðandi aðbúnað í
húsunum, og sagði að ekki fengist
leyfí til útflutnings tii Evrópu-
bandalagsins nema _að gerðum sér-
stökum úrbótum. Ákveðið var að
bæta úr þessu í Borgarnesi, en
þaðan var mest flutt út til Evrópu-
bandalagsins, og standa nú yfír
miklar breytingar þar. Ekki var
talið taka því að gera viðeigandi
breytingar á sláturhúsunum á
Húsavík og Sauðárkróki þar sem
markaðurinn væri ailtaf að þrengj-
ast og versna. Útflutningskvótinn
til Evrópubandalagsins er 600 tonn
og hefur hann oftast verið fullnýtt-
ur undanfarin ár, en þar af hafa
3-400 tonn komið frá Borgarnesi."
Gunnar Aðalsteinsson slátur-
hússtjóri í Borgarnesi sagði að mikl-
ar breytingar væri verið að gera á
sláturhúsinu og þar væri bæði um
að ræða eðlilega endumýjun og
breytingar sem miðuðu að því að
uppfylla kröfur Evrópubandalags-
ins. Gunnar taldi þó að ekki yrði
um neinn útflutning á þennan
markað að ræða frá Borgamesi í
haust.
„Ég á ekki von á því að héðan
fari neitt kjöt á markað hjá Evrópu-
bandalaginu í haust. Kröfumar sem
voru gerðar voru þannig að það
mætti æra óstöðugan ef standast
ætti þeim snúning. Þær vom raun-
verulega þannig að nánast útilokað
er að framfylgja þeim tæknilega
séð, og það er alveg af og frá að
slíkum kröfum sé framfylgt innan
Evrópubandalagsins sjálfs. Kjöt-
markaðurinn þar er yfírfullur, og
lítill spenningur fyrir því að fá
meira kjöt inn á hann, og því slær
það mann að þessu sé beitt til að
útiloka okkur frá honum.“
Jóhann Steinsson hjá Búvöm-
deild Sambandsins sagði það vera
mjög slæmt að ekkert kjöt færi á
markað hjá Evrópubandalaginu í
haust. Markaðurinn þar tæki 600
tonn héðan samkvæmt samningum,
og birgðir af kjöti hér á landi yrðu
um 3.000 tonn um næstu mánaða-
mót og mikil þörf hefði verið að
létta á þeim.
„Á þessu framleiðsluári sem nú
er að líða hafa alls verið flutt út
um 2.000 tonn af kjöti til Svíþjóð-
ar, Færeyja, Finnlands og Bret-
lands, og einnig til Danmerkur og
Þýskalands, en ekki var lokað á
útflutning þangað fyrr en um
síðustu áramót og var kvóti síðasta
árs þá fullnýttur."