Morgunblaðið - 17.08.1988, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 17.08.1988, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988 Ég er Ljón-- VIÐ ERUM STORKOSTLEG SAMAN Persónukort: Hver er ég? Hvaða hæfileika hef ég? Hvað veikleika? Get ég skilið mig betur? Framtíðarkort: Hvaða sjó sigli ég þetta árið? Hvar er meðbyr, mótbyr, blindsker og öruggar siglingaleiðir? Samskiptakort: Ég elska maka minn, en getum við skilið hvort annað betur? Sjálfsþekking er forsenda framfara. Hringdu og pantaðu kort STJ0RNUS1TEKI •STÖÐIN 1UJ// I LAUGAVEGI 66 SIMI 10377~ Gunnlaugur Guðmundsson Lofa þú Drottinn sdla mín. Gleym eigi neinum velgjörðum hans. Innilegustu þakkir sendi og öllum, sem d af- mcelinu mínu 27/7 ’88 glöddu mig með stór- gjöfum, blómum, heillaóskaskeytum og árn- aðaróskum. Guð blessi ykkur. Krístján Reykdal. ÓDÝRAR ■ - / Eigum fyrirliggjandi mikið úrval af galvaniseruð- um skrúfum, ryðfríum skrúfum og álskrúfum í öllum stærðum. Einnig sjálfborandi skrúfur og plasthettur í,mörgum litum. Þetta eru viðurkenndar vestur-þýskar þakskrúfur. Afgreiðum sérpantanir með stuttum fyrirvara. I 9 Andfréttir Þjóðviljans í helgarblaði Þjóðviljans er Morgunblaðið sakað um „andfrétta- mennsku". Ástæðan er sú að blaðið líkt og aðrir fjölmiðlar á ís- landi, nema Þjóðviljinn, flutti fréttir af opinberri heimsókn forsætis- ráðherra til Bandaríkjanna. Ef helgarblað Þjóðviljans er skoðað glögglega vaknar þó sú spurning hver það sé sem stundi sk. „and- fréttamennsku". Þjóðviljinn seinheppinn Þjóðviljinn amast við þvi í ritstjórnargrein um helgina að Morgunblaðið skuli hafa sagt fréttir af fyrstu opinberu heim- sókn islensks forsætis- ráðherra tíl Banda- ríkjanna. Er helst á blað- inu að skilja að slík heim- sókn sé á engan hátt i frásögur færandi. Þjóðviljinn er þó ansi seinheppinn i þessu tál- viki. Undanfarið hafa í blaðinu birst æsifréttir um mikinn birkidauða i Þórsmörk, sem slegið hefur verið upp með stríðsfyrirsögnum á for- siðu blaðsins og öðrum helstu fréttasiðum. Fyr- irsagnirnar tala sínu máli: „Dularfullur birki- dauði“, „Alversta ástand- ið“, „Birkiskógur hvergi eins illa farinn á landinu og i Þórsmörk", „Þriðjja hvert tré steindautt“. Sama dag og Þjóðvijj- inn skammar Morgun- blaðið fyrir að segja frá heimsókn Þorsteins Páls- sonar til BandariRjanna birtist hins vegar lítíll fréttastubbur á innsíðum blaðsins undir fyrirsögn- inni „Þórsmörk: Skógur- inn ellidauður". Þar seg- in „Birkiskógurinn i Húsadal er nú að drepast vegna aldurs. Þama óx upp nýgræðingur á árun- um eftir 1924 þegar svæðið var fyrst friðað fyrir beit og þessi tré eru nú einfaldlega komin á aldur. Birkið i Þórsmörk er ekki að drepast vegna átroðnings ferðamanna. Þeir fara mjög litíð inn i skógarkjarrið þvi þar er mikill mosi i botninum. Það sem við eigum að gera til þess að eðlileg endumýjun eigi sér stað i birkiskógunum er að saga nokkur stór ijóður i þá,“ segir Sigvaldi Ás- geirsson, skógfræðingur í Haukadal." Var einhver að tala um andfrétt? Velferðin og ríkissljómin f Alþýðublaðinu í gær birtist leiðari undir yfir- skriftinni „Hin gleymda velferð". Þar segir: „Ríkisstjómin hefur Iegið undir mikilli gagn- rýni í fjölmiðlum að und- anförau og flest mál talin henni til vansæmdar. Oftar en ekld er tönnlast á þeirri lummu að nú styttist í fall ríkisstjóm- arinnar og boðun nýrra alþingiskosninga. Þegar verk stjómarinnar em til umræðu í fjölmiðlum og síðan manna á meðal er iðulega staglast á tekju- hliðum ríkissjóðs en mun minna talað um útgjalda- hliðamar, sem yfirleitt koma skattgreiðendum tíl jgóða. I júlílok vom sendar út 69 þúsund ávísanir frá rikissjóði með greiðslu bamabóta, bamabóta- auka, húsnæðisbóta og vaxtaafsláttar tíl þeirra framteljenda, sem rétt áttu á þeim samkvæmt staðgreiðslukerfi skatta. Samtals nam upphæðin 2 miRjörðum króna. Ekki er úr vegi að skoða þess- ar greiðslur i samanburði við tölur fyrra árs. Á árinu 1987 vom greiddir 1,5 miRjarðar króna sam- tals til bamabóta en verða á árinu 1988 2,2 milljarðar. Hækkunin milli ára nemur 47 pró- sentustigum. Bamabóta- auki var greiddur á árinu 1987 als 380 mil\jónir króna en árið 1988 700 milljónir. Hækkunin milli ára er 84 prósentustig. Alls em þvi greiðslur bamabóta á árinu 1987 1.880 miHjónir króna en á árinu 1988 2.900 miiy- ónir króna. Ef við bætast húsnæðisbætur og vaxta- afsláttur, sem ekki kom til á fyrra ári, hækka heildargreiðslur ríkis- sjóðs til handa framtelj- endum sem rétt eiga á bótum eða alls í 4 miRj- arða króna. Af ofan- greindum tölum sést að kostnaður ríkissjóðs vegna greiðslu bama- bóta og baraabótaauka eykst um 54% milli ár- anna 1987 og 1988. Til | samanburðar má gera ráð fyrir að almennt verðlag hækki um 27-28% að meðaltali á sama tíma. Að raungildi nemur hækkunin þvi um 21%. Bamabótaaukinn hækkar verulega um- fram almennar barna- bætur eða um 84%. Bamabótaauki nýtíst einkum tekjulágum og eignalitlum fjölskyldum. Á árinu féllu til að mynda 42% af bamabótaaukan- um í hlut einstæðra for- eldra. Eins og fram kem- ur að framan greiðir ríkissjóður einnig vaxta- afslátt og húsnæðisbætur á þessu ári eða samtals 4 milljarða króna. Á tíma- bilinu janúar til júní á þessu ári vom greiddir 1,3 miRjarðar króna f bamabætur og baraa- bótaauka. í júlílok komu til útborgunar samtals um 2 milljarðar króna. Þar var um að ræða hús- næðisbætur og vaxtaaf- slátt, auk bamabóta og baraabótaauka. Sfðar á árinu, eða f október og nóvember verða greidd- ar út 700 miRjónir króna eða afgangur bamabóta og barnabótaauka." Ný óbundin bréf: SJÓÐS- BRÉF 3 Örugg skammtímaávöxtun! í vaxandi verðbólgu skiptir miklu að ávaxta peninga vel eigi þeir ekki að rýrna. Með nýju skammtímabréfum VIB, Sjóðsbréfum 3, fæst mjög góð ávöxtun án þess að binda féð. Búist er við að ávöxtun Sjóðsbréfa 3 verði 9-11% yflr verðbólgu. Innlausn Sjóðsbréfa 3 er einföld, lljótleg og án kostnaðar. Sjóðsbréf eru góður kostur! VIB VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF Ármúla 7, 108 Reykjavik. Simi 68 15 30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.