Morgunblaðið - 17.08.1988, Side 17

Morgunblaðið - 17.08.1988, Side 17
17 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988 „Ég- vona að stjórn LÍN og menntamálaráð- herra sjái sóma sinn í að breytaþessu. Að öðrum kosti óska ég eftir upplýsingnm um menntastefnuna í framtíðinni. A nám í góðum skólum erlendis aðeins að vera á færi barna efnafólks? Er kannski tilgangurinn sá að aliir mennti sig á Islandi eða á Norður- löndunum?“ meðalskólagjöld í ríkisháskólum í Bandaríkjunum nú $6.100 og í einkaskólum að meðaltali $9.000. Sú upphæð sem er hámark hjá LÍN nú nægir því aðeins fyrir skólagjöld- um í ódýrustu ríkisháskólunum. Skólagjaldaupphæðin hjá LÍN hefur ekkert hækkað árum saman. Á meðan sýna tölur að skólagjöld í Bandaríkjunum hafa hækkað langt umfram verðbólgu. Meðal- hækkunin á skólagjöldum nú á milli ára er þannig ríflega 10%. Því er spurningin sú hvort stjórn- völd telji rétt að kosta framfærslu- Iánum árum saman á fólk í ódýr- ustu skólunum (og oft um leið þeim sl. Héðan verður haldið til Þórs- hafnar og síðan til Óslóar, Hels- ingfors og Stokkhólms. Þá mun það gerast, í fýsta sinn í danskri leikhússögu, að þarlendir leikarar standi á sviði Listaleikhússins í Moskvu, þar sem leikrit Tjekhov eru leikin og túlki viðhorf vest- rænna manna á tilfinningalífi Tjekhov, Til allrar hamingju verð- ur verkið þýtt jafnharðan á þann hátt, að hver áhorfandi hefur sitt hlustunartæki. Upphaflega var áformað, að aðeins yrði ein sýn- ing, en aðgöngumiðamir vom bókstaflega rifnir út um leið og sala hófst, og því hefur verið bætt við tveim sýningum. Verður leikið í Moskvu 19., 20. og 21. september. Því næst verður haldið til Parísar, Bmssel og víðar, og loks endað í Danmörku skömmu fyrir jól. Stórbrotin örlög, ekki síst í ást- um, hafa verið vinsælt viðfangs- efni að undanförnu, hvort sem er í bókmenntum, leikritum eða kvikmyndum. í dönskum flölmiðl- um er ástarsögu Tjekhov og Olgu Knipper líkt við það, sem gert var við minningar Karenar Blixen í kvikmyndinni „Jörð í Afríku", og vissulega er stórkostlegt, þegar vel tekst til með túlkun á slíku efni, þ.e. hvernig öllu er fórnað fyrir ástina — eins og er í raun og vem í þessu tilviki. Mer segir þó svo hugur um, að þörfin fyrir að kynnast hömlulausum ástríð- um í skáldskap beri frekar vitni um þörf okkar kynslóðar fyrir ást en löngun til að kynnast örlögum listamannanna, sem fjallað er um. Ég held a.m.k. að sú sé raunin, þegar svo langt er gengið sem nú er, en einmitt um þessar mund- ir er í Danmörku hafin vinna við kvikmynd, sem lýsa á hinu „stór- kostlega ástarævintýri" Sörens Kierkegaard og Regine Olsen. Því er nú eitt sinn þannig varið, að það er ekki öllum lsitamönnum ætlað að fá útrás fyrir tilfinningar sínar í ástarsambandi, og þetta á einmitt við um Kierkegaard. Hafi kvikmyndin það hins vegar í för með sér, að menn fari að sökkva sér niður í verk Kierkegaard, þar á meðal „In Vino Veritas", þar sem hann gerir snilldarlega grín að því „að vera ástfanginn", má þó segja, að hún sé þess virði. Hvað sem öllu öðru líður, nú á föstudaginn 19. ágúst gefst tæki- færi til að kynnast fallegri, hrífandi lýsingu á þeirri þrákelkn- islegu ást, sem allt sigrar — og túlkuð er af tveim bestu leikurum Dana um þessar mundir. Höfundur er danskur sendi- kennari við Háskóla íslands. lélegustu) vestanhafs? Er ekki rétt- ara að hækka lánin þannig að fólk geti valið skólana eftir gæðum en ekki eftir upphæð skólagjalda? í læri hjá Calvin Klein Til að skýra aðeins fyrir lesend- um hvernig þetta kemur út fyrir námsmenn, ætla ég aðeins að lýsa mínum aðstæðum sem geta verið lýsandi fyrir marga aðra námsmenn í skólagjaldalöndunum. Ég hafði áhuga á að fara í nám í fatahönnun og því var ekki um annað að ræða en að fara í nám til útlanda. Ég vildi fara til lands þar sem „líf væri í tuskunum" í greininni. Frakkland, Ítalía og Jap- an komu eiginlega ekki til greina vegna tungumálanna. Eg sótti því um í nokkrum vel völdum skólum í Bandaríkjunum. Eftir mikla skriffinnsku og viðtöl úti komst ég inn í mjög þekktan skóla í fatahönnun sem heitir Par- sons School of Design. Þessi skóli þykir með þeim bestu í fatahönnun í heiminum og því er mikil sam- keppni að komast inn í hann. Sem dæmi um kennara skólans má geta þess að meðal fastra leið- beinenda við skólann eru hönnuð- irnir Calvin Klein, Donna Karan og Ralph Lauren. Það er alveg ein- stakt tækifæri að fá að fylgjast með þeim og vinna með þeim. Hins vegar er alls óvíst hvort ég get haldið áfram námi í haust. Ástæðan er sú að skólagjöldin hækkuðu upp í $9.400 fyrir vetur- inn 1988—89 (voru $8.640 veturinn 1987—88). Vegna hinna úreltu reglna Lánasjóðsins fæ ég aðeins að hámarki $5.000 upp í skólagjöld- in. Þetta þýðir að ég þarf að borga $4.400 úr eigin vasa, sem þýðir að ég þarf að borga rúmlega kr. 200.000 sjálfur. Foreldrar mínir eru ekki aflögufærir um þessa upphæð og ég einfaldlega næ ekki að vinna mér hana inn í sumar. Ég vinn nú til kl. 18.30 í starfi sem tengist fagi mínu og síðan aukavinnu á kvöldin til að afla mér sem mestra tekna. Samt fæ ég ekki útborgaðar nema um kr. 50.000 á mánuði og get aðeins unnið í þijá mánuði. Ég get heldur ekki lifað á loftinu í sumar. Það er því vonlaust fyrir mig að afla mér kr. 200.000 í sumar, þar sem ég ákvað að fara í sumarvinnu sem tengdist mínu fagi. Auk þess koma gengisfellingar hér inn í myndina, því nú er ég miklu lengur að vinna mér inn fyrir skólagjalda- viðbótinni en ég bjóst við. Fyrir gengisfellinguna í maí sl. var útlit fyrir að ég þyrfti sjálfur að greiða kr. 160.000 af skólagjöld- um næsta vetrar. Núna hins vegar út af gengisfellingunni þarf ég að greiða kr. 208.000. Það munar um minna og bara tímaspursmál hve- nær næsta gengisfelling kemur sem gerir ennþá minna úr peningunum hjá mér. Skólagjaldalánin verða að hækka Nú er ríkjandi algjört vandræða- ástand hjá námsmönnum í fyrri- hlutanámi ’í skólagjaldalöndum. Stór hluti þeirra hefur einfaldlega ekki möguleika á að halda áfram námi nema hámarksupphæð lán- anna verði hækkuð. Við endurskoðun úthlutunar- reglna LÍN sl. vor Iögðu fulltrúar námsmanna í stjóm LIN til að upp- hæðin yrði hækkuð í $6.000, sem var mjög hófleg krafa. Mér skilst að fulltrúar ríkisstjómarinnar hafi almennt verið jákvæðir á hækkun- ina. Hins vegar í hita leiksins, þeg- ar úthlutunarreglurnar voru af- greiddar á færibandi, var þessi mik- ilvæga tillaga felld. Það gæti gert gæfumuninn þótt skólagjaldalánin yrðu aðeins hækk- uð upp i $6.000. Það er hægt að breyta þessu ákvæði fyrir haustið. Það gerðist með samþykki stjórnar LIN og staðfestingu hæstvirts menntamálaráðherra. Ég vona að stjórn LÍN og menntamálaráðherra sjái sóma sinn í að breyta þessu. Að öðmm kosti óska ég eftir upplýsingum um menntastefnuna í framtíðinni. Á nám í góðum skólum erlendis aðeins að vera á færi bama efnafólks? Er kannski tilgangurinn sá að allir mennti sig á íslandi eða á Norður- löndunum? Hvernig verður ísland í framtíðinni ef allir mennta sig á sama staðnum eða fari í lélega skóla af efnahagsástæðum? Höfum við virkilega efni á að senda fólk í lé- lega skóla? Höfundur stundar nám í fatahönn■ un við Parsons School of Design íNew York. KLIPPIÐ Ég undirrituö/aöur óska eftir aö fá sendan nýja FREEMANS pöntunarlistann í póstkröfu. SENDIST TIL : feWKÖIW Greiðir póstburöargjaldiö Má setja ófrimerkt ípóst Nafn Heimilisfang Póstnúmer Nafn.nr. PÓSTVERSLUN BÆJARHRAUNI 14, 220 HAFNARFJÖRÐUR Pöntunarlistinn kostar 160 kr. + póstburöargjald SÍmÍ 53900 4 Augnoblik/LP

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.