Morgunblaðið - 17.08.1988, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 17.08.1988, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988 25 Ólympíuleikarnir í Seoul: Norður-Kóreumenn vilja ekki ganga inn með Sunnanmönnum Tókýó. Reuter. NORÐUR-Kóreumenn höfnuðu í j innar (IOC) um að kóresku ríkin leikvanginn i Seoul við setningu Hin opinbera fréttastofa Norð- ur-Kóreu sagði að hugsanleg þátt- taka Norðanmanna í Olympíuleikj- unum í Seoul yrði ákveðin á fundi sameiginlegrar þingnefndar kór- esku ríkjanna, sem kemur saman í vikunni í landamæraþorpinu Pan- munjon. í skeyti til Juan Antonio Samar- anch, forseta IOC, sagði Kim Yu Sun, formaður norður-kóresku ólympíunefndarinnar, að það yrði er tilboði Alþjóðaólympíunefndar- 'agni sameiginlega inn á ólympíu- Ilympíuleikjanna. einungis til að styrkja menn í trúnni að til væru tvær Kóreuþjóðir ef fulltrúar ríkjanna gengju saman við setningar- og lokaathöfn leikanna. Norður-Kóreumenn ákváðu í árs- byijun að sniðganga leikina í Seoul þar sem ekki var orðið við kröfum þeirra um sameiginlegt leikjahald. Sunnanmenn og IOC gerðu þeim hvert tilboðið af öðru um að halda nokkrar greinar en þeim höfnuðu Norðanmenn öllum og kröfðust stærri sneiðar en í boði var. í frétt norður-kóresku fréttastof- unnar var ekki minnst á tillögu Roh Tae-Woo, forseta Suður-Kóreu, sem í fýrradag lagði til að þeir Kim II- sung, leiðtogi Norður-Kóreu, hitt- ust. Leiðtogar í kóresku ríkjunum vonast til þess að fundur þingnefnd- anna í Panmunjon leiði til sameigin- legs fundar þjóðþinga ríkjanna þar sem gengið yrði frá griðasáttmála og samið um þátttöku Norðan- manna í Ólympíuleikjunum. Sameinuðu þjóðim- ar rétta úr kútnum Alþjóðasamtökin fá nýtt hlutverk - Valdið eitt dugði ekki Sameinuðu þjóðunum, New York. Frá ívari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Það var ólík aðkoma í sali aðalstöðva Sameinuðu þjóðanna í New York á dögunum og var fyrir nokkrum vikum. Nú hafði glaðnað til muna yfir bæði full- trúum sem starfsfólki, er áður gekk um með hangandi höfuð til vinnu sinnar í óvissu um hvort alheimssamtökin myndu hafa nægjanlegt reiðufé til að greiða kaup um næstu mánaðamót. En fulltrúar margra þjóða, stór- velda sem dvergþjóða, urðu að gera sér að góðu, að fyrirmæli Oryggisráðsins, sem stofnskráin hefir falið að gæta friðar í heim- inum, — og það með valdi, ef á þarf að halda — hafa verið hund- suð árum saman. Tilkynningu Javiers Perez de Cuellars um vopnahlé í Persaf- lóastríðinu fagnað í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna. En nú var allt í einu komið ann- að hljóð í strokkinn. Pramkvæmda- stjóri samtakanna, Javier Perez de Cuellar, færði Öryggisráðinu þau gleðjtíðindi þann 8. þessa mánaðar, að íran og írak hefðu lofað að gera hlé á bardögum þann 20 þ.m. En þessar þjóðir, sem undanfarin sjö ár hafa háð mannskæðustu styrjöld, sem sögur fara af, er frá eru skildar tvær síðustu heimsstyrj- aldir, höfðu í heilt ár og vel það þverskallast við að hlýða samróma fyrirmælum Öryggisráðsins, að leggja niður vopn þegar í stað. Aðalframkvæmdastjórinn hafði fleiri góðar fréttir að færa Öryggis- ráðinu að þessu sinni, en það var að Suður-Afríkustjóm ætlaði nú loksins að fara að kröfum ráðsins, eftir 17 ár, og skila yfírráðum yfír Namibíu, fomri nýlendu Ijóðveija í Vestur-Afríku, sem fyrst var und- ir vemd Þjóðabandalagsins eftir fyrri heimsstyijöldina og Samein- uðu þjóðimar erfðu frá bandalag- inu eftir þá síðari, en þær hafa ekki fengið aðgang að til þessa. Þegar við þetta bætist, að Sovétrík- in em í óða önn að flytja innrásar- her sinn frá Afganistan og Castro Kúbuleiðtogi gefur í skyn, að hann gæti hugsað sér að kalla heim 50 þúsund manna her, sem hann hefir haft í Angóla árum saman í blóra við samþyktir Öryggisráðsins, er ekki að ftirða, að menn klöppuðu saman höndunum og féllust í faðma á Örygisráðsfundinum eftir friðar- fréttir framkvæmdastjórans. Fjárreiður SÞ enn í óvissu Aðalvandamál Sameinuðu þjóð- anna eru samt enn fjárreiðurnar Það er enn engin vissa fengin fyrir því, að hægt verði að greiða starfs- fólkinu laun um næstu mánaða- mót. En þótt það megi takast í nokkra mánuði enn, þá er hitt óráð- ið, hvemig á að afla fjár til að greiða kostnað við friðargæslu- sveitir Sameinuðu þjóðanna. Það hefir verið greinilegt um hríð, þótt menn hafí veigrað sér við að minnast á það, að valdið, sem Öryggisráði Sameinuðu þjóð- anna er veitt í stofnskránni, hefír reynst óframkvæmanlegt í verki. Það var vitað og þolað, að stórveld- in fímm máttu stöðva framgang máls í ráðinu með neitunarvaldi og gerðu það (Sovétríkin hafa beitt neitunarvaldi sínu í Öryggisráðinu rúmlega 100 sinnum), en ekki var talið mögulegt að ríki gætu þijósk- ast við að fara að fyrirmælum ráðs- ins. Gallinn á þessu var sá, að í fyrirmælum ráðsins var fram- Finnland: kvæmdstjóra Sameinuðu þjóðanna falið að framkvæma og fylgja mál- um eftir, en hann fékk ekkert fram- kvæmdavald eða tæki til að fara að boði ráðsins. Með öðrum orðum fyrirmæli stofnskrárinnar eru og verða vafalaust hundsuð og hlut- verk Sameinuðu þjóðanna verður að taka við brotunum, eftir að ann- ar hvor stríðsaðilinn eða fleiri hafa lagt upp laupana eins og íran að þessu sinni. Þá geta Sameinuðu þjóðimar tekið og greitt úr flækj- unni og hafa þá líkt hlutverk og skiptaráðendur í þrota- eða dánar- búi. Herlið til friðar- gæslu við Persaflóa Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins. FINNSKA ríkisstjórnin hefur ákveðið að senda 15 liðsforinga undir merkjum Sameinuðu þjóðanna til þess að fylgjast með ástandinu á landamærum írans og íraks. Einnig er 750 manna herlið tilbúið að fljúga til Namibíu um leið og aðilar í stríðinu milli Suður-Afríku og Angólu bjóða hersveitir SÞ velkomnar. Samkvæmt talsmanni SÞ-deiIdar finnska hersins eru Finnar reiðu- búnir að senda lið til Namibíu með fjögurra vikna fyrirvara. Finnland er eins konar stórveldi Kýpur. í friðargæslustarfsemi SÞ, en samtals eru um eittþúsund finn- skir hermenn og liðsforingjar við eftirlitsstörf víða um heim. Finnskt herlið tekur reyndar þátt í öllum friðargæsluverkefnum sem eru á vegum SÞ. í Líbanon eru 540 manns í gæslusveitum Unifil og 410 manns starfa í sam- svarandi verkum á Golan-svæð- inu. 22 óvopnaðir eftirlitsmenn í Mið-Austurlöndum, fimm í Afg- anistan og ijórir í Kasmír. Einnig starfa sex Finnar sem liðsforingj- ar í friðargæslusveitum SÞ á Áætlaður kostnaður finnska hersins við friðargæslu er í ár 170 milljónir fínnskra marka (um 1,7 milljarðar ísl. króna). Sameinuðu þjóðimar borga um helming, en vegna efnahagserfiðleika SÞ eru um 100 milljónir marka þegar í vanskilum. Aðsókn Finna að herliði SÞ hefur verið mikil. Um 6.000 fínn- skir karlmenn sælqa um að fá að starfa við friðargæslu á ári hveiju, en aðeins 1000 eru teknir í þjálfun og sendir til útlanda. Kambódía: Rauðu khmerarnir kynna friðaráætlun Bangkok, Reuter. RAUÐU khmerarnir lögðu í gfær fram friðaráætlun sem gerir ráð fyrir að hersveitir allra stríðandi fylkinganna í Kambódíu verði undir eftirliti alþjóðastofnanna. Samkvæmt áætluninni tæki fjög- urra flokka bráðabirgðastjórn undir forsæti Sihanouks prins við völdum af stjórninni í Phnom Penh. í áætluninni er gert ráð fyrir að bráðabirgðastjómin efni til þing- kosninga undir eftirliti alþjóða- stofnanna og þingið myndi síðan nýja stjórn. Ennfremur er gert ráð fyrir að allar stríðandi fylkingamar fjórar hafí jafn mikil völd í her landsins. Eftir að fylkingamar hafí náð samkomulagi verði haldin al- þjóðleg ráðstefna, þar sem þau lönd sem viðriðin eru átökin í Kambódíu eigi fulltrúa ásamt Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Vestrænir stjómarerindrekar segja að stjómvöld í Víetnam og Kambódíu muni líklega hafna mikil- vægum atriðum í friðaráætlun Rauðu khmeranna. Svört og galviniseruð Stærðir: 3/8 - 4“ HAGSTÆTT VERD VERSLIÐ ÞAR SEM ÚRVALIÐ ER V VATNSVIRKINN HF. ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966 |É^| LYNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 — 673416
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.