Morgunblaðið - 17.08.1988, Side 41

Morgunblaðið - 17.08.1988, Side 41
skömmu síðar og nú hefur þessi iðjusami sómamaður kvatt hið jarðneska líf. Blessuð veri minning hans. Utför Magnúsar fer fram frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 17. ágúst kl. 15.00. Kjartan S. Júlíusson í dag fer fram útför Magnúsar Óskars Magnússonar, bókbands- meistara. En hann andaðist í Borg- arspítalanum 23. júlí sl. eftir þriggja mánaða sjúkdómsstríð í þolinmæði og æðruleysi, eins og hans var von og vísa, enda setti hann allt sitt traust á frelsara sinn og Drottin Jesúm Krist, sem hafði verið honum athvarf í blíðu og stríðu. Magnús fæddist í Galtarholti í Skilmannahreppi, Borgarfirði, son- ur hjónanna Óddrúnar Jónsdótur og Magnúsar Guðjóns Magnússon- ar, bónda og sjómanns á Akranesi. Hann hóf bókbandsnám hjá hinum kunna bókbandsmeistara Ársæli Ámasyni árið 1920, tók sveinspróf 1925 og fékk meistararéttindi 1937. Hann sótti námskeið í Kaup- mannahöfn hjá Fagskolen for Bog- hándsværk. Starfaði hann hjá Prentsmiðjunni Acta hf. í Reykjavík á árunum 1924-’33. Árin 1933 til 1937 rak hann umboðs- og heild- verslunina S. Ámason & Co., sem hann ásamt tveim öðmm hafði stofnað árið 1933. Þetta fyrirtæki ferskt... ÞÓRSC/IFÉ tilbreyting ÞCRSC/JFÉ MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988 var sem sé stofnað á þeim tíma, sem ný fyrirtæki vom nærri því dæmd til að deyja í fæðingu, sökum þeirra innflutningshafta og kreppu- ástands, sem þá fór í hönd. Magn- úsi tókst þó ásamt félögum sínum að fleyta þessu fyrirtæki gegnum brim og boða þessa erfíðu tíma og skila því í henudr þeirra, sem þá tóku við því 1937, þannig að nú er þetta traust fyrirtæki eftir 55 ára tilveru. Kaupsýslan átti ekki allskostar vel við Magnús, svo að hann sneri sér alfarið að iðn sinni, bókbandinu. Hann varð verkstjóri í Félagsprent- smiðjunni frá 1937 til 1946. En þá fór hann til Svíþjóðar og starfaði um skeið hjá Nordisk Bokhandelns Bokbinderi í Stokkhólmi. Er hann kom heim frá Svíþjóð hóf hann störf hjá Prentsmiðjunni Eddu. Þar var hann verkstjóri árin 1948 til 1960. Síðustu ár ævinnar rak hann svo eigið bókbandsverkstæði. Magnús var talinn vera einn færasti bókbandsmeistari hér á landi, enda listfengur mjög, auk þess smekkvís og vandvirkur og lip- ur í öllum viðskiptum. Hann var vinsæll meðal samstarfsfólks síns, ekki síst þeirra, sem unnu undir hans stjóm, enda skilningsríkur og prúðmenni mikið. Magnús var greindur vel og víðlesinn. Hann var söngvinn og lék um eitt skeið á trompet og túbu í Lúðrasveit Reykjavíkur og sat í stjóm Lúðrasveitarinnar frá 1935 til 1942. Síðar var hann gerður að heiðursfélaga hennar. Magnús var alla tíð trúfastur meðlimur KFUM og var einn af þeim, sem stofnuðu Skógarmanna- flokkinn 1929 og sat um skeið í stjóm Skógarmanna, og var gjald- keri flokksins fyrstu þijú árin. Magnús gegndi ennfremur ýmsum störfum fyrir Bókbindarafélag ís- lands. Af öllu þessu má ráða, að þótt hann væri yfírlætislaus og virt- ist fremur hlédrægur maður, hefur hann síst af öllu setið auðum hönd- um um ævina, enda eftirsóttur, vegna sinna margvíslegu hæfíleika og mannkosta. Árið 1945 kvæntist Magnús Sigríði Friðfínnsdóttur, trésmiðs og hreppstjóra á Blönduósi. Þau skildu. Dætur þeirra eru tvær: Þómnn, gift Jóhanni bónda á Auðólfsstöð- um, Húnavatnssýslu, og eiga þau þijú böm, Hrafnkel, Þorstein og Brynhildi. Ásdís er meinatæknir á Borgarspítalanum. Hennar sonur heitir Nökkvi. Við ■ Gídeonfélagar stöndum í mikilli þakkarskuld við Magnús og munum ætíð minnast hve ötull og virkur hann ávallt var í þágu Gíde- onfélagsins. Þegar Gídeonfélagið hóf að dreifa Biblíum og Nýja- testamentum hér á landi, þurfti að líma inn í hvert eintak leiðbeining- arformála. Þetta vandasama verk tók Magnús að sér endurgjalds- laust, og var þá ekki orðinn Gídeon- félagi, sem hann síðar varð. Að vísu fékk hann til liðs við sig ýmsa lag- henta velunnara félagsins, sem einnig unnu að þessu endurgjalds- laust. Þegar svo Magnús síðar gerð- ist Gídeonfélagi sótti hann fundi félagsins reglulega og uppbyggðist þar í því blessaða orði Guðs, sem hann svo ötullega hafði unnið að til dreifíngar hinni íslensku þjóð til ævarandi blessunar, enda trúði hann því að „Guðs Orð, sem er beittara hveiju tvíeggjuðu sverði," eins og ritað er í Hebreabréfínu, það orð, eins og stendur hjá Jes. 55,11, „hverfur ekki við svo búið til mín, segir Drottinn, fyrr en það hefur komið því til vegar, sem ég fól því að framkvæma." Segja má að Magnús hafí unnið ómetanlegt verk, sem fólgið var í því að stuðla þannig að dreifíngu á annað hundrað þúsund eintökum af Heilagri ritningu meðal íslensku þjóðarinnar. Reyndar hefur nú að undanfömu formálinn fengist inn- bundinn með bókunum. Magnús hafði um hálfrar aldar skeið átt heima í Skólavörðuholtinu, þ.e. Freyjugötunni í nálægð Lista- safns Einars Jónssonar og sjálfsagt notið þess að vera svo nærri því merka listasafni, því Magnús var drátthagur, þótt hann hefði ekki lagt stund á þá list. Þama var og hin fagra og mikilfenglega Hall- grímskirkja, sem verið hafði hans sókriarkirkja frá því hún var tekin í notkun og þar sótti hann að jafn- aði messu. Nu var Magnús nýlega fluttur á Dalbraut, að því er virtist í litla vinalega íbúð. En þessi vistaskipti, ______________________________41 eftir öll þessi ár, urðu honum samt fremur til ama en unaðar og hefur hnignandi heilsa hans að líkindum átt sinn þátt í því. Eins og að framan greinir var Magnús mjög félagslyndur og naut þess að vera á meðal vina og kunn- ingja, einkum í KFUM og Gídeonfé- laginu. Þegar síðasti fundur Gíde- onfélagsins á liðnu starfsári var haldinn sl. vor, þráði hann að vera á þeim fundi, þrátt fyrir dvínandi krafta og varð það að samkomu- lagi, að ég ásamt öðmm bróður tæki hann með í bíl mínum. Þegar fór að líða á fundinn leið yfír Magn- ús. Þegar hann hafði jafnað sig nokkuð óskaði hann að farið yrði með sig heim frekar en á sjúkra- hús. En daginn eftir varð að flytja hann á sjúkrahús, þaðan sem hann átti ekki afturkvæmt. Nú hefur hann, ef að líkum læt- ur, hlotið þau vistaskipti, þá arf- leifð, sem samarfar Krists eiga í vændum, að fá „að ganga inn til fagnaðar herra síns“ fyrir trúna á Hann, sem sagði um sjálfan sig: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi.“ Jóh. 11,25. Við sem áttum Magnús að vini og áttum trúarsamfélag við hann blessum minningu hans og biðjum ástvinum hans allrar blessunar og huggunar Guðs. Með kærri kveðju og þakklæti frá Gídeonbræðrum, félagsdeild I í Reykjavík. Þorkell G. Sigurbjörnsson TEYGJUR OG ÞREK 22. ÁGÚST 3 vikna námskeið í teygjum og þreki hefjast 22. ágúst n.k. Þá verða sérstakir tíma fyrir 16 ára og eldri, byrjunar og framhalds hópa. 30 ára og eldri, byrjunar og framhalds hópa. 40 ára og eldrl, byrjunar og framhalds hópa. Kennari verður Bjargey Aðalsteinsdóttir Vertu í góðu formi tímanlega. FLOTT FORM 7 bekkja œfingakerfið slœr f gegn. Hringið og pantið tíma í sfma 680677 ; V ^ V SÓLEYJAIÍ Engjateigi 1, símar 687701 og 687801 VEGG JATENNIS Þann 22. ágúst n.k. opnum við fyrir Veggjatennis, enn eru lausir tíma í petta skemmtilega sport sem allir geta spilað.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.