Morgunblaðið - 17.08.1988, Qupperneq 45
45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988
Laugardalsvöllur
fimmtudaginn 18. ágúst kl. 18.30
ISLAND - SVIÞJOD
Bíll brennur við Sauðárkrók:
Til sölu
Volvo 240 GL, árgerð 1987,
blár að lit, ekinn 6 þús. km. Er til sýnis og sölu á
Bílasölunni Skeifunni, Skeifunni 11.
Forsala aögöngumiða frá kl. 12.00 á leikdag á Laugardalsvelli.
Leikur Islendinga og Búlgara var bráðskemmtilegur. Hvernig
gengur íslenska landsliðinu gegn hinu firna sterka sænska
Bjarni, Guðmundur, Atli, Ólafur, Þorsteinn, Sævar, Viðar, Gunnar,
Halldór, Þorvaldur, Ómar, PéturO., Pétur A.,
Ragnar, Guðni, Arnljótur.
Hornaflokkur Kópavogs
leikurfrá kl. 18.00undir
stjórn Björns Guðjónssonar.
m
Dómari: W.N.M. Crombie.
Línuverðir: Sveinn Sveinsson
og Magnús Jónatansson.
Aðgöngumiðaverð:
Stúka 600 kr.
Stæði 400 kr.
Börn 150 kr.
KNATTSPYRNUSAMBAND ISLANDS'
m -' vu> i vm" n
Hrapallega tókst til við slökkvistarf
TORFUFELLI 34
MylluKobbí
rOBLAG
111 REYKJAVÍK - S: 72020
i
Sauðárkróki.
BILL brann til kaidra kola á
veginum að Golfvelli Sauðár-
króks rétt eftir hádegi sunnu-
daginn 14. ágúst. Vegfarandi
sem leið átti um og lögreglu-
þjónn, sem kallaður var til,
reyndu að slökkva eldinn með
slökkvitækjum sem í bílum
þeirra voru og náðu þeir að hefta
útbreiðslu eldsins, en vegna þess
hve langt leið þar til slökkviliðið
kom á vettvang blossaði eldurinn
upp aftur og brann billinn til
kaldra kola.
Rétt eftir hádegi, eða kl. 13.15,
var lögreglan kölluð að gatnamót-
um ofan Kirkjuklaufar, vegna bíls
sem kviknað hafði í. Þegar lögregl-
an kom á staðinn hafði vegfarandi
sem leið átti um tæmt bílaslökkvi-
tæki sitt á eldinn sem laus var í
mælaborði bílsins. Einnig var notað
það slökkvitæki sem var í lög-
reglubílnum og virtist þá sem náðst
hefði að hefta útbreiðslu eldsins eða
jafnvel slökkva hann.
Jafnframt því sem lögregla var
kvödd til, var reynt að ná til vakt-
hafandi slökkviliðsmanns, en við
hann náðist ekki samband og kom
í ljós síðar að sími hans var bilaður.
Þar sem slökkviliðið kom ekki
þegar á vettvang, blossaði eldurinn
í bílnum upp aftur og var orðinn
mjög mikill þegar tækjabíll slökkvi-
liðsins kom loks kl. 13.55. Réðst
þá ekki við eldinn, enda virtist þessi
bíll slökkviliðsins illa útbúinn og
duft og froðutæki hans tóm.
Annar bíll frá slökkviliðinu kom
svo á vettvang kl. 14.10 en þá var
bíllinn nánast brunninn til ösku.
Segja má að allt þetta atvik hafi
verið hið hrapallegasta, þar sem
ekki náðist í þann mann sem vakt
átti á slökkvistöð í tæka tíð og síðan
að sá bíll sem fyrst kom á staðinn
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Reynt var að ráða niðurlögum elds sem kviknaði í bíl nálægt Sauðár-
króki en það tókst ekki og brann billinn til kaldra kola.
var ekki á neinn hátt búinn til átaka
við þann eld sem þama var.
Að sögn Sveinbjörns Ragnars-
sonar lögregluþjóns má telja mikla
mildi að engin slys urðu á fólki við
atburð þennan, þar sem gífurleg
sprengihætta skapaðist, en umrædd
gatnamót eru fjölfarin, sérstaklega
þennan dag, en um þau liggur leið
að golfvelli Sauðárkróks, þar sem
fram fór opna Volvo/Esso-mótið á
vegum Golfklúbbs Sauðárkróks, og
einnig liggur um gatnamótin leið
að þremur knattspyrnuvöllum, þar
sem yfir stóð „pollamót" knatt-
spyrnudeildar Tindastóls, en þar
voru að keppa mörg lið og var þar
fjöldi áhorfenda. - BB
I tilefni tímamóta
Bókin Siglufjörður.
640 blaðsíður
340 Ijósmyndir
og nafnaskrá.
Sölustaðir:
Reykjavík: Allar helstu bókavetslanir
Akureyri: Allar helstu bókaverslanir
Slglufjörður: Aðalbúðin, bókav. Hannesar
Bókapantanir i síma 96-71301.
Útsala-Útsala
20-50% afsláttur
Glugginn,
Laugavegi40,
Kúnsthúsinu.