Morgunblaðið - 17.08.1988, Side 51

Morgunblaðið - 17.08.1988, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988 51 - Söfnum gulli í Seðlabankahúsið Adamson var fræg teiknimynda- persóna í gamla vikublaðinu Fálk- anum. Ein skrýtlan er mér enn minnisstæð, þótt kominn sé um fimmtugt. Þar sýnir höfundurinn Adamson vera að jafna fætur undir stól. Adamson bytjar að saga undan einum fætinum, en sagar of mikið svo stóllinn verður haltari en áður. Nú, hann sagar þá undan hinum þrem til að bjarga málinu. Nú þarf ekki að orðlengja það meira, þegar upp er staðið, þá er aumingja karl- inn búinn að jafna svo rækilega um stólinn, að engir fætur sjást lengur. Á síðustu árum, þegar stjórnvöld hafa verið að gera svo kallaðar efnahagsráðstafanir, hefur mér stundum dottið þessi gamla skrýtla, sem höfundur kallaði: „Adamson dittar sjálfur að ýmsu smávegis“, í hug. Það á að bjarga þjóðarskút- unni með gengisfellingu. Nú þá er Lofsvert framtak í Hafnarfirði Velvakandi! Þegar læknar handlæknisdeildar St. Jósefsspítala í Hafnarfirði fara í sumarleyfi, er ekki slegið fyrir slagbröndum, heldur hafist handa og stofnað nýtt heimili til orlofs- dvalar fyrir aldrað og lasburða fólk, sem dvelur í heimahúsum. Tvær ágætar konur, Gunnhildur Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri spítalans og Guðrún Emilsdóttir hjúkrunarkona í Hafnarfirði báru gæfu til að sameinast um þessa ágætu hugmynd og hrinda henni í framkvæmd, auðvitað með sam- þykki húsráðenda spítalans. Starf- andi læknar lyfjadeildar spítalans láta sig ekki muna um að bæta því við sig, að fylgjast með heilsufari fólksins á heimilinu og sinna þörf- um hvers og eins, eftir því sem hægt er. Þetta mun vera áttunda sumarið, sem orlofsheimilið hefur verið starf- rækt, en í fyrsta sinn, sem ég undir- rituð nýt þess að dveljast þarna í þrjár vikur. Allur aðbúnaður fannst mér með ágætum. Starfsfólkið allt glaðlegt og með útréttar hendur til að hjálpa þeim, sem þess þurftu. Í sólskini og sumarblíðu var fólkið flutt út í gróðurlund að baki húss- ins, þar sem boðið var upp á grillað- an mat og í annað sinn kaffi. Hin ágæta Gunnhildur hjúkrunarfor- stjóri sá um starfsemi heimilisins og vann þarna mikið starf. Með þessum fáu línum vil ég tjá þakklæti mitt fyrir dvölina og óska þeim blessunar í framtíðinni með þetta lofsverða framtak. Soffá Sigurðardóttir . Skúlaskeiði 2, Hafnarfirði. sagað smávegis af gömlu, aumu krónunni okkar til þess að rétta við atvinnuvegina, en nota bene, þá hallast allt á hitt borðið og er ver af stað farið en heima setið. Þessi leikur með krónuna okkar hefur farið fram í marga áratugi. Stjórnmálamenn! Er nú ekki mál að þessari skemmdarstarfsemi gagnvart íslensku krónunni linni og við hefjum hana aftur til vegs og virðingar. í allri velmegunarvím- unni höfum við byggt okkar „Fort Knox“, eins og Bandaríkjamenn. Okkur vantar aðeins gullstengurnar í Seðlabankahúsið. Það á nú að vera verkefni næstu 10 ára að safna gulli, svo þetta stóra virki, Seðla- bankahúsið, komi að góðum notum og við getum staðið á eigin fótum. íslandi allt! Axel Sigurbjörnsson Þessir hringdu . . . Hjálpsömum stúlkum þakkað Kona hringdi: „Á fimmtudaginn í síðustu viku var ég að koma úr fatahreinsun og gekk upp Hofsvallagötuna. Þegar ég var komin að gatnamót- um Einimels og Hofsvallagötu datt ég og skarst í andliti. Þar sem ég lá þarna hjálparlaus komu til mín tvær bláókunnugar stúlk- ur. Þær höfðu verið hinumegin götunnar en komu yfir þegar þær sáu mig detta og keyrðu mig heim. Mig langar til að þakka þeim kærlega fyrir aðstoðina.“ Mengunin fælir burt fugl- ana Sigríður Kristjánsdóttir hringdi: „Eg vil mótmæla þessum kon- um, sem hafa hringt í Velvakanda að undanförnu til að kvarta undan fjölda katta í borginni. Ég vil biðja þær að hugleiða, hvort aðrir þætt- ir geti ekki valdið því, að spörfugl- um hefur fækkað. Til dæmis er orðið mjög mikið af ökutækjum hérna og fuglarnir þola illa meng- un frá bílum. En fyrst og fremst vil ég biðja þessar konur að hætta að veitast að dýrunum." Blaðrið í Steingrími mesti ef nahagsvandinn Kjósandi hringdi: „Það er hárrétt hjá Matthíasi Á. Mathiesen að yfirlýsingagleði Steingríms Hermannssonar er orðin mikið vandamál, eins og nýjasta árás hans á forsætisráð- herra sannar. Reyndar hafði nú Ólafur Ragnar Grímsson orð á því sama fyrir nokkrum árum, þegar Steingrímur var sjávarútvegsráð- herra og Ólafur formaður þing- flokks eins stuðningsflokka stjórnarinnar. Þá sagði Ólafur að mesti efnahagsvandi íslendinga væri blaðrið í Steingrími.“ Veski týndist í miðbænum Dökkblátt seðlaveski, merkt Sparisjóði Hafnarfjarðar, týndist í miðbæ Reykjavíkur um mið- nætti föstudaginn 12. ágúst. í veskinu eru meðal annars skilríki. Finnandi hringi í síma 51104. Grá barnaúlpa fannst á Laugarvatni Nýleg grá bamaúlpa fannst á tjaldstæðinu á Laugarvatni eftir verslunarmannahelgina. Úlpan er af stærðinni 130, græn að innan og að því er virðist merkt Mar- teini. Upplýsingar í síma 42065. Há gjöld á heyrnartækjum Kona hringdi: „Ég vil taka undir með konu, sem skrifaði Velvakanda um dag- inn vegna hárra gjalda á heyrnar- tækjum. Ég þurfti nýlega að kaupa mér heyrnartæki sem kost- uðu 16.000 kr. Áður en undan- þágan frá söluskatti var afnumin kostuðu sams konar tæki 12.000 kr. Það munar um minna en þess- ar 4.000 kr., einkum í ljósi þess að fólkið sem þarf á þeim að halda getur yfirleitt ekki stundað fulla vinnu.“ Sóðaskapur á Miklatúni íbúi í nágrenninu hringdi: „Á Miklatúni er bamaleikvöll- ur, sem ekki hefur verið sinnt ámm saman. Þar hefur allt verið í órækt lengi, en nú í sumar keyr- ir þó alveg um þverbak. Ég skora á ráðamenn að fara inn fyrir girð- inguna þarna og skoða hvernig þarna er umhorfs." Síamslæða týndist á sunnudag Ómerkt síamslæða týndist sunnudaginn 14. ágúst frá Goð- heimum 2. Sá sem getur gefið upplýsingar um ferðir hennar er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 689561 á morgnana eða kvöldin. STÓRKOSTLEG NÝJUNG fyrir eigendur örbylgjuofna í töfrapottinum geturðu steikt iæri, svínakjöt og kjúkling og fengið fallega brúningaráferð á kjötið. Tvær stærðir. Passa í flesta ofna. Kynningarverð kr. 1.530,- og 1.960,-. íslenskar leiðbeiningarfylgja. Sendum í póstkröfu. Einar Farestveit&Co.hf. BORGARTÚN 28, SÍMAR: (81) 16995 OG 622900 - NÆO BÍLASTÆOI ÁTT ÞÚ HLUTABRÉF? Hlutafélag Kaup- gengi Sölu- gengi Alrúennar Tryggingar hf. 1.09 1,15 Eimskipafélag íslands hf. 2,66 2,80 Flugleiðir hf. 2,30 2,42 Hampiðjan hf. 1,10 1.16 Hlutabréfasjóðurinn hf. 1.18 1,24 Iðnaðarbankinn hf. 1,61 1,69 Verzlunarbankinn hf. 1,19 1,25 Útvegsbankinn hf. 1,19 1,25 Skagstrendingur hf. 1,50 1,58 Tollvörugeymslan hf. 0,95 1,00 Veistu hvers virði þau eru? Taflan að ofan birtistannan hvern íimmtudagíviðskiptablaði Morgunblaðsins og sýnir gengi þeirra hlutabréfa sem HMARK kaupir og selur gegn staðgreiðslu. Ef þú átt hiutabréf geturðu margfaldað nafnvirðið með kaupgengi þeirra í auglýsingu HMARKs og útkoman er það verð se'm HMARK greiðir þér fyrir bréfin. & ♦ Verzlunarbanki íslands hf. Ef þú átt hlutabrát í Verzlunabankanum að nafnvirði 100.000 kr.: Kaupgengið er 1,19 og MMARK greiöir þér því 119.000 kr. fyrir þau. Kaupgengið er 2,30 og HMARK greiðir þér því 230.000 kr. fyrir þau. Verið velkomin í HMARK, Skólavörðustig 12, og \flB, Ármúla 7, til að kaupa og selja hlutabréf. FLUGLEIÐIR Ef þú átt hlutabréf í Flugleiðum að natnvirði 100 nnn kr - Hlutabréfamarkaóurinn hl. Skólavördusfíg 12, 3.h. Keykjavík. Sími 21677 VIB VERÐBREFAMARKADUR IÐNAÐARBANKANS HF. Armula 7. 108 Reykjavik. Simi68 15 30 Vestur-þýskir vörulyftarar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.