Morgunblaðið - 26.08.1988, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988
Yfirmenn Vegagerðarinnar, sveitarstjórnarmenn á Vopnafirði, þingmenn Austurlands og formaður
Sambands sveitarfélaga á Austurlandi eftir gönguna yfir Hellisheiði.
Aðalfundur Sambands sveit-
arfélaga á Austurlandi
Tveir valkostir um útfærslu á gjaldheimtu
Seyðisfirði.
AÐALFUNDUR Sambands sveit-
arfélaga á Austurlandi verður
haldinn í Neskaupstað föstudag
og laugardag. Búist er við að
innheimta sveitarsjóðsgjalda
verði sá málaflokkur sem mestur
tími umræðna fari i á þessum
aðalfundi sambandsins. Gjald-
heimtunefnd SSA hefur fjallað
um framtíðarskipan þessara
mála á Austurlandi undanfarna
mánuði og leggur til að stofnuð
verði ein gjaldheimta á Austur-
landi er taki við allri innheimtu
opinberra gjalda. Ekki náðist
samstaða í nefndinni um eina
ákveðna útfærslu á því og mun
hún leggja fram tillögu um tvo
valkosti sem valið verður á milli
á fundinum. Auk þess verður
fjallað um verkaskiptingu ríkis
og sveitarfélaga, þátt sam-
gangna i byggðaþróun, tekju-
stofna sveitarfélaganna, þátt
löggjafarvaldsins i byggðamál-
um, héraðsnefndir og fleiri mál.
Þegar lögin um staðgreiðslu
skatta tóku gildi um síðustu áramót
færðist innheimta útsvars frá sveit-
arfélögunum til ríkisins en inn-
heimta fasteigna- og aðstöðugjalda
varð eftir hjá sveitarfélögunum.
Þetta telja sveitarstjórnarmenn á
Austurlandi ójafna skiptingu, auð-
veldasta innheimtan sé komin til
innheimtumanna ríkisins gegn of
háu gjaldi miðað við fyrirhöfn en
eftir stendur sú innheimta sem þarf
að hafa töluverða fyrirhöfn fyrir.
Skattkerfisbreytingin hafi því ekki
haft í för með sér kostnaðarlækkun
fyrir sveitarfélögin, frekar að inn-
heimtukostnaður hafi aukist.
Gjaldheimtunefnd SSA telur
þetta ástand óviðunandi og telur
því að leggja beri allt kapp á að
ná samstöðu um sameiginlega inn-
heimtu allra opinberra gjalda er
komi til framkvæmda 1. janúar
1989. Til að það náist verða öll
sveitarfélög á Austurlandi að sam-
þykkja þetta fyrir 30. september
næstkomandi, því fyrir Iiggur að
fjármálaráðuneytið muni ekki ger-
ast aðili að sameiginlegri gjald- -
heimtu nema með þátttöku allra
sveitarfélaganna. Gjaldheimtu-
nefndin hefur lagt til við sveitarfé-
lögin að þau samþykki að lúta vilja
meirihluta fulltrúa á aðalfundi SSA.
Þeir tveir valkostir sem nefndin
leggur til að afstaða verði tekin til
eru annarsvegar sá að stofnuð verði
gjaldheimta með eigin starfsliði og
að hún sé staðsett miðsvæðis á
Austurlandi með útstöð á Höfn.
Hinsvegar sá að stofna gjaldheimtu
og fela núverandi innheimtumönn-
um ríkissjóðs verkefnið til 31. jan-
Morgunblaðið/Garðar Rúnar
Einar Þorvardarson umdæmisverkfræðingur Vegagerðarinnar á
Austurlandi sýnir samgönguráðherra og fylgdarmönnum hans kort
af fyrirhuguðu vegarstæði uppi á Hellisheiði.
úar 1991 og í ljósi þeirrar reynslu
sem fæst á þessu tímabili taki sveit-
arfélögin afstöðu til breytinga á
innheimtuformi fyrir 15. september
1991. Samstaða náðist í nefndinni
um greinargerð þar sem dregnir eru
fram kostir og gallar hvorrar út-
færslu fyrir sig og verður þessi
greinargerð lögð fram á fundinum.
Samgöngumál verða væntanlega
einnig ofarlega í hugum manna á
þessum fundi. Björn Jóhann Björns-
son jarð- og verkefnafræðingur
mun leggja fram frumniðurstöður
af rannsóknum vegna hugsánlegra
jarðganga á Austurlandi, sem hann
hefur unnið að í' sumar fyrir Sam-
band sveitarfélaga á Austurlandi,
Seyðisíjarðarbæ og Neskaupstað.
Einnig búast menn við umræðum
. um lausn á betri samgöngum við
Vopnafjörð. Um það hefur SSA
ályktað áður og telur nauðsynlegt
að finna lausn á því. Ekki er endan-
lega búið að ákveða hvaða leið þar
verður farin.
Hugmyndir hafa verið uppi um
að gera nýjan veg frá Héraði yfir
Hellisheiði og fyrir Búr til Vopna-
§arðar. Vegagerðin hefur unnið að
rannsóknum þar í sumar. Nú nýver-
ið fóru yfirmenn hennar, sveitar-
stjómarmenn á Vopnafirði, formað-
ur Sambands sveitarfélaga á Aust-
urlandi og þingmenn kjördæmisins,
og gengu þar yfir til að skoða hugs-
anlegt vegastæði. Matthías Á.
Mathiesen samgönguráðherra fór
einnig upp á Hellisheiði með Einari
Þorvarðarsyni, umdæmisverkfræð-
ingi Vegagerðarinnar, þegar hann
var á ferð um Austurland nýlega
og skoðaði þetta vegarstæði. Sam-
kvæmt útreikningum Vegagerðar-
innar mun þessi vegaframkvæmd
kosta nálægt þijú hundruð milljón-
Vegagerðarmenn hafa líka kann-
að möguleika á nýjum vegi inn úr
Vopnafirði upp Vopnafjarðarheiði
og austanmegin við Möðrudalsfjall-
garð við Þrívörðuháls niður á Jök-
uldal. Þetta mun vera styttri leið
til Egilsstaða en núverandi vegur
um Möðrudalsöræfi, sá vegur
mundi einnig tengjast veginum
norður til Akureyrar. Einnig hafa
menn rætt jarðgöng frá Héraði til
Vopnafjarðar sem framtíðarlausn.
Lögð verður fram skýrsla um þess-
ar rannsóknir Vegagerðarinnar á
aðalfundinum.
- Garðar Rúnar
Blómabúð
Til sölu er lítil en mjög smekkleg og falleg blóma- og
gjafavörubúð í þéttbýlu hverfi. Öll aðstaða eins og best
verður á kosið. Notalegt einkafyrirtæki fyrir smekklega
og græna fingur.
Upplýsingar aðeins veittar á skrifstofunni.
Fyrirtækjasalan,
Suðurveri, sími 82040.
Úreldingarsjóður-
inn er lögleysa
- segir Egill Jónsson, alþingismaður
„ÞAÐ er grundvallarmisskilningur ef menn ætla sér að veija stofn-
un þessa svokallaða úreldingarsjóðs sláturhúsanna á búvörulögun-
um, þar sem ekkert lagaákvæði heimilar stofnun slíks sjóðs og
hægt væri að grundvalla reglugerð á. Hér er þvi um hreina lög-
leysu að ræða, og ég vara ipjög alvarlega við því ef ætlunin er
að framfylgja búvörulögunum með tilskipunum frá landbúnaðar-
ráðuneytinu. Ef stofna á úreldingarsjóð af þessu tagi, þá verður
að setja um það sérstök lög,“ sagði Egill Jónsson alþingismaður,
þegar Morgunblaðið leitaði álits hans á reglum landbúnaðarráðu-
neytisins um framlög til úreldingar sláturhúsa, en hann var einn
af höfundum búvörulaganna sem tóku gildi árið 1985.
„Það var aldrei einu orði minnst öðrum sviðum í landbúnaðinum upp
á sjóðsstofnun af þessu tagi í
tengslum við búvörulögin, hvorki í
því nefndarstarfi sem ég tók þátt
í né heldur við meðferð málsins á
Alþingi. Mikilvægt atriði í þessu
sambandi er að með breyttri lög-
gjöf varðandi þessi mál var tekin
ákvörðun um breytt skipulag á
starfsemi sláturhúsanna í landinu.
Samkvæmt gömlu Framleiðslu-
ráðslögunum var starfsemi slátur-
húsa háð samþykki Framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins, en samkvæmt
búvörulögunum er starfsemi slát-
urhúsa að þessu leyti ekki bundin
neinum skilyrðum. Hver sem er
hefur því leyfí til að reisa og reka
sláturhús hafi hann til þess tilskilin
heilbrigðisvottorð. Þannig hefur
löggjafínn afnumið öll afskipti
landbúnaðarráðuneytisins hvað
þessi mál varðar."
Varðandi þær reglur sem settar
hafa verið af landbúnaðarráðuneyt-
inu um framlög vegna úreldingar
sláturhúsa sagðist Egill vera
andvígur þeim þó ekki væri nema
vegna þess eins að þær stríddu
gegn anda búvörulaganna.
„Mér þykir í þessu sambandi
vera stefnt í óefni eins og á ýmsum
á síðkastið, og má í því sambandi
nefna, að vegna aðgerðaleysis
varðandi nýju búgreinamar okkar
þá standa þær nú mjög höllum
fæti. Mér sýnist að með því að
leggja niður starfsemi minni slátur-
leyfishafanna eigi að fara ganga
undir ákveðnum sláturleyfíshöfum,
sem meðal annars eru búnir að fjár-
festa óhóflega mikið, en það er
einmitt mjög nauðsynlegt að
smærri sem stærri sláturhús hafí
bærilegan rétt og aðstöðu til starf-
semi í landinu. Eg óttast það kerfí
sem hér er verið að koma á, þar
sem verið er að fá þessi verkefni
fáum og stórum aðilum í hendur.
Við höfum vonda reynslu af ýmsum
þessara aðila, sem meðal annars
kom í ljós á síðastliðnum vetri þeg-
ar þeir sameinuðust um að bijóta
búvörulögin með því að standa
ekki skil á greiðslum til bænda eins
og lögin segja fyrir um. Ég óttast
það sannarlega ef aðilum sem vinna
á þeónan hátt verður veitt sérstök
forréttindi í þessum efnum, og ég
tala nú ekki um þegar aðgerðir
stjómvalda til þess að koma þeim
á byggjast á lögbrotum," sagði
Egill Jónsson, alþingismaður.
Úrelding sláturhúsa:
Mótfallnir aðgerðum sem
leiða til hækkunar kjötverðs
— segir form. Landssamtaka sauðfjárbænda
„ÉG TEL að sauðfjárbændur séu
ekki á móti úreldingu slátur-
húsanna sem slíkri, en við erum
mjög andsnúnir þessum aðgerð-
um ef þær leiða til þeirrar hækk-
unar á kindakjöti sem allt bend-
ir til að verði,“ segir Jóhannes
Kristjánsson, formaður Lands-
samtaka sauðfjárbænda.
„Þegar talað er um tæplega
tveggja króna hækkun á hvert kíló
kjöts, þá er það mín skoðun að þar
sé um að ræða flotkrónur, því eng-
inn veit í dag hver hin raunveru-
lega hækkun verður, þar sem í
þeim reglum sem fylgt er varðandi
úreldinguna kemur skýrt fram að
hækkunin verður nánast eftir þörf-
um. Þetta er þess vegna allt í lausu
lofti ennþá,“ sagði Jóhannes.
Varðandi þær yfírlýsingar land-
búnaðarráðuneytisins, að fækkun
sláturhúsa í landinu leiði til lækk-
unar sláturkostnaðar þegar fram í
sækir, sagði Jóhannés að hann
komi ekki auga á neitt sem bendi
til þess að hagkvæmara sé að slátra
í fáum stórum sláturhúsum frekar
en mörgum litlum.
„Það er ennfremur einn þáttur
sem oft gleymist í umræðunni um
fækkun sláturhúsanna, en það er
að oft starfar mikið betur þjálfað
fólk í minni sláturhúsunum, sem
oft á tíðum eru bændur sem hafa
margra ára reynslu við þessi störf.
Ég tel að þeir hljóti að vera betur
til þess fallnir heldur en þegar allt-
af er að koma inn nýtt fólk í þessi
störf.“
Átta sláturleyfishafar hafa nú
ákveðið að taka tilboði landbúnað-
arráðuneytisins um framlag vegna
úreldingar sláturhúsa á þessu ári.
Þau hús sem um ræðir eru Slátur-
hús Amfírðinga á Bíldudal, Slátur-
hús Kaupfélags Grundfírðinga á
Grundarfírði, Sláturhús Kaupfé-
lagsins Fram á Neskaupstað, Slát-
urhús Kaupfélags Suðumesja í
Grindavík, Sláturhús Verslunarfé-
lags Austurlands í Fellabæ, Slátur-
hús Kaupfélags Austur-Skaftfell-
inga á Djúpavogi, Sláturhúsið á
Flateyri og Sláturhúsið Vík, Vík í
Mýrdal. Þá hefur verið óskað eftir
úreldingu íjögurra sláturhúsa á
næsta ári, en þar er um að ræða
Sláturhús SS, Laugarási í Biskups-
tungum, Sláturhúsið Fagurhól-
smýri, Sláturhús KEA á Dalvík og
Sláturhús SS við Laxárbrú í Leirár-
sveit.
Sælgætisverslun
Til sölu er mjög sérstæð og góð sælgætisverslun i
hjarta borgarinnar. Dagsala. Þægilegur vinnutími. Góð
greiðslukjör.
Upplýsingar aðeins veittar á skrifstofunni.
Fyrirtækjasalan,
Suðurveri, sími 82040.