Morgunblaðið - 26.08.1988, Side 15
mér tunga um tönn. Orð bresta,
verða fátækleg og aum, þegar fjalla
á um þennan stórbrotna höfðingja í
skugga þess harms, sem ótímabært
fráfall hans veldur.
Ég og flölskylda mín vottum fjöl-
skyldu Vilhjálms Ingvarssonar ein-
læga samúð og hluttekningu.
Kjartan Örn Kjartansson
Vilhjálmur Ingvarsson, góður
drengur og frábær vinur, er genginn
langt um aldur fram. Er mikil eftir-
sjá að honum, vinum hans, sam-
starfsmönnum og þá ekki síst fjöl-
skyldu hans, en einnig íslensku þjóð-
félagi því við erum svo fá. Hæfíleika-
menn á við Vilhjálm er því sárt að
missa á besta aldri.
Vilhjálmur fetaði í fótspor föður
síns, Ingvars Vilhjálmssonar, hins
mikilhæfa athafnamanns, og haslaði
sér völl á sviði útgerðar og físk-
vinnslu. Gegndi hann margvíslegum
og mikilvægum störfum í þeirri
grein. Einnig var hann virkur í hags-
munasamtökum útgerðar og við-
skipta og lagði sitt af mörkum á
þeim vettvangi.
Vilhjálmur var skarpgreindur og
hafði mjög ákveðnar skoðanir á þjóð-
málum, átti afar auðvelt með að
greina aðalatriði frá aukaatriðum —
kjamann frá hisminu. Hann gjör-
þekkti til aðstæðna f þeirri grein at-
vinnurekstrar sem hann helgaði líf
sitt og var frábær fræðandi í þeim
efnum þeim sem minna þekktu til
mála þar.
í allri umgengni var Vilhjálmur
einstaklega elskulegur og viðfeldinn.
Hann var og hispurslaus og laus við
allan hégóma. Vinum sínum var hann
traustur og góður félagi. Þá hafði
Vilhjálmur til að bera gott skopskyn,
átti auðvelt með að sjá hið skoplega
í lífinu og gerði óspart grín að hé-
góma og tildri meðborgaranna þegar
það átti við.
Vilhjálms er sárt saknað sem vini,
félaga og fræðanda. En sárastur er
harmur Önnu konu hans og bama
þeirra hjóna svo og annarra meðlima
fjölskyldunnar. Vottast þeim einlæg
samúð.
Sigurður Helgason
Athafnamaðurinn Vilhjálmur
Ingvarsson er allur, mitt í blóma
lífsins. Áleitnar hugsanir um lífíð og
dauðann fara í gegnum hugann, og
gátan mikla um tilgang og almættið
verður ennþá torráðnari en fyrr.
Vilhjálmur féll frá aðeins 48 ára,
en þó hafði hann þegar áorkað og
komið í verk meim en títt er um
menn á hans aldri. Vilhjálmur var
sonur þeirra sæmdarhjóna Ingvars
Vilhjálmssonar útgerðarmanns og
konu hans, Áslaugar Jónsdóttur.
Úr foreldrahúsum fékk hann það
veganesti sem dugði til að lyfta
Grettistökum í íslensku atvinnulífi.
Leiðir okkar Vilhjálms, eða Villa
Ingvars, eins og hann oftast hét
hér, lágu fyrst saman þegar hann
kemur komungur maður 1961 aust-
ur á Seyðisfjörð til að byggja fyrir-
tæki, eigið fyrirtæki, síldarsöltunar-
stöðina Sunnuver.
Síldarævintýrið mikla var þá í
uppsiglingu, og margir af stærri spá-
mönnum þessa lands freistuðu gæf-
unnar á þessum vettvangi. Ekki
höfðu allir á Seyðisfirði trú á að
stráknum mundi takast ætlunarverk
sitt. Hann leigði land af kaupstaðn-
um sem ekkert var nema stórgrýtt
fjara og snarbrött hlíð Bjólfs, urð
og gijót-
A einu sumri reis söltunarstöðin
með bryggju, plani, salthúsi, íbúðar-
skála, sem var fínni en áður hafði
tíðkast, vatnsveitu og vegi.
Afí minn sem þá var bankastjóri,
og góðvinur Ingvars föður Vilhjálms,
sagði mér síðar, að hann hefði kom-
ið að máli við Ingvar hvort drengnum
væri alvara. Ingvar bað bankastjó-
rann að láta fullhugann unga í engu
njóta vinfengis þeirra í skiptum við
bankann. „Þar yrði hann að sitja við
sama borð og aðrir viðskiptavinir,
og sýna hvað hann dygði til.“ Söltun-
arstöðin Sunnuver varð ein allra
glæsilegasta og afkastamesta söltun-
arstöð á landinu.
Árið 1963 stofnaði Vilhjálmur
hlutafélagið Hafsíld um byggingu
síldarbræðslu. Hér var heldur ekkert
hálfkák. Land var brotið og á einu
ári rís fullbúin, fullkomin síldarverk-
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988 15
smiðja, með 300 tonna afköstum á
sólarhring.
Afleiðingar af hruni síldarstofns-
ins urðu til þess að flestir sem áttu
eignir hér tengdar síld, seldu eða
hættu rekstri. Grundvöllur fyrir sölt-
unarstöð var engin, og síldarbræðsl-
an stóð án hráefnis.
Aldrei hvarflaði að Villa Ingvars
og gefast upp. Á þessum árum gekk
hann til liðs við Jón bróður sinn og
Ingvar föður sinn, sem rak ísbjöminn
í Reykjavík. Saman byggðu þeir
frystihúsið á Norðurgarði, glæsileg-
asta og fullkomnasta frystihús sem
byggt hefur verið.
Hafsíld var alltaf starfrækt, þrátt
fyrir mjög takmarkað hráefni.
Þegar loðnuveiðar hófust á átt-
unda áratugnum var verksmiðjan á
Seyðisfirði stækkuð og afköstin auk-
in um helming. Flestir þekkja þau
áföll sem útgerð og fískvinnsla hefur
orðið að þola undanfarinn áratug,
og leiddi m.a. til að útgerðarfyrir-
tæki í Reykjavík voru sameinuð, og
þeir ísbjamarfeðgar hættu rekstri á
Norðurgarði.
Hér var heldur enginn að gefast
upp. Hafsíld — loðnuverksmiðjan á
Seyðisfírði — var í fullum rekstri,
en auknar kröfur um mengunarvam-
ir og nýir kröfuharðir markaðir á
fiskimjöli kölluðu á endumýjun á
tækjum og búnaði.
Á síðastliðnum vetri ákvað Vil-
hjálmur að endurnýja vélakost í
Hafsfld, og ekki skyldi staðar numið
fyrr en verksmiðjan væri reyklaus,
og gæti framleitt fiskimjöl sem stæð-
ist ýtmstu kröfur kaupenda.
Nú er unnið að uppsetningu þess-
ara véla. Síðasta verk Vilhjálms var
ferð til Austurlanda ijær, til að vinna
nýja markaði fyrir íslenskt fiskimjöl.
Úr þeirri ferð kom hann helsjúkur
af þeim sjúkdómi, sem hann að lokum
varð að gefast upp fyrir.
Árið 1968 _giftist Vilhjálmur
frænku minni, Onnu Fríðu Ottós-
dóttur frá Seyðisfirði. Hér steig hann
sitt mesta gæfuspor í lífínu. Heimili
þeirra á Seltjamamesi einkennist af
smekkvísi, virðingu fyrir listum og
bókmenntum, glaðværð og gestrisni.
Heimili Villa og Önnu Fríðu stóð
ávallt opið vinum og þangað er gott
að koma.
Þau Anna og Villi áttu þijú mann-
vænleg böm, Ottó, háskólanema,
Valdísi, hárgreiðslunema, og Ingvar,
sem lýkur grunnskólaprófi að vori.
Það reynir mikið á ástvini við
slíkár aðstæður og erfitt verður að
sætta sig við orðinn hlut. Guð gefi
að minningamar og vissan um, að
dauðinn hafi líka tilgang, megi lina
sárasta söknuðinn.
Vilhjálmur Ingvarsson var dag-
farsprúður maður. Hann var ekki
mikið fyrir að láta á sér bera. Hans
„stfll" var að framkvæma og láta
gott af sér leiða. Hann var traustur
vinur og skemmtilegur félagi.
Við hjónin, og félagamir í Hafsíld,
syrgjum nú fallinn félaga og sendum
ástvinum hans okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Theodór Blöndal,
Seyðisfirði.
Það er með miklum trega að þessi
orð em skrifuð í minningu Vilhjálms
Ingvarssonar. Með honum er geng-
inn langt fyrir aldur fram einn sá
ágætasti maður sem ég hef kynnst.
Þau kynni hófust þegar ég sjö ára
gamall tók að venja komur minar í
föðurhús Vilhjálms sem leik- og
skólafélagi Jóns yngri bróður hans.
Á Hagamel 4 var gott að koma.
Hjartahlýrra og elskulegra fólk en
þau hjónin Áslaugu Jónsdóttur og
Ingvar Vilhjálpsson er ekki hægt
að hugsa sér. Á þessum árum kynnt-
ist ég Vilhjálmi ekki náið. Hann var
eldri bróðir vinar míns og leikfélaga,
en mér er minnisstætt hversu inni-
legt samband var á milli þeirra
bræðra og hélst það fram á síðasta
dag. Vilhjálmur tók mér strax þann-
ig að vinur Jóns ætti líka vinsemd
sina og sýndi mér frá upphafi þá
hlýju sem hann hafði erft í svo ríkum
mæli frá foreldrum sinum. Síðar átti
ég svo eftir að kynnast Vilhjálmi
betur bæði i leik og starfi, einkum
eftir að ég tók að starfa hjá Ólíuversl-
un íslands. Vilhjálmur sat í stjóm
þess fyrirtækis þau fimm ár sem ég
starfaði þar og átti raunar frum-
kvæði að þvi að ég var ráðinn til að
veita því forstöðu. Því fleiri hliðum
á Vilhjálmi sem ég kynntist og því
nánar sem ég kynntist honum þvi
meir þótti mér til hans koma og
vænna um þau kynni.
Vilhjálmur var mjög hógvær og
hlédrægur maður sem ekki sóttist
eftir vegtyllum en um leið sterkur
og ákveðinn og var kosinn í stjómir
ýmissa félaga og fyrirtælqa enda
sýndi hann snemma hve mikið í hon-
um bjó. Að loknu Verslunarskóla-
námi tók hann að starfa við hlið
Ingvars föður síns við fyrirtæki hans
fsbjöminn hf. í Reykjavík og fyrir-
tækin Sunnuver og síðar Hafsfld á
Seyðisfirði sem hann byggði upp og
veitti forstöðu. Síðar tók hann svo
alfarið ásamt Jóni bróður sínum við
framkvæmdastjóm ísbjamarins þar
til sameinast var Bæjarútgerð
Reykjavíkur og fyrirtækið -Grandi
h.f. stofnaði af þessum tveimur aðil-
um. Samheldni þeirra bræðra á þeim
vettvangi var einstök eins og á öllum
öðrum sviðum og unnu þeir meðal
annars það stórvirki að byggja full-
komnasta og glæsilegasta frystihús
á landinu og þótt víðar væri leitað,
þegar ljóst var að gamla húsið á
Seltjamamesi fullnægði ekki lengur
kröfum nútimans. Þá er einnig minn-
isstætt það djarfa og vel heppnaða
fyrirtæki þeirra bræðra og leigja
hingað til lands loðnubræðsluskipið
Norglobal sem stóijók magn og verð-
niæti loðnuafurða þær vertíðar sem
það var hér. Loðnuverksmiðjunni á
Seyðisfirði veitti Vilhjálmur forstöðu
til dauðadags og rak auk þess síðustu
árin útflutningsfyrirtækið Svaninn
ásamt Pétri Kjartanssyni.
Vilhjálmur hafði gott vit á öllu sem
viðkom viðskiptum og var sterkur
og traustur á þvi sviði sem öðrum.
A fundum og mannamótum var hann
ekki einn af þeim sem hafa sig mest
í frammi en þegar hann lét sínar
skoðanir í ljós var á hann hlustað,
enda hafði hann jafnan eitthvað já-
kvætt fram að færa og oftar en ekki
bestu lausnina ef vandamál voru til
umræðu.
Vilhjálmur var einstaklega örlátur
maður og mikill höfðingi heim að
sækja. Hann var tillitssamur svo af
bar, sannkallaður öðlingfur. Hann var
fagurkeri, einkum á málverk og
hvers kyns heimilismuni og þá ekki
síst bækur og tímarit sem hann safn-
aði og lét færa í fegursta band ef
ekki var þegar þannig innbundið.
Ánægjulegar stundir okkar Systu,
hvort sem var á hinu fagra heimili
þeirra Önnu Fríðu og Vilhjálms, eða
á ferðalögum innanlands eða utan,
verða alltaf með okkar kærustu end-
urminningum.
Vinir Vilhjálms vissu að hann var
ekki fullhraustur þegar hann lagði
af stað í viðskiptaferð til Asiu fyrir
rúmum mánuði. Engan grunaði þó
að hann væri svo veikur sem síðar
kom í ljós. í þessari ferð sannaðist
enn hversu ósérhlífínn og harður af
sér Vilhjálmur var. Þegar hann gekk
í land úr flugvélinni við heimkom-
una var hann orðinn fárveikur og
varð lífí hans ekki bjargað. Það er
erfitt að sætta sig við þessi örlög og
Vilhjálms verður mikið saknað og
lengi.
Þyngst er raunin fyrir Önnu Fríðu
og bömin og ég bið guð að styrlqa
þau og aðra ástvini í þeirra miklu
sorg.
Þórður Ásgeirsson
5 SINNUM A DAG.n
SPORTBÍLL 00 SPÍTTBÁTUR