Morgunblaðið - 26.08.1988, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988
31
Samband norrænna verkalýðsfélaga:
Bráðabirgðalögunum mótmælt
Ragna Róbertsdóttir borgarlistamaður 1987 sýnir nú verk sín á
Kjarvalsstöðum.
Ragna Róbertsdóttir
sýnir á Kjarvalsstöðum
RAGNA Róbertsdóttir opnar
sýningu á Kjarvalsstöðum laug-
ardaginn 27. ágúst kl. 14. Á sýn-
ingunni eru skúlptúrar úr torfi
og grjóti sem Ragna hefur-unnið
sl. tvö ár.
Ragna var valin Borgarlistamað-
ur 1987 og er með þessari sýningu
að þakka fyrir sig.
Ragna stundaði nám í Myndlista-
og handíðaskóla íslands og Konst-
fack, Stokkhólmi.
Ragna hefur tekið þátt í samsýn-
ingum síðan 1975, bæði heima og
erlendis, svo sem í Bandaríkjunum,
Japan, Póllandi, Ungverjalandi og
á Norðurlöndunum. Hún hefur
haldið einkasýningar í Nýlistasafn-
inu 1986, Gallerí Ganginum 1987,
Gallerí Glugganum, Akureyri, og í
Galleríi Birgis Andréssonar 1988,
ásamt nú þessari sýningu í Vestur-
sal Kjarvalsstaða.
Sýningin er opin frá 14—22 alla
Morgunblaðið/Silli
Myndin sýnir jarðborinn við
Skógarlón í Öxarfirði.
Borað eftir
heitu vatni
í Öxarfirði
BORHOLA við Skógarlón í Öxar-
firði gaf um síðustu helgi 30 lítra
á sekúndu af 85 til 95° heitu
vatni. Hafði þá verið borað niður
á 320 metra dýpi. Borun eftir
heitu vatni við Skógarlón er liður
í rannsóknarverkefni vegna fisk-
eldis við Öxarfjörð. Verkið er
fjármagnað af ríki og viðkom-
andi sveitarfélögum, Kelduness-,
Öxarfjarðar- og Presthóla-
hreppi. Seljalax hf. stendur und-
ir kostnaði af hálfu heimamanna.
Borun hófst um miðjan júlí á
þessu ári.
„Þetta verk er í biðstöðu þessa
stundina en hitinn í holunni gefur
okkur góðar vonir um framtíð fisk-
eldis við Öxarfjörð. Nú er meðal
annars beðið eftir umsögn Náttúru-
vemdarráðs og Hollustuvemdar
ríkisins áður en lengra er haldið.
Einnig er það fé sem fékkst til
verksins þrotið," sagði Bjöm Bene-
diktsson oddviti í viðtali við Morg-
unblaðið.
Bjöm sagði að ætlunin hefði ver-
ið að bora niður á 500 m dýpi en
það hefði því miður ekki tekist.
„Það var tekin áhætta við fóðmn
holunnar í þeim tilgangi að spara
fé. Það varð hins vegar til þess að
borholan féll saman og ekki tókst
að bora lengra niður en á 320 m
dýpi. Svigrúm til að mæta áfalli sem
þessu er lítið sem ekkert," sagði
Björn.
daga til 11. september.
(Fréttatilkynning)
STJÓRN Sambands norrænna
verkalýðsfélaga mótmælti á
fundi sínum í Færeyjum á mið-
vikudag bráðabirgðalögum
íslensku ríkisstjórnarinnar frá
því i maí í vor að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá
Alþýðusambandi íslands.
Eftirfarandi ályktun var einróma
samþykkt: „Verkalýðshreyfingin á
Norðurlöndum lítur svo á, að frjáls
verkalýðshreyfing sé ómissandi
þáttur lýðræðis. Það á ekki síst við
um réttinn til að semja um kaup
og kjör. Á síðari árum hefur farið
vaxandi að ríkisstjórnir reyni að
leysa efnahagsvanda með því að
leggja hömlur á frelsi stéttarfélag-
anna. Ríkisstjóm íslands hefur með
lögum numið úr gildi grundvallar-
rétt verkalýðsfélaga. Samband
norrænna verkalýðsfélaga (NFS),
sem er samtök 7,2 milljóna laun-
þega á Norðurlöndum, mótmælir
harðlega þessari atlögu íslensku
ríkisstjómarinnar að grundvallar-
rétti verkalýðshreyfingarinnar og
almennum lýðréttindum, enda brýt-
ur hún gegn alþjóðlegum gmndvall-
arreglum um starfsemi frjálsra
verkalýðsfélaga".
VERIÐISTILLT!!!
SPORTBÍLL OG SPÍTTBÁTUR
RYMIN GARSALA
Á FYRSTA FLOKKS GÓLFTEPPUM
30% verðlækkun
á úrvals - sérframleiddum teppum úr íslenskri ull
teppi úr 80% ull + 20% nylon á hlægilegu veröi.
Flair pr. m2
Tweed pr. m2
Askja og Hekla pr. m2
verð áður verð nú lækkun
1795,- 1249,- 546 kr. eða 30%
1985,- 1389,- 596 kr. eða 30%
1665,- 1165,- 500 kr. eða 30%
Hentugir litir á alla gólffleti.
5 - 30% verðlækkun
á mörgum gerðum annarra teppa og gólfdúkum.
Allt að 50% afcláttur
af gólfteppa og gólfdúka afgöngum og bútum.
5% kynningarafsláttur
á norsku gæðaparketi frá BOEN
og úrvals - korkflísum frá Portúgal.
SÉRTILBOD
Nokkur sófaborð með 50% afslætti.
Ný verslun á gömlu grunni með vandaða vöru á vægu verði.
TEPPABOÐIN
GOLFEFNAMARKAÐUR SUÐURLANDSBRAUT 26 S - 91 681950