Morgunblaðið - 18.09.1988, Side 2

Morgunblaðið - 18.09.1988, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988 Borgarráð Bostonborgar: Upplýsingamar um hvalveiðar fengnar frá grænfriðungum - segir lögfræðingur Coldwater Seafood TÍU af þeim 13, sem sæti eiga í borgarráði Bostonborgar, voru flutn- ingsmenn þeirrar tillögu að beina þeim tilmælum til skóla og sjúkra- húsa í eigu borgarinnar að hafa ekki ísienskan fisk í mötuneytum þeirra vegna hvalveiða íslendinga. Greinilegt var að flutningsmenn- irnir höfðu eingöngu fengið upplýsingar um hvalveiðamar frá græn- friðungum, segir i skýrslu lögfræðings Coldwater Seafood Corporati- on, dótturfyrirtækis Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í Banda- rikjunum. Ellefu borgarráðsmenn samþykktu tillöguna á fundi ráðs- ins á fimmtudaginn. Flutningsmenn tillögunnar sögðu að íslendingar brytu bæði bandarísk lög og alþjóðalög með því að veiða hvali í hagnaðarskyni. Fundurinn var opinn almenningi en lögfræðingur Coldwater Seafood fékk ekki að taka þar til máls. Selja má 7701estir úrgámum LEYFT hefur verið að sejja 772 lestir af óunnum þorski og ýsu úr gámum í Bretiandi vikuna 25. september til 1. október næst- komandi en sótt hafði verið um leyfi til sölu á 1.640 iestum, að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar, fulltrúa hjá Landssambandi íslenkra útvegsmanna. Skipin Álftafell SU, Kolbeinsey ÞH, Mummi GK, Amames ÍS, Sól- borg SU, Eyborg EA og Óskar Halldórsson RE fengu einnig að selja þorsk og ýsu í Bretlandi ofan- greinda viku. „Næsta föstudag verður í síðasta skipti úthlutað leyfum til útflutn- ings á óunnum þorski og ýsu í gám- um til Bretlands, samkvæmt reglu- gerð sem sett var í sumar,“ sagði Vilhjálmur f samtali við Morgun- blaðið. „Það er ekki búið að taka ákvörð- un um framhaldið en ég á erfitt með að fmynda mér að það verði settur kvóti á útflutning á óunnum þoreki og ýsu í gámum til Bretlands í vetur. Menn sækja oftast um leyfi til að flytja út meira magn en þeir geta veitt og það hefur komið fyrir að menn hafi ekki getað veitt það magn sem þeir fengu leyfi til að flytja út. Ég held einnig að erfitt verði að veiða meira magn á viku til útflutnings í gámum en leyft hefiir verið að flytja út að undan- fömu,“ sagði Vilhjálmur. Nýtt greiðslu- kortafyrirtæki ávegumSIS SAMKORT hf. nýtt greiðslu- kortafyrirtæki á vegum Sam- bmdgjm hefur hafið starfsemi. Stofnfundur félagsins var 14. september og gerðust 17 félög stofnaðilar. Hlutafé fyrirtækis- ins verður 40 miiyónir króna. Stefna hins nýja greiðslukorta- fyrirtækis er sú að korthafar hafi ávinning af þátttöku. Möguleikar em á að veita korthöfum sértilboð, afsláttarekjör og jafnvel arð af við- skiptunum. Einnig eru uppi hug- myndir um að hafa greiðslutímabil- in tvö sem yrði til hagræðis fyrir launþega sem ekki fá greidd laun um mánaðarmót. Sá sem unnið hefur að undirbún- ingi þessa máls fyrir samvinnu- hreyfinguna er Halldór Guðbjama- son viðskiptafræðingur en upphaf þessa máls má rekja til þess að Guðjón B. Ólafsson foretjóri Sam- bandsins skipaði nefnd til að athuga það f fyrra. Borgarráðsmennimir tveir, sem ekki samþykktu tillöguna, sögðu að ráðið ætti ekki að skipta sér af alþjóðamálum, segir í skýrslunni. „Flutningsmenn tillögunnar sögðu að Boston væri tíunda borgin f Massachusetts-fylki sem sam- þykkti að beina þeim tilmælum til stjómenda skóla og_ sjúkrahúsa að kaupa ekki fisk af fslendingum en ég get ekki staðfest hvort það er rétt,“ sagði Ólafur Guðmundsson, innkaupastjóri Coldwater Seafood, í samtali við Morgunblaðið. „Enda þótt þetta séu einungis tilmæli geri ég ráð fyrir að skólar og sjúkrahús, sem hafa fengið þau, muni ekki kaupa fisk frá okkur. Við höfum hins vegar lítil bein við- skipti við sjúkrahús og skóla. Heild- salar kaupa fískinn af okkur og dreifa honum til margra aðila, þannig að það er erfitt að gera sér grein fyrir hvort einhveijir hafa hætt að kaupa af okkur fisk vegna hvalveiðanna. Við höfum ekki fengið tilkynn- ingu um að menn hafi hætt að kaupa fisk af okkur vegna hvalveið- anna, eða ætli sér það, og salan hefur verið nolckuð jöfn undanfam- ar vikur. Hins vegar höfiim við orð- ið varir við að viðskiptamenn okkar hafa áhyggjur af þróun þessara mála,“ sagði Ólafur Guðmundsson. Bílarnir eru báðir gjörónýtir. Morgunblaðið/— Sig. J6ns. Fjórir ungir piltar létust í umferðarslysi Selfossi. FJÓRIR ungir piltar frá Selfossi og úr Reykjavík á aldrinum 15 ára til 18 ára fórust um ellefu- leytið á föstudagskvöld í um- ferðarslysi á Gnúpveijahrepps- vegi er tvær bifreiðir skullu sam- an fram undan bænum Miðhús- um. Ökumaður annars bílsins var fluttur lifshættulega slasaður ó slysadeild Borgarspitalans i Reykjavík. í gærmorgun voru læknar enn að gera að meiðslum hans. Bílamir sem lentu í árekstrinum vora af gerðinni Toyota Corolla og Volkswagen Golf. I Toyota-bflnum vora þrír piltar frá Selfossi sem létust allir. í Volkswagenbílnum vora tveir piltar og lést annar þeirra, farþeginn, en ökumaðurinn hlaut mikfl beinbrot og innvortis meiðsli. Greinilegt er að áreksturinn hefur verið mjög harður og piltam- ir látist samstundis. Bílamir eru báðir gjörónýtir. Réttardansleikur var í Amesi, féagsheimili Gnúpveija, á föstu- dagskvöldið. Eigandi Toyotabflsins var farþegi í honum á leiðinni á dansleikinn ásamt þremur öðram ungmennum. Ökumaður bflsins fór ekki á dansleikinn en var í bflnum fyrir utan. Þar tók hann upp tvo farþega sem vora í bflnum þegar áreksturinn varð. Þeir sem upphaf- lega komu með upp að Ámesi fóra inn á dansleikinn og fréttu þar eft- ir nokkum tíma smátt og smátt af slysinu, eins og aðrir gestir. Ekki er vitað um nánari tildrög slyssins. Dansleikurinn leystist fljótlega upp eftir að fregnir af slysinu bár- ust og þeir sem vora á leið á dans- leikinn snera frá. Á Selfossi er fólk harmi lostið yfir þessari válegu fregn úr umferðinni. Lögreglumenn sem fóru á slys- stað lýstu aðkomunni sem einni þeirri verstu sem þeir myndu eftir. Nokkum tíma tók að ná piltunum úr bflunum og opna veginn fyrir umferð að nýju. Því var lokið um tvöleytið. Ekki er að svo stöddu unnt að greina frá nöfiium hinna látnu. — Sig. Jóns. Framfærslukostnaður: Vísitölufjölskyldan þarf 187.583 kr. mánaðarlaun Framfærsluvísitalan í byrjun september 1988 mælir ársútgjöld 1.803.000 kr. TlL ÞESS að framfleyta vísitölufjölskyldunni þyrfti 1.803.000 krónur & ári tíl ráðstöfunar. Þessi tala er samkvæmt verðlagi i byijun september eins og framfærsluvísitalan mælir það og reikn- að tíl heils árs. Visitalan fyrir maímánuð sýndi framfærslukostn- að upp á 1.638.000 krónur. Hækknnin á þessum tíma er þvi sam- svarandi 165.000 krónum á ári, eða sem nemur 13.750 krónum á mánuði. Til þess að standa undir þessum framfærslukostnaði, samkvæmt septembervisitölu, þarf 187.583 króna tekjur á mán- uði ef ein fyrirvinna er á heimilinu, 182.200 krónur ef tvær fyrirvinnur eru og fullnýta skattaafslátt sinn, samkvæmt útreikn- ingum Morgunblaðsins. Vfsitala framfærslukostnaðar mælist I septemberhyrjun 110,0 stig og hefur hækkað úr 100,0 stigum í maí. Vísitöluflölskyldan er engin raunveraleg „Qölskylda". í henni eru 3,48 einstaklingar. Sama má segja um framfærelukostnaðinn eins og vísitalan mælir hann, að hann sé ekki raunverulegur. Framfærslukostnaðurinn er fund- inn með því, að athugað er verðlag vöru og þjónustu. Þær vörur og sú þjónusta sem þar er mæld, eru samkvæmt neyslukönnun sem stóð yfir á árunum 1985 og 1986. I þessari neyslukönnun skráðu 376 fjölskyldur, valdar af handahófi út úr þjóðskrá, öll sín útgjöld í ákveðinn tfma hver fjölskylda. Þessar 376 Qölskyldur saman- stóðu af 1.308 einstaklingum, þannig að meðalstærð þeirra er 3,48 einstaklingar ogþað meðaltal er kallað vísitölufjölskyldan. Útgjöldin sem framfærsluvísit- alan mælir, era síðan á sama hátt meðaltal útgjalda þessara 376 ijöl- skyldna, að því tilskyldu, að þær haldi sama neyslumunstri og þær gerðu þegar neyslukönnunin var framkvæmd. Kannað er verð á þeim vöram og þeirri þjónustu sem þessar fjölskyldur greiddu fyrir, í sem næst sama hlutfalli og neyslu- könnunin sýndi á milli einstakra kostnaðarliða. Af þessum sökum, er sá fyrir- vari hafður á útreikningum sem hér birtast, að tölumar sýna ekki annað en hvað meðal^ölskylda framangreinds úrtaks þyrfti að greiða í dag fyrir sambærilega neyslu og var meðalneysla þessara 376 fjölskyldna þegar neyslukönn- unin var framkvæmd. í þessari tölu um framfærslu- kostnað, 1.803.000 krónum, er ekki reiknað með staðgreiðslu telg'Uskatta. Þess vegna þurfa heildartekjur vísitöluflölskyldunn- ar að vera hærri en sem þessu nemur, til að eiga 1.803.000 krón- ur eftir þegar skattur hefur verið dreginn frá. Staðgreiddir tekju- skattar eru 35,2% af launum. Frá þeim dregst skattafsláttur. Fyrir hjón er sá afsláttur 344.347 krón- ur á ári, en ef bæði hjóna vinna úti og fúllnýta skattafslátt sinn er hann 386.208 krónur á ári. Sé reiknað með þessum skattaf- slætti, þarf vísitölufjölskyldan að hafa 2.251.000 krónur S áretekjur til þess að eiga fyrir framfærslu- kostnaðinum eins og vísitalan mælir hann, það er að eiga 1.803.000 krónur eftir að frá- dregnum sköttum. Þá þurfa með- almánaðarlaunin að vera 187.583 krónur. Þetta er miðað við eina fyrirvinnu og skattafslátt hjóna. Séu fyrirvinnur tvær, þarf vísitölu- fjölskyldan að hafa 2.186.407 krónur í árstekjur, eða 1{ krónur á mánuði. Þessar töl samkvæmt útreikningum M< blaðsins. Ekki er reiknafi bamabótum eða öðrum i greiðslum úr Ríkissjóði. endurgreiðslur gætu þ tekjutölumar um nokkur þ krónur á mánuði, það fer t.c aldri bama sem um væri að r Helstu kostnaðarliðir sem aðir eru í framfærsluvísiti eru (verðlag í byijun sept Matvörur 369.000 krónur drykkjarvörur og tóbak 'i krónur, föt og skófal 137.000 krónur, rafmagn 5 krónur, húshitun 37.000 k húsgögn og heimilisbí 134.000 krónur, eigin 276.000 krónur, tómstundi og menntun 198.000 krór húsnæði 238.000 krónur. Vísitala framfærslukosl mælist nú 110,0 stig miði verðlag í byijun september. alan í maímánuði var 100,( Undanfama þrjá mánuði' vísitalan hækkað um 6,4% ot gildir það 28% verðbólgu á ári, samkvæmt fréttatilkyr frá Hagstofu íslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.