Morgunblaðið - 18.09.1988, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDÁGUR 18; SEPTEMBER 1988
9
HUGVEKJA
eftir séra GUÐMUND ÓLA ÓLAFSSON
Þá grét Jesús
16. sunnudagnr eftir trinitatis
Lúk. 7, 11.-17.
I dag er gengið svo að segja
í fang sorginni. Og treystir þú
þér ekki, skaltu staldra við.
Þó máttu muna, að sú kvöð
er lögð á kristna menn að gráta
með grátendum.
Guðspjöllin þijú, sem lesin
eru í kirkjum á þessum Drott-
ins degi, fjalla um dauðann og
upprisuna. Þó eru þau næsta
ólík páskaguðspjöllunum. Hér
er engin himnesk hátign, ekki
konungur gyðinga á krossi,
sólin missir ekki birtu sína,
jörðin skelfur ekki, og fortjald
musterisins bærist ekki. Hér
er einungis fátækt fólk, meira
að segja ekkja, sem er að fylgja
einkasyni sínum hinzta spöl-
inn. Þeir, sem fylgja henni,
mikill fjöldi,— segir í guðspjall-
inu, eru vonarsnautt fólk, eins
og hún.
Við borgarhliðið kemur önn-
ur fylking, þétt og mikil, til
móts við líkfylgdina, í fangið
á sorginni. — Hann er kominn
á hryggðarstundu, Jesús frá
Nazaret. „Grát þú eigi,“ segir
hann. Það er engu líkara en
hann hafi gengið beint að
henni, vafið hana örmum og
strokið tár af kinnum hennar.
Ekki segir þó frá því. Nei, en
hann snart líkbörumar, hafði
hendumar á því, sem óhreint
var, braut ströngustu siðaboð
og saurgaði sig á sorginni.
I seinni guðspjöllunum segir
frá dauða Lazamsar, bróður
þeirra Mörtu og Maríu.
„Þá grét Jesús,“ segir þar.
Hvað grætti hann?
Sorgir þínar og mínar, —
sorg Mörtu og Maríu. Hann
grét með grátendunum. Engin
orð í Gamla testamenti hafa
orðið kristnum mönnum svo
hugstæð og hjartagróin sem
mögnuð stefin úr kviðunni
miklu um þann þjáða þjón;
„Vorar þjáningar vom það,
sem hann bar, og vor harm-
kvæli, er hann á sig lagði.“ —
„Hegningin, sem vér höfðum
til unnið, kom niður á honum,
og fyrir hans benjar urðum vér
heilbrigðir." — „Hann var hrif-
inn burt af landi lifenda, fyrir
sakir syndar míns lýðs, var
hann lostinn yfír dauða.“ (Jes.
53.) Þeim blandast ekki hugur
um það, lærisveinum Jesú, fyrr
og síðar, að þar hafi spámenn
kveðið um hann. Því kvað
íslenzkur lærisveinn, Bólu-
Hjálmar, í hörmum sínum:
Son Guðs, frá þessu segi eg þér,
sjálfur því liðið hefur
allt, hvað á jðrðu amar mér.
Eflaust því styrk þú gefur.
Þeir, sem sáu Jesúm gráta,
sögðu raunar: „Sjá, hversu hann
hefur elskað hann." Og það þarf
ekki að efa, að kærleikar mikilir
hafa verið með Jesú og þeim
systkinum. En hví skyldi sá, sem
vald hafði á himni og jörðu, til
að fyrirgefa syndir, lækna sjúka
og sigra dauðann og tortíming-
una, gráta Lazarus? Hann hafði
þegar sagt Mörtu, að bróðir henn-
ar mundi rísa upp. Já, meira að
segja eru þessi orð skráð eftir
honum frá þeim degi: „Ég er upp-
risan og lífið. Sá sem trúir á mig,
mun lifa, þótt hann deyi.“ (Jóh.
11.)
Nei, hann grét ekki Lazarus.
Hann kallaði Lazarus til lífsins,
hárri raustu. En hann grét, þegar
hann horfði í hyldýpi sorgarinnar,
þjáningarinnar, þegar hann kann-
aði þau reginmyrkur, sem þrautir
og sorgir búa vonarsnauðum
mönnum.
Þess vegna kemur hann í fang
sorginni á hryggðarstundu. Og
sorgir þínar og þjáningar eru að
verða hans, sem ekki þoldi að sjá
fátæka ekkju fylgja síðasta ást-
vini sínum og fyrirvinnu til grafar.
Ef til vill varð honum þann
daginn hugsað til annarrar móður
á dauðans hæð, undir krossi.
Elztu myndir, sem til eru af
Skálholtskirkju frá fyrri tíð, eru
frá síðustu dögum biskupsstóls-
ins. Biynjólfskirkja er sú kirkja
nú gjama nefnd, sem þar er sýnd.
Tuminn er einkar vesæll og píslar-
legur, eins og hann hafí verið
gerður öldinni, þjóðinni og trú
hennar til háðungar, deyjandi þjóð
°g deyjandi trú. En uppi á spírunni
gnæfír þó nokkur kross.
Kross var og er ætíð hið foma
tákn smánar, þjáningar og dauða,
— en hann er einnig tákn þess,
að hann er hjá þér, Frelsarinn
krossfesti, þjáist í þjáning þinni,
grætur með þér í einsemd þinni,
deyr með þér á dauðans hæð —
og enn er þó ekki allt talið. Hann
deyr fyrir þig og sigrar dauðans
vald og reginmyrkur fyrir þig,
eins og Hallgrím.
Hvort ég sef, vaki, sit eður stá
í sælu og hættum nauða,
krossi þínum ég held mig hjá,
horfandi á blóð þitt rauða.
Lát mig einninn, þá ævin þver,
út af sofha á fótum þér,
svo kvíði ég sízt við dauða.
ÞÚ HEFIIR TÆKIFÆRI TIL AÐ NÝTA
ÞÉR12 ÁRA REYNSLU SÉRFRÆÐINGA
FJÁRFESTINGARFÉIAGSINS, -
ÞÉR AD KOSTNADARLAUSU.
<Juma flokka spariskírteina ríkis-
sjóðs borgar sig að innleysa strax.
Aðra ekki.
okkra afflokkum spariskírteina
borgar sig að eiga áfram. Alls ekki
alla.
pér tólf ára reynslu
Fjárfestingarfélagsins ogfáðu upp-
lýsingar og góð ráð við innlausn
réttra spariskírteina. Líttu við hjá
Fjárfestingarfélaginu í Hafnarstrœti,
í Kringlunni, á Ráðhústorgi, og við
hjálpum pér að velja pá lausn, sem
hetitar pér best.
FJÁRFESTINCARFÉIAGIÐ
Hafnarstræti - Kringlunni - Akureyri
Aðili að Verðbréfaþingi íslands
Hluthafar: Verzlunarbankinn, Eimskip, Tryggingamiðstöðin,
Lífeyrissjóður Verslunarmanna auk rúmlega 400 fyrirtækja og einstaklinga.
Wxíðgjafar okkar hafa verið tólf ár
í fararbroddi fyrir eigendur spari-
skírteina. Aðstoð peirra hefur komið
sér ómetanlega vel fyrir sparifjár-
eigendur.
Lttu við, — pað kostar pig ekki
neitt!
KfARABRÉF, MARKBRÉF, TEKJUBRÉF,
BANKABRÉF, FÉFANGSBRÉF, NÝ
SPARISKÍRTEINIRÍKISSJÓÐS, ELDRI
SPARISKÍRTEINI, TRAUST VERÐBRÉF
i6nsePt. 1988: Kjarabréf 3,280 Tekjubréf 1,570 Markbréf 1,725 Fjölþjóðabréf 1,268 Skyndibréf 1,006