Morgunblaðið - 18.09.1988, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988
Byggðarendi
Voaim að fá til einkasölu glæsil. 300 fm einbhús á tveim-
ur hæðum. Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni.
Fasteignasala
Árna Grétars Finnssonar, hrl.,
Stefán B. Gunnlaugsson, lögfr.
Strandgötu 25, Hf., sími 51500.
Hagkaup:
íbúð á Sauðárkróki
Til sölu er stór íbúðarhæð við Aðalgötu á Sauðárkróki.
Einnig hentug fyrir félagasamtök eða skrifstofur.
Upplýsingar í síma 91-685023 á kvöldin og í síma
95-5123 á Sauðárkróki.
Atvinnuhúsnæði
Höfum á skrá úrval af atvinnuhúsnæði í mörgum stærð-
um á Stór-Reykjavíkursvæðinu og víðar.
Leigumiðlun húseigenda hf.,
löggilt leigumiðlun,
símar 680510 og 680511.
Síðumúli 34
Fyrirhugað er að selja fasteignina Síðumúla 34,
Reykjavík. Eignin er samtals 5.621,2 fm og samanstend-
ur af 9 sjálfstæðum einingum, verslunarhæð, skrifstofu-
hæðum, íbúð (penthouse) og vörugeymslum. Til greina
kemur að selja eignina í einu lagi eða einstakar eining-
ar. Eigandi eignarinnar er Sölusamtök íslenskra mat-
jurtaframleiðenda.
Allar upplýsingar veitir Árni Vilhjálmsson hdl. í síma
681211.
Lögfræðistofan Höfðabakka 9,
Vilhjálmur Árnason hrl., Ólafur Axelsson hrl.,
Eiríkur Tómasson hrl. og Árni Vilhjálmsson hdl.
Ljósritunar- og
plöstunarfyrirtæki
Vorum að fá í sölu vel kynnt Ijósritunarfyrirtæki, mjög
vel búið tækjum. Tilvalið fyrir þá, sem vilja vinna sjálf-
stætt. Góð viðskiptasambönd. Gott verð.
Upplýsingar aðeins á skrifstofu vorri frá og með mánu-
deginum 12. september.
Sími 688*123
Skipholti 50 C (gegnt Tónobíói)
Kristján V. Kristjánsson viðskfr., Sigurður Öm Sigurðsrson viðskfr.
Öm Fr. Georgsson sölustjóri.
FASTEIGNA
O HÖLLIN
MIÐBÆR - HAALEITISBRAUT 58 60
35300-35301
Opið frá kl. 13-15
í smíðum -
Suðurhlíðar Kóp.
Glæsileg 2ja íbúða hús sem skiptist þannig: 2ja herb.
jarðhæð 64 fm. Efri hæð: 7 herb. ca 200 fm + bílskúr
og geymslur. Stærri íbúðin er á tveimur hæðum.
Teikningar á skrifstofunni. Afh. í janúar 1989.
Ártúnshöfði - byggingarstig
Til sölu 585 fm iðnaðar- eða verslunarhúsnæði. Lofthæð
neðri hæðar getur verið 3,5-6 metrar. Ath. enn er
hægt að breyta húsinu eftir óskum kaupenda. Afh.
áætluð um áramót. Teikningar á skrifstofunni.
Hrainn Svavaraion sðluati.. Ólafur Þorláksson hri., ^
Leitað eftir starfsfólki á
Akranesi og* Suðumesjum
ÓVENJU illa hefur gengið að
finna fólk til starfa hjá Hag-
kaupum í Reykjavík að sögn Jóns
Asbergssonar forstjóra. Því hef-
ur verið gripið til þess ráðs að
leita út fyrir höfuðborgarsvœðið
eftir vinnuafli og hefur verið
borið niður á Akranesi og í
Keflavík.
Jón sagði að óvenju erfítt hefði
verið að fá fólk til starfa nú í
haust, miðað við fyrri ár. í byijun
september vantaði fólk í um 70 störf
af um 700 störfum, eða sem næst
10% nauðsynlegs mannafla. í gær-
morgun hafði tekist að ráða í um
helming þessara starfa. Til þess að
manna þessar stöður, hafa forráða-
menn Hagkaupa gripið til þess ráðs
að leita í nærliggjandi byggðarlög
við höfuðborgarsvæðið og bjóða
fólki þaðan vinnu. Fólkinu hefur
verið boðið að fá ferðakostnað
greiddan og helming ferðatímans á
launum.
Starfsmannastjóri Hagkaupa var
á Akranesi fyrir viku síðan í þessu
skyni og 1 gær var hann í Keflavík.
Jón Ásbergsson sagði að ekki hefði
orðið mikill árangur af Akraness-
förinni, fjórar konur hefðu komið
til viðtals og líklega ein ráðið sig
til starfa af þeim. Hann hafði ekki
upplýsingar um árangurinn í
Keflavík.
Jón sagði að venjulega þyrfti að
ráða margt fólk á haustin. „Við
fleytum okkur yfir sumarmánuðina
með skólafólki, byijun september
er síðan venjulega erfiðasti tíminn
og nú er óvenju erfltt. Við höfum
leyst þetta með mikilli yfirvinnu
sem gengur ekki til lengdar. Þetta
er merki þess að mikil eftirspum
er eftir vinnuafli og um leið ein
sönnun þess að niðurfærsluleiðin
margumrædda er fjarstæðukennd
hugmynd. Það þýðir ekki að ætla
að lækka launin þegar fólk getur
gengið beint út og fengið um leið
vinnu annars staðar," sagði Jón
Ásbergsson.
Hann sagði að verið væri að
kanna möguleika á að bjóða starfs-
fólki aukna þjónustu, til dæmis
bamagæslu, og hefði áhugi fólks í
því sambandi verið kannaður. Ekki
liggja fyrir enn endanlegar niður-
stöður og ákvarðanir hafa ekki ver-
ið teknar.
Ása Ólafsdóttir.
Kjarvalsstaðir:
Sýning á myndvefnaði
ÁSA Ólafsdóttir hefur opnað
sýningu á myndvefnaði í hálfum
vestursal Kjarvalsstaða. Sýning-
in stendur til 2. október og verð-
ur opin daglega frá kl. 14 til 22.
Ása Ólafsdóttir stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla íslands
1969-1973 og framhaldsnám við
Konstindustriskolan Göteborgs
Universitet 1976-1978. Hún hefur
haldið Qölda einkasýninga og tekið
þátt í mörgum samsýningum bæði
hér á landi og erlendis.
Skáldsagnakeppni
Æskunnar framlengd
STÓRSTÚKA íslands hefur
ákveðið að framlengja skáld-
sagnakeppni sem efnt var til í
tilefni af 90 ára afmæli Æskunn-
ar. í frétt frá Stórstúkunni segir
að ekkert þeirra handrita sem
borist hafa, uppfylli gæðakröfur
útgefenda.
I tilefni af 90 ára afmæli Æsk-
unnar í október síðastliðnum, efndi
Stórstúka íslands til skáldsagnas-
amkeppni og vom áskilin réttindi
til að taka hvaða handriti sem er
eða hafna öllum. Alls .bárust sjö
handrit en ekkert þeirra fullnægði
gæðakröfum útgefenda. Af þeim
sökum var ákveðið að framlengja
skilafrest í keppninni til mafloka
1989.
Verðlaunin sem í boði eru fyrir
verðuga skáldsögu í þessari keppni
eru 200 þúsund krónur, auk venju-
legra ritlauna.
Þátttakendur í keppninni eiga að
senda handrit, merkt dulnefni, til
Stórstúku íslands, Eiríksgötu 5,
Reykjavík. Dómnefnd áskilur sér
rétt til að taka hvaða handriti sem
er eða hafna öllum, segir í fréttinni
frá Stórstúkunni.
BIFREIÐAUTBOÐ
nk. þriðjudag. SALA VARNARLIÐSEIGNA.
Námskeið
í kyudo,
japanskri
bogfimi
UNDANFARIN ár hefur hópur
manna hér á landi lagt stund á
japanska bogfimi-kyudo. Bog-
fimi hefur frá alda öðli verið
stunduð í Japan og notið mikillar
virðingar. Aðeins æðsta stétt jap-
önsku stríðsmannanna, samurai,
fengu að bera og nota boga.
Þegar mikilvægi bogans i hern-
.aði minnkaði breyttist kyudo í
listgrein, sem nú er stunduð víða
um heim. -
Þó vestræn bogflmi og kyudo
eigi ýmislegt sameiginlegt eru
grundvallarmarkmiðin ólík. Þó
skotið sé á mark í kyudo er aðal-
áherslan lögð á bogmanninn sjálfan
en ekki það að hitta markið hvað
sem það kostar. Búnaður er einnig
ólíkur, sem og grunntækni. í kyudo
er í byijun lögð áhersla á að ná
valdi á réttri líkamstöðu, öndun og
samræmingu hreyfinga. Þegar
þessu marki er náð kemur það af
sjálfu sér, að bogmaðurinn hittir
markið.
íslenska kyudofélagið er aðili að
Kyudosambandi Evrópu. Á hveiju
ári eru haldin alþjóðleg námskeið í
einu aðildarríkjanna, nú síðast í
París í ágústmánuði sl. Námskeiðin
eru undir stjóm Japanska kyudo-
sambandsins og senda þeir þangað
sína bestu kennara. í kyudo eru
veitta kyu- og dan-gráður sambæri-
legar við það sem tíðkast í kendo,
júdó og karate. Þessar gráður eru
veittar af Japanska kyudosamband-
inu. Á íslandi hafa 5 einstaklingar
náð dan-gráðu, sá sem lengst hefur
náð 4. dan. Kyudo er jafnt fyrir
konur sem karla frá 18 ára aldri.
Formaður íslenska kyudofélagsins
er Elsa Guðmundsdóttir. Fyrir-
hugað er að taka inn takmarkaðan
Qölda nýrra nemenda á næstunni
og verður það nánar auglýst síðar.
(Fréttatilkynning)
. _ hagkvæmur
auglýsingamióill!