Morgunblaðið - 18.09.1988, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988
33
Hvað gerist
þegar
Víetnamar
fara frá
Kambódíu?
■ Pol Pot (1979): hefur ekki
sézt árum saraan.
marga foringja og óbreytta liðs-
menn.“
Rauðu Khmeramir hafa reynt
að grafa undan þeim sáttaumleitun-
um, sem hafa farið fram, og aukins
þrýstings frá þeim hefur gætt í
þorpum í Kambódíu. í vor héldu
þeir því fram að þeir hefðu grafið
undan stjóm Víetnama í þúsundum
þorpa með þeim árangri að Víet-
namar hefðu orðið að flytja mikil-
vægar hersveitir frá thailenzku
landamæmnum til að veija þorp
inni í landi. „Sú aðferð óvinarins
að loka vesturlandamæmm
Kambódíu hefur gersamlega mis-
tekizt,“ sagði útvarpsstöð þeirra.
Nýlega sagði Son Soubert, einn af
leiðtogum Þjóðfrelsisfylkingar Sons
Sanns, að Rauðu Khmeramir hefðu
tekið nokkur þorp í Kambódíu her-
skildi og ætluðu að breyta þeim í
bækistöðvar.
Allt þetta ár hafa Rauðu Khmer-
amir verið í óða önn að koma fyrir
vopnum í búðum sínum á landa-
mæmnum og flytja þau þaðan til
Kambódíu. Þeir hafa látið lítið á
sér bera og ekki staðið fyrir skæm-
árásum. Þeir láta her Sihanouk-
sinna um að beijast, taka ekki leng-
ur þátt í samræmdum aðgerðum
með þeim og reyna jafnvel að veikja
þá. Þannig bendir allt til þess að
Rauðu Khmeramir búi sig undir að
heija sjálfstæða sókn gegn stjóm-
inni í Phnom Penh og hrifsa völdin
eftir boðaða brottför Víetnama.
Vera má að þeir hafi falið svo mik-
ið magn vopna að þeir geti barizt
mánuðum og ámm saman, ef
vopnasendingar til þeirra verða
stöðvaðar.
Ógnarstjórn
í vor stöðvuðu starfsmenn SÞ
matvælasendingar til einna af búð-
um Rauðu Khmeranna vegna þess
að þeir neituðu að leyfa þeim að
fylgjast með dreifingu matvælanna
og tryggja að þau fæm ekki til
skæmliða hreyfíngarinnar. Fólkið í
þessum búðum býr greinilega við
ógnarstjóm. Verst er ástandið í
búðum er kallast „Stöð 8“, þar sem
32.000 flóttamenn hafast við. Þar
hafa óbreyttir borgarar, sem hafa
neitað að bera skotfæri inn í
Kambódíu, gagnrýnt Rauðu
Khmerana eða reynt að flýja, verið
fangelsaðir, settir í „endurmennt-
unarbúðir" og fengið hótanir um
að fjölskyldur þeirra verði sviptar
■ Þjóðvarðliðar sem eiga að taka við af Víetnömum: tekst þeim að hrinda nýrri sókn Rauðra Khmera?
■ Fómarlömb Pols Pots: minningar um þjóðarmorð.
matarskammti.
Fyrrverandi skæmliði Rauðra
Khmera, sem hljópst undan merkj-
um, sagði nýlega að rúmlega 60%
fólksins í Stöð 8 vildi flýja. „Ég var
burðarmaður," sagði hann, „og varð
að fara yfír landamærin á hveijum
degi með skotfæri, sprengjuvörpur
og B-40-flugskeyti. I Stöð 8 mátt-
um við ekki ræða við útlendinga,
senda bréf til ættingja erlendis og
láta skoðanir opinskátt í ljós.“
Einn af leiðtogum Rauðu Khmer-
anna viðurkenndi í vor að 200-500
burðarmenn fæm með skotfæri inn
í Kambódíu í hveijum mánuði og
að um 15-30 manns hefðu flúið
búðimar í hveijum mánuði. Ofbeldi
hefur aukizt til muna í flóttamanna-
búðunum og sjálfsmorðum hefur
fjölgað.
Um nokkurt skeið hafa Rauðu
Khmeramir reynt að breyta nei-
kvæðum hugrmyndum um hreyfíngu
þeirra og sýnast hófsamari og
„virðulegri". Margir yngri leiðtoga
þeirra hafa komizt í nánari snert-
ingu við Vesturlönd síðan skæmlið-
amir og fjölskyldur þeirra hrökkl-
uðust inn í Thailand eftir stórsókn
Víetnama 1984-1985. Þeir viður-
kenna að hreyfíngunni hafi orðið á
„mistök" þegar hún var við völd
og segja að þau verði ekki endurtek-
in, þótt fáir Kambódíumenn trúi
því. Því er jafnvel haldið fram að
Rauðu Khmeramir muni efna til
lýðræðislegra kosninga og sætti sig
nú við ýmis atriði kapítalisma, en
því er heldur ekki trúað.
Hvar er Pol Pot?
„Rauðu Khmeramir hafa ekki
breytzt — takmark þeirra er enn
að ná fullkomlega völdunum," sagði
vestrænn stjómarerindreki í Bang-
kok nýlega. Þótt minni áherzla sé
lögð á hugmyndafræði en áður em
skæmliðamir undir jámaga. „Þetta
em sömu laumulegu, vel öguðu
samtökin og áður,“ segir annar
stjómarerindreki, „þau lúta stjóm
sömu gömlu leiðtoganna og talsvert
margir skæmliðar þeirra em innan
landamæra Kambódíu."
Pol Pot hefur ekki sézt ámm
saman og þVi hefur verið haldið
fram að hann hafi dregið sig í hlé,
en fullvíst er talið að hann sé enn
sem fyrr aðalleiðtogi Rauðu Khmer-
anna. Hann mun vera í felum ein-
hvers staðar í Suðvestur-Kambódíu,
rétt hjá landamæmm Thailands, en
talið er að hann bregði sér oft til
■ Víetnamar hörfa: farnir
1990?
Peking og Bangkok, lfklega vegna
vanheilsu. Sihanouk segir að hann
þjáist alltaf við og við af malaríu
og fleiri kvillum. Flóttamönnum
hefur verið sagt að hann ráðfæri
sig við herforingja sína, en hitti
aldrei óbreytta stuðningsmenn.
Erlendir gestir ræða stundum við
Leng Sary og konu hans, Leng
Thirith, sem margir telja pólitíska
„kommissara" hreyfíngarinnar. Al-
mennt er talið að þau hafí borið
aðalábyrgðina á fjöldamorðunum
auk Pol Pots og konu hans, Khieu
Pommary, sem er systir Lengs Thi-
riths. Illræmdasti „umdæmisleið-
togi“ Pol Pots, Ta Mok, er einnig
valdamikill. Hann missti annan fót-
inn í slysi fyrir nokkmm áram og
Sihanouk kallar hann „Himmler Pol
Pots“.
Aðalfulltrúi Rauðu Khmeranna á
fundum erlendis og á blaðamanna-
fundum, sem em fátíðir, er Khieu
Samphan, sem er hagfræðingur frá
frönskum háskóla og ferðaðist tals-
vert um Evrópu á námsámm sínum.
Hann er sagður „hófsamasti" leið-
togi Rauðu Khmeranna, en sérfræð-
ingar telja að hann hafi mótað þá
róttæku stefnu, sem olli hörmung-
unum 1975-1978.
Fyrir skömmu komust yfírvöld í
Thailandi yfír skjal, sem mun hafa
að geyma áætlun Rauðra Khmera
um valdatöku og útrýmingu óvina
þeirra. Erlendur stjómarerindreki
kvað þetta skjal „hrollvekjandi", en
verið er að kanna hvort það er
ósvikið.
Vígvöllur á ný?
Hvað sem því líður gætir vax-
andi uggs í Kambódíu um að landið
kunni að breytast aftur í blóðvöll
vegna fyrirætlana Rauðu Khmer-
anna og að þéir muni gera það að
„mauraþúfu“ á ný. Fréttaritarar
segja að ekki sé óalgengt að heyra
fólk í Phnom Penh tala um að það
muni fyrirfara sér, ef Rauðu
Khmerámir nái aftur völdunum.
Margir hafa flúið frá Phnom Penh
til búða á landamæmm Thailands
og skilið eftir aleiguna.
Þessi ótti gerir vart við sig á
sama tíma og Kambódíumenn hafa
loksins verið að ná sér eftir hörm-
ungamar fyrir 10 ámm. Phnom
Penh hefur smám saman verið að
vakna aftur til lífsins. Umferð hefur
aukizt á götunum, ný veitingahús
hafa sprottið upp, bænahús hafa
verið endurreist og menningarvakn-
ing hefur átt sér stað. Einkafram-
tak hefur verið leyft að einhveiju
msirki og minni áherzla er lögð á
samstöðu með Víetnömum en áður,
en enn er skortur á hrísgijónum.
Nú virðast einna helzt vera
bundnar vonir við breytta afstöðu
Kínveija, sem hafa nú síðast lagt
til að Kambódíumálið verði leyst
með svipuðum hætti og deilan í
Afghanistan — þ.e. með þeim hætti
að Víetnamar fái níu mánuði til að
flytja allt herlið sitt burtu undir
alþjóðlegu eftirliti.
Kínveijar vilja bæta sambúðina
við Rússa og lögðu fram tillögur
sínar í viðræðum við Igor Rog-
achev, varautanríkisráðherra Sov-
étríkjanna, í Peking fyrr í þessum
mánuði. Samkvæmt sovézkri heim-
ild bað Rogachev Kínveija að veita
Pol Pot hæli og tryggja að hann
kæmist ekki aftur til valda í
Kambódíu. Kínveijar gáfu í skyn
að það ætti að reynast unnt og
bára til baka fréttir um að Pol Pot
væri í Peking að leita sér lækninga.
Að sögn stjómarerindreka vom
Rússar sammála því að nauðsynlegt
væri að Víetnamar hörfuðu fljótt
frá Kambódíu, en þeir munu hafa
sett það skilyrði að Kínveijar stöðv-
uðu vopnasendingar til Rauðu
Khmeranna meðan Víetnamar hörf-
uðu. Kínveijar sögðu að þeir mundu
halda áfram að senda Rauðu
Khmemnum hergögn, því að Víet-
namar styddu enn við bakið á
stjóminni í Phnom Penh. Kínveijar
vildu að alþjóðlegt friðargáezlulið á
vegum SÞ fylgdist með brottflutn-
ingi Víetnama, en Rússar vora því
andvígir. Hins vegar lýstu þeir sig
fylgjandi „alþjóðlegu eftirliti" án
skilgreiningar og tjáðu sig fúsa að
ábyrgjast lausn á Kambódíu-deil-
unni ásamt Kínveijum.
GH