Morgunblaðið - 18.09.1988, Side 34

Morgunblaðið - 18.09.1988, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1,, sími 83033. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið. Við upphaf Olympíuleika Orðið heimsviðburður hefur þá hefðbundnu merkingu í íslensku að um sé að ræða atburð er skiptir sköpum í mannkynssögunni. Spuming er hvort þessi merking fari ekki að breytast á þann veg, að um sé að ræða atburð, sem allur heimurinn getur fylgst með á sama tíma fyrir tilstilli fjar- skiptatækninnar. Á þetta ekki síst við um íþróttir. Aðafaranótt laugardags hóf- ust Ólympíuleikamir í Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu, og eru þeir sannkallaður heimsvið- burður. Með þeim er unnt að fylgjast beint um allar jarðir í sjónvarpi. Mönnum þótti mikið til tækninnar koma þegar leik- amir voru í Los Angeles fyrir fjórum ámm og ætla Suður- Kóreumenn ekki að vera eftir- bátar Bandaríkjamanna að þessu leyti. Fyrir okkur sem emm andbýlingar Suður- Kóreumanna á jarðarkringlunni veldur það helst óþægindum, að tíminn er ekki hinn sami alls staðar þannig að við verð- um helst að vaka á nóttunni, ef við ætlum að fylgjast með atburðum um leið og þeir ger- ast. Á hinn bóginn getum við huggað okkur við að rækilega verður sagt frá öllu til dæmis hér í Morgunblaðinu og unnt er að endursýna það sem hæst ber. í sjö ár hafa Suður-Kóreu- menn unnið sleitulaust að því að undirbúa Ólympíuleikana og varið til þess 132 milljörðum íslenskra króna. Þótt á ýmsu hafí gengið í stjómmálum landsins og þar sé við margan og magnaðan vanda að etja, hefur markvisst verið stefnt að því að leikamir yrðu þjóðinni lyftistöng og sköpuðu henni nýjan sess í samfélagi þjóð- anna. í því efni hefur verið á brattan að sækja, einkum gagn- vart kommúnistaríkjunum, en leikamir í Seoul slá sjálfír mörg met. Til dæmis em fulltrúar frá 161 þjóð á leikunum og hafa þátttökuríkin aldrei verið fleiri. Iþróttamennimir em einnig fleiri en áður eða 10.626 og með þeim 4.266 opinberir full- trúar en tæplega 14.000 blaða-, frétta- ogtæknimenn hafajafn- framt verið skráðir til að fylgj- ast með öllu er fram fer. í tilefni Ólympíuleikanna hittast íþróttafrömuðir hvað- anæva úr heiminum og ráða ráðum sínum. í tengslum við leikana nú var það afráðið, að hér á landi færi fram heims- meistarakeppni í handbolta 1995. Upphaflega hafði markið verið sett á árið 1993 en þá hljóta Svíar hnossið. Þótt svo hafí farið em forvígismenn handboltans ánægðir með nið- urstöðuna í Seoul. Nú ríður á miklu að þannig verði staðið að öllum undirbúningi undir þetta mót að um það náist góð- ur friður og eining og með traustum rökum verði sýnt fram á að skynsamlegt sé að veija opinbemm fjármunum í framkvæmdir vegna keppninn- ar. Við íslendingar sendum 32 íþróttamenn til Seoul er keppa þar í handbolta, sundi, frjálsum íþróttum, siglingum og júdó. Er íslenski hópurinn íjölmenn- ari en nokkm sinni fyrr. Tvisv- ar sinnum höfum við átt fulltrúa á verðlaunapalli á Óljmipíuleik- um, 1956 þegar Vilhjálmur Ein- arsson vann silfurverðlaun í þrístökki í Melboume og 1984 þegar Bjami Friðriksson hlaut bronsverðlaun í júdó í Los Angeles. Allar þjóðir óska þess að sjálfsögðu að sem flestir úr þeirra liði komist á verðlauna- pallinn og í upphafí keppninnar í Suður-Kóreu em íslensku íþróttamönnunum sendar slíkar óskir og hlýjar kveðjur. HörmulegT slys Einhver verstu ótíðindi sem menn vakna upp við em fréttir af hörmulegum dauða- slysum í umferðinni. Slíkt slys varð á föstudagskvöld á vegin- úm í Gnúpverjahreppi. Varúð verður aldrei nógsamlega brýnd fyrir vegfarendum. Hvað sem líður kvíðafullum umræðum um mikla vá er steðji að mannkyni vegna styijalda og annarra hamfara af mannavöldum á atómöld er hitt okkur miklu nær í daglegu lífí sem gerist á göt- unum og þjóðvegunum í ná- grenni okkar. . Morgunblaðið sendir þeim sem eiga um sárt að binda vegna hins sorglega atburðar á föstudagskvöld innilegar sam- úðarkveðjur og biður þann sem öllu ræður að veita þeim styrk og blessun. Ríkisstjómir koma og fara en það skiptir veralegu máli fyrir stjómmála- starfsemina í landinu hvemig það ber að t.d. að ríkisstjóm fari frá völdum. Þess vegna hef- ur verið heldur ömurlegt að fylgjast með því síðustu sólarhringa og þó sérstaklega frá því síðdegis í gær, föstu- dag, hvemig samstarf núverandi stjómar- flokka og foiystumanna þeirra hefur liðast í sundur í augsýn alþjóðar. Þetta er fá- mennt þjóðfélag, sem í meira en þúsund ár hefur átt við að stríða sundurlyndi og hatrammar deilur milli manna. Sú sundr- ung leiddi til þess á sínum tíma, að ísland komst undir erlend yfírráð. Forystumenn í stjómmálum verða að geta unnið saman, þrátt fyrir skiptar skoð- anir. Samskipti þeirra hafa yfírleitt verið vinsamleg a.m.k. síðustu þijá áratugi. Fyrir þann tíma var harkan í stjómmála- baráttunni hins vegar gífurleg um skeið og tíðarandi og viðhorf náttúrlega allt önnur en nú. En í stjómmálabaráttunni verða menn alltaf að hafa í huga, að dag- ur kemur eftir þennan dag. Þótt samstarf rofni nú verða menn að geta tekið höndum saman síðar. Því miður er veraleg hætta á því — eftir atburði föstudagsins — að forystu- menn ríkisstjómarinnar skilji á þann veg, að samstarf á milli forystumanna Sjálf- stæðisflokksins annars vegar og Alþýðu- flokks og Framsóknarflokks hins vegar verði erfítt á næstu mánuðum og jafnvel misseram. Það væri hörmulegt, ekki að- eins fyrir þá einstaklinga og stjómmála- flokka, sem hlut eiga að máli, heldur einn- ig fyrir þjóðina sjálfa og framtíðarhags- muni hennar, ef samstarfi flokkanna þriggja lýkur með þeim hætti, sem sjá mátti í sjónvarpsstöðvunum sl. föstudags- kvöld. Ríkisstjóm Sjálfstæðisflokks, Alþýðu- flokks og Framsóknarflokks var að vísu ekki óskastjóm nokkurs manns, þegar hún var mjmduð. Hún varð til einfaldlega vegna þess, að ekki var.annar raunhæfur mögu- leiki á myndun meirihlutastjómar, eins og Alþingi var skipað að kosningum loknum. Auðvitað hefði verið hægt að mynda fjög- urra flokka vinstri stjóm en foringjar Framsóknarflokks og Alþýðuflokks - treystu sér ekki í slíkt stjómarsamstarf, enda vora samskipti þeirra fyrir og eftir kosningar með þeim hætti, að þá var afar erfítt að fá þá til samstarfs í ríkisstjóm. Það var líka þingmeirihluti á bak við ríkis- stjóm Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks og Borgaraflokks. En eftir klofninginn í Sjálf- stæðisflokknum, veturinn 1987, sem leiddi til stofnunar Borgaraflokksins, var óhugs- andi á þeim tíma, að þeir tveir flokkar gengju til samstarfs í ríkisstjóm. Þetta vora meginástæðumar fyrir því, að flokkamir þrír tóku höndum saman þótt öllum væri ljóst, að samstarf þriggja flokka, ekki sízt þessara þriggja, yrði afar erfítt, eins og raunin hefur líka orðið. Það hefur komið æ betur í ljós síðustu mán- uði, að erfiðleikamir í samstarfínu hafa ekki fyrst og fremst byggzt á ólíkum sjón- armiðum um málefni, þótt þau séu að sjálf- sögðu til staðar, heldur hafa samskipti foringja flokkanna verið stirðari en dæmi era um frá því á sjötta áratugnum. Að því leyti til má segja, að sú staða, sem nú er komin upp, sé í eðlilegu framhaldi af framvindu mála síðustu mánuði. Hvað er framundan? Þegar þetta er ritað á laugardags- morgni er ekki ljóst hver hin endanlega niðurstaða verður en ekki er úr vegi, eins og mál hafa þróazt, að íhuga hvað við muni taka fari núverandi ríkisstjóm frá völdum. Auðvitað liggur beint við að tala um kosningar. En þá er á tvennt að líta: í fyrsta lagi ér Ijóst, að umræðumar um efnahagsmál á vettvangi ríkisstjómarinnar undanfamar vikur hafa skapað mikla óvissu í landinu. Staða undirstöðuatvinnu- vega er mjög erfíð. Fjölmörg fyrirtæki, sem skipta miklu máli í atvinnulífí ein- stakra byggðarlaga, standa frammi fyrir lokun og jafnvel gjaldþroti. Við slíkar að- stæður þurfúm við á öðra að halda en því, að kosningabarátta standi hér í all- margar vikur án þess, að til nokkurra skynsamlegra ráðstafana verði gripið. Ef ákveðið yrði að efna til kosninga nú, mundu fyrst hefjast mikil umsvif innan stjómmálaflokkanna til þess að undirbúa framboðslista með hefðbundnum átökum um skipan þeirra. Síðan mundi kosninga- baráttan hefjast af fullum krafti og snú- ast að veralegu leyti um brotthvarf núver- andi ríkisstjómar með gagnkvæmum ásök- unum á milli forystumanna flokkanna þriggja, sem menn fengu nokkra hugmynd um í sjónvarpsstöðvunum á föstudags- kvöldið. Að kosningum loknum tækju við nokkurra vikna viðræður milli flokka um stjómarmyndun. Þær viðræður tóku á þriðja mánuð eftir þingkosningamar á sl. ári, eins og menn muna. Það era engar líkur á, að auðveldara verði að mynda ríkis- stjóm eftir nýjar kosningar, ef tekið er mið af niðurstöðum skoðanakannana und- anfama mánuði. Rökin fyrir kosningum era hins vegar þau, að það sé óhjákvæmilegt að fá skýr- ar línur í stjómmálin og þær fáist ekki nema með því að efna til þingkosninga. Það má líka segja, að það sé afar erfítt að mynda ríkisstjóm, sem hafí nægilegan stuðning á bak við sig, án þess að fyrst fari fram kosningar. Loks má færa rök að því, að uppnámið í herbúðum stjómar- flokkanna undanfamar vikur vegna efna- hagsmálanna hafí einfaldlega verið of mik- ið. Það sé ekki þörf á jafn viðamiklum aðgerðum og ríkisstjómin hefur verið að fjalla um. Þetta byggist auðvitað á því, að vandinn sé rétt skilgreindur. Jafnvel þótt færa megi sterk rök að því, að ekkert eigi að gera verður hins vegar að telja, að umræðumar um efna- hagsmálin að undanfömu kalli á aðgerðir til þess að fólki fínnist það hafa fast land undir fótum. Með hliðsjón af því verður að teljast æskilegt að það takist að tryggja landinu ríkisstjóm án þess að nú þegar verði efnt til kosninga með öllu sem því fylgir. Hverjir eru kostirnir? Þeir kostir, sem fyrir hendi era til mynd- unar ríkisstjómar, era auðvitað hinir sömu og fyrir rúmu ári. Ef fyrst er litið á mögu- leika til myndunar meirihlutastjómar hafa aðstæður breytzt nokkuð. Fyrir ári strand- aði meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks og Borgaraflokks á því, að þá var óhugsandi, að Sjálfstæðisflokkur og Borgaraflokkur tækju höndum saman eftir það sem á undan var gengið. Áform um samstarf af því tagi nú mundu áreiðan- lega kalla fram átök í flokkunum báðum og þá ekki síður Sjálfstæðisflokknum, en hvað sem því líður er það staðreynd, að tíminn læknar mörg sár. Samskipti Al- þýðuflokks og Sjálfstæðisflokks síðustu daga sýnast hins vegar valda því, að mynd- un slíkrar meirihlutastjómar verður að teljast fíarlægur möguleiki að sinni a.m.k. Fyrir rúmu ári var nokkuð rætt um myndun fjögurra flokka vinstri stjómar. Tvennt útilokaði slíka ríkisstjóm þá: sam- skipti forystumanna Alþýðuflokks og Framsóknarflokks vora með þeim hætti, að nánast var útilokað, að þeir reyndu samstarf í svo erfíðri ríkisstjóm. Ennfrem- ur stóð yfír mikið uppgjör í Alþýðubanda- laginu, sem ekki hafði verið til lykta leitt og gerði þann flokk nánast óstarfhæfan í ríkisstjóm. Nú hefur sú breyting á orðið, eins og m.a. mátti sjá á gagnkvæmum traustsyfír- lýsingum milli Steingríms Hermannssonar og Jóns Baldvins Hannibalssonar í sjón- varpsumræðum á föstudagskvöld, að nú telja þessir tveir flokkar, að samstarf þeirra í milli sé mögulegt. Uppgjörinu inn- an Alþýðubandalagsins virtist ljúka með kjöri Olafs Ragnars Grímssonar í for- mannsembætti fyrir tæpu ári. En fljótlega kom í ljós, að svo var ekki og að öflugur minnihluti í þeim flokki var í harðri and- stöðu við hina nýju forystu. Síðustu mán- uði virðast forystumenn ólíkra fylkinga í Alþýðubandalaginu hafa tekið höndum saman en sennilega er það meira á yfír- _____MORGUNBLÁÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBBR 1988_35 REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 17. september Morgunblaðið/Einar Falur borðinu og af hagsmunaástæðum en að sá samstarfsvilji risti djúpt. Af þeim sökum era ákveðnar efasemdir uppi í Alþýðu- flokki og Framsóknarflokki um að sam- starf við Alþýðubandalagið sé mögulegt með skikkanlegum hætti, auk þess sem margir forystumenn flokkanna era einfald- lega andvígir því að leiða Alþýðubandalag- ið til aukinna áhrifa. Kvennalistinn er jafn mikið spumingarmerki fyrir þessa flokka og hann var fyrir ári. Af þessu má sjá, að myndun fjögurra flokka ríkisstjómar á vinstri kantinum liggur ekki á borðinu, þótt vel megi vera, að gerð verði tilraun til þess að koma henni á fót. Þá er spumingin, hvort hugs- anlegt sé að mynda minnihlutastjóm við núverandi aðstæður, sem sæti t.d. fram á næsta vor. Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti þingflokkurinn og því er eðlilegt að íhuga fyrst möguleika hans á að mynda slíka stjóm. Nú er það svo, að aðrir flokkar hafa alltaf verið mjög andvígir því að veita Sjálfstæðisflokknum tækifæri til myndun- ar minnihlutastjómar. Flokkurinn hefur aðeins einu sinni staðið að slíkri stjómar- myndun, það var veturinn 1950 og sú ríkis- stjóm sat í mjög skamman tíma. Við núver- andi aðstæður verður að telja, að minni- hlutastjóm Sjálfstæðisflokksins hefði sára- litla möguleika á að koma málum fram í þinginu. Þá er spumingin, hvort Framsóknar- flokkur og Alþýðuflokkur mynda minni- hlutastjóm, sem sæti t.d. fram á næsta vor og efndi þá til kosninga. Þessi mögu- leiki hefur áreiðanlega verið ræddur meðal forystumanna ^ þessara tveggja flokka síðustu daga. í þein-a hópi era miklar efa- semdir um, að slík iíkisstjóm fengi starfs- frið í þinginu. Forystumenn flokkanna tveggja virðast telja ólíklegt, að Alþýðu- bandalagið mundi veita þeim starfsfrið og sennilega vita þeir lítið um hug Kvennalist- ans til málsins. Auðvitað er hugsanlegt, að þess konar samstarf tækist milli þess- ara flokka, að annar þeirra tæki að sér að mynda minnihlutastjóm í skamman tíma en hinn stæði utan þeirrar stjómar og beitti sér fyrir samstarfi vinstri flokk- anna í þinginu til þess að veija slíka ríkis- stjóm vantrausti. Eins og sjá má af þessu yfírliti var það ekki að ástæðulausu, að svo mikil vinna var lögð í myndun ríkisstjómar Þorsteins Pálssonar. Aðrir kostir við núverandi að- stæður á Alþingi vora og era svo vanda- samir, að um annað var ekki að ræða. Staða Sjálfstæðisflokksins Staða Sjálfstæðisflokksins er auðvitað mjög erfíð um þessar mundir. Flokkurinn tók við forystu í núverandi ríkisstjóm, bæði vegna þess, að hann er sá öflugasti þessara þriggja flokka og vegna hins, að forystumenn Framsóknarflokks gátu ekki sætt sig við forystu Alþýðuflökks og það var gagnkvæmt. Vandamál þessarar ríkis- stjómar hafa því ekki sízt brannið á Sjálf- stæðisflokknum og formanni hans. Yfírburðir Sjálfstæðisflokksins hafa svo lengi verið svo miklir, að vel má vera, að forystusveit hans hafí ekki áttað sig nægi- lega vel á því, að eftir síðustu kosningar var Sjálfstæðisflokkurinn ekki sá sami sterki og stóri flokkur og hann var á Al- þingi. Þrátt fyrir veikari stöðu þar bendir hins vegar allt til þess að flokkurinn hafí styrkt sig í því kjördæmi, sem er þunga- miðjan í fylgi hans, þ.e. í Reykjavík. Þar hefur hann sýnt hversu samhentur meiri- hlutaflokkur fær áorkað. Sjálfstæðisflokk- urinn hefur aldrei haft meirihluta á Al- þingi og þess vegna alltaf orðið að vinna með öðrum flokki en það hefur að jafnaði dugað að fínna einn annan samstarfs- flokk, þar til nú. Áhrif Sjálfstæðisflokksins nú og að óbreyttum aðstæðum byggjast á því, að flokknum auðnist að eiga gott samstarf við aðra flokka og til þess þarf flokkurinn auðvitað að koma til móts við sjónarmið annarra flokk'a. Sennilega gera stuðnings- menn Sjálfstæðisflokksins mjög óvægnar kröfur til þingmanna og annarra forystu- manna um að hvika ekki frá grandvallar- sjónarmiðum flokksins og það veldur vafa- laust umtalsverðum erfíðleikum í sam- starfí við aðra. Tímabil vinstri stjórna hafa yfírleitt orð- ið til þess, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur náð miklu kjörfylgi eins og reynslan sýndi 1958 í sveitarstjómarkosningum og 1974 í kosningum til sveitarstjóma og Alþingis. Þess vegna munu margir Sjálfstæðismenn segja sem svo, að það þurfí ekki að skaða flokk þeirra þegar til lengri tíma er litið, þótt hér verði vinstri stjóm um skeið. En meðan Sjálfstæðisflokkurinn nær ekki nægilegu kjörfylgi til þess að mynda meiri- hlutastjóm er óhjákvæmilegt fyrir flokkinn að leita samstarfs við aðra. Og samstarf við aðra flokka byggist á gagnkvæmum tilslökunum. Þótt útlit sé fyrir, að samstarfslok nú- verandi stjómarflokka verði erfíðari en tíðkazt hefíir hér síðustu áratugi er mikil- vægt, að forystumenn flokkanna leitist við að leiðrétta misskilning og gera upp ágreiningsmál, sem upp hafa komið þeirra í milli. Þegar öllu er á botninn hvolft er það ekki síður hagsmunamál fyrir Fram- sóknarflokk og Alþýðuflokk að eiga mögu- leika á samstarfí við Sjálfstæðisflokkinn í framtíðinni en það er fyrir Sjálfstæðismenn að finna eðlilega samstarfsaðila um stjóm landsins. „Það væri hörmu- legt, ekki aðeins fyrir þá einstakl- inga og- stjórn- málaflokka, sem hlut eiga að máli, heldur einnig fyr- ir þjóðina sjálfa og framtíðar- hagsmuni hennar, ef samstarfi flokkanna þriggja lýkur með þeim hætti, sem sjá mátti í sjónvarps- stöðvunum sl. föstudagskvöld.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.