Morgunblaðið - 18.09.1988, Page 44
/
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988
I®4*1 Eo»w
25-35°/» ÚTB°Bi2 MÁNOÐOW.
* *Ln^ðNWSÖGUR'?
betub- .
%, % ^ %« ' '%* A-y,
LÆKJARGÖTU 22 HAFNflRFIRÐI SÍMI 50022
SVIPMYNDIR UR BORGINIMI
ÓLAFUR ORMSSON
„Hvaðan af
landinu ert þú?“
Það er margt sem minnir á
haustið, stilla og veðurblíða dag
eftir dag. Septembermánuður hefur
sinn sjarma eins og raunar flestir
mánuðir ársins og sérstaklega þeg-
ar hann er jafn sólríkur og verið
hefur. Mánuðurinn byijaði með út-
borgunardegi mánaðarkaupsmanna
og þá er einmitt oft þröng á þingi
í bönkum og lánastofnunum. Fólk
þar í margs konar erindum og eitt
af vinsælli útibúum, útibú Búnaðar-
bankans við Hlemm, þar er ágæt
þjónusta og fólk afgreitt eftir núm-
eraröð. Ég var þar fyrsta dag sept-
embermánaðar og númer sjötíu og
þrjú í röðinni, Guðjón Albertsson,
lögfræðingur og rithöfundur, núm-
er sjötíu og tvö og líklega hefur
Hjörtur Gunnarsson, kennari og
blaðamaður verið númer sjötíu og
eitt. Meðan beðið var afgreiðslu
notuðum við Guðjón tækifærið og
ræddum um daginn og veginn, úr-
slitin í Laugardal kvöldið áður í
landsleik Sovétríkjanna og íslands
í knattspymu, þó aðallega bókaút-
gáfu á komandi bókavertíð og horf-
ur hvað varðar metsölubækur hjá
forlögum, meðal annars forlagi Jó-
hanns Þóris Jónssonar, Skákprent,
og var tíðrætt um þann mikla vel-
vilja og stuðning sem Jóhann hefur
ávallt sýnt í verki við að koma út
ýmsum bókum íslenskra höfunda á
liðnum árum samhliða útgáfu á
bókum og tímaritum um skák. Guð-
jón minnir mig oft á umfangsmikinn
afhafnamann. Hann er ávallt vel
klæddur, í sparifötum í hvítri skyrtu
og með bindi og ræðir fjörlega um
viðskipti og íjármál og stöðu þjóðar-
búsins og stundum nokkuð gagn-
rýninn, skemmtilegur og víðsýnn,
við erum af þeirri kynslóð sem hef-
ur auðvitað lengst af lifað við alls-
nægtir og erum því skiljanlega
nokkuð áhyggjufullir hvað varðar
stöðu þjóðarbúsins, skuldasöfnun
erlendis, viðskiptahalla og eyðslu
og bruðl með peninga sem við telj-
um fara vaxandi. Guðjón hefur
þannig frásagnargáfu að ósjálfrátt
leggur maður við hlustir og einmitt
þama í útibúi Búnaðarbankans við
Hlemm fannst mér hann segja svo
skemmtilega frá því að ég vissi
ekki af fyrr en búið var að afgreiða
okkur báða og við á gangi um Rauð-
arárstíginn, Hlemm og að húsi
Tryggingastofnunarinnar við
Laugaveginn þar sem Guðjón starf-
ar sem deildarstjóri. í áköfum sam-
ræðum um stöðu efnahagsmála á
viðsjárverðum tímum og kvöddumst
við útidyrahurð stofnunarinnar og
umræðum langt frá því að vera lok-
ið og umræðuefninu því síður gerð
fullnægjandi skil.
Og á meðan úrslit eru engan
veginn augljós varðandi framtíðar-
stefnuna í efnahagsmálum þjóðar-
innar sinna menn sínum störfum
eins og vera ber. Fyrsta dag sept-
embermánaðar var einnig allnokk-
uð um að vera á Skólavörðustígn-
um, fyrir framan Sparisjóðinn og
ekki síður innan dyra. Olafur H.
Olafsson framkvæmdastjóri á leið
í Sparisjóðinn og Jón Júlíusson leik-
ari á gangi, einbeittur á svip, kom-
inn með skegghýjung, útskeifur og
gekk greitt niður Skólavörðustíginn
í lopapeysu og terelínbuxum. Þjóð-
leikhúsið um það bil að hefja starf-
semi sína og sjálfsagt í mörgu að
snúast. Og í heimasíma hringdi
góður vinur, skömmu eftir hádegi,
Sparisjóður vélstjóra innleysir spariskírteini ríkissjóðs viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Ný spariskírteini
ríkissjóðs fást hjá okkur og að auki bjóðum við fjölþættar ávöxtunarleiðir fyrir sparifjáreigendur.
12 mánaða bundin bók með háum vöxtum er valkostur sem margir kjósa, en aðrir velja
Tromp-reikning, sem á 6 fyrstu mánuðum ársins bar 8% raunvexti.
Sparisjóður vélstjóra veitir alla fyrirgreiðslu og ráðgjöí um hentugar ávöxtunarleiðir.
Verið velkomin í sparisjóðinn.
SPARISJÓDUR VÉLSTJÓRA
BORGARTUNI 18 SIMI 28577 — SIOUMULA 18 SIMI 685244