Morgunblaðið - 18.09.1988, Page 48
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988
Á sýningunni verður hárgreiðsluforrit er kallar fram ótrúlegustu breytingar á Farið er að nota tölvur í siauknum mæli í hljómlist.
hárgreiðslu fólks.
Tölvur á tækniári
Sýning í Laugardalshöllinni dagana 21.-25. sept.
Tölvunarfræðinemar við Háskóla íslands munu, m.a. í tílefni
af Norrænu tækniári, standa fyrir tölvusýningu í Laugardals-
höil dagana 21.-25. september. Sýningin er sú stærsta sinnar
tegundar sem haldin hefur verið hér á landi og munu alls 50
fyrirtæki og stofnanir taka þátt í henni.
Sýningin er jafnt ætluð atvinnumönnum á tölvusviðinu sem
leikmönnum.
Verslun og skrifstofa
framtíðarinnar
Eitt af því sem mesta athygli
hefur vakið í tölvuþróun síðustu
ára eru auknir möguleikar á tölvu-
væðingu í verslun og þjónustu. Á
sýningunni verður uppi líkan af
framtíðarverslun eins og hún get-
ur litið út með tölvubúnaði nútí-
mans. Þar getur meðal annars að
líta ýmsan búnað sem notaður er
við lestur strikamerkinga af vör-
um. Þessi tækni er að byija að
skjóta rótum í íslenskum verslun-
arrekstri.
Þá verður á sýningunni einnig
kynnt framtíðarskrifstofa for-
stjórans. Gunnar M. Hansson, for-
stjóri IBM á íslandi, mun einmitt
setja upp slíka skrifstofu fyrir
sýninguna.
Stýrikerfið UNIX
Stýrikerfíð UNIX fer um þessar
mundir sigurför um heim allan,
og skyldi engan undra, þar sem
UNIX tekur öðrum stýrikerfum
fram, meðal annars hvað sveigj-
anleika varðar. Nokkur íslensk
fyrirtæki munu á sýningunni
standa að sameiginlegri sýningu
á UNIX-stýrikerfínu og ijölbreyti-
legum notkunarmöguleikum þess.
Upplýsingabanki
Reykjavíkurborgar
Það er á fárra vitorði að í tölvu-
kerfi Reykjavíkurborgar er geymt
geysilega mikið af upplýsingum
sem varða borgina. Á sýningunni
gefst gestum kostur á að skoða
upplýsingabankann sem hefur að
geyma upplýsingar um lögsögu-
og byggðaþróun borgarinnar og
gatnagerð hennar svo að dæmi
séu nefnd.
Þá verður á sýningunni kynntur
annar hugbúnaður sem
Reykjavíkurborg notar, en þar er
um að ræða svonefnt straum-
hermilíkan, en það er hugbúnaður
sem notaður hefur verið við meng-
unarrannsóknir í grunnvatni og
sjó, meðal annars við staðsetningu
dælustöðva holræsakerfís borgar-
innar.
Útgerðarráðgjafinn
Framlag íslendinga til
EUREKA-áætlunar Evrópuríkja
verður kjmnt á sýningunni. Þetta
er hugbúnaður sem Reiknifræði-
stofíiun Háskóla íslands hefur
þróað fyrir skipstjóra á togskipum
og á hann að létta skipstjórum
ákvarðanatöku í brúnni, með
hámark afla og aflaverðmætis að
leiðarljósi. Þessi hugbúnaður er
eitt skýrasta dæmi þess hvað
tengsl Háskóla íslands við atvinn-
ulífíð geta leitt af sér.
Ættfræðihugbúnaður
Einn starfsmanna Reiknistofn-
unar Háskólans, Friðrik Skúlason,
mun á sýningunni sýna glænýjan
hugbúnað sem hann hefur samið
og á eflaust eftir að valda straum-
hvörfum í ættfræðirannsóknum á
íslandi. Með aðstoð þessa hug-
búnaðar getur nú hartnær þriðji
hver íslendingur á einu augnabliki
rakið ætt sína til þess tíma er
menn vógu mann og annan og
verðbólga var ekki til í íslensku
máli.
IBM1620
Elsta tölva Reiknistofíiunar
Háskóla íslands og um leið ein
elsta tölva landsins, hefur verið
sett saman á nýjan leik og verður
til sýnis á sýningunni. Tölva þessi,
sem er af gerðinni IBM 1620,
ÍLVURfr
KniAR'
vegur um þijú tonn og er gerð
fyrir notkun gataspjalda. í saman-
burði við nýjustu tölvur er vinnslu-
geta stóru tölvunnar hverfandi
lítil og er hún I raun ekki hraðvirk-
ari en svo að venjulegur vasa-
reiknir nútímans hefur fyllilega
við henni.
Syngjandi vélmenni
Eitt af því sem eflaust á eftir
að vekja hvað mesta athygli yngri
kynsióðarinnar á sýningunni er
vélmenni sem getur framkvæmt
hinar ótrúlegustu brellur, svo sem
að finna útgönguleið úr herbergi
án hjálpar, auk þess sem það get-
ur sungið og talað.
Heima er best
Ef að líkum lætur mun almenn-
ingur í framtíðinni í síauknum
mæli sinna peningamálum sínum
gegnum heimilistölvu. Á sýning-
unni mun Búnaðarbanki Islands
kynna tölvukerfi sem hann hefur
sett á laggimar og gerir mönnum
kleift að njóta þjónustu bankans
í gegnum heimilistölvu. Nyjung
sem eflaust á eftir að ná aukinni
útbreiðslu og vinsældum eftir því
sem við þokumst nær 21. öldinni.
Einnig verður á sýningunni
fyrsti íslenski gagnabankinn fyrir
almenning. Hér er um að ræða
hugbúnað sem gerir fólki kleift
að sitja við heimilistölvuna sína
og panta vöra og þjónustu í gegn-
um tölvuna jafnt frá hérlendum
aðilum sem erlendum. Þess má
geta að gagnabankinn veitir með-
al annars aðgang að vöralistum í
Bretlandi og Bandaríkjunum sem
hægt er að skoða og panta úr.
Hefur þú séð háríð?
Á sýningunni verður sýndur
sérhæfður vél- og teiknibúnaður
sem notaður er til að fínna þær
hárgreiðslur sem viðskiptavinur-
inn telur að fari sér best. Ólíkle-
gustu samsetningar og breytingar
er hægt að kalla fram. Gerð er
teikning eftir hraðmynd af við-
komandi og notuð sem grannur
fyrir mismunandi hárgreiðslur.
Þar sem útlit okkar er jú, að
flestra mati mjög mikilvægt væri
ekki úr vegi að skella sér upp í
Laugardalshöll og sjá t.d. hvemig
þú lítur út með „bananaklipp-
ingu“.
Fyrirlestrar í baksal
Laug'ardalshallar
Alla daga sýningarinnar verða
fyririestrar í baksal Laugardals-
hallar. íslenskir og erlendir fyrir-
lesarar munu fjalla um efni sem
tengjast tölvubúnaði. Fyrirlesar-
amir era þessir.
- Aðgangs- og öiyggiskerfi,
Kevin Davies frá Schlage
Electronics í Bandaríkjunum.
- Nútíð og framtíð UNIX á
iarsson.
iafur Engil-
einkatölvu, Graham Howe.
- Tölvuvæðing fyrirtækja,
Bjami Júlíusson.
- Útvörður-bakvörður, hugbún-
aður til starfsmannahalds,
Gunnar Ingimundarson.
- Fjölnir, Snorri Agn
- Novell-tölvunet, 01 £
bertsson.
- Kynning á tölvubankanum
Skjásýn, Öm Guðmundsson.
Ráðstefna
í tengslum við sýninguna verð-
ur haldin ráðstefna um strika-
merki og strikamerkingar á Hótel
Holiday Inn þann 21. september.
Dagskráin er sem hér segir:
- Notkun EAN-strikamerkja í
framleiðslu, verslun og dreif-
ingu. Ame Rask forstjóri
danska ráðgjafafyrirtækisins
LOGISYS flytur fyrirlestur á
ensku.
- Hvað er að gerast á íslandi
varðandi strikamerkingar.
Haukur Alfreðsson, Iðntækni-
stofnun íslands.
- Hvemig er staðið að strika-
merkjavæðingu. Jón Sævar
Jónsson rekstrarverkfræðing-
ur.
- Kaffiveitingar.
- Notkun strikamerkja í verslun,
nauðsynlegur hugbúnaður.
Tryggvi M. Þórðarson, Hug-
boði hf.
- Notkun strikamerkinga í mat-
vælaiðnaði, staða og þróun.
Þórhallur Guðmundsson aðalr-
áðgjafi ND Application í Nor-
egi.
- Notkun strikjamerkja hjá
nokkrum íslenskum iðnfyrir-
tækjum. Guðmundur Ingi-
mundarson framkvæmdastjóri
Hugar hf.
Ráðstefnan hefst kl. 13.00.
Ráðstefnustjóri verður Páll Kr.
Pálsson forstjóri Iðntæknistofn-
unar íslands.
Skráning fer fram fram að
hádegi þriðjudaginn 20. sept. í
síma 622721 og 694760.
í Laugardalshöll verður
m.a. kynnt eftirfarandi:
- Skrifstofa framtíðarinnar,
- Verslun framtíðarinnar,
- Strikamerki,
- Fyrsti íslenski gagnabankinn
fyrir almenning,
.- UNIX-stýrikerfið,
- Útgerðarráðgjafínn,
- Bankalína Búnaðarbankans,
- Upplýsingabanki Reykjavíkur-
borgar
- IBM 1620,
- Straumhermilíkan,
- Ættfræðihugbúnaður,
- Vélmenni,
- Hárgreiðsluhugbúnaður,
- Tónlistarhugbúnaður,
- Tölvubúnaður til öryggis-
vörslu,
- Skrifstofuhúsgögn,
- Tölvubækur og tímarit,
- TölVunám,
- Gagnanet Pósts og síma.
/ Umsjón Sigurður H. Richter
NORRÆIUT TÆKNIÁR1988