Morgunblaðið - 18.09.1988, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988
49
STORLÆKKAÐVERÐ
Bjami Guðbjörnsson \
frá Hólmavík-Minning
Fæddur 16. júní 1913
Dáinn 25. ágúst 1988
Þegar ég frétti óvænt lát vinar
míns Bjama Guðbjömssonar kom
mér í hug vísa eftir Þorstein Erlings-
son úr ljóði um látinn vin:
Stundum okkur það og það
þætti fara betur
en hann dauði á öðrum stað
endapunktinn setur.
Kynni okkar Bjama hófust
snemma. Það var haustið 1931 að
leiðir okkar lágu fyrst saman. Guð-
bjöm, faðir hans, átti að leggja til
mann í fjallskil í Kaldrananeshreppi
í Strandasýslu því hann hafði búið
á Kaldrananesi veturinn áður. Hann
sendi þá Bjama son sinn til að leita,
en ég hafði hinsvegar tekið að mér
að leita fyrir bónda á Selströndinni.
A leiðinni frá Sandnesi og inn að
Gilsstöðum munum við hafa tekið
tal saman og eftir það var eins og
samband okkar festist ótrúlega
fljótt. Það var svo veturinn eftir að
við vomm báðir á ísafírði í atvinnu-
leit og um vorið rerum við, þó hvor
á sínum stað á opnum bát í Hnífs-
dal. Þá kom okkur saman um það
að fara norður um hvítasunnuna og
læra að synda, en Bjami hafði þá
vorið áður komist á flot en vildi ná
betri tökum á íþróttinni. Það varð
svo úr að við fórum í sundnám hjá
Ingimundi á Svanshóli í laug sem
Sundfélagið Grettir hafði komið þar
upp. Veturinn eftir fór Bjami suður
á land til róðra. Þá skeði það að bát
þeirra hvolfdi á miðum úti og þegar
Bjami kom upp á yfirborðið sá hann
bátinn á hvolfí og aðeins sund gat
bjargað honum, honum tókst að
synda að bátnum og komast á kjöl
með félögum sínum.
Já, þá var kreppa í landi og hart
í ári en duglegir menn víluðu ekki
fyrir sér að fara landið á enda ef
lífsbjörg var f sjónmáli. Eftir það
stundaði Bjami lengi sjó við Húna-
flóa, allsstaðar vel kynntur og af-
bragðs verkmaður. Hann var hæg-
látur, handtaka viss og örugg til
allra verka. Síðari hluta ævinnar
stundaði hann landvinnu, ýmist
vega- eða byggingavinnu. Hann var
heilsugóður lengst af en síðustu árin
átti hann við vanheilsu að stríða, réð
þá af að fara til Svíþjóðar að ráði
góðra manna og hugðist þar ná heil-
sunni aftur en lést svo eftir aðgerð
á sjúkrahúsi í Lundi í Svíþjóð.
Bjami fæddist í Asparvík en þar
og á Gautshamri voru foreldrar hans
fyrstu hjúskaparár sín. Guðbjöm hóf
svo búskap á Bjamamesi 1919 og
bjó þar til 1930. Þar mun Bjami
fyrst hafa kynnst sjónum, því
skammt var á fiskimið þar, fjórtán
ára var hann orðinn háseti hjá öðr-
um, hár og þrekinn og hraustur
unglingur. 1931 flutti fjölskyldan til
Hólmavíkur og þar átti Bjami lög-
heimili síðan þó hann flytti um síð
til Reykjavíkur, en þar bjó hann
síðustu árin með systrum sínum
Önnu og Elínu í góðri íbúð á Grettis-
götunni, en þar áttu þau saman frið-
sælt heimili í eigin íbúð.
Bjami var Strandamaður í ættir
fram. Hann var þriðja bam ellefu
systkina. Guðbjöm var merkisberi
Strandamanna á alþingishátíðinni
1930. Foreldrar Guðbjöms voru
hjónin Bjami Þorbergsson bóndi á
Klúku í Bjamarfírði og kona hans,
Guðrún Magnúsdóttir frá Veiðileysu,
Andréssonar. Frá þeim hjónum er
mikill ættbogi. Böm þeirra voru:
Guðbjöm, Bjami á Gautshamri og
Drangsnesi, Loftur á Hólmavík,
Anna Halidóra átti Hjálmar Lárus-
son tréskurðarmann í Reykjavík, og
Jórunn Agata, kona Jóns Sigurðs-
sonar, bónda á Bjamamesi. Er stór
hopur frá þessum bömum Bjama
Þorbergssonar kominn. Faðir Bjama
var Þorbergur Bjömsson bóndi í
Reykjavík, en móðir Agata Bjama-
dóttir frá Eyjum, kona hans. For-
eldrar Þorbergs vom hjónin Bjöm
Bjömsson á Klúku í Bjamarfírði og
Kristín Jónsdóttir, prests á Prest-
bakka í Hrútafírði. Foreldrar síra
Jóns voru Jón yngri Amórsson sýslu-
maður í Reykjarfirði við E)júp og
kona hans, Kristín Jónsdóttir, fálka-
fangara Steingrímssonar.
Móðir Bjama og kona Guðbjöms
á Hólmavík var Katrín Kristín,
ávallt kölluð Katrin, Guðmundsdóttir
frá Skarði, lærð ljósmóðir og valin-
kunn sómakona. Hún var síðast
ekkja hjá dætrum sínum í Reykjavík.
Foreldrar hennar vom hjónin Guð-
mundur Jónsson bóndi á Skarði og
síðar Gautshamri og seinni kona
hans, Halldóra Sigríður Halldórs-
dóttir. Þeirra böm vom 9 en auk
þess átti Guðmundur tvö böm með
fyrri konu sinni er hann missti mjög
unga. Afkomendur Guðmundar á
Skarði em fjölmargir því mikil frjó-
semi fylgdi þessum bömum hans.
Halldóra seinni kona Guðmundar
föður Katrínar var dóttir Halldórs
Jónssonar bónda í Múla við Þorska-
§örð Jóhannessonar, en kona Jóns
var Guðrún systir Jochums í Skóg-
um. Móðir Halldóm var Sigríður
Pétursdóttir Símonarsonar úr Eyja-
fírði. Hún var ljósmóðir í Ámessókn
og giftist þar Guðmundi Ólasyni
bónda á Krossnesi.
Bjami Guðbjömsson var ókvænt-
ur og átti ekki böm en í sínum stóra
systkinahópi naut hann fullkomins
fy'ölskyldulífs.
Ég votta fjölskyldu hans dýpstu
samúð mína við fráfall þessa ágæta
vinar míns, en okkar kynni vom alla
tíð traust og varandi. Eg sakna hans
sárt.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama,
en orðstír deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
Guðmundur Guðni Guðmundsson
Nýja Ultna Fömpens
bleian bindur vætu
og verndar húóina
Kjarninn í ULTRA PAMPERS þurrblei-
um er framleiddur úr hreinum papp-
írsmassa og rakadrægu hleypiefni
sem er nýjung í bleiuframleiðslu.
Pegar væta barnsins blandast efninu
myndar það hlaup sem helst innilokað
í kjarnanum. Viðkvæm og rök barns-
húð er opin og illa varin fyrir ertingu
af skaðlegum áhrifum sýrugerla, en
ULTRA PAMPERS bindur vætuna og
barnið er þurrt
Stillanlegir límlásar gera ásetningu
auðvelda.
Teygjuþræðir koma í veg fyrir leka
meðfram lærum.
AÐEINS ÞAÐ BESTA FYRIR BARNIÐ.
Einkaumboð:
UuJk/í/Íj
AmflrínTra
Vegna mikillar eftirspurnar bjóðum við nú 22 daga ferð
fyrir fullorðið fólk — 60 ára og þar um bil. Auk okkar ágætu
fararstjóra munu Anna Þrúður Þorkelsdóttir og Kristín Jónasdóttir
sjá um að gera fólkinu dvölina sem ánægjulegasta.
Anna Þrúður Þorkelsdóttir og Kristín Jónasdóttir