Morgunblaðið - 18.09.1988, Side 51
886 r jra8M3T‘I38 .81 flUOAOUMMU8 .GiaAjaMlIOÍIOM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988
03
51
Hvað hefur nú verið að gerast
undanfama viku, sem ýtt hefur
við gráu heilasellunum? Varla
lyfta vandamálafréttir morguns-
ins sálinni til átaka við nýjan dag.
Inn á milli leynast þó upplyftandi
tfðindi, þótt oft drukkni þau í
dálæti blaðafólks áþrasi. Sú gleði-
frétt gladdi hjartað að borgarráð
Reykjavíkur samþykkti 11 millj-
óna kr. aukafjárveitingu til bó-
kakaupa í Borgarbókasafni. Því
verður glaðara í höllu lestrarhesta
á komandi bókavertíð og skap-
stirðir pistlahöfundar missa nöld-
rið sitt. Alltaf er notalegt krydd
í tilveruna að geta lesið um
skemmtilegar persónur og efni að
eigin vali, í stað þess að sitja
bara uppi með það sem á fjörum-
ar rekur í hversdagslífínu. Sem
ekki er sérlega uppörvandi um
þessar mundir. Því eins og Aldous
Huxley orðaði það, þá er aðalmun-
urinn á bókmenntum og lífínu
sjálfu sá að í bókinni er líkinga-
hlutfallið milli sérstæðra persónu-
leika og hversdagsfólks hátt, en
í raunveruleikanum mjög lágt.
Önnur uppörvandi tíðindi em
nýja brúin yfír Ölfusárósa, sem
tengir bæi og sveitir. Og víkkar
enn þetta helsta athafnasvæði á
íslandi,' suðvestursvæðið. Færir
saman til átaks stærri hluta þjóð-
arinnar. Ef fram er litið, verður
þá ekki einmitt okkur íslending-
um til framdráttar í harðnandi
samkeppni að þétta raðimar?
Nýjar aðstæður hljóta sífellt að
vera að breyta hlutunum. Ekki
síður fróðlegt að líta aftur. Það
var einmitt tilkoma Ölfusárbrúar-
innar sem í byijun aldarinnar
sneri öllu við á svæðinu. Drap
Eyrarbakkaverslunina, sem
blómstraði meðan flutningar til
Suðurlandsins vom sjóleiðis, og
byggði upp Selfossbæ við brúna
á vegi landflutninganna. Flutti
þangað verslun og þjónustu. Ætli
verslunin dreifíst nú aftur niður
í sjávarplássin Þorlákshöfn,
Stokkseyri og Eyrarbakka með
styttri leið til aðdrátta? Á það trú-
ir sýnilega nýr stórtækur kaup-
maður í Þorlákshöfn, sem segir
samkeppnina í sínum verslunar-
markaði verða við markaðina í
Reykjavík.
Þessi atburður verður nálægari
við að hafa dvalið í nokkrar vikur
á síðastliðnu vori á þeim indæla
stað Eyrarbakka. Naut þar þess-
ara kosta sem flest fólk í um-
heiminum er að sækjast eftir, þ.e.
nálægðarinnar við mesta þéttbýlið
með öllu sínu framboði og jafn-
framt í lítt tmfluðu náttúmlegu
umhverfí. Á vormánuðum, í maí
og júní, er þama eitt alls heijar
dírrindí. Vorfuglarnir em að koma
að landinu í hópum, í fjöruna,
vota mýrina fyrir ofan og móana,
og nýfæddu lömbin jarma undir.
Að eiga kost á slíkri sinfóníu er
á við mörg önnur gæði lífsins, sem
sóst er ákafar í. Maður tímdi varla
að kveikja á útvarpi til að missa
ekki út söng þrastanna á
húsmæninum. Þessi sinfónía er
ekki aldeilis einhæf. Fuglamir
breyta um söngstíl frá tilhugalíf-
inu til ráðsetts ektastands með
búi og bömum. Eyrbekkingar
hafa — viljandi eða af slembilukku
— haldið í ýmislegt af þessum
lífsgæðum, sem má öfunda þá af.
Þeir virðast t.d. ekki eins og borg-
arbúar hafa komið sér upp katta-
liði til að hrekja burtu fuglana
úr bænum. Og Eyrarbakki hefur
enn persónuleika. Er ekki eins
nýríkulegur og lítt greinanlegur
frá hvaða þorpi sem er í veröld-
inni sem flestir íslenskir bæir.
Þama em svo mörg falleg gömul
hús, sem haldið er vel við, að
ekki sé talað um djásnið, Húsið
sjálft, sem hún Auðbjörg Guð-
mundsdóttir hefur upp á eigin
spýtur haldið við. Og þar stendur
hann Guðlaugur kaupmaður 92ja
ára gamall í búðinni sinni og hef-
ur opið þegar fólkið þarf á að
halda. Að vísu bólar aðeins á því
að menn kunni þar að gleyma
dýrmæti kyrrðarinnar og fjörunn-
ar. Einhverri verksmiðju leyft að
setja í gang háværan útblástur
hjá sér, sem truflar kyrrðina.
Að koma svo þaðan til borg-
anna á meginlandi Evrópu og til
fólks sem fínnst sjálfsagt að
leggja á sig langan daglegan akst-
ur til að geta búið utan borga,
þá áttar maður sig betur á þessum
lúxus. Til dæmis var í vor ekkert
mál að skreppa að kvöldi á menn-
ingarviðburði listahátíðar á klukk-
utíma á steyptum vegi og var þó
nýja brúin á ósunum ekki komin.
Stærsta athafna- og atvinnu-
svæðið á Islandi er þannig hratt
að stækka, teygir sig nú frá
byggðasvæðinu á Reykjanesskag-
anum öllum austur fyrir Fjall,
austur um Hellu og Hvolsvöll og
norður til Akraness með báts-
ferðum með strætisvagnatíðni.
Ekki þætti stórborgarfólkinu fyrr-
nefnda það miklar fjarlægðir mið-
að við kosti. Hagkvæmnin er auð-
vitað í báðar áttir. Enn fínnur
maður þó á stöðunum vel fyrir
því hve Reykvíkingum fínnst
miklu lenga til Selfoss en Selfyss-
ingum að skreppa til Reykjavíkur
og hve Breiðhyltingum finnst í
Reykjavík miklu minna mál að
skreppa í miðbæinn en Vesturbæ-
ingum að fara upp í Breiðholt.
Einhver innbyggð skekkja í rad-
amum. Manneskjan á oft erfítt
með að hanga í framförunum.
Situr gjaman eftir og kann ekki
að stilla radarinn eftir aðstæðum.
Hann vill standa fastur á nei-
kvæða takkanum.
Hlýtur ekki betri tenging höf-
uðbörgarsvæðisins og stærri geira
af því sem kallað er landsbyggð
og auðveldara rennerí fram og
aftur milli eftirsóttra kosta á báð-
um stöðum að vera af því góða?
Sjálfsagt em einhveijir á landinu
með stillt á neikvæða takkann.
Finnst eflaust vont að stærri hluti
þjóðarinnar njóti þess sem þétt-
býli getur boðið, hvað þá ef þeir
geta líka haldið í það sem stijál-
býli býður til búsetu. Aldrei hefí
ég getað skilið, þrátt fyrir óaflát-
anlegar tilraunir til að koma því
inn í þykkan haus, að eitt mesta
böl „landsbyggðarinnar" sé að
Hitaveita Reykjavíkur skuli geta
séð 53% þjóðar í köldu landi fyrir
ódýrri upphitun úr iðmm jarðar.
Dýr upphitun er vont böl norður-
byggða, en að mestu vandræðin
séu að hægt sé að draga úr því
böli hjá meirihluta íslensku þjóð-
arinnar er nú óneitanlega dulítið
torskilið. Og það hefur orðið
vegna þess hve langt er síðan íbú-
arnir höfðu vit á að tryggja sér
hitaréttindi og hefjast handa.
Gera það að forgangsverkefni og
eyða skattpeningunum lengi í það
frekar en nokkuð annað. Og af
því að fyrirtækið hefur alltaf ver-
ið rekið af einstakri forsjálni og
framsýni. Stöðvaði heldur um
margra ára skeið allar rannsókn-
ir, framkvæmdir og jafnvel við-
gerðir á tímum verðstöðvunar
heldur en að taka þessi bijáluðu
óhagkvæmu lán, eins og margir
aðrir gerðu. Stækkaði á meðan
smám saman markaðinn til að
standa undir komandi stórfram-
kvæmdum á Nesjavöllum. Ekki
vom nú allir Reykvíkingar sáttir
við sína borgarstjóm, að vera að
teygja sitt hitaveitusvæði í önnur
sveitafélög, upp á Kjalames og
suður í Hafnarfjörð. Skildu ekki
hagkvæmnina. Og sama gildir
auðvitað um allt sameiginlegt
átak til hagsbóta fyrir íbúa,
stækkandi athafnasvæði léttir
álagið.
Upp í hugann skýst af dular-
fullum ástæðum grúkka:
Hve leitt, að hann Jón
kvaddi lífsins rann.
Mig langaði svo
(pl|;ASS|
GRENNIST AN AREYNSLU
MÖGULEIKINN ER
SKAMMT UNDAN
Reyndu SLENDER YOU, nýju megrunaraðferðina!
Að grennast með bros á vör! Án
þreytandi æfinga, án gífurlegrar
áreynslu. Þetta hljómar ótrúlega en
samt er það satt. Svona er nýja meg-
runaraðferðin, SLENDER YOU.
HVAÐ ER SLENDER
YOU?
Tvisvar i viku leggst þú sex sinnum
í 10 mínútur á sex vélvædda bekki,
sem em sérstaklega hannaðir til að
örva starfsemi mikilvægustu vöðva
likamans: Maga, fætur, brjóst, læri,
mjaðmir og handleggi.
Andstætt heföbundnum aðferðum
veldur SLENDER YOU því ekki að
vöðvamir bólgni upp, heldur styrkj-
ast þeir og verða liprari. Og þar sem
SLENDER YOU hjálpar þér að
losna við fitu og appelsínuhúð, líka
á „erfiðu" stöðunum, geturþú losnað
við nokkra aukasentimetra!
Auk þess verður þú algjörlega út-
hvíld(ur) eftir SLENDER YOU með-
ferð, og full af orku, þar sem það eru
tækin sem vinna erfiðið fyrir þig!
FYRSTA MEÐFERÐ-
IN ALLTAF ÓKEYPIS
Eftir að þú hefur reynt einu sinni
ókeypis, viltu ekki vera án SLEND-
ER YOU.
Komdu og prófaðu SLENDER YOU
ókeypis, til þess að sannfærast og
fáðu jafnframt líkamsgreiningu á
tölvu, án nokkurra skuldbindinga
fyrir þig auðvitað.
Teygju-bekkur
Fóta-bekkur
Setu-bekkur
Mjaðma-bekkur
Sandpokabekkur
Nudd-bekkur
Eftir SLENDER YOU tíma í
Sólarlandi er gott að slaka
á í hressilega heitri vatns-
gufu og/eða í ólgandi og
heitum nuddpotti.
í Sólarlandi starfar löggiltur
sjúkranuddari.
Barnakrókur og alltaf heitt á
könnunni í Sólarlandi.
Verid velkomin í
Opnunartímar:
Mán.-fös, kl. 08-23
Laugard.kl. 10-18
Sunnud. kl. 12-17
Hamraborg 20, Kópavogi Sími 46191