Morgunblaðið - 18.09.1988, Page 62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988
+ Maöurinn minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, EGILL BACHMANN HAFLIÐASON skreytingameistari, andaðist í Landspítalanum 16. september. Guörún Ragnarsdóttir og börn.
t Eiginmaður minn, matthIas þ. guðmundsson fyrrv. verkstjóri, Hvannalundi 12, Garðabœ, lóst þann 16. september. F.h. aðstandenda, Sigurveig Einarsdóttir.
+ Eiginmaður minn, faðir og afi, KJARTAN GUÐMUNDSSON tannlœknir, lést í Landakotsspítala föstudaginn 16. september. Svava, Asthildur, Kjartan, Guðmundur Jón og barnabörn.
J + ÁGÚST GEORG ERLENDSSON, Ellihelmilinu Grund, andaöist á Landakotsspítala 13. sept. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu, þriðjudaginn 20. sept. kl. 15.00. Fyrir hönd aöstandenda, Marfa Ingvarsson.
7
+ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN PÁLMI JÓNASSON, Arnarhraunl 8, Hafnarflrði, andaðist 10. september á Sólvangi. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Sórstakar þakkir til starfsfólks Sólvangs. Þökkum auðsýnda samúð. Skarphóðinn Jónsson, Anna Rósa Bjarnadóttlr, Jónasfna Jónsdóttir, Geir Þórðarson, Lovfsa Jónsdóttir, Úlfar Randversson, Guðjón Jónsson, Erna Bergsveinsdóttir, Geir P. Þormar, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Móðir mín, tengdamóöir og amma, MARGRÉT JÓNSDÓTTIR fyrrverandi skipsþerna, Möðrufelll 13, sem lóst í Landakotsspítala 11. september, verður jarðsungin frá Langholtskirkju mánudaginn 19. september kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag íslands. Nanna Jónsdóttir, Hafsteinn Sigurðsson og börn.
+ Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langa- langömmu, SIGRÍÐAR EINARSDÓTTUR, áður til helmilis f Skaftahlfð 34, fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 20. september kl. 13.30. Þeir sem vildu minnast hennar láti Háteigskirkju njóta þess. Valgerður Eyjólfsdóttir, Jón E. Guðmundsson, Rósa Eyjólfsdóttlr, Ingi Hallbjörnsson, Krlstbjörg Þórðardóttir, Björn Ómar Jónsson, Guðbjörg Jónsdóttlr, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
+ Ástækr sonur okkar, dóttursonur og bróðir, ÓMAR ÖRN ÓLAFSSON, verður jaðrsunginn frá Langholtskirkju mánudaginn 19. september kl. 15.00. Guðrún Sigurmundsdóttir, Ólafur Örn Árnason, Ágústa Magnúsdóttlr, Sigurmundur Arinbjarnarson, Ardfs Ólafsdóttir, Ágústa Ólafsdóttir, og fjölskyldur. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Langholtskirkju og Styrkt- arfólag lamaðra og fatlaðra.
Kristjana Sveins-
dóttir - Minning
Fædd 2. júli 1932
Dáin 10. september 1988
Kidda vinkona er dáin. Engan
grunaði,. að þessi sjúkdómur myndi
svo skjótt vinna bug á lífi þessarar
kátu og lífsglöðu konu. Það hrann-
ast upp minningar frá æskudögum
heima í Siglufirði. Kidda, eins og
hún var ætíð kölluð meðal vina, og
Jóna, systir hennar, við ólumst nán-
ast upp saman. Við lékum okkur í
sandkassanum, og seinna í starfí
og leik unglingsáranna.
Alltaf var söngur og gítarsláttur
þegar Kidda var mætt, því hún var
með eindæmum söngelsk.
Síðan lá leiðin suður, þar hittum
við okkar maka, og enn höldum við
hópinn.
Kristjana var yngst sex systkina.
Dóttir þeirra sæmdarhjóna Rósa-
mundu Eyjólfsdóttur og Sveins Sig-
urðssonar.
Þau hjón voru mjög samrýnd og
unnu mikið að verkalýðsmálum í
Siglufirði á meðan kraftar entust.
En Rósamunda lést 1948, aðeins
52 ára að aldri. Sveinn lést fímm
árum síðar, var þá fluttur suður til
sinna bama.
Kristjana giftist Jóhanni Rúnari
Guðbergssyni vélvirkja, og eignuð-
ust þau sex mannvænleg böm.
Kidda og Rúnar komu til okkar
í heimsókn í febrúar sl. Ekki hvarfl-
aði að okkur, að þetta myndi vera
síðasta sinn, sem við kæmum öll
saman. Við ræddum um komandi
sumar og hvert við ætluðum að
fara. Þau vom búin að ákveða að
fara til sólarlanda í júní.
En enginn veit sína ævi fyrr en
öll er. Nú er Kidda vinkona farin
til eilífra sólarlanda.
Kæri Rúnar, við Pétur biðjum
algóðan Guð að styrkja þig og böm
ykkar, tengdaböm og bamaböm.
Hlin Guðjónsdóttir
Laugardaginn 10. september lést
á Landspítalanum vinkona mín
Kristjana Sveinsdóttir frá Siglu-
fírði. Hún var fædd 2. júlí 1932
yngst 7 bama Sveins Sigurðssonar
og Rósamundu Eyjólfsdóttur. Hún
ólst upp á Siglufírði með systkinum
sínum, en var unglingur er hún
missti móður sína og flutti þá til
systur sinnar á Akranesi og lauk
þar gagnfræðaprófí. Henni var
móðurmissirinn sár en átti að góð
systkini er hún mat afar mikils alla
tíð.
Hún vann síðan í Reykjavík þar
til hún giftist eftirlifandi manni
sínum Rúnari Guðbergssyni 24.
mars 1951. Þau stofnuðu heimili í
Hafnarfírði og eignuðust 6 böm
sem nú kveðja móður sína.
Það em 29 ár síðan við Kidda
kynntumst er við hjónin fluttum í
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KRISTJANA SVEINSDÓTTIR,
Hjallabraut 23,
Hafnarflrðl,
verður jarðsungin fró Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn 19.
september kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er
bent á Krabbameinsfólagið.
Jóh. Rúnar Guðbergsson,
Guðbergur Rúnarsson,
Rósamunda Rúnarsdóttir,
Sveinn Rúnarsson,
Örn Rúnarsson,
Kristfn Rúnarsdóttir,
og barnabörn.
t
Ástkœr eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi,
GUÐBERGUR ÞORSTEINSSON,
Álfaskeiði 29,
Hafnarflrði,
verður jarösunginn frá þjóðkirkjunni í Hafnarfirði þriöjudaginn 20.
september kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hins látna er vinsam-
legast bent á að láta Hjartavernd njóta þess.
Margrót Þ. Sigurðardóttir,
Slgríður P. Guðbergsdóttir, Birkir Skúlason,
Steinþóra Guðbergsdóttir, Hjörtur S. Gunnarsson,
Margrót S. Guðbergsdóttlr, Baldur Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
María Rúnarsdóttir,
Anna K. Þorsteinsdóttir,
Slgurður Sigurðsson,
Sólveig Óladóttir,
Valborg Kristjánsdóttir,
Hafliðl Karlsson
LEGSTEINAR
MÖSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sfmi 681960
I
L e nstei inar
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjof um gerð og val legsteina. \
s S.HELGASOH HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 4Ö SiMI 76677
sama hús og þau bjuggu í. Þá kom
{ ljós að ég var líka Siglfirðingur
en vegna 7 ára aldursmunar þekkt-
umst við ekki, en umræðuefnin urðu
nóg. Þegar þetta var, voru 4 elstu
bömin fædd, Guðbergur, Rósa-
munda, Sveinn og Öm. Árið 1960
eignuðumst við báðar dætur með
mánaðar millibili. Kristín dóttir
hennar og dóttir mín ólust því upp
í sama húsi fyrstu árin og hafa allt-
af verið góðar vinkonur. Fimm elstu
bömin eru öll búin að festa ráð sitt
og stofna eigin heimili en yngsta
dóttirin María er heima og í námi.
Nú stendur hún í sömu spomm og
móðir hennar áður og nýtur þess
sama, góðs föður og systkina.
Á þessum ámm er við bjuggum
í Fögmkinn vomm við báðar heima-
vinnandi og hittumst oft yfír kaffi-
bolla tvær eða með öðrum ná-
grannakonum. Við gættum bama
hvor fyrir aðra, skiptumst á matar-
uppskriftum og sniðum á bamaföt-
um. Þá var lítið keypt tilbúið en
flest unnið heima. Það gefur auga-
leið að nóg hefur hún haft að starfa
með fímm ung böm. Svo fluttum
við báðar. Hún í Innri Njarðvík en
ég á annan stað í Hafnarfirði. En
vinnátta okkar og dætra okkar var
sú sama og mörg síðustu ár bjugg-
um við báðar hér. Kidda vann oft
mikið utan heimilis og nú síðast á
Sólvangi. Þau Rúnar höfðu bæði
gaman af að ferðast og gátu veitt
sér það á seinni árum. Kidda var
mjög greind, hreinskilin og lífsglöð.
Hún sá alltaf spaugilegu hliðamar
á tilverunni og hafði sérstaka frá-
sagnargáfu. Þvf var alltaf jafn gam-
an að hitta hana.
Kidda veiktist í vor en allir höfðu
von um að hægt væri að halda
meininu niðri. Þegar ég hitti hana
síðast, viku áður en hún dó, datt
mér ekki í hug að svo stutt væri
eftir. Hún var með hættulegan sjúk-
dóm en var svo kjarkmikil og von-
góð að ég trúði því að hún fengi
lengri tíma.
Er ég skrifa þessar línur, líða
ótal minningabrot í gegn um hug-
ann. Góðar minningar em dýrmæt-
ar og ómetanlegar þeim nánustu.
Ég þakka vinkonu minni samfylgd-
ina og sendi Rúnari bömum og
öðmm ættingjum innilegar samúð-
arkveðjur.
Lóa
Blómastofa
Friðfinm
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opid öll kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.