Morgunblaðið - 18.09.1988, Qupperneq 65

Morgunblaðið - 18.09.1988, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988 Aurora fost f ísnum f Ross-hafi. Þarna er verið að nota dínamit til að reyna að sprengja hana lausa. Leiðangursmönnum tókst að komast að ísröndinni þremur vikum fyrr á árinu en nokkrum öðrum heimskautaleiðangri hefur tekist. Kort sem sýnir leið leiðangurs Monicu Kristensen 1986-87 og Roalds Amundsens frá Hvalvík á Suðurheim- skautið. íjjryS: I V. ' Morgunblaðið/Sverrir Erfiðasti farartálminn var Axel Heiberg-jökullinn, þar sem klifra þurfti upp f 2.700 metra og hallinn vfða 45 gráður. Sprungurnar voru svo þéttar að aðeins var ein leið fær, sú sem Amundsen hafði farið. Það hlaut að vera þarna. um hundana einum kosti enn, haegt væri að kjassa þá, sem væri að vísu hægt við vélsleða. En sá sem það gerði hlyti að verða talinn eitthvað skrýtinn. Og ekki fer fram hjá þeim s^m les bókina hve vænt þeim öllum fjórum þykir um hundana. Monica segir þannig frá hundunum að les- andanum finnst hann þekkja þá hvern fyrir sig með kostum þeirra °g göllum, aðaliega kostum. Þegar •best á reið og þurfti að aka hratt þvert yfir sprungur sagði hún að þeir hefðu skilið hvað um var að vera er hrópað var til þeirra og hiku hiklaust stökkið. Hlæjandi segir hún frá því er Jakob spurði hana, þegar þau voru komin með s>tt æki heilu og höldnu yfir slíkar hættulegar spmngur, hvort hún þefði ekki séð þegar forustuhundur- lnn þeirra Larmur fór niður um og féll ofan í sprunguna. Hundamir tveir á eftir héldu áfram á fullu og kipptu honum með sér upp á taumn- um. Monica sem var á skíðum að reyna að hanga á sleðanum og halda honum réttum, kvaðst hafa átt fullt í fangi með að hanga á sjálf og fara ekki niður. „En,“ bætti hún við, „þetta sýndi bara ást Jak- obs á hundunum, hann hafði ekkert vitað hvað mér leið." Tvö síðustu árin fóru algerlega í undirbúninginn, ekki síst að út- vega fjármagn, en mikið af starfinu var sjálfboðaliðastarf vina og ætt- ingja. Faðir Monicu annaðist reikn- ingshaldið og eiginmaður hennar þjálfaði t.d. hundana með henni. Suma þeirra eiga þau enn. „Hann hvetur mig í þessu starfi, enda kynntumst við í leiðangri til suður- skautshafa og hann var við sitt verk á skipinu Auroru í öðmm leið- angri meðan við voram á ísnum," segir hún. Fæði í þessum leiðangri var allt annað en venjan hefur ver- ið í heimskautaleiðöngmm. Tilraun- ir með hundamatinn gerði móðir hennar. „Það var ekki erfítt að velja, ég tók bara allt það sem er öfugt við megranarfæði nútímans. Enda þurftum við mikla orku til að geta farið 35-40 km á dag og nauð- synlegt að hafa magann örugglega í lagi til að þurfa ekki of oft út í 35-40 stiga frost. Heimskautafarar hafa farist af því að hægðir fóru úr lagi. Undirstaðan í hundamatn- um var fita, síldarmjöl, vítamín og fleira, og lyktaði alveg skelfilega. Móðir hennar lét þau orð falla að þess óskaði hún heitast að dóttur hennar hefði aldrei dottið heim- skautaferð í hug. En fæðið reyndist frábærlega. Líka fatnaðurinn sem var léttur og sterkur, ekki skinn- fatnaður en ull og vindþétt úlpa, sem endist allan túrinn. Aðalatriðið að fá ekki raka inn á sig. En fyrir heimskautaferð er ekki hægt að fara bara í sportbúð og kaupa íþróttafatnað úr gerviefnum. Við rákum okkur auðvitað á ýmislegt í upphafí. Til dæmis byijuðum við með þann ásetning að verða ekki gangandi auglýsing, þar sem við værum alvarlegir vísindamenn. En núna eram við reiðubúin til að aug- lýsa hvað sem er og hvar sem er, bara að það gefi tekjur," segir Monica. Eftir ýmiskonar tafir var haldið til Nýja Sjálands með flugvél með hundana og hluta farangursins, en þar beið skipið. Og þaðan siglt suð- ur yfir stormasamasta haf heims. Suðurskautslandið er utan seiiingar tækninnar. Allan veturinn er engin leið að nálgast það. Roald Amund- sen hafði enga tæknilega hjálp fyr- ir 75 árum og hann hafði vetursetu á ísnum til að geta lagt af stað nægilega snemma til að komast fram og aftur. Við vildum komast þetta á einu ári og voram þvf tveim- ur mánuðum fyrr á ferð en hann og mánuði fyrr en nokkum tíma hefur verið reynt að komast að ísröndinni. Við höfðum þyrlu um borð til að finna leið gegn um ísinn. Og Twin Otter-flugvél til að varpa niður vistum fyrirfram á leið leið- angursins á fimm stöðum. En þar sem vélin gat ekki fíogið alla leið frá Nýja Sjálandi í einum áfanga varð skipið að fínna boigarísjaka með þúsund metra langri braut fyr- ir hana að millilenda á til að taka eldsneyti, sem tókst um síðir — brautin var 700 metrar á 30 metra þykkum jaka. Flugvélinni tókst naumlega að ná sér á loft og halda til bækistöðvarinnar í Hvalvík, þar sem Amundsen hafði vetursetu á Suðurskautslandinu á 78. breidd- argráðu. Og fyrir heppni opnaðist renna fyrir skipið sem var fast, svo það var þrátt fýrir miklar tafir kom- ið að Suðurskautslandinu þremur vikum fyrr á árinu en nokkur annar hafði verið þar og hægt að feija fólk og farangur á „fast land". „Að koma að brún Ross-íssins er það fallegasta sem maður getur ímyn- dað sér, ísveggurinn teygir sig 40 metra yfir haffiötinn svo langt sem augað eygir eins og óvinnandi virk- isveggur, en undir yfirborðinu nær ísinn 400 metra niður. Og þegar komið er inn í vikið á veggnum má sjá mörgæsir uppi á ísnum og hvali að leika sér í nánd við skipið." Framundan lá nú 2.800 km leið, sem fara þurfi með 450 kg hlass á tveimur hundasleðum á 75 dögum og á leiðinni ætluðu leiðangurs- mennimir §órir að gera vísindaleg- ar athuganir. Amundsen hafði not- að 100 daga í ferðina. „Leið Amundsens er stysta leiðin á suður- pólinn, en e.t.v. sú erfíðasta. Við þurftum að aka 780 km yfir ísbreið- una og komast svo upp á hásléttuna í nærri 3.000 metra hæð, segir Monica Kristiansen. „Við ferðuð- umst á nóttunni, tveir með hvem sleða með sömu hundum og tjald og með ákveðin verk að vinna. Allt varð að vera í skorðum, svo maður gæti unnið verkin blindandi þegar maður var að gefast upp af þreytu að kvöldi. í tjaldinu var hitinn 0 stig meðan kveikt var á prímusnum, annars eins og úti, frá 10 til 40 stiga frost. Eftir að hafa tafist í lausamjöll og snjókomu á fyrsta hluta ieiðarinnar, kom að erfiðasta farartálmanum, Axel Heiberg-jökl- inum, þessum snarbratta sprangna jökli þar sem þurfti á 40 km leið að klifra upp í 2.700 metra hæð. Hefðum við ekki vitað að þama hlaut Amundsen að hafa farið upp, hugsa ég að við hefðum hætt við og talið það ófært. Hann hafði ekk- ert sér til leiðbeiningar og átti á hættu að geta ekki einu sinni snúið eykinu við milli sprungna. En við höfðum lýsingu hans frá 1912, að vísu ónákvæma, og kort sem enskur maður hafði dregið upp fyrir okk- ur, en hann hafði 1962 farið þama niður, en aldrei upp.“ Fyrsti hluti ferðarinnar hafði sem sagt gengið hægar en áætlað var vegna snjó- komu, nokkurra daga óveðurs og leitar að birgðastöð 2 og verða allir þeir erfiðleikar ekki raktir hér. Tíminn var að hlaupa frá þeim. í fimm ár höfðu þau verið að undirbúa þessa ferð og vora nú 6 dagleiðir frá Suðurpólnum. Komin upp yfir hindranimar og háslétta framundan á áfangastað. En tíminn mundi ekki duga til að ná þangað og til baka til skipsins fyrir 28. febrúar, síðasta daginn sem skip- veijar töldu sig geta beðið þeirra. Áttu á hættu að skipið lokaðist inni í ísnum yfír veturinn og jafnvel malaðist. „í rauninni var engin spuming um að snúa við. Rökrænt var það ekki erfíð ákvörðun," segir Monica. „En tilfinningalega var hún ákaflega erfið. Fyrir okkur fjögur var það kannski áhættunnar virði, en við máttum ekki hætta áhöfn skipsins þar sem margir voru fjöl- skyldumenn. Auk þess sem fjöldi fólks hefði líklega hætt lífinu til að leita okkar.“ Þau höfðu um það að velja að reyna að láta bjarga sér með flugvél frá amerísku stöðinni af Suðurpólnum, sem er erfiðleikum bundið því loftið er svo þunnt að jafnvel er undir hælinn lagt hvort stór Herkules-flugvél nær sér upp, eða snúa við og ljúka rannsóknum sínum og hirða upp vísindagögn sín á bakaleiðinni. Það gerðu þau og náðu skipinu. Þegar þau komu um borð skildu þau áhyggjur skipveija. ísingin var svo mikil á skipinu að skipveijar höfðu verið alla nóttina að höggva ís og dugði vart til. Mátti engu muna. Þau höfðu ferð- ast 2.000 km á 72 dögum og náð að vinna nærri allar þær vísindalegu athuganir sem þau ætluðu. Aðeins eitt sýni sem þau ætluðu að taka á pólnum sjálfum var eftir, en skipti ekki miklu. Og í bakaleiðinni höfðu þau fundið einu merkin sem eftir era um Amundsen, vörðu á kletti sem þau festu á áletraðan skjöld um ferð hans. „Erfíðast reyndist að fullvissa' skipsmenn á morsi um að við mund- um hafa þetta af og verða á til- teknum tíma við ísröndina. Þeir höfðu fengið blöðin um borð með öllum skrifunum um þá hættu sem við væram í og hve illa við væram haldin. Sem betur fer höfðum við engin blöð og vissum ekkert um þetta," segir Monica. Hvemig fengu blöðin þessar fréttir, úr því þær komu ekki frá skipinu sem eitt náði þó stundum sambandi við þau? „Bjuggu það til,“ svarar Monica um hæl. „Tóku áætlunina okkar og leið- ina og bára það saman við leið Amundsens. Því væram við ekki komin lengra? Við mundum fijósa inni. Gengu svo langt að ná í forsæt-V isráðherra og létu hann segja að hann mundi veita okkur hjálp, hvemig sem átti nú að fara að Jiví. Jú, jú, það var fylgst með okkur um allan heim. Áhuginn kannski mestur ef hugsanlegt væri að við væram að farast." Þegar Monica er spurð hvort hún hafi hug á að reyna aftur að kom- ast á Suðurpólinn, svarar hún. „Ekki bara til að komast á Suður- pólinn. Það hefur Norðmaður þegar afrekað, Roald Amundsen, svo það— er óþarfi. Aðeins ef það væri til vísindalegra rannsókna. Og það væri gaman.“ Þar sem frést hefur að heim- skautafarinn Monica Kristensen hafi flutt erindi á Kvennaráðstefn- unni í Osló í sumar, liggur beint við að spyija hana hvort henni hafi fundist erfiðara að vera kona í slíkri heimskautaferð. Nei, svarar hún með áherslu. Ég var ekki að hugsa um það. En kannski hefí ég sem leiðangursstjóri haft annan stfl á stjómuninni af þeim sökum. Ég er ekki þannig leiðtogi að ég leggist undir feld og komi svo undan hon- um og lýsi yfir í erfíðri stöðu: „Þetta geram við. Ég hefi tekið V/' þessa ákvörðun." Við ræddum mál- in þar til við voram annaðhvort orðin sammála eða allir vora sofn- aðir. Ég vakti lengst. Heima hafði ég gert það ljóst að ég bæri ábyrgð- ina og réði endanlega. Rak fólk hiklaust í undirbúningsvinnunni ef það vildi ekki gera það sem ég hafði tekið ákvörðun um. En eftir að við lögðum af stað fannst mér ég hafa fengið þá menn, sem í viss- um tilvikum vissu betur en ég. Að vísu komu tilvik, þar sem ég var í minnihluta, og að ég tók ákvörðun eftir minni tilfinningu um hvað væri rétt. Annars var ég á Kvenna- ráðstefnunni í Osló að tala um streitu og að spjara sig undir álagi. Meðan á undirbúningnum stóð var ég undir gífuriegu álagi í mjög lang- an tíma, nótt og dag, íjármagn þurfti að útvega og við skulduðum svo mikið. En ég vildi ekki aðstoð, kaus að taka alla ábyrgðina sjálf. Ég var að benda á að konur þurfa ekki alltaf að vera að sanna sig, alltaf að streitast við að vera best- ar. Að þær þurfí hreint ekki að vera bestar f öllu sem þær eru að keppa að. En við verkefnið sjálft fann ég ekki tíl þess að ég væri kona, hugsaði ekki um mig sem konu. Ég var að hugsa um aðra og viðfangsefni okkar.“ Viðtal: Elín Pálmadóttir. Myndir úr bók og fyrirlestri Monicu Kristensen, teknar af leiðangursmönnum. ____________________________________
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.