Morgunblaðið - 18.09.1988, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 18.09.1988, Blaðsíða 66
am MORGUNBLAÐIÐ, ÓLYMPÍULEIKARNIR QQ£> \ SEOUL ’88 SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988 OLYMPIULEIKARNIR I SEOUL ÍÞRÚmR FOLK ■ MIKE Melton, hamast nú, eins og brjálaður vísindamaður í gamalli bíómynd í, litlu herbergi í ólympíuþorpinu. Hann er að vinna að hönnun nýrra hjóla fyrir Banda- ríkjamenn og hann verður að hafa hraðan á því hjólreiðakeppnin er að hefjast. Hann sefur sjálfur í þéssu litla herbergi þar sem verk- færi liggja út um allt. „Ég vil vera hjá hjólunum því annars gætu keppinautar komist að leyndarmál- inu,“ sagði Melton. Þetta er í fyrsta sinn sem keppt er á þessum hjólum á alþjóðlegu móti, en þau voru not- uð á úrtökumóti Bandarikjamanna í sumar. „Þetta eru bestu hjól í heimi og við vitum það,“ sagði Melton. „Þegar keppinautar okkar sjá þau fá þeir taugaáfall," bætti hann við sigurviss. ■ / TENNISKEPPNI Ólympíu- leikanna verður tæknin notuð til að sjá hvort boltinn er inná vellinum eða utan hans. En það hefur ekki gengið vel að koma þessum búnaði og óvíst hvort hann nær í tæka tíð. Bandarískir tæknimenn komu til Seoul í gær en þegar þeir ætluðu að setja búnaðinn upp kom í ljós að einhver hafði gleymt að senda hann! Síðar kom í ljós að tækin voru öll enn á flugvellinum. Þau voru því sett um borð í næstu vél og munu koma til Seoul í dag. Það má vart tæpara standa og bandarísku tæknimennimir verða að vinna dag og nótt. ■ BANDARIKJAMENN munu '^Ri fylgja fordæmi Sovétmanna og borga keppendum sínum uppbót fyrir verðlaun á ólympíuleikunum. „Við teljum ekki að rétt sé að veita peningagreiðslur fyrir árangur," sagði Bob Melmick, forseti banda- rísku ólympíunefndarinnar. „Það samræmist ekki hugsjón Ólympíu- leikanna," sagði Melmick. Sovét- menn munu hinsvegar borga um eina milljón króna fyrir gullverð- laun, 400 þúsund fyrir silfurverð- laun og 200 þúsund fyrir brons. „Við teljum að það auki metnað íþróttamanna að vita af greiðslum fyrir góðan árangur," sagði Marat Gramov, íþróttamálaráðherra Sov- étrikjanna. _____________________ HANDBOLTI: Landsliðið fékkfrí Þar sem vitað var að gangan inn á Ólympíuleikvanginn í Seoul yrði erfið ákvað Bogdan Kowalc- zyk, þjálfari landsliðsins, að gefa leikmönnum sínum frí eftir gönguna. Strákamir fengu því sinn fyrsta frídag hér í Seoul. . Handknattleiksmennimir em mjög ánægðir með alla aðstöðu hér, segja hana betri en í Los Ange- les 1984. Hætt hefur verið við að leika æfingaleikinn gegn Spánverj- um, eins og stóð til. Olafur Jóns- son, flokksstjóri landsliðsins, sagði að landsliðið fengi eina æfíngu á keppnisstað fyrir leikinn á móti Alsír á þriðjudag. Sú æfíng er í dag, sunnudag, S borginni Suwon — sem er 40 km fyrir sunnan Seoul. Reuter Velkomin! Þúsundir Suður Kóreubúa bjóða þátttakendur og aðra áhorfendur velkomna á 24. Ólympíuleikana, með því að mynda orðið „velkomin" á ensku. Setningarhátíðin var stórkostleg I einu orði sagt — sambland sambland af skemmtun og spennu í 200 mínútur en um leið táknræn fyrir sögu mannkyns, þar sem byggt var á fomri trú Kóreumanna með samband himins, jarðar og manns að leiðarljósi. 24. Ólympíuleikamir settir í Seoul aðfararnótt laugardags: Reuter Fallhlffarstökkvarar tóku þátt f þessari glæsilegu setningarhátfð — mynd- uðu ólympfuhringina í lofti og svifu slðan gullnir til jarðar — tengingu var komið á með friði og velmegun. Ósk um nýjan og betri heim Atriðin táknræn fyrir söguna og undirstrikuðu vilja allra um frið, samlyndi og framfarir SETNINGARHÁTÍÐ Ólympíu- leikanna í Seoul aðfaranótt laugardags að íslenskum tíma en um hádegi í gœr í Kóreu var stórkostleg í einu orði sagt. Hún var sambland af skemmt- un og spennu í 200 mínútur en um leið táknrœn fyrir sögu mannkyns, þar sem byggt var á fornri trú Kóreumanna með samband himins, jarðar og manns að leiðarljósi. Nýr og betri heimur varð til, þar sem von um frið, samlyndi og fram- farir sat í fyrirrúmi. Olympíuleikar eru tákn samein- ingar og setningin var í beinni útsendingu um allan heim, en 70 þúsund manns fylgdust með á vell- inum. Glæsilega út- færð atriði voru sjálfstæð en mynd- uðu eina órofna heild — einkennandi J Steinþór Guðbjartsson skrifarfrá Seoul fyrir tímann, sem líður stöðugt og verður ekki stöðvaður. Hlndranlr Mörgun hindrunum þurfti að ryðja úr vegi til að Ólympíuleikam- ir gætu farið fram í Seoul. Nær allar þjóðir sameinuðust um að yfírstíga þessar hindranir og hátíðin undirstrikaði þá von að leikamir yrðu til að sameina þjóðir í eina heild, sem gæti lifað í sátt og sam- lyndi um ókomna framtíð. Til að undirstrika þetta hófst hátíðin á Han-ánni en ekki innan veggja leikvangsins. Heimsálfumar sex eru umluktar heimshöfunum sjö og þannig tengir Han-áin, sem ligg- ur í gegnum borgina, Ólympíuleik- vanginn við umheiminn án hindr- ana. Helldlr Innan vallar skiptust atriðin í þijár heildir, byijunaratriði, sjálfa setninguna og lokaatriðið þar sem HAPPDRÆTTl 4 Ford Bronco - 30 Fiat Uno Fieildarverómœti vinninga 16,5 milljón. /j/tt/r/mark i ti i nmr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.