Morgunblaðið - 18.09.1988, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 18.09.1988, Blaðsíða 68
NÝTT FRÁ KODAK ................... r.^.r RAFHLAÐA SEM ENDIST OG ENDIST SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR. Vopnafjörður: Tæplega 20 þurrir dagar ’='síðan 7.júlí „SÍÐASTLIÐIÐ sumar var versta óþurrkasumar í Vopna- firði síðan árið 1950,“ sagði Ágústa Þorkelsdóttir, húsfreyja á Refstað í Vopnafirði, í samtali við Morgunblaðið. „Þurrir dagar ná þvi ekki að vera 20 talsins síðan við byrjuðum heyskap 7. júlí,“ sagði Ágústa. „Heyskapur tafðist um mánuð vegna rigninganna en er nú víðast hvar lokið. Það hefur verið gott veður hér síðan á miðvikudaginn og það hefur bjargað miklu. Það er því ekki neyðarástand hér og ^A'nn náðu inn góðum heyjum, þ'rátt fyrir rigningamar. Flestir eru innan við 3 vikur að heyja ef veður helst gott,“ sagði Ágústa. Siglufjörður: Kaupa nýtt dæluskip fyr- æ 71 milljón Dýpkunarfélagið hf. á Siglu- firði hefur fest kaup á nýju dœlu- skipi í stað Grettis sem sökk nýlega vestur af Dritvíkurbjörg- um. Hið nýja skip kemur frá Finnlandi og er kaupverð þess 6 milljónir og 750 þúsund finnskra marka eða um 71 miHjón króna. Jóhannes Lárusson fram- kvæmdastjóri Dýpkunarfélagsins segir að skipið muni fyrst um sinn verða tekið á leigu til flögurra mánaða meðan leitað er leyfis yfír- valda til kaupa á því. Skipið er gröfuprammi af sömu gerð og Plrettir var en stærra og stöðugra. Það er 33 metrar á lengd og 12 metrar á breidd. Jóhannes segir að ekki hafí verið um annað að ræða fyrir félagið en kaupa þetta skip strax. Nú sé höfn- in í Sandgerði svo gott sem lokuð og hafí félagið gert samning um að dæla upp úr höfninni svo hægt sé að opna hana. Einnig bíði stórt dæluverkefni í Hafnarfjarðarhöfn. Áætlað er að hið nýja skip komi til landsins þann 15. október. Bandaríkjaför Sykurmolanna lokið Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson Sykurmolarnir luku á þriðjudag velheppnaðri tónleikaför sinni um Bandaríkin er þeir héldu þrítugustu tónleika ferðar- innar í Boston fyrir troðfullu húsi, en um 2.000 manns voru á tónleikunum. Plata hljómsveitarinnar, Life’s too Good, hefur nú selst i yfir 200.000 eintökum í Bandaríkjunum og er enn á uppleið, en af plötunni seljast um 3.000 eintök á dag. Hljómsveitin er væntanleg út til íslands í fyrramálið. Þessi mynd var tekin í Ritz-tónleikastaðnum í New York síðastliðinn sunnudag, en þar lék hljómsveitin fyrir um 1.500 manns við góðar undirtektir. Nánar er sagt frá tónleikum hljómsveitannnar í Washington sl. laugardag og New York- tónleikunum á bls. 38 og 39 í blaðinu í dag. Þorsteinn Pálsson: Einsdæmí að tillögu sé hafn- að fyrir ríkissljórnarfund Ríkisstjórnarfundur var boð- aður í gær klukkan 15, þar sem leggja átti formlega fram tillögu Þorsteins Pálssonar, forsætis- ráðherra um aðgerðir í efna- hagsmálum. Bæði Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur hafa þeg- ar hafnað þessari tillögu forsæt- Rannsókn vegna alvar- legra slysa í Bláa lóninu Grindavík. Bæjarfógetaembættið í Keflavík hefur hafið umfangsmikla rannsókn á öryggisþáttum við Bláa lónið við Grindavík og óskað eftir við Heil- brigðiseftirlit Suðurnesja að það annist þann hluta rannsóknarinnar ' sem snýr að þvi. Rannsókninni er hleypt af stað í kjölfar þess að frönsk stúlka fannst meðvitundarlaus i lóninu í siðustu viku en áður hafa orðið þijú dauðaslys þar. Karl Hermannsson yfírlögreglu- þjónn í Keflavík staðfesti f samtali við fréttaritara Morgunblaðsins að '"■‘þessi rannsókn væri hafín og að full- trúi heilbrigðiseftirlits Suðumesja hefði þegar kannað staðhætti við Bláa lónið. „Með þessari rannsókn er verið að leita eftir hugsanlegum orsökum þeirra §ögurra alvarlegu slysa sem þegar hafa orðið. Þetta svæði er notað sem baðstaður en aðstæður eru ekki allar heppilegar sem gjótur og hraunnibbur í ootninum, öryggisatriði varðandi los- un heits vatns frá orkuverinu og gæsla á svæðinu," sagði Karl. Júlíus Jónsson, framkvæmdastjóri Qármálasviðs Hitaveitu Suðumesja, sagði að þessi rannsókn gæti ekki beinst að hitaveitunni því hún legði aðeins til hús en hefði sjálf engin leyfi til neins reksturs sem rannsókn- in beinist að. „Við rekum orkuver sem skapaði Bláa lónið þar sem heita vatnið fossar út í. Því er Bláa lónið öryggisventill fyrir orkuverið en ekki öftigt og því verður ekki breytt," sagði Júlíus. Guðmundur Guðbjömsson, annar rekstraraðili baðhússins við Bláa lón- ið, sagði að sér kæmi þessi rannsókn spánskt fyrir sjónir en hann kvað hana samt af hinu góða. „Við höfum aukið öryggi gesta með því að fjölga aðvörunarmerkjum og hafa gæslu- mann á varðbergi. Við verðum hins vegar að endurskoða rekstrarstöð- una ef farið verður fram á kostnað- arsamar breytingar og þá verður Hitaveitan að koma þar inn í. Við erum með ákveðnar hugmyndir um uppbyggingu á þessum stað og er frumvinna hafín á því hvemig að- staðan og öryggisþátturinn þarf að vera í framtíðinni. Þetta er á réttri leið og þarf að leggjast fyrir skipu- lagsnefnd Grindavíkur áður en hægt verður að hefja framkvæmdir," sagði Guðmundur. — Kr.Ben. isráðherra. Þorsteinn Pálsson sagði i samtali við Morgunblaðið í gær að það væru einstæð vinnu- brögð í íslenskri stjóramálasögu að þingflokkar höfnuðu tillögu áður en hún væri lögð fram í rikisstjórn. Hann sagðist að- spurður ekki ætla að taka ákvarðanir um framtíð stjóraar- samstarfsins fyrr en að rikis- stjóraarfundi loknum. „Eg tel að teningunum hafí í raun verið kastað á föstudag þegar við báðum forsætisráðherra að draga þessa tillögu til baka og því var hafnað," sagði Steingrímur Hermannsson, formaður Fram- sóknarflokksins. „Sú gjá sem þegar var farin að myndast hefur dýpkað svo mikið nú að ég sé enga leið til að brúa hana. Þetta er sorglegur endir." Jón Baldvin Hannibalsson, for- maður Alþýðuflokksins, sagði það vera spumingu hvort forsætisráð- herra hefði lagt tillögu sína fram gagngert til að slíta stjóminni. „Formenn samstarfsflokkanna skoruðu báðir á hann að draga til- löguna tii baka og vöruðu við að ekki yrði aftur snúið ef tillagan kæmist í hámæli. Það gerist ekki oft að forsætisráðherra sem segist vera að leggja sig allan fram um að halda saman liði og leita mála- miðlunar hafni slíkum tilmælum frá formönnum samstarfsflokka.“ Samkvæmt útreikningum Þjóð- hagsstofnunar á tillögum forsætis- ráðherra yrði telq'utap ríkissjóðs vegna lækkunar söluskatts á mat- væli um 4.200 milljónir króna, en 2.700 milljónir króna þegar lækkun niðurgreiðslna um 1.500 milljónir króna er tekin með. Til að mæta þessu tekjutapi yrði tekjuskattur einstaklinga hækkaður um 2% sem skilaði um 2.800 milljónum króna í ríkissjóð. Almennar matvörur muni lækka um 12% en landbúnaðarvörur yrðu á óbreyttu verði. Hagstofa'n áætlar að vísitala framfærslukostnaðar myndi lækka um 1,5% á þessum forsendum. Þjóðhagsstofnun reiknar út að tillögur forsætisráðherra muni koma haila frystingarinnar úr 8% í engan og botnfískveiða og -vinnslu úr 6% í V2%. Samkvæmt útreikning- um Hagstofunnar á áhrifum að- gerðanna á verð matvara myndu vörur svo sem mjöl, grænmeti, kart- öflur, kaffí og gosdrykkir lækka um 12%, fiskur um 7,1%, kjötvörur um 2,5% og egg og mjólkurvörur um 0,4%.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.