Morgunblaðið - 25.09.1988, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1988
Lífeyrisþegar með skerta tekjutryggingu:
Undanþegnir ársfjórð-
ungsgjaldi af símum
Samgönguráðuneytið mun á næstunni skrifa Tryggingastofiiuninni
bréf þar sem farið er fram á að Tryggingastofiiunin og Póstur og
sími túlki fjarskiptalög þannig að lífeyrisþegar sem verða fyrir skerð-
ingn á tekjutryggingu vegna sjúkrahúslegu þurfi ekki að greiða árs-
fjórðungsgjald af síma.
Eins og skýrt var frá í blaðinu í
gær eru dæmi þess að ellilífeyris-
þegar, sem njóta fullrar tekjutrygg-
ingar og dveijast lengur en 4 mán-
uði á 2 ára tímabili á sjúkrahúsi,
þurfí að greiða afnotagjald af síma
en þeir sem njóta óskertrar tekju-
tiyggingar fá þau gjöld eftirgefin.
Að sögn Þorvarðar Jónssonar hjá
Pósti og síma mun felast í bréfi ráðu-
neytisins Ieiðbeining um túlkun lag-
anna í þessa átt. „Það er sanngimis-
mál að bæta úr þessu,“ sagði Þor-
varður. „Til greina kemur að loka
símum viðkomandi meðan á sjúkra-
húslegunni stendur, þá fellur gjaldið
niður."
Þorvarður sagði að rangft væri í
frétt blaðsins í gær að heimild ráðu-
neytis hefði vantað til að hægt væri
að fella niður afnotagjöldin. Lög frá
Alþingi væru afdráttarlaus um að
binda skyldi undanþágu óskertri
tekjutryggingu. „Reglugerð sem
túlkar lögin getur ekki breytt lögun-
um,“ sagði Þorvarður.
Fangelsismálastofiiunin:
Forstjóri skipadur
HARALDUR Johannessen lög-
fræðingur hefúr verið skipaður
forstjóri Fangelsismálastofiiun-
ar frá 1. október næstkomandi.
í fréttatilkynningu, sem Morgun-
blaðinu hefur borist frá dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu segir:
Jón Sigurðsson, dóms- og kirkju-
málaráðherra, hefur skipað Harald
Johannessen, Iögfræðing, forstjóra
Fangelsismálastofnunar frá 1.
október nk.
Fangelsismálastoftiun er sett á
fót með lögum, sem samþykkt voru
á sl. vori en henni er ætlað að ann-
ast daglega yfírstjóm á rekstri
fangelsa, sjá um fullnustu refsi-
dóma, annast eftirlit með þeim, sem
frestað er ákæra gegn, dæmdir era
skilorðsbundið, fá skilorðsbundna
reynslulausn, náðun eða frestun
afþlánunar. Þá skal stofnunin ann-
ast félagslega þjónustu við fanga
og þá sem era undir skilorðsbundn-
um refsidómi og sjá um að í fangels-
um sé veitt sérhæfð þjónusta svo
sem þjónusta á sviði geðlækninga
og félagsráðgjafar.
Fangelsismálastofnun tekur að
fullu til starfa 1. janúar nk. og flyst
þangað starfsemi dómsmálaráðu-
neytisins á sviði afþlánunarmála og
starfsemi Skilorðseftirlits ríkisins.
Dóms- og kirkjumálaráðherra
leggur á það áherslu, að stofnsetn-
ing Fangelsismálastofnunar sé
skref í þá átt að samræma rekstur
fangelsa og annarra refsiúrræða,
en jafnframt er stefnt að bættum
aðbúnaði fanga og auknu eftirliti
með þeim mönnum, sem era undir
Datt í stiga
MAÐUR slasaðist alvarlega á
höfði þegar hann féll niður stiga
í veitingahúsinu Abracadabravið
Laugaveg laust eftir miðnætti
aðfaramótt laugardags.
Maðurinn var fluttur meðvitund-
arlaus á sjúkrahús, talinn höfuð-
kúpubrotinn.
Haraldur Johannessen
skilorði. Næstu skref eru verulegar
aðgerðir í húsnæðismálum fangels-
anna.
Haraldur Johannessen er fæddur
í Reykjavík 1954. Hann lauk emb-
ættisprófi í lögfræði 1983 og stund-
aði síðan framhaldsnám í afbrota-
fræðum í Bandarílqunum. Hann
hefur starfað við embætti ríkislög-
manns frá 1. janúar 1986 og er nú
lögmaður við það embætti. Afláms-
áranum starfaði hann að lögreglu-
málum bæði hér á landi og í Banda-
rílg'unum.
Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson
Fé hleypt úr feijunni á Breiðá. Hinnm megin við ána bíður fé í rétt og í baksýn sést til jökulsins.
Ferjað yfir Breiðá
Hnappavöllum, Öræfum.
BÆNDUR í Öræfúm sem eiga
fé í BreiðamerkurQalli þurfa
að ferja fé sitt yfir Breiðá að
afioknum göngum á hveiju
hausti. Bændurnir á Hofi og
Hnappavöllum unnu þetta ár-
lega verk á dögunum.
Breiðamerkurflall er suðvestast
í Breiðamerkuijökli. Suðaustan
við það er Breiðárlón og úr því
rennur Breiðá vestur í Fjallsárlón
sem er suðvestan við Fjallið. Jök-
ullinn er svo spranginn að hann
er ófær og verður því að feija féð
yfir Breiðá.
Fé kemur alltaf vænt úr Breiða-
merkurfjalli. Fallþungi dilka er
oft 16-18 kg að meðaltali. S.G.
Stöð varfi örður:
Hraðfrystihúsið viku á
eftir með launagreiðslur
HRAÐFRYSTHIÚS Stöðvar-
fjarðar hf. er nú einni viku á
eftir með launagreiðslur til
starfsmanna sinna. Alls vinna
um 100 manns þjá fyrirtækinu
á sjó og landi.
Guðjón Smári Agnarsson fram-
kvæmdastjóri hraðfrystihússins
sagði að einnig væra lífeyrissjóðs-
greiðslur í vanskilum en stað-
greiðsla og orlofsgreiðslur væra í
skilum. Hann vildi engar tölur
neftia um hve miklar upphæðir
væri að ræða. Guðjón Smári sagði
að starfsmenn og verkalýðsfélag
hefðu sýnt mikinn skilning á mál-
um fyrirtækisins, sem er lang-
stærsti vinnuveitandi á staðnum.
Aðspurður um horfur á því að úr
rættist sagði Guðjón Smári að það
ylti mikið til á því til hvaða ráðstaf-
ana ríkisvaldið gripi á næstunni.
„Það þarf að skila þessum fyrir-
tækjum til baka því sem búið er
að stela frá þeim á undanfömum
misserum með rangri gengisskrán-
ingu. Annað hvort þarf að gefa
gengisskráningu ftjálsa eins og
allt annað eða þá að setja tilkostn-
aðinn undir eftirlit," sagði hann.
Guðjón Smári kvaðst ekki telja að
fyrirtækið væri verr sett en ýmis
önnur á Austurlandi. „Rafmagns-
skuldir okkar era til dæmis mun
minni en hjá mörgum öðrum fyrir-
tækjum," sagði hann.
Eins og kom fram í Morgun-
blaðinu á fímmtudag hefur Raf-
magnsveita ríkisins sent mörgum
fískvinnslufyrirtækjum á Austur-
landi bréf þess efnis að verði raf-
orkureikningar ekki greiddir verði
lokað fyrir rafmagn til þeirra. Raf-
orkuskuldir fiskvinnslufyrirtækj-
anna skipta milljónum króna.
Rúðurbrotnar
AÐFARANÓTT laugardagsins
var óveiyuróleg þjá Iögreglu-
mönnum um allt land, en þó var
nokkuð annasamt hjá starfs-
bræðrum þeirra í Kópavogi.
Töldu lögreglumenn að fjöldi
fólks léti skemmtistaðaferðir
sitja á hakanum meðan á sjón-
varpsútsendingum frá Ólympíu-
leikunum i Seoul stendur.
Þó var nokkuð um útköll lög-
reglu vegna ölvunar og deilna í
heimahúsum í Kópavogi.
Fjórir ölvaðir unglingar bratu
tvær rúður í Kópavogsskóla. Þeir
voru staðnir að verki.
Ljósmynd: Pjetur
Einar komst ekki í úrslit
Einar ViIIyálmsson var aðeins átta sentímetra frá því að komast
í úrslit spjótkastskeppninnar á Ólympíuleikunum i Seoul í fyrri-
nótt. F.inar varð þrettándi í undankeppninni, en tólf spjótkastar-
ar komust áfram. Hann kastaði 78,92 metra, en Sigurður Einars-
son kastaði 75,52 metra. Á myndinni kastar Einar spjótinu í keppn-
inni í fyrrinótt.
Nánar er greint frá keppni á Ólympíuleikunum á bls. 36, 37 og 38
í blaðinu í dag.
Vetur gerir vart við sig
VETUR konungur hefúr undanfarinn sólarhring minnt á að komið
er haust og skammt í að hann setjist að völdum. íbúar á Norður-
landi hafa orðið varir við þetta þvi þar hefúr snjóað víða síðasta
sólarhring, einkum á hálendinu.
Borgarbúar fengu smjörþefinn
af vetrinum í gærmorgun er nokkur
hvít kom féllu til jarðar í Reykjavík.
Kalt hefur verið undanfarið og sam-
kvæmt upplýsingum frá Veðurstof-
unni verður svo áfram næstu 2-3
sólarhringana. Hinsvegar er búist
við að vind lægi en allhvasst var í
fyrrinótt og gærdag víða á landinu.
Nýr meirihluti mynd-
aður á Reyðarfirði
Hilmar Sigurjénsson oddviti
Reyðarfirði.
FULLTRÚAR Sjálfstœðisflokks og* Alþýðubandalags hafa myndað
meirihluta í hreppsnefnd ReyðarQarðarhrepps. Hvor flokkur hefur
2 menn í hreppsnefiidinni. Hilmar Siguijónsson frá Sjálfstæðis-
flokki var kosinn oddviti hreppsnefiidarinnar á fostudag og Þorvald-
ur Jónsson frá Alþýðubandalagi varaoddviti.
Eftir síðustu hreppsnefndar-
kosningar mynduðu Sjálfstæðis-
menn og fulltrúar af F-lista óháðra
meirihluta og var Sigfús Guðlaugs-
son af F-lista oddviti. í júní slitu
Sjálfstæðismenn meirihlutasam-
starfinu og hefur ekki verið form-
legur meirihluti í hreppsnefndinni
síðan þá. Að sögn Hilmar Sigur-
jónssonar vildu sjálfstæðismenn fá
breytingar á vinnubrögðum í gamla
meirihlutasamstarfinu, meðal ann-
ars með oddvitaskiptum. Eftir að
F-listinn hafnaði því slitnaði upp
úr samstarfinu.
í minnihluta nú era tveir fulltrú-
ar F-listans og fulltrúi H-lista
óháðra.
Gréta