Morgunblaðið - 25.09.1988, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1988
EYÐIMORKIN
TEYGIR SIG SUÐUR
Svona lítur landið okkar
út frá gervitungli í byrj-
un septembermánaðar.
Þá er gróður sumársins
ekki farinn að falla, en
á gervitunglamynd
verður gróðurinn rauð-
ur.
Á þessari mynd kemur
vel fram syndaregistur
okkar, ekki síður íslend-
inga nútímans en for-
feðranna. Frá landnámi
hefur gróðurlendi ís-
lands minnkað úr 65
þúsund ferkílómetrum
niður í 25 þúsund
ferkílómetra, að talið
er. Og eyðing enn mikil.
Þessi bandariska gervi-
tunglamynd sýnir vel
hvernig uppblásturs-
geirarnir teygja sig suð-
ur á bóginn, þarna í átt
til Þingvalla. Raunar
má oft horfa upp á þetta
afjörðu niðrí, þegar
hreyfir vind og sand-
fokið kemur eins og
dökkur mökkur niður
yfirláglendið.
Á myndinni sést á
Langjökul efst til hægrí
og vestan við hann má
þekkja Þórisjökul og
Okið, en sunnar er
Skjaldbreiður með snjó
á toppnum. Má sjá
hvernig Iandeyðingin
teygir anga sina beggja
vegna fíallsins og nær
vestan við það nærrí
saman við uppblásturs-
rendurnar i Grafhingn-
um. TU frekari glðggv-
unar, þá er Þingvalla-
vatn neðarlega á miðrí
myndinni og lengra til
hægrí eru áberandi tvð
vðtn, Apavatn og Laug-
arvatn (minna vatnið).
En Hagavatn er í eyði-
mðrkinni upp undir
Langjökli, lengst til
hægrí.
Allt gróið land er
semsagt rautt á mynd-
inni, en misrautt. Litlu
ljósu blcttirnir eru sleg-
in tíin. Skóglendið gefur
dekksta rauða litinn, svo
sem sjá má á kjarrinu
norður af Þingvalla-
vatni, einnig við Laug-
arvatn og í Þrastarskógi
neðarlega á myndinni
hægra megin. Nær alls
staðar annars staðar má
sjá hvernig glyttir í
dökka litinn, ef myndin
prentast ekki því verr.
Er ekki ísland dapur-
legt á að sjá — utan úr
geimnum? Hvað skyldu
uppblástursgeirarnir
verða komnir langt
þarna á næsta land-
námsafmæli áríð 2074,
þegar eitthvert gervi-
tunglið fer yfir?
* \A>^
jS
\
'*
afi«e*