Morgunblaðið - 25.09.1988, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1988
25
Isafjörður:
Sambandið byrjar
reglubundnar siglingar
ísafirði.
UMSVIF við ísaflarðarhöfii hafii
aukist mikið með gámavæðing-
unni og auknum útflutningi á
ferskum fiski. Til þessa hefúr
Eimskip eitt haldið uppi vikuleg-
um reglubundnum siglingum
hingað með gámaskipi.
Nú er Sambandið að hefja hingað
reglubundnar siglingar og kom
leiguskip þeirra, Carola R., í fyrsta
sinn á þriðjudag. Skipið fer frá
Reykjavík á fimmtudögum vestur
og norður um til Húsavíkur. Síðan
kemur það við hér í bakaleið og
tekur gáma sem eiga að fara í milli-
landaskip Sambandsins í Reykjavík
á miðvikudögum og fimmtudögum.
Að sögn Gunnars Jónssonar skipa-
miðlara og umboðsmanns Sam-
bandsins á ísafirði eru útvegsmenn
ánægðir með þann aukna valkost
sem með þessu skapast. Auk Isa-
ijarðar mun skipið koma á aðrar
Vestflarðahafnir eftir því sem flutn-
ingar gefa tilefni til. Auk skipa
Eimskips og Sambandsins er m.s.
ísberg hér á þriggja vikna fresti,
en það er eina skipið sem heldur
uppi reglubundnum siglingum með
gáma beint frá ísafirði til hafna í
Evrópu.
- Úlfar
Morgunblaðið/Úlfar Agústsson
Leiguskip Sambandsins, Carola R., lestar fískigáma frá þrem togurum í fyrstu ferð sinni til ísafjard-
ar. Skipið lestar eftirleiðis gáma á ísafirði hvern þriðjudag.
BREIÐHOLTSBÚAR
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis hefur um áratuga skeið verið
umsvifamikill bakhjarl einstaklinga sem fyrirtækja á sviði fjár-
mála.Ætíð hefur verið kostað kapps um að veita fjölþætta og jafn-
framt persónulega þjónustu. Nýja útibúið í Breiðholti er sérstaklega
ætlað íbúum hverfisins og fyrirtækjum, stórum sem smáum, ungum
sem öldnum. Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis samglcðst ykkur
yfir uppbyggingu eins stærsta og vistlegasta borgarkjarna Reykjavík-
ur. Verið velkomin í viðskipti við sparisjóðinn í ykkar eigin hverfi.
SPARISJÓDUR REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS
- í BREIÐHOLTI
ÁLFABAKKA 14 • SÍMI 670500
greiðb°"sve^u
Miðskógar
Sparisjóóur Reykjavikur og nágrennis
KEMUR TIL YKKAR
Bókum
breska bygg-
ingarlist
á17. öld
ÚT ER komin bókin „Sir Chri-
stopher Wren - Kirkjusmiður og
arkitekt“ eftir Hreggvið Stefáns-
son, byggingartæknifræðing.
Bók þessi fjallar um Sir Christop-
her Wren, húsameistara ensku
krúnunnar á síðari hluta 17. ald-
ar. Hann var fenginn til að sjá
um endurreisn „City of London“
eftir brunann mikla árið 1666.
Hann teiknaði þar og reisti 54
sóknarkirkjur ásamt St. Pauls-
kirkjunni á 50 árum.
í bók Hreggviðs er hverri kirkju
lýst svo vegfarandi í London megi
hafa gagn af. Enn fremur er fjallað
um veraldleg verk Wrens, hallir og
sjúkrahús.
Hreggviður starfar hjá Húsa-
meistara ríkisins, en hefur um ára-
bil verið áhugamaður um breska
sögu og byggingarlist. Bókin er 136
bls. og er prýdd myndum og skýr-
ingarteikningum af byggingum
Wrens. Umsjón með prentverki
hafði Prentþjónustan Metri, sem er
jafnframt útgefandi með höfundi.
Bókin fæst í öllum helstu bókabúð-
um landsins.
Sýnir
í Ganginum
ENSKUR listamaður Adam Ba-
ker Mill sýnir ljósskúlptúr sinn í
Ganginum og stendur sýningin
fram í miðjan október.
Verk hans byggja á samspili ljóss
og umhverfis og eru þau tölvustýrð
eftir birtustiginu umhverfís þau.
Skúlptúrinn í Ganginum getur bæði
verið handstýrður og tölvustýrður
eftir því sem við á.
Áskrijlarsímirm er 83033