Morgunblaðið - 25.09.1988, Side 26

Morgunblaðið - 25.09.1988, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1988 PRJONAKONUR! Okkur vantar mikið af lopapeysum. Kynnið ykkur nýja bónuskerfið i peysumóttökunni. Móttökustaðir: Reykjavík sími 34718. Selfoss sími 98-21444 (eftir kl. 17) Borgarfjörður sími 93-70082. Akureyri sími 96-22646 (eftir kl. 17). Hilda hf.y Bolholti 6. Toyota Celica Supra 3,01 Til sölu er á bílasölunni BRAUT þessi stórglæsilega Toyota Celica árg. 1987. Bíliinn er ekinn 19 þ. km. Bifreiðin er meö nánast öllum hugsanlegum aukáhlutum og þægindum. Vélin er 24ra ventla, 3ja lítra, 6 cyl. og með beinni innspýtingu. Bifreiðin mun kosta kr. 1.500.000,-. Verð á nýjum '88, ca 2,2 millj. Nánari uppl. á bílasölunni BRAUT, símar 91 -681510 og 91 -681502. Minningarrit um Jón á Reynistað í nóvember nk. er væntanleg bók, sem Sögufélag Skagfirð- inga gefur út í minningu Jóns Sigurðssonar alþm. og bónda á Reynistað, en á þessu ári eru liðin 100 ár frá fæðingu hans. Bókin hefur hlotið nafnið Ættir og óðal, rituð af Jóni sjálfum. Efni hennar er að mestum hluta þættir og frásagnir af ættmennum Jóns, einkum afa hans, séra Jóni Hallssyni, og föður, Sigurði á Reynistað. Þá eru nokkrar æskuminningar Jóns á Reynistað. Auk þess ritar séra Gunnar Gíslason ítarlegan formála að bókinni um þau Reynistaðarhjón, Jón og Sigrúnu Pálmadóttur. Þeim, sem vildu heiðra minningu Jóns á Reynistað, og jafnframt eignast þjóðlega bók, er hér með boðin áskrift og verður þá nafn þeirra skráð í töflu fremst í bókinni. Þeir, sem þessu vilja sinna hafi samband bréflega eða símleiðis við Sögufélag Skagfirðinga i Safnahúsinu á Sauðárkróki, fyrir 5. október nk. Sími 95-5424. Bókin verður yfir 250 bls. að stærö prýdd yfir 50 Ijósmyndum og með nafnaskrá. Verö tíl óskrifenda er kr. 1.950,- Sögufélag Skagfirðinga, Safnahúsinu, 550 Sauðárkióki, sími 95-5424. FÉLAG JÁRNIÐNAÐARMANNA Félagsfundur verður haldinn miðvikudaginn 28. sept- ember 1988 kl. 20.00, á Suðurlandsbraut 30, 4. hæð. Dagskrá: 1. Fólagsmil. 2. KJaramál. 3. Önnur mál. Mætið vel og stundvíslega. Stjóm Fólags járniðnaðarmanna. Stykkishólmur: Biskupar koptisku kirkjunnar í Frakklandi með fyrirlestra UNDANFARNA daga hafa dval- ist hér í Stykkishólmi Abba Mar- kos biskup koptisku kirkjunnar í Frakklandi og aðstoðarbiskup hans, Abba Athanius. Þeir eru báðir fæddir í Frakk- landi og hafa þekkst í 30 ár. Mark- os hefir verið starfandi biskup þar í 14 ár, en áður var hann blaðamað- ur eða þar til hann tók þá ákvörðun að tileinka sér starf og stefnu kopt- isku kirkjunnar og vinna að fram- gangi hennar í heimalandi sínu. Klaustur Markosar er í Kairó. Fréttaritari hitti þá félaga í kirkj- unni okkar þar sem þeir voru þar í boði séra Gísla Kolbeins. Þeir töluðu enska tungu og útskýrðu í stuttu máli starf sitt og í hvaða til- gangi þeir væru komnir hingað. „Tilgangur komu okkar," sagði biskupinn, „er sá að við ætlum að vera hér meðal fansiskussystra með fyrirlestra í eina viku. Systir Trees, sem hér hefir um mörg ár verið líknarsystir, varð á vegi okkar fyrir nokkru og leiddi athygli okkar að Stykkishólmi og því starfí sem unn- ið er þar. Var það til þess að við fengum tilmæli til þessarar ferðar og sjáum ekki eftir því. Þetta land ykkar, ísiand, hefir komið okkur mjög á óvart. Náttúrufegurðin hér er einstök, loftslagið og svo snyrti- mennskan þegar við göngum hér um götumar í Stykkishólmi. Við ímynduðum okkur ekki að þetta fámenna land hefði áorkað svo miklu sem við nú höfum kynnst. Þetta nálgast ævintýri og ferð okk- Morgunb!aðið/Ámi Biskupar koptisku kirkjunnar ásamt sr. Gísla Kolbeins fyrir framan altari Stykkishólmskirkju. ar hingað ýtir undir að við komum hingað seinna og ábyggilega mun- um við tjá öðrum það sem við höfum séð og heyrt. Starf biskupanna er mikið ferða- starf, við erum mikinn hluta tíma okkar í lest og í fyrirlestrarferðum svo sem tími okkar leyfir. Það er aldrei stöðnun í okkar vinnu. Við erum alkirkjusinnaðir og munirm þegar við höldum héðan til Reykjavíkur hafa tal af alkirkju- nefndinni og meðal annars ræða samstarfsmöguleika í útbreiðslu kristinnar trúar. Dvölin hér hjá kaþólska söfnuðinum verður okkur lengi í minni og það er gaman að halda hér fyrirlestra. Það er mikið að vinna á akrinum og það vantar alltaf starfsmenn." Þá sögðust þeir hafa skoðað hér nágrennið, fengið góða fjallasýn og að ferðast milli Reykjavíkur og Stykkishólms væri sérstök upplifun. Fjörðurinn ykkar og eyjamar eru tilkomumiklar og héðan förum við fróðari en áður. Þeir skoðuðu síðan okkar 110 ára kirkju og gripi hennar og altar- istöflu og fannst mikið um. Séra Gísli sýndi þeim þetta og útskýrði aldur muna og skýrði starfshætti kirkjunnar. - Arni ANGISTIN Á RÚNTINUM Má bjóða dömunni far; úr gamanmyndinni Ökuskírtemið. Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Ökuskírteinið („License to Drive“). Sýnd í BíóhöHinni. Bandarísk. Grek Beeman. Handrit: Neil Tolkin. Framieið- endur: Andy Licht og Jeff Muell- er. Kvikmyndataka: Bruce Surt- ees. Helstu hlutverk: Corey Ha- im, Corey Feldman, Carol Kane, Richard Masur og Heather Gra- ham. 20th Century Fox. 1988. Að keyra flottan bfl og eiga stefnumót við fallega ljósku („hið eilífa ameríska „date") er hið efnis- rýra innihald bandarísjcu gaman- ungiingamyndarinnar Ökuskírtein- ið („Licence to Drive"), sem sýnd er í BíóhöIIinni. Einasti draumur strákanna í myndinni er að fá öku- skírteini svo þeir geti rúntað á pabbabflnum með stelpu í framsæt- inu. Allt snýst um að keyra bfla í unglingaveröld Les (Corey Haim). Meira að segja nýja kærastan hans heitir Mercedes. Hann ætlar að bjóða henni á rúntinn sama dag og hann fær bílprófið en hann fellur og til að bjarga málunum segir hann engum frá því en stelur stóra, glerbónaða Kaddanum pabba síns (eða afa réttara sagt) um kvöldið og líður af stað ínní hið greiðfæra land kvíða og angistar er geymir alla þá sem einhvemtíma hafa ótt- ast það að skemma bfl pabba síns. Ein rispa og það er út um þig, Les. Ökuskírteinið er ein af þessum drengjamyndum sem gerð er um drengi fyrir drengi og sver sig nokk- uð í ætt við „Ferris Bueller’s Day Off“ og jafnvel „Adventures in Babysitting" hvað varðar ljúfa kímnina í útlistun á foreldrum (ekki láta þig sjást með þeim, pabbi drep- ur mig ef hann kemst að þessu), systmm (hrútleiðinleg merkikerti), kæmstum (hún er guðdómleg) og næturæfintýri oni bæ (það fer úr böndunum). Þótt fátt sé nýtt og raunar flest kunnuglegt má hafa nokkurt gam- an af myndinni, sakleysislegum bröndumnum og grínútgáfunum af fullorðna fólkinu, ótta Les við að bfllinn skemmist og viðbrögðum pabbans þegar hann sér að það er svolítið meira en ein lítil rispa á bflnum. Leikarahópurinn er líka kunnuglegur með nafnana Corey Haim og Corey Feldman í farar- broddi. Litlu strákamir úr „Lucas" og „Stand By Me“ era komnir á kynþroskaaldurínn þótt ótrúlegt sé og maður er dálítinn tíma að venj- ast þeim í nýjum hlutverkum. 4 Ford Bronco - 30 Fiat Uno Dregió 7. októker. Heildarverómœti vinninga 16,5 milljón. /j/tt/r/mark

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.