Morgunblaðið - 25.09.1988, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1988
29
sungum um tíma í lítill hljómsveit
og seinna sungum við saman í kaba-
rett, Nanna spilaði á hörpu og ég
söng og svo spilaði ég á píanó og
hún söng, þetta var ágætt þó það
væri ekki alveg á okkar línu. En
svo fórum við að syngja með stórri
hljómsveit í Berlín og þar kynntist
ég Jan Morávek. Hann var tékkn-
eskur og ótrúlega mikill tónlistar-
maður. Hann átti stundum erfitt
með að skilja hvað fólk gat verið
lengi að taka við sér._ Hann sagði
stundum við mig; „Ég skil ekki
hvað fólk getur verið lengi að læra
þetta," það var von, sjálfur spilaði
hann á sextán hljóðfæri þegar hann
var sextán ára.
Frá Berlín fór Jan til Vínarborg-
ar en ég varð eftir. Við skrifuð-
umst á og einu sinni fór ég að heim-
sækja hann. Þá fundum við út að
við vildum vera saman og við ákváð-
um að fara að búa saman þó ég
væri þá enn gift Óskari. En þegar
frá leið fannst okkur ómögulegt að
geta ekki gift okkur. Ég snéri mér
þvi til sænska sendiráðsins í Vínar-
borg og í gegnum það fékk ég skiln-
að án þess að við Óskar töluðum
nokkurn tíma saman, það var ekki
hægt. Seinna frétti ég að hann
hefði verið ósköp feginn því hann
hafði þá hitt aðra konu. Fjarvistim-
ar gerðu að við fjarlægðumst hvort
annað, það er slæmt fyrir elskendur
að vera Iengi fjarvistum. Við Jan
áttum tónlistina sameiginlega. Ást-
aijátning hans til mín var: „Du und
die musik.“ Lengra varð ekki kom-
ist því tónlistin var honum allt.
Samt vorum við ólík, sprottin úr
ólíku umhverfi. Hann hafði ýmsar
skoðanir sem ég felldi mig illa við,
en samt elskaði ég hann. Þannig
var það. Einu sinni fékk hann botn-
langabólgu. Ég þurfti að fara út frá
honum og sagði við hann að hann
mætti alls ekki fara í bað með hita.
Hann var þrjóskur og fór samt í
bað. Þegar ég kom heim var hann
með 40 stiga hita, hræðilega veik-
ur. Ég fylltist örvæntingu og
hringdi í hjúkrunarkonu sem kom
honum á spítala, eins auðvelt og
það var nú á stríðsárunum í Þýska-
landi. Þar var hann dauðveikur í
þijá daga og læknamir þorðu ekki
að skera hann. En svo var hann
skorinn á þriðja degi og ég man
enn þá miklu sælu þegar aðgerðin
var yfirstaðin og ég mátti heim-
sælq'a hann. Við lifðum marga
hræðilega hluti í Þýskalandi en líka
margt dásamlegt. Jan komst á
svartan lista og sætti aðkasti nas-
ista en hann slapp samt lifandi.
Hitler vildi ekki Tékka í herinn, en
samt sluppu þeir ekki við vígvöll-
inn. Hitler lét þá klæðast svörtum
fötum, ekki ólíkum þeim sem storm-
sveitarmenn báru, og lét þá svo
hlaupa á milli með vopn. Þannig
voru þeir auðvelt skotmark og voru
líka skotnir niður hver af öðrum.
Jan var settur í þjálfun fyrir slíka
þjónustu. Ég fór eitt sinn að heim-
sækja hann og þá voru félagar
hans allir úti á stétt að gera að
gamni sínu en hann lá einn inni.
Hann var öðruvísi en þeir, tók þetta
allt svo nærri sér. Ég fór inn til
hans og komst að því að hann var
veikur. Við læknisskoðun kom fram
að hann var með magasár og honum
var sleppt við frekari þjálfun, það
var einstakt að hann skyldi sleppa
svona vel. Við vorum himinsæl þó
við værum sífellt svöng. Ég var 55
kíló að þyngd á þessum árum en
ég er rösklega 170 sentimetrar á
hæð. Ég fékk magasig af hungri.
Þegar ég vaknaði á morgnana þá
var eins og verið væri að slíta úr
mér magann. Þá varð ég að fara
strax á fætur og ganga um, þá lag-
aðist ég aðeins. Ég var líka alltaf
með höfuðverk af hungri. En það
eru bjartar hliðar á öllu, meira að
segja hungrjnu. Ég fékk aldrei
bijóstsviða á þessum tíma, bijóst-
sviði stafar af offylli og mikilli fitu
m.a. Slíkt var ekki vandamál í
Þýskalandi þá.
Það valt á ýmsu í lífi okkar og
umskiptin voru oft snögg. Eftir að
Jan var sleppt úr þjálfuninni þá
ætluðu nasistar að draga hann inn
Sjá næstu síðu
LITGREINING
IVIEÐ
CROSFIELD
ER
LYKILLINN
AÐ VANDAÐRI
LITPRENTUN
MYNDAMÓT HF
Forvitnilegt helgarnámskeið um
smáskammtalækningar
(homoeopathy) 0
Breski læknirinn og hómopatinn Dr. Douglas MacKeller MD GP MFHOM heldur nám-
skeið í undirstöðuatriðum smáskammtalækninga og „hjálp í viðlögum“ fyrir almenning
föstudaginn 30. september kl. 20-22
laugardaginn 1. október kl. 13-18
sunnudaginn 2. október kl. 10-18
Námskeiðið er fyTSt og fremst hugsað sem byrjendanámskeið fyrir almenning. Meðlim-
ir heilbrigðisstéttanna, læknar og hjúkrunarfólk er velkomið.
Notið þetta einstaka tækifæri tll að kynnast undirstöðuatriðum smáskammtalækn-
inga sem njóta nú sívaxandi vinsælda í heiminum og eru viðurkenndar af sjúkrasam-
lögum viða erlendis.
Námskeiðsgjald kr. 2.000,-
Félag áhugafólks um smáskammta- og grasalækningar,
Pósthólf 1621, 121 Reykjavik, sími 91-24311.
Sparnaður
og aðgæsla
kom þeim á áfangastað
7 í—
$
Jóna .
F°Sr0/Jr
ör*ut j^Ss°n
°8
Jdfn
ÍOst0n,
<kur< ,yi /t Un’í£
r'pti _
^iunf
°8Jöf
hi.
’Já
"****S&' notii •*»
A,eð rli‘ fr2 Su*«ta Un°m ho,i°-
/ðk'V
f L . -*ar
bs°r,n
Reglubundinn sparnaður
og aðgæsla í fjármálum
komu Jónu og Hannesi vel
þegar þau stofnuðu heimili.
Þau lögðu reglubundið inn
hjá sparisjóðnum, nýttu
þau ávöxtunarkjör sem þar
bjóðast og gættu þess að
eiga fyrir hlutunum áður en
þeir voru keyptir. Þau hafa
því notið staðgreiðslu-
afsláttar og eru laus við
áhyggjur af gjalddögum.
SPARISJÓÐURINN í KEFLAVÍK
Suðurgötu 6, Keflavík - Grundarvegi 23; Njarðvík
Sunnubraut 4; Garði - Víkurbraut 62; Grindavík
JSsfJórar °<sSc