Morgunblaðið - 25.09.1988, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1988
49
25%afsiáttur
Herraföt . . kr. 16.400 Stakir jakkar . . . . kr. 10.900
25% afsl . . kr. 4.100 25% aísl . . . . kr. 2.725
Haustverð . . kr. 12.300 Haustverð . . . . kr. 8.175
Tvíhneppt herraföt . . . . . kr. 17.200 Stakarbuxur .... kr. 4.100
25% afsl . . kr. 4.300 25% afsl . . . . kr. 1.025
Haustverð . . kr. 12.900 Haustverð . . . . kr. 3.075
SENDUm /
PÓSTKRÚFU
VISA
E
//
H€RRflRIKi
SNORRABRAUT 56 C13505 + f14303
Egill Hafliðason
Bachmann — Minning
Sæll, ven! Svo er undirrituðum
nágranna og friðarhöfðingja heils-
að, er hann gengur inn á vinnu-
stofu þúsundþjalasmiðsins og lista-
mannsins við Kaplaskjólsveg. Þar
er verið að undirbúa landsfund
Sjálfstæðisflokks eða Alþýðubanda-
lags, jafnvel tískusýningu eða af-
mælishátíð. Hér er unnið í plast.
Bókstafír, tölustafír og relief-
mjmdir hrökkva undan sög fjöl-
hagans og raða sér upp í orð og
setningar, sem brydda táknmyndir
og félagsmerki fyrir veggi og svið.
Héma verða til andlit tímamótanna.
Listamaðurinn stendur upp frá sög-
inni, gengur út á tröppur og horfír
til veðurs. Les í skýin: cumulus,
rectus, hitauppstreymi. Veðurfræð-
ingur frá því í sviffluginu í gamla
daga. Böm kúveltast og daðra við
hunda á grasflötinni, og sólin rekur
glókollinn niður úr skýjabólstmnum
og lýsir upp leiksvið mannlífsins,
ljósaméistarinn, primus inter pares.
Oðru hvoru skjótast bömin inn á
vinnustofu skreytingameistarans
og fá sér plast eða annað hand-
hægt til að leika sér með. „Afí“,
svo kalla þau meistarann, lætur það
óátalið. Kannski birtist einhver ann-
ar nágranni til að forvitnast um,
hvaða verkefni liggja á borðinu
þessa stundina. Ný og ný verkefni
fyrir jarðbundið leiksvið mannanna.
En nú hefur verið skipt um leik-
svið, að baki leiksvið tímans, eilífð-
arsviðið tekið við.
Egill Bachmann fæddist í
Reykjavík 15. apríl 1923 og var því
65 ára þegar hann lést 16. septem-
ber sl.
Ekki verður rakin hér uppvaxtar-
saga hans né æviferill, enda ekki
rúm fyrir svo mikla sögu í örfáum
kveðjuorðum. Hef ég gran um, að
sú saga gæti fyllt nokkrar bækur
og verið skemmtileg aflestrar, enda
maðurinn alla tíð húmoristi og
lífssnillingur af guðs náð. Vin-
margur, nánast þjóðsagnapersóna.
Hafði komið víða við á áram áður,
stundað íþróttir, svifflug, hnefa-
leika, gött ef ekki fímleika (a.m.k.
andlega), rekið skemmtistaði, svo
sem alkunna er, og fjölmargt fleira.
En umfram allt fjölgáfaður og eðlis-
greindur lífssnillingur, átti enda
ættir að rekja til Skúla Magnússon-
ar landfógeta.
Nú þegar við kveðjum Egil Bach-
mann og söknum vinar í stað, vildi
ég votta fjölskyldu hans samúð
mína, konu hans, Guðrúnu Ragn-
arsdóttur, stoð og styttu manns síns
í lífsins ólgusjó, og bömum þeirra,
Sigríði, Rögnu og Einari, svo og
bamabömum þeirra hjóna.
Minningin lifír um góðan dreng.
E.Þ.
Föstudaginn 16. september sl.
lést Egill Hafliðason Bachmann í
Landspítalanum í Reykjavík. Þessi
hagleiksmaður í skreytingalist hafði
þá verið við hlið dauðans mánuðum
saman og eflaust vitað lengi hvert
stefndi, þó ekki hefði hann um það
mörg orð.
Hann tók dauðanum af sama
æðraleysi og sérhveijum degi í
lífshlaupi sínu eins og eitthvað
spennandi væri framundan.
Egill fæddist 15. apríl 1923 og
var sonur Hafliða Bjamasonar, sem
lengi starfaði hjá Iðnó, og konu
hans Sigríðar Bachmann Jónsdótt-
ur. Egill var maður sinnar kynslóð-
ar og hafði áhuga á ýmsu eins og
flugi, íþróttum og mörgum tækni-
nýjungum, enda sneri hann sér að
nýstárlegri iðju ungur að áram.
Hann gerðist skreytingamaður, en
sú iðja var í því fólgin að setja upp
sýningar, sýningarbása og ýmsar
útstillingar. Ekki ósjaldan skreytti
hann svið fundarstaða t.d. hjá
stjómmálaflokkum fyrir stóra fundi
eða þá hjá skólum á tyllidögum.
Var það mál manna, að þar færi
smekkmaður og laginn.
Ung að áram gengu Guðrún
Ragnarsdóttir og Egill í hjónaband
og eignuðust þau þrjú böm, Sigríði,
Rögnu og Einar. Þau hafa búið sinn
búskap í Vesturbænum í Reykjavík
og nú um mörg ár á Meistaravöllun-
um. Þangað vora vinir ávallt vel-
komnir og gestrisni í fyrirrúmi. Það
var líka vinsælt að heimsækja Bach- »
mann á vinnustað hans á meðan
hann var í Vonarstrætinu enda leið
honum vel með fólki og fólki með
honum.
Nú er þessi samferðamaður okk-
ar allur og öraggt, að hann ætlaði
engum að minnast sín á prenti.
I eigingimi sendum við nokkrir
fomvinir ekkju hans og niðjum okk-
ar dýpstu samúðarkveðjur með
kæra þakklæti fyrir samverastundir
í gegnum árin. Megi fjölskyldunni
vegna vel í framtíðinni.
Útför Egils fer fram á morgun,
mánudag, frá Fossvogskapellu.
Nokkrir vinir
pttrgiwn-
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
HAUSTVERO
íslensk föt
Haustverð .............. kr. 13.425
Smókingföt
25% afsl. .
kr. 17.900
kr. 4.475
.Apglýsinga-
síminn er 2 24 80