Morgunblaðið - 25.09.1988, Page 51
88er HaaMsrPTag .ös au.0Aauvmu8 .aiaAjavruoflOM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1988
oa
51
Heilsuræktarraup
Mér datt í hug orðatiltækið „of rnikið af öilu má þó gera“
þegar ég las nýlega grein í erlendu tímariti eftir konu sem
saknaði þeirra gömlu og góðu daga þegar unnt var að setjast
að veizluborði með góðvinum og gleðjast saman yfir góðum
mat. Þar sem greinin kom inn á nýja hlið á þeirri miklu heilsu-
ræktaröldu, sem gengið hefur yfir að undanförnu, datt mér í
hug að birta útdrátt úr henni, og fer hann hér á eftir.
Það er ekki lengur svipur hjá
sjón að fara í veizlu miðað við það
sem áður var. Ekki alls fyrir löngu
var það upplyfting að fara í veizlu,
og þar ríkti glaumur og gleði. Það
skipti ekki máli hvort um stór-
veizlu var að ræða eða fámennt
samkvæmi, menn komu saman til
að gleyma amstri dagsins, gleðjast
og gleðja aðra.
Auðvitað eru enn haldin svona
samkvæmi — en allt of oft hefur
veizlugleðin vikið fyrir heilsuraupi
og megrunaruppskriftum. Það er
eins og margir þiggi með þökkum
þátttöku í samkvæmi, klæðist
sparifotunum og leggi svo mesta
áherzlu á að segja samkvæmis-
gestum frá því hvemig eigi að
hugsa um líkamann.
Nýlega var ég í samkvæmi þar
sem gestgjafar höfðu varið miklum
tíma í að undirbúa. Hjónin vom
bæði að halda upp á afmæli sín
auk brúðkaupsaftnælis, og þess-
vegna beið gesta bæði kampavín
og gómsætur matur á borðum.
Fyrstu pörin gengu í sali. Fólk
í góðri þjálfun sem nú greip tæki-
færið til að óvirða hátíðaskapið og
veitingar gestgjafanna.
-Nei, elskan mín, skræktu þessi
heilsuræktarpör skelfingu lostin
þegar húsbóndinn kom stoltur fram
og hellti ískældu kampavíni í glös-
in.
Við drekkum alls ekki áfengi,
sögðu þau með fyrirlitningu, rétt
eins og brúsandi kampavínið væri
96% spíritus í vatnsglasi.
— Hvað, þið þiggið nú nokkra
dropa til að skála með, sagði hús-
bóndinn.
Því miður — en eigið þið nokkuð
átappað ölkelduvatn? spurðu kon-
umar og hikuðu eins og þær væm
að bíða eftir klappi frá hinum gest-
unum.
Jú, jú, ég held við eigum sóda-
vatn, sagði þá gestgjafinn.
Nei minn kæri — ekki sódavatn.
Ég drekk eingöngu kelduvatn án
kolsýru. Kolsýran er mjög hættuleg
og hún bindur saltið í líkamanum,
sagði háværasta konan.
Okkur hinum, sem vomm að
dreypa á kampavíninu, fór nú að
fínnast við vera að steypast í eilífa
glötun. Ættum við að hella
kampavíninu okkar í blómavasana?
— Jæja, skál samt, sagði hús-
bóndinn, sem ekki átti neitt átapp-
að vatn án kolsýru. — En má ég
bjóða ykkur appelsín?
Nei góði minn, við brögðum held-
ur ekki gosdiykki. Kannski fáum
við þá bara vatn.
— Það verður þá að vera krana-
vatn.
Kranavatn — svei — drekkið þið
venjulegt kranavatn? Vitið þið hvað
er mikið af gerlum í því?
— Æ, látið ekki svona, í fyrra
dmkkuð þið bæði öl og snafs, greip
einn gestanna fram í brosandi.
Já, en nú höfum við byijað nýtt
líf, sagði ein heilsuræktarkonan í
vandlætingartón.
Ekki tók betra við
Eftir langar tölur um ágæti
kelduvatns gengu gestimir loks til
borðs. Flestir gestanna fögnuðu
ákaft þegar fram var borinn ljúf-
fengur forréttur úr andalifur. Ekki
þó heilsurauparamir.
Hvað em eiginlega margar hita-
einingar í þessu, spurði ein kvenn-
anna og potaði fyrirlitlega í réttinn
sem húsmóðirin hafði lagt sig fram
við að gera lystilegan.
— Ég taldi ekki hitaeiningamar
— ég hélt við ætluðum að koma
saman til að gleðjast, sagði hús-
móðirin, sem virtist gráti næst.
Áttu greipaldin?
— Greipaldin? hváði húsfreyjan
undrandi.
Já, svo líkaminn geti brennt fít-
unni. Greipaldin eyðir fitu.
— Við emm ekki vön að brenna
fítu í okkar veizlum, sagði hús-
freyjan, sem nú var á svipinn eins
og hún gæti vel hugsað sér að
kasta ákveðnum gestum sínum á
bálið.
Gestimir við borðið vom orðnir
mjög hljóðir og niðurdregnir. Nema
þeir karlar og þær konur sem ný-
lega höfðu tekið upp nýtt og mjög
heilbrigt lffemi, þau töluðu linnu-
laust. Við fengum fyrst og fremst
að heyra hvað þau gerðu EKKI.
Óumbeðið fengum við að heyra
sjálfumglaðar frásagnir af því að
þau brögðuðu ALDREI áfengi,
reyktu aldrei, borðuðu aldrei sæt-
indi, aldrei feitar sósur eða hnoss-
gæti, sætu aldrei heima í aðgerðar-
leysi, heldur ræktuðu lfkama sína
á einn eða annan hátt.
Varla var borðhaldi lokið þegar
heilsurauparamir vom famir að
óróast og gá að tímanum.
Já, við verðum að fara snemma
í háttinn. Á morgun þurfum við
að skokka, fara í þjálfun og æfing-
ar, í tennis, í golf ...
Þegar heilsurauparamir vom
famir gat veizlan byijað. Gestimir
gátu farið að borða, skála, syngja
við borðið og jafnvel hlæja.
Þið megið ekki misskilja mig.
Ég er alls ekki að tala um að fólk
þurfi að hella í sig áfengi eða fara
að reykja til að njóta sín. Þvert á
móti er ég sjálf mikið fyrir bæði
heilsufæði og heilbrigt lífemi og
legg kapp á hvort tveggja. En ekki
þegar ég er boðin í samkvæmi.
Samkvæmisstaður er ekki þjálfun-
ar- eða leikfimisalur. Þar að auki
er slík framkoma grófleg móðgun
við gestgjafana, sem lagt hafa sig
fram í marga daga, jafnvel vikur,
við að undirbúa bæði mat og drykk
fyrir veizluna.
Mér finnst það einnig ganga
móðursýki næst að geta ekki lifað
heilbrigðu og hollu lífi án þess að
blanda öðmm inn í það og stíga í
stólinn og þusa um það sem manni
finnst það eina rétta í það sinnið.
Mér er næst skapi að klappa
fyrir Joan Collins sem hitti glæsi-
mennið Robert Redford nagandi
gulrót í samkvæmi nýverið, þar
sem hann var að gorta af matar-
æði sínu og allri líkamsræktinni.
Joan Collins blés frá sér reykjar-
mekki og spurði með hálf lokuð
augu:
Hvað stundar þú líkamsrækt í
marga tíma á dag?
í það minnsta fjóra tíma á dag,
svaraði kvennagullið.
Joan Collins drakk úr
kampavínsglasinu sínu og sagði
þreytulega:
Fjóra tíma. Drottinn minn. Ég
er varla svo lengi á fótum á daginn
’ Þar hafið þið það!
Jórunn
SÍMANÚMERIÐ
OKKAR ER
17152
MYNDAMÓT HF
HAÞRYSTI-VOKVAKERFI
Vökvamótorar
= HEÐINN =
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260 O
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER <
Útsölustaðir:
Sport Laugaveg 62
Kaupfélag BorgfirSinga Borgarnesi
Bragasport Suðurlanasbraut 6
Sportlíf Eiðisgranda
Sparta Laugaveg 43
SportbúSin Laugaveg 97
Sportbaer Hraunbæ
Hummel sportbúðin Ármúla
Hummel sportbúðin Eiðistorgi
Versl. Fell Mosfellsbæ
Sportbúð Kópavogs Hamraborg
Sport-Gallerí Hafnarfirði
K.E.A. Sportvörudeild Akureyri
Sportbúð Óskars Keflavík
Akrasport Skólabraut Akranesi
Madam Glæsibæ
#7 ÞÆGILEGUR
OG FALLEGUR AEROBIKFATNAÐUR
SEM SLÆR í GEGN