Morgunblaðið - 25.09.1988, Qupperneq 63

Morgunblaðið - 25.09.1988, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1988 63 F erming'ar 1989 Haustið er komið. Laufin falla bráðlega flest. Skólarnir eru bytjað- ir. Og nú hefjast spumingar ferm- ingarbamanna, sem á vordögum 1989 raða sér í hvítu kyrtlunum sínum kringum altari kirkju sinnar. Að ári eiga þau börn rétt á ferm- ingu að lokinni fræðslu, sem fædd em 1975. Línum þessum fylgja upplýsingar sóknarprestanna í Reykjavíkurprófastsdæmi um það, hvenær börnin eiga að koma hið fyrsta skiptið og fá þau þá að vita um stundarskrá og tilhögun náms- ins. En sé einhver í vafa um það, hvaða sókn fjölskyldan tilheyrir, er hægt að fá um slíkt upplýsingar á Hagstofunni eða á skrifstofu dóm- prófasts. Mikil umræða á sér nú stað um fermingar og fermingarfræðslu. Alls staðar er lögð áherzla á það, að hér sé um viðburð að ræða, sem snertir alla íjölskylduna. Fundir em haldnir með foreldmm og mjög er æskilegt, að öll fjölskyldan sæki kirkju með fermingarbaminu og slái þannig skjaldborg um það og tryggi, að þetta fermingarár verði ekki einangrað frá öðmm ámm í ævi bams og fjölskyldu, heldur sé um að ræða upphaf þess, sem vel skal varið og vel rækt. Allar nánari upplýsingar gefa sóknarprestamir og em fúsir að ræða ferminguna, tilgang hennar og markmið. Ólafur Skúlason, dómprófastur Árbæjarprestakall: Yæntanleg fermingarböm mín í Árbæjarprestakalli á árinu 1989 em beðin að koma til skráningar og viðtals í safnaðarheimili Árbæjar- sóknar mánudaginn 26. sept. nk. á tímabilinu frá kl. 17 til 19 síðdeg- isog hafi bömin með sér ritföng. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. Áskirkja: Væntanleg fenningarbörn komi til skráningar í Áskirkju þriðjudaginn 27. sept. nk. kl. 17.00. Takið með ritföng. Sr. Ámi Bergur Sigur- bjömsson. Breiðholtssókn: Væntanleg fermingarböm mæti til skráningar í Breiðholtskirkju fimmtudag - 29. sept. kl. 16.30. Sóknarprestur. Bústaðakirkja: Væntanleg fermingarböm em beð- in að mæta í kirkjuna miðvikudag 28. sept. kl. 18 síðdegis. Börnin hafi með sér ritföng. Sr. Ólafur Skúlason. Digranesprestakall: Væntanleg fermingarböm era beð- in að koma til innritunar í safnaðar- heimilið við Bjarnhólastíg þriðjudag 27. sept. kl. 14—16 síðdegis. Sr. Þorbergur Kristjánsson. Dómkirkjan: Væntanleg fermingarböm mæti til innritunar í Dómkirkjunni miðviku- dag 28. sept. kl. 15.30. Sr. Hjalti Guðmundsson og sr. Láms Hall- dórsson. Fellaprestakall: Fermingarböm komi til skráningar í kirkjuna að Hólabergi 88 þriðju- dag 27. sept. kl. 18. Sr. Hreinn Hjartarson. Grensáskirkja: Væntanleg fermingarbörn komi til skráningar í safnaðarheimili Grens- áskirkju við Austurver nk. mánudag 26. sept. kl. 16-18. Sr. Halidór S. Gröndal. Hallgrímskirkja: Fermingarböm í Hallgrímskirkju mæti til viðtals í kirkjunni miðviku- dag 28. sept. kl. 17. Sóknarprest- amir. Háteigskirkja: Væntanleg fermingarböm mæti til skráningar í Háteigskirkju fimmtu- dag 29. sept. kl. 15. Bömin hafi með sér ritföng. Sóknarprestamir. Hjallaprestakall í Kópavogi: Skráning fermingarbama fer fram þriðjudag 26. sept. kl. 15.30—17.30 á skrifstofu Hjallasóknar, Digra- nesskóla við Skálaheiði. Fermingar- börn em beðin að hafa ritföng meðferðis. Sr. Kristján E. Þorvarð- arson. Hólabrekkuprestakall: Væntanleg fermingarbörn komi til skráningar miðvikudag 28. sept. kl. 16 í kirkjunni. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Kársnesprestakall: Væntanleg fermingarbörn mæti til skráningar í Kópavogskirkju mið- vikudaginn 28. september kl. 11.30—12.30. Sr. Ámi Pálsson. Langholtskirkja: Væntanleg fermingarbörn í Lang- holtskirkju mæti til innritunar og viðtals í safnaðarheimilinu miðviku- daginn 28. september kl. 18. Sr. Sigurður Haukur Guðjónsson. Laugarneskirkja: Væntanleg fermingarbörn komi til skráningar í safnaðarheimili Laug- ameskirkju þriðjudaginn 27. sept. kl. 17 síðdegis. Sr. Jón Dalbú Hró- bjartsson. Neskirkja: Væntanleg fermingarböm komi til viðtals og skráningar í Neskirkju miðvikudag 28. sept. kl. 15.20 og hafi með sér pappír og skriffæri. Seljasókn: Væntanleg fermingarböm úr Selja- skóla mæti til skráningar í Selja- kirkju fimmtudag 29. sept. kl. 15. Fermingarbörn úr Ölduselsskóla mæti til skráningar fimmtudag 29. sept. kl. 16. Sr. ValgeirÁstráðsson. Seltjarnarneskirkja: Væntanleg fermingarbörn komi til skráningar í kirkjunni milli kl. 15 og 17 þriðjudag 27. sept. Frá hátíðahöldunum í sumar. 1000 ára afmæli kristnitöku í Rússlandi Fyrirlestur í bíósal MÍR í dag, sunnudaginn 25. september, kl. 16 segir sr. Rögnvaldur Finnbogason sóknarprestur á Staðastað firá hátíðahöldum þeim, sem fram fóru í Sovétríkjunum í sumar í tilefni 1000 ára af- mælis kristnitöku í Rússlandi. Fyrirlesturinn verður haldinn í bíó- sal MÍR, Menningartengsla Islands og Ráðstjórnarríkjanna, Vatnsstíg 10. Rögnvaldur Finnbogason var boðsgestur rússnesku rétttrúnað- arkirkjunnar við hátíðahöldin, ásamt biskupi íslands, hr. Pétri Sigurgeirssyni, og konu hans Sól- veigu Ásgeirsdóttur. Sýning á nokkmm eftirprentun- um helgimynda og ljósmyndum, sem tengdar em starfi kristinnar kirkju og trúfélaga í Sovétríkjun- um, hefur verið sett upp í sýning- arsal MÍR, Vatnsstíg 10. Verður sýningin opnuð sunnudaginn 25. sept. kl. 15 og síðan opin næstu vikur á mánudögum, miðvikudög- um og föstudögum kl. 17—18.30. Aðgangur að sýningunni og fyrir- lestri sr. Rögnvaldar Finnbogason- ar er öllum heimill. Nú em liðin 160 ár frá fæðingu Lév Toistojs. Minnist MÍR af- mælisins m.a. með kvikmyndasýn- ingum. Laugardaginn 1. okt. verð- ur stórmyndin „Stríð og friður" sýnd í bíósalnum, Vatnsstíg 10, og sunnudaginn 9. okt. „Kósakk- ar“, en báðar kvikmyndimar em byggðar á verkum Tolstojs sem komið hafa út á íslensku. (Frá MlR) Fjöldi námskeiða í Tómstundaskólanum NÁMSKEIÐ um hollustu og hreyfingu, konur og Qölmiðla, bókband, pappírsgerð, leður- vinnu og rammaþrykk eru með- al nýjunga á dagskrá Tóm- stundaskólans á haustönn 1988. í frétt frá Tómstundaskólanum segir, að öll vinsælustu eldri nárri- skeiðin haldi áfram, svo sem nám- skeið í Ijósmyndun, skrautritun og innanhússkipulagningu. Þá er boð- ið upp á námskeið í myndlist og handavinnu, starfsetningu og skrift, hvemig á að skipuleggja tíma sinn og fleira. Haldin verða nokkur námskeið tengd blaðaútgáfu og annarri fjöl- miðlun, þar á meðal „Konur og fjölmiðlar“, sem dr. Sigrún Stef- ánsdóttir sér um. Hún ijallar um hvemig konur geta nýtt sér fjöl- miðla til að koma málum á fram- færi. Þá er einnig boðið upp á „Reykjavíkurrölt" undir leiðsögn Páls Líndals. RAFVERKTAKAR RAFVIRKJAR Er ekki kominn tími til aö kynnast RAFLAGNAEFNINU Sterkt, ódýrt og fjölbreytt úrval Kynntu þér Vatnagörðum 10 SÍMAR 685855/685854 Fjölbreytt og vandað námskeið í notkun töflureiknisins Multiplan. Dagskrá: * Notkunarmöguleikartöflureikna. * Helstu skipanir kerfisins. * *, Tölvufræðslan Borgartúnl 28. Tíml: 3.-6. október kl. 13-16. Innritunísímiiin 687590og 686790. VRogBSRBstyfljasina félaga til þátttöku í nimskeiflinu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.