Morgunblaðið - 20.11.1988, Síða 4

Morgunblaðið - 20.11.1988, Síða 4
4 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1988 Stoltur yfir því að hafa leitað skyldfólk mitt uppi - segir Einar Ólason ljósmyndari Einar Ólason er 31 árs ljósmyndari, sem frá 19 ára aldri hefur leitað ættingja sinna. Iiann hefiir nú fundið kynmóður sína og fímm systkini en leitar enn föður sins. Hann segist vera á leið til Bandarikjanna til að hitta móður sína, sem hann hefiir aldrei séð, og til að leita uppi föður sinn. „Eg er afskaplega ánægður með að hafa fundið flest skyldmenni mín og ekki síður stoltur yfir því.“ Einar segist hafa verið heppinn í leit sinni. Hann segir sögu sína hér til þess að hún megi verða öðrum hvatning til að leita uppruna síns. Því hver og einn eigi rétt á vita hverra manna hann sé. Móðir mín hafði þegar ákveðið að gefa mig þegar ég fædd- ist og ég var ættleiddur vikugam- all á sjúkrahúsinu í Keflavík. Um sama leyti ættleiddu kjörforeldrar mínir tveggja ára gamlan dreng og ólu okkur upp sem bræður. Við bjuggum á Húsavík. Þar voru nokkur kjörböm í næsta ná- grenni, m.a. þrír félagar okkar, en við urðum ekki fyrir aðkasti vegna þessa. Kjörforeldr- Ui/rn ar m'n‘r eru H Uhm yndislegir og mt W tmtI hafa reynst mér . vel. Ég hef alltaf rff vitað að ég væri Jrfj tökubam og sem krakki var ég ákaf- rfí lega forvitinn, lang- rh vita. hverra L Cr manna ég væri. For- eldrar mínir hvöttu mig til að ná sambandi við skyld- mennin og gáfu mér allar þær upplýsingar sem þeir höfðu undir höndum en þær vom ekki miklar. Ég vissi hvað móðir mín hét, hvar hún bjó þegar ég fæddist og að faðir minn hefði verið bandarískur hermaður. Einnig hafði ég heyrt að ég ætti fleiri systkini, þar á meðal tvíbura. En ég gerði ekkert í þessum málum fyrr en undir tvítugt. Þá fór ég á Hagstofuna og í bandaríska sendi- ráðið. Á hvorugum staðnum var nokkrar upplýsingar að hafa, svo ég hætti í bili. Nokkru seinna fór ég aftur á Hagstofuna og þar var stúlka sem reyndist mér ómetan- leg hjálp. Hún gramsaði og garf- aði í gömlum skýrslum og komst loks að því að mamma hefði búið með móður sinni og systur um það leyti sem ég fæddist. Hún gaf mér upp nöfn þeirra og ég fór strax af stað. Amma var þá látin fyrir allnokkru en móðursystur mína fann ég þegar. Það kom óneitanlega á hana þegar ég hringdi í hana en hún bauð mér samt heim. Ég gleymi þvi aldrei þegar hún opnaði dymar fyrir mér og á veggnum fyrir aftan hana blasti við mynd af manni í einkennisbúningi, sem var nauð- alíkur mér. Ég hreinlega stein- gleymdi frænku minni stundar- kom og starði á myndina, sem ég hélt vera af pabba. Myndin reyndist vera af bróður mínum, sem var elstur okkar systkinanna og sá eini sem mámma ól upp. Frænka mín sýndi mér myndir af fjölskyldunni, sagði mér frá mömmu, sem hafði flutttil Banda- ríkjanna 1966, eldri systur minni og gaf mér upp heimilisfang þeirra beggja. Það greip mig ofsa- kæti þegar ég hafði kvatt hana og mig langaði mest til að stökkva hæð mína og bara vera þar. Ég komst fljótt niður á jörðina og hafði samband við kjörforeldra eldri systur minnar af tillitssemi við þau. Þau tóku mér öll vel, rétt eins og hin systkinin og að- standendur þeirra síðar. Ég skrif- aði einnig bréf til mömmu, þá 21 árs gamall. Henni varð óskaplega mikið um þegar hún fékk bréfíð og sendi mér kort þar sem hún sagðist ekki geta hitt mig. Þá var hún gift hermanni á eftirlaunum sem hafði ekki hugmynd um að auk elsta sonar síns hefði mamma eignast fímm böm og gefíð þau öll. En við skrifuðumst samt á og sendum hvort öðru myndir. Mamma sagði mér hver faðir minn væri en bað mig að hætta að grennslast fyrir um hann. Hún sagði mér einnig frá eldri systkin- um mínum en nefndi hin yngri ekki. Hún hélt þessu áfram leyndu fyrir manninum sínum sem nú er látinn. Það var t.d. mjög erfitt fyrir mig að geta ekki heimsótt mömmu þegar ég var á ferð í Bandaríkjunum tveimur árum síðar. Ég hef aldrei hitt hana en ætla að drífa mig vestur fyrir jól. Eftir þetta kastaði ég mæðinni um nokkum tíma en var þó annað slagið að spyijast fyrir um tvíbur- ana. Þar rakst ég alltaf á vegg en fann á viðbrögðunum að menn vissu meira en þeir vildu vera láta. Það var svo ekki fyrr en 6 árum seinna að mér datt í hug að hringja í dómsmálaráðuneytið til að komast að því hver væri réttur minn. Þar var mér gefíð samband við lögfræðing sem tók niður nafnið mitt og sagði mér að koma næsta dag. Hann sagði mig eiga allan rétt á því að vita um for- eldra mína og systkini. Ég var óskaplega spenntur því þama var næstsíðasti hluti ráðgátunnar um fjölskylduna að leysast. Daginn eftir gekk ég á fund lögfræðings- ins, sem byijaði að telja okkur Tvær fjölskyldur „Hún reyndist vera nauðalík mér, þæði í útliti og innræti," segir Einar Ólason um systur sína, Maríu Bjarnadóttur. Á myndinni t.v. eru Einar og kjörbróðir hans, Örn, með foreldrunum; Óla Kristins- syni og Ingunni Jónasdóttur. eldri systkinin upp. Ég gat varla setið kyrr fyrir óþolinmæði allt þar til hann tilkynnti mér að ég ætti yngri systur, sem væri ári yngri. Mér brá óskaplega. „Eitt systkinið enn,“ þaut í gegnum hugann, „en þá er þetta misskiln- ingur með tvíburana." Ég ætlaði því að fara út þegar hann spurði mig hvort ég vildi ekki fá allar upplýsingamar og sagði mér frá yngstu systkinunum, tvíbura- bræðrum. Ég sat bara eins og lamaður þegar hann lauk við að lesa upp úr skjölunum. Heima húkti ég ráðvilltur og hugsaði um hvað ég ætti að gera. Ákvað að hringja í yngri systur mína en hún trúði mér ekki þegar ég kynnti mig. Að lokum bauð hún mér heim. Þegar ég stóð á Morgunblaðið/RAX útidyratröppunum hjá henni flaug mér allt í einu í hug hvort ég væri að ganga of langt, með því að tilkynna alveg ókunnugu fólki að ég væri bróðir þess. En ég sló hugsuninni frá mér og hún hefur ekki hvarflað að mér síðan. Systir mín reyndist vera nauðalík mér, bæði í útliti og innræti. Eins og mamma, reynum við alltaf að horfa á björtu hliðamar. Ef mamma hefði ekki gert það held ég að hún væri löngu búin að missa vitið. Seinna bauð ég svo systkinum mínum heim og við létum taka mynd af okkur sem við sendum mömmu. En tilfínningarnar til þeirra komu ekkert sisvona. Við vorum ókunnug; fullorðið fólk. Síðar kynntist ég þeim betur og áamband okkar er gott, þó sum þekki ég betur en önnur. Þrátt fyrir skyldleikann verður tilfinn- ingasamband systkina aldrei eins náið, alist þau ekki saman upp. Mér er ómögulegt að lýsa þeim tilfinningum, sem ég ber í bijósti til systkina minna. Nema hvað ég er þakklátur fyrir að hafa fundið þau, þó seint hafí verið.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.