Morgunblaðið - 20.11.1988, Page 11

Morgunblaðið - 20.11.1988, Page 11
11 c MORGUNBLAÐIÐ MAIMIMLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1988 ÆTTFRÆDI/Hvemig tengist stabarhaldarinn stabnum? Gefandinn Stefán Stephensen. Staðarhaldarinn Sr. Þórir Stephen- sen. Stephensenar og Viðey í sumar var séra Þórir Stephensen (£ 1931) ráðinn hinn fyrsti staðarhaldari í Viðey eftir endurreisn staðarins. Fór vel á því að maður með þetta ættarnafn væri ráðinn til starfans þvi að nafii Stephensena eða Stefánunga, eins og ættin er líka stundum kölluð, og Viðeyjar hefiir verið bundin traustum böndum i tvær aldir. Ekki veit ég þó hvort séra Þórir hefiir sóst eftir stöðunni eða verið ráðinn vegna ættar sinnar. Altént gefur ráðning hans tilefiii til að rifla svolítið upp sögu Stephensena í Viðey og hvernig séra Þórir kemur inn í þessa ætt sem kölluð var valdamesta ætt Islands á síðustu öld. Forfaðir Stephensena var Ólafur Stephensen (1731—1812) en hann var fyrsti íslendingurinn sem gegndi stöðu æðsta valds- manns þjóðarinnar í þá tíð, stift- amtmanns- embættinu. Hann fluttist 1793 til Viðeyjar og bjó við mikla rausn í Viðeyjar- stofu til æviloka enda stórauðug- ur. Sonur hans Magnús dóm- eftir Guójón Frióriksson var Stephensen (1762—1833) sQóri, mestur valdamaður lands- ins á fyrsta þriðjungi 19. aldar og frumkvöðull í menningar- og fræðslumálum. Magnús bjó alla sína tíð í Viðey, keypti hana 1817 af landstjóminni og var eyjan síðan samfellt í eigu Stephensena til 1903. Sonur hans var Ólafur Stephensen (1791—1872) dóm- málaritari í Viðey. Hann var þrígiftur og voru tvær fyrri konur hans, systumar Sigríður og Marta, sonardætur Ólafs stiftamt- manns Stephensens og því systk- inaböm við Ólaf mann sinn. Gift- ingar innan ættar í Stephensen- ætt voru mjög algengar eins og í fleiri yfirstéttarættum á síðustu öld. Sonur Ólafs og Mörtu var Magnús Stephensen (1832— 1913) bóndi í Viðey og var hann þar fjórði og síðasti ábúandinn af Stephensenætt. Eyjan var seld úr eigu ættarinnar 1903 eins og áður sagði. Ekki var þó Viðey með öllu gengin úr greipum Stefánunga því að árið 1938 keypti Stefán Stephensen (f. 1900) kaupmaður í versluninni Verðandi í Reykjavík eyna en hann var sonarsonur áð- umefnds Magnúsar Stephensens bónda i Viðey. Faðir hans var Ólafur Stephensen (1863—1934) prestur á Mosfelli í Mosfellssveit. Stefán kaupmaður seldi svo ríkinu Viðeyjarstofu ásamt landspildu umhverfis árið 1967 en gaf kirkj- una íslensku Þjóðkirkjunni. Viðey er ein af stærstu eyjum landsins og keypti Reykjavíkurborg stærsta hluta hennar árið 1983 en sonur Stefáns kaupmanns, Ólafur Stephensen (f. 1936), for- stjóri auglýsingastofu í Reykjavík, heldur þó eftir nokkram hekturam milli Heljarkinnar og Kvenna- gönguhóla. Eins og alkunna er færði svo ríkið Viðeyjarstofu Reykjavíkurborg að gjöf árið 1986. Og þá er komið að því hvemig séra Þórir Stephensen staðar- haldari er skyldur Stefánungum í Viðey. Hann er sonur Olafs Stephensens (1876—1954) öku- mánns í Reykjavík sem aftur var sonur séra Stefáns Stephensens (1832-1922) á Mosfelli í Grímsnesi. Séra Stefán á Mosfelli var sonur séra Stefáns Stephen- sens (1802—1851) á Reynivöllum sem var sonur Stefáns Stephen- sens (1767—1820) amtmanns á Hvítárvöllum en hann var sonur Ólafs Stephensens stiftamtmanns í Viðey. Séra Þórir er því fimmti maður frá Ólafi og era það óvenju- lega fáir ættliðir miðað við það að milli fæðingarára þeirra era rétt 200 ár. MATUR OC DRVKKDR/U ergott að eiga alltafí eldhússkápnum? Búraleg Ekki era allir svo búralegir að þeir geti séð af sérstakri skonsu undir forðabúr og frysti- kistu, og meira reynir á útsjónar- semi og skipulagshæfileika þeirra sem hafa fáa skápa og þrönga til þess að safna í forða en hinna sem hafa yfrið. Hér á eftir fer listi yfir hráefni sem skyn- samlegt er að eiga eftir Jóhönnu að staðaldri í eld- Sveinsdóttur húshirslum í því skyni að eiga alltaf úr einhveiju að moða, hvort sem tími hefur gef- ist til að fara út í búð eða ekki áður en hafist er handa við matartil- búninginn. Séu t.d. til hrísgrjón og einhvers konar afgangar af kjöti, fiski og/eða grænmeti má alltaf laga risotto, og sé nánast ekkert annað til í kotinu en kart- öflur má t.d. rífa þær og baka kart- öflupönnuköku — rösti — o.s.frv., að því tilskyidu að ein- hveijar kryddteg- undir séu líka við hendina. (Ég er sem sagt ekki þeirrar skoðunar eins og sumir forframaðir matarskríbentar erlendir að brenn- andi kynhvöt sé besta kryddið við matargerð og að ávallt beri að huga að kynörvandi efnasamsetningu fæðunnar svo og örvitseggjandi framreiðslu hvers réttar fyrir sig____) En hér kemur listinn: Dijon-sinnep, gjaman bæði gróft og fint; gott edik, gjaman bæði vín- og eplaedik; ólífuolía (einkum í salöt) og/eða önnur olía með „hlut- lausara“ bragði, eins og maísolía ef þið kjósið svo; smjör; tómatkraft- ur í túpu eða litlum dósum; ein- hveijar niðursuðuvörar, svo sem túnfískur, þorskhrogn og spínat; Parmesanostur; hvítlaukur; soja- sósa, t.d. tamari; súputeningar eða —kraftun bæði kjöt-, fiski- og grænmetiskraftur; hunang; ólífur; einhvers konar hnetur (og/eða möndlur); hrísgijón; einhvers konar pasta; kartöflur; þurrkaðar baunir (gjaman nokkrar tegundir, þ. á m. rauðar linsubaunir sem ekki þarf að leggja í bleyti fyrir suðu); sæmi- legt úrval kiyddtegunda, þ. á m. heil kiydd, og gott mortél; egg; súrmjólk eða hrein jógúrt; ger og lyftiduft; og svo auðvitað hveiti, sykur o.s.ftv. Síðan er um að gera að fullnýta allt, á þessum síðustu og verstu tímum (aftur og nýbúriir,..), með réttu hugarfari, sbr. upphaf ljóðs zen-búddistans Ed- wards E. Brown í The Tassajara Bre- adbook: „Lífgaðu fæðuna/ með ást- ríkri nærveru þinni./ Hafðu samlíðan, berðu virðingu/ fyrir ferskri fæðu, skörðóttum skál- um,/ skítugum diskaþurrkum og suðandi flugum./ Hirtu um leifar,/ ekki segja: Hva, það er nóg til,/ þessu getum við hent./ Því allir hlutir segja: Sýndu mér ást,/ saml- íðan, varfæmi...“ LIFANDIPENINGAMARKAÐUR IKRINGLUNNI „ieM fdiK i vwbmhmmmwi _-euepgaaHe fjármal . ■■■ "! Ari Sigurðsson Margrét Hinriksdóttir Sigrún Ölafsdóttir Stefán Jóhannsson HjáFjárfestingarfélaginu íKringlunni FIÁPFFCntvir" APFFI Ar'ltA ^>pið mánudaga til föstudaga kl. 10 — 18 er lifandipeningamarkaður og IzugzrOzg* kl. 10 - 14 og personuleg þjonusta. Aöili aö Veröbréfaþingi Islands. Hluthafar Verzlunarbankinn, Eimskip, Tryggingamiðstöðin, Lífeyrissjóöur Verzlunarmanna auk rúmloga 400 fyrirtaekja og einstaklina. Símsvari ALLAN SÓLARHRINGINN í síma 28506. Upplýsingar um daglegt gengi Skyndibréfa, Kjarabréfa, Markbréfa, Fjölþjóðabréfa og Tekjubréfa ís nóv. 1988: Kjarabréf 3,364 Tekjubréf 1,567 Markbréf 1,777 Fjölþjóðabréf 1,268 Skyndibréf 1,031

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.