Morgunblaðið - 20.11.1988, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FJOLMIÐLAR SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1988
25 C
Auglýsingar
sem borga sig
Listrænt gildi vegur ofþungt í íslenskum auglýsingum að mati sumra
auglýsenda. Þetta kom fram á ráðstefiiu sem Samtök íslenskra aug-
lýsingastofa efhdu til fyrir skemmstu. Þar sem auglýsendur eru
þeir sem standa straum af kostnaði við gerð auglýsinga má ætla
að þeir hafi þar mikil áhrif og má þvi búast við að vönduðum íslensk-
um auglýsingum fækki á næstunni. Þessi þróun er athyglisverð þeg-
ar það er haft í huga að auglýsingastofúr á Vesturlöndum hafa á
síðustu áratugum sífellt lagt meira af mörkum við þróun mynd-
máls. Einnig ber að hafa í huga að auglýsingar móta mjög myndræn-
an smekk fólks og þvi til áréttingar má minna á að á einni allra
vinsælustu dagskrárklukkustund á Stöð 2 eru sýndar u.þ.b. 40 aug-
lýsingar.
Sjónarmið auglýsenda er það að
auglýsingar séu alltof dýrar í
framleiðslu en dæmi eru um að sjón-
varpsauglýsing kosti um 800 þús-
und krónur að ótöldum kostnaði við
að sýna hana.
Þeir halda því
fram að auglýs-
ingastofur ein-
blíni um of á út-
lit, frágang og
annað í þeim dúr en staldri síður
við það hvort auglýsingin skili ár-
angri. Þeir telja að ástæður þessa
séu m.a. þær að á auglýsingastof-
unum vinni fólk með menntun og
reynslu á sviði lista frekar en á
sviði viðskipta og markaðsmála.
Auglýsendur segjast að sjálfsögðu
vilja að auglýsingar þeirra séu
vandaðar og líti vel út en spuming
sé hvort íslenski markaðurinn sé
nógu stór til þess að bera þær uppi.
Þeir spyrja hvort e.t.v. sé hægt að
lækka framleiðslukostnað um helm
ing án þess að áhrif auglýsinganna
minnki að sama
skapi.
Starfsfólk
auglýsingastof-
anna yrði fyrst
til þess að viður-
kenna að sumar íslenskar auglýs-
ingar séu vandaðar og að mikið sé
í þær lagt og að þær séu fyllilega
á við það sem best gerist annars
staðar í Evrópu. Þeir telja hins veg-
ar að erfitt sé að lækka kostnað
við gerð þeirra verulega því stærsti
hluti hans sé fastur stofnkostnaður
nema þá að dregið sé átakanlega
úr gæðum. Einkum á þetta við um
sjónvarpsauglýsingar og benda þeir
á að sjónvarpssekúndan sé alltaf
jafndýr, sama hvort auglýsingin sé
góð eða vond. Einn heimildarmanna
íaldi ólíklegt að rótgrónustu sjón-
varpsauglýsingaframleiðendumir í
Reykjavík, Frost Film hf., Saga
Film hf. og Sýn hf., létu undan
kröfum af þessu tagi. Hins vegar
hafa nýrri framleiðendur eins og
t.d. íslenska myndverið hf. boðið
auglýsendum ódýrari þjónustu þar
sem sjónvarpstökur eru færri og
sviðsmynd og umgjörð einfaldari.
Margar auglýsingastofur hafa verið
tregar til þess að beina viðskiptum
sínum til þeirra sem tilbúnir em til
þess að slá af listrænum kröfum,
þar eð þær telja slíkan afslátt
óæskilegan. Auk þess ráða þar
einnig margvísleg viðskiptatengsl.
Auglýsingagerðarmenn benda einn
ig á að erfitt sé að alhæfa um þessa
hluti því sumum vömm hæfi betur
að þær séu auglýstar á vandaðan
hátt. ■
Þessi ágreiningur ér i hnotskurn
sá að hönnuðir vilja gera góða aug-
lýsingu en auglýsendur vilja fá
nægjanlega góða auglýsingu.
Einnig má segja að þessi ágreining-
ur kristallist í skilningi þessara
tveggja aðila á því hvað sé góð
auglýsing. Auglýsingagerðarmenn
telja að góð auglýsing sé hug-
myndarík, vel útfærð og vönduð.
Auglýsendur, sem borga brúsann,
telja að sú sé góð sem örvi sölu
hvað mest. Þetta tvennt þarf ekki
að fara saman og margir auglýs-
endur nefna það að þegar auglýs-
ingagerðarmenn verðlauna bestu
auglýsingarnar miði þeir einungis
við eigin forsendur.
Auglýsingastofur eru ekki líkleg-
ar til þess að gefa eftir í þessu
máli án einhverra stympinga en
hins vegar era það auglýsendur sem
halda utan um budduna. Þeir hafa
nú bundist samtökum og að sögn
heimildarmanns er innan þeirra
mikil umræða um
framleiðslukostn-
aðinn og ekki ólík-
legt að þeir muni
standa saman í því
að reyna að lækka
hann. Einnig huga
þeir á að starf-
rækja upplýsinga-
þjónustu fyrir þá
sem þurfa að aug-
lýsa og vonast þeir
til að það veiti
auglýsingastofum
aukið aðhald. Því
er líklegt að í
framtíðinni verði
minna íjármagni
eytt í hvetja aug-
lýsingu. Það hefði t.d. í för með sér
að vönduðum ljósmyndaauglýsing-
um fækkaði í tímaritum og að sjón-
varpsáhorfendur sæju færri leiknar
auglýsingar og fábrotnari samsetn-
ingar. Auglýsingarnar yrðu því að
líkindum einfaldari og fábreyttari
en hvort það dragi úr vinsældum
skal látið ósagt hér.
Karl prins konungnr
fjölmiðla
Karl Bretaprins hefur fundið sér
leið til áhrifa í samfélagi sem í raun
ætlast ekki til annars af honum en
að bíða eftir andláti móður sinnar.
Hann hefur numið táknmál fjöl-
miðla ef svo má segja og hann.
hagnýtir sér það á mjög áhrifaríkan
hátt. Hann hefur lært það æ betur
á síðustu áram að með yfirveguðum
og meitluðum setningum getur
hann látið hrikta í mörgum styrkum
stoðum bresks samfélags. Kunnast-
ar era eiturörvar -þær sem hann
hefur sent breskum arkitektum og
líkt verkum þeirra m.a. við ógeðsleg
graftarkýli á baki góðs vinar eða
loftárása Þjóðveija í síðari heims-
styijöldinni. Hann hefur einnig með
svipuðum hætti látið að sér kveða
m.a. varðandi fátækt og slæman
aðbúnað innflytj-
enda í Bretlandi
og óæskileg áhrif
glæpa- og klám-
mynda. Nýverið
steig hann feti
framar og samdi
handrit að sjón-
varpsþætti fyrir
breska ríkissjón-
varpið BBC. Þar
kynnti hann í eigin
persóriu viðhorf
sín til skipulags-
mála og arkitekt-
úrs og setti hann
hugmyndir sínar
fram á þann hátt
að reyndustu sjón-
varpsmenn Breta hefðu ekki getað
gert betur. Afstaða hans virtist
skýr, skynsöm og fordómalaus.
Þátturinn vakti gífurlega athygli
og í skoðanakönnun sem fjölmiðlar
gerðu í kjölfarið kom í ljós að al-
menningur fagnaði þessu framtaki
og vonaðist til þess að prinsinn léti
oftar í sér heyra. Arkitektar era
að vonum lítið hrifnir af afskiptum
prinsins en geta þó ekki neitað því
að sú umræða og vakning sem hann
hefur hrandið af stað sé af hinu
góða.
BAKSVIP
eftir Ásgeir Fridgeirsson
■ Eru auglýsingar of dýr-
ar í framleiðslu?
■ Einblina auglýsinga-
stofúr á listrænt útlit
auglýsinga en gá ekki
að því hvort þær beri
árangur?
■ Þarf listræn auglýsing
endilega að bera árang-
ur?
■ Hvað er góð auglýsing?
Sú sem er hugmyndarík
og vönduð, segja hönn-
uðir og starfsfólk aug-
lýsingastofa. Sú sem
eykur sölu, segja aug-
lýsendur.
FÓLK
i fjölmiðlum
■ Björgvin
Halldórsson
hefúr látið af
störfúm
fram-
kvæmda-
stjora hjá
Sljörnunni og
ráðið sig til
íslensku auglýsingastofúnnar
hf. Björgvin sagði í samtali við
Morgunblaðið að í starfi sínu á
Stjörnunni hefði hann haft tals-
verð afskipi af auglýsingagerð
sem hefði vakið áhuga hans á
að fara í auknum mæli út í aug-
lýsingabransann. Björgvin mun
annast þá deild íslensku auglýs-
ingastofúnnar hf. sem sér um
útvarpsauglýsingar auk þess sem
hann mun ásamt öðrum annast
gerð sjónvarpsauglýsinga. „Ég
verð þarna eins konar framleið-
andi og hlakka til að takast á við
þessi verkefni," sagði Björgvin.
Aðspurður um tónlistina kvaðst
hann hafa í hyggju að snúa sér
í auknum mæli að henni og í þvi
sambandi væri ákveðið verkefiii
í farvatninu sem of snemmt væri
að ræða á þessu stigi.
■Skipan dagskrárgerðarmanna
á Bylgjunni virðist nú vera í föst-
um skorðum og hafa litlar breyt-
ingar orðið á þeirri sveit að und-
anförnu. Þó hefúr ein ný rödd
kveðið sér þar
hljóðs, rödd
Ólafar Marín-
ar Úlfarsdótt-
ur sem hefiir
tekið við ís-
lenska listan-
umafPétri
Steini Guð-
mundssyni. Ólöf Marín, sem er
19 ára Reykvíkingur, hefur ekki
áður starfað við útvarp, en hún
var valin úr hópi 80 umsækjenda
um starfíð. Að sögn Ólafar
Marínar mun íslenski listinn ekki
taka stökkbreytingum undir
hennar sfjórn þótt einhveiju
kunni að verða hliðrað til er fram
líða stundir. Hún kveðst hlusta á
alla tónlist og hafa fylgst vel
með í popptónlistinni en mest
dálæti hefúr hún á Randy Craw-
ford og James Ingram.
■ Vinsæll útvarps- og sjónvarps
þáttur BBC í Bretlandi, Any
Questions, átti nýlega 40 ára af-
mæli. Þátturinn er sendur út í
beinni útsendingu á fostudögum
frá ýmsum stöðum í Bretlandi
og hlusxtendur voru flestir um.
16 milljónir á árunum 1950-60.
Nú munu aðeins tvær milljónir
fylgjast honum í sjónvarpi, en
honum er einnig útvarpað sem
fyrr. í þáttunum kemur fram
fastur hópur þjóðkunnra þátt-
takenda, nokkurs konar „vitring-
ar“, og þeir eru spurðir álits„á
öllu milli himins og jarðar." Af
vinsælum þátttakendum má
nefiia dr. Bronowski, höfúnd
kunnra sjónvarpsþátta um menn-
ingarsögu, ritliöfúndinn John
Mortimer, leikkonuna Glendu
Jackson og stjórnmálamennina
„Bob“ Boothby, Norman St. John
Stevas, Tony Benn og Enoch
Powell.
■ Bjami Dagur Jónsson, út-
varpsmaðurinn
kunni, hefúr
tekið sér hvíld
frá dagskrár-
gerð á Stjörn-
unni um
óákveðinn tíma
og snúið sér
aftur að fyrri
störfúm, en hann rekur auglýs-
ingastofúna Nýr dagur ásamt
Ernst Bachmann. Samkvæmt
heimildum okkar standa vonir
Stjörnumanna til þess að Bjarni
Dagur hverfi aftur til starfa hjá
þeim, en ósamið er um launakjör
og þar stendur hnífúrinn í
kúnni . . .
I KOMUM HEIM
MÆLUM OG
RÁÐLEGGJUMí
VALIÁ
INNRÉTTINGUM
• Þriggja vikna afgreiðslu-
frestur.
• Ókeypis hugmynda-
vinna.
• Ókeypis heimsendingar-
þjónusta.
Höfum á boöstólum frábært
úrval af vönduöum og fallegum
eldhúsinnréttingum, baðinnrétt-
ingum og fataskápum. Viö
bjóöum frábært verö og innrétt-
ingar við allra hæfi. Hafið sam-
band strax! Viö komum, teiknum
upp hugmyndir og gerum tilboð
þér að kostnaöarlausu.
Veitum fólki úti á landi llka
sérstaka þjónustu.
Viö erum viö hliðina á Álnabæ í
Síðumúla.
Opið 9-19 alla daga.
Laugardaga 10-16.
Sunnudaga 10-16.
jmúli 32 Sími: 680624
ir opnunartíma 667556.