Morgunblaðið - 20.11.1988, Blaðsíða 26
á6 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1988
cArpr
ejtir Elínu
Pálmadóttur
Vttlur landans í London
Og sjá, andi jólanna var
yfir þeim og þeir eyddu
óspart. Og drottinn steig
niður á Oxford Street og Regent
Street og sagði: Hvað gagnar það
manninum þótt hann eignist
allan heiminn ef hann fær ekki
jólaföt og dýrindis gjafir handa
allri fjölskyldunni heima? Nú
verður að láta hendur standa
fram úr ermum. Fyrsti laugar-
dagurinn eftir að kveikt er á jóla-
skreytingunum í London og
stórverslanirnar búnar undir
jólastemmninguna og jólagróð-
ann með hugvitssamlegum út-
stillingum í búðargluggum. Það
gervisnjóar i gluggum stærstu
leikfangaverslunar á Regent
Street, skammt frá dansa ballet-
brúður og í verslunarglugga á
Piccadilly
hringja
nunnur og
munkar
kirkjuklukk-
um með til-
þrifum. Þetta
er laugardag-
urinn þegar
fólk streymir
í bæinn með
krakkana til
að sjá dýrðina
og byrja jóla-
innkaupin. Kraðakið svo mikið
á götunum og inni í stórverslun-
unum að varla verður troðist
áfram. Langar biðraðir við
hvern kassa. Þennan dag er líka
mætt á staðinn pinklum hlaðið
iið ofan af íslandi.
í anddyri hótels skammt frá
er kallað: Geturðu ekki hjálpað
hérna gömlum manni? Hann
talar ekki ensku og man ekki
herbergisnúmerið! Islendingur-
inn þerrar svitann af andlitinu
með rauða tóbaksklútnum. En
hótelið vill ekki kannast við
Herbert Jónsson frá Stykkis-
hólmi. Ekki heldur nöfnin á
ferðafélögum hans tveimur. En
á miðanum sem hann er með
stendur nafnið Clifton Ford Hot-
el og rétt götunafn. Hann kveðst
hafa komið í gær. Sú úr hjálpar-
sveitinni hvessir sig, segir af-
greiðslufólki að maðurinn hafi
sofið þarna í nótt — og að hans
sögn i herbergi með þessum
tveimur vinum sínum, liklegast
á 8. hæð. Þá hófst undanhaldið.
Þarna eru engin þriggja manna
herbergi, enda ólöglegt. Og 8
hæðir ekki til. En hvaðan kemur
þessi miði með hótelnafninu?
Ekki frá félögum hans. Málið
tekur að skýrast.
Þeir félagarnir höfðu verið að
versla í kraðakinu í einni stór-
versluninni þegar maðurinn
varð viðskila við félagana í þvög-
unni. Hlýtur að vera skelfilega
ónotalegt fyrir mann í sinni
fyrstu ferð til útlanda að standa
skyndilega einn í þessum látum,
þar sem hver ryðst um annan.
Vita ekki nafnið á hótelinu sínu
og hafa engin skilríki af neinu
tagi á sér. Heyrir hann þá ekki
ástkæra ylhýra málið. Eftir að
hafa heyrt um vandræðin telja
þessir íslendingar að hann búi
á Clifton Ford og skifa það á
miða handa leigubílstjóra. Nú
er orðið ljóst að ekki býr hann
þar. Herbert tekur þessu af
mesta æðruleysi. Enda hafði
lukkan leikið við hann. Birst
landar. Nú í þriðja sinn. Meðan
ráðslagað er í anddyrinu um
hvernig finna megi i London
þijá heiðursmenn frá Stykkis-
hólmi, kemur inn ung_ stúlka
íslensk. Hvað er að? Ég hitti
þennan mann með tveimur öðr-
um í búð í gær og þeir sögðust
búa á Upsilon-hóteli. Málið
leyst. Kallað á leigubíl fyrir Her-
bert og bílstjóranum gefið nafn-
MITSUBISHI
lLANCER
BILL FRA HEKLU BORGAR SIG
IHl
HEKLAHF VERÐFRAKR.
Laugavegi 170-172 Simi 695500 672.000,*
sýning á siglinga- ogfiskileitaitœkjum
Dagana 15.-18. desember nk. munu Samtök
seljenda skipatœkja standa fyrir sýningu d nýjustu
siglinga- og fiskileitartœkjum í
Kristalssal Hótels Loftteiða.
BETRI BRÚ '89 er f/rst og fremst œtluð skipstjómar- og
útgerðarmönnum og þeim sem tengjastsjövarútvegi,
til þess að þeir geti á einum stað fengið góða yfirsýn
yfir þróunina.
Sérstakurferða- og gistipakki er í boði í tengslum við
sýninguna og allar upplýsingar þar um veitir
Ferðaskrifstofan Saga s. 624040.
Velkomin á BETRIBRÚ ’89
SAMTÖK SELJENDA SMPAkEKJA
Aðilar að Samtökum seljenda skipatœkja eru:
ísmar hf. © Radiomiðun hf. • R. Sigmundsson hf. ® Rafeindaþjónustan hf.
• Sónar hf. • Friðrik A. Jónsson hf. • Skiparadio hf. • Ámi Marinósson ® Sínus
ið á KFUM-hótelinu. Hann vei-
far glaðlega til okkar. Næst þeg-
ar fundum bar saman i Flug-
leiðavélinni á leið heim, sagði
Herbert að ekki hefði veitt af
einum sterkum þegar hann kom
heim. Félagarnir kváðu hann
áreiðanlega eiga eftir að segja
skemmtilega frá þessu æfintýri
í London.
Félagarnir fengu nú samt
skömm í hattinn fyrir að láta
mállausan manninn og ókunn-
ugan fara út í mannþröngina
án þess að hafa á sér nafn hót-
elsins, vegabréf eða einhver
skilríki. Slys getur hent og engin
leið að vita hver manneskjan er.
Eða þá lögregluleit og ekki hægt
að gera grein fyrir sér. Hefur
komið fyrir íslendinga. Ólafur
Egilsson, sendiherra, kunni
sögu af íslendingnum sem lög-
reglan tók undir sinn verndar-
væng, en gat ekki fundið út
hver eða hvaðan hann eiginlega
var. Loks hugkvæmdist þeim á
stöðinni að draga upp Iandakort
og maðurinn gat bent á ísland.
Þá var haft upp á sendiherra
íslands.
Herbert Jónsson úr Stykkis-
hólmi sýndist ekki mundi erfa
það þótt sagt yrði frá þessum
villum hans í stórborginni, öðr-
um til viðvörunar. Galgopalegt
orðalag getur þó verið varasamt.
Fyrir 20-25 árum skrifaði undir-
rituð létta_ frásögn af bónda
norðan af Ólafsfirði, sem lenti í
Kaupmannahöfn í stað Akur-
eyrar. Orðaði það svo að hann
hefði álpast upp í vitlausa vél á
Reykjavíkurflugvelli. Það var
ógætilegt þótt vitað væri af karli
í góðu yfirlæti með flugstjórun-
um í Höfn. Fréttir bárust brátt
um að maðurinn ætti fjölda
barna og öll fjölskyldan kjósend-
ur Magnúsar Jónssonar frá
Mel. Og nú hefði Morgunblaðið
vísast skotið öllum þessum at-
kvæðum úr hendi þingmanns-
ins. Aldrei nefndi heiðursmað-
urinn Magnús þetta þó við hinn
ógætna skrifara. 15-20 árum
síðar birtist viðtal i DV við ald-
tnn sómamann. Þar sagði hann
eitthvað á þessa leið: En aldrei
get ég fyrirgefið minu gamla
blaði þegar það sagði að ég hefði
álpast inn í vitlausa flugvél!
Satt sagði skáldið: Aðgát slcal
höfð . . .
P.s. í svona vatn gekk Gáruhöf-
undur enn um sl. helgi, þar eð
á skýrslu alþingis um fjarvistir
þingmanna var ógetið að það
hefði verið Danfríður Skarphéð-
insdóttir sem bað um slika út-
tekt á skrifstofunni og varð þar-
með frumkvöðull skýrslugerðar-
innar, eins og hún hefur sjálf
komið á framfæri annars staðar
í blaðinu. Afsakið!
Kuldaskór - vandaðir og hlýir
götuskór - spariskór
Velkomin
$kÓV0l SKÓFELL
Skólavörðustíg 22, Þverholti 7, Mos.,
sími 14955. sími 667575.
Gagnasafnskerfið
GAGiMADÍS
Fjölbreytt og vandað byrjendanámskeið í notkun
gagnasafnsforritsins Gagnadís.
IBM á íslandi þýddi forritið á íslensku og það
hefur strax öðlast miklar vinsældir.
Gagnadís er mjög fullkomið gagnasafnskerfi og
hentar vel fyrir verk sem snerta skráningu, stað-
færslu gagna, útreikninga og skýrslugerð.
Dagskré:
k Almennt um Gagnadís og vinnu með gagnasöfn
•k Skilgreining spjalda og tengsl á milli þeirra
•k Skýöslugerð - skyndiskýrslur
★ Valmyndir
k Forritun í Gagnadis kynnt
Tími: 29. nóvember og
desember kl. 13-17.
Innritun í símum 687590og686790.
VR og BSRB styðja sína félaga til þótttöku í námskeiðinu.
’ l
TÖLVUFRÆÐSLAN
Kennari:
Andrós Kristjánsson,
korfisfræðlngur
1., 6. og 8.
Borgartúni 28