Morgunblaðið - 20.11.1988, Side 29

Morgunblaðið - 20.11.1988, Side 29
MORGUNBLAÐŒ) MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1988 29 C BÓKMENNTIR/Hvencer drepur mabur mann? Sannleikurínn og sökudólgurinn eftir Áma Þórarinsson Eftir að Nafn rósarinnar tók islenska jólabókamarkaðinn með fjöimiðlaáhlaupi fyrir örfáum árum er þar öðruvísi um að lítast. Um margra ára skeið var vita von- laust að bjóða aðr- ar þýddar erlendar skáldsögur til jóla- gjafa en ungl- ingabækur fyrir fullorðna eftir Mc- Lean, Bagley, In- nes og félaga. Þau þáttaskil sem urðu með Nafni rósar- innar helguðust umfram allt af vel- heppnaðri markaðssetningu, sem svo er kölluð; það tókst sumsé að sannfæra vanafasta „bókaþjóð“ um þá furðulegú staðreynd að erlendar skáldsögur með „listrænan metnað" geta verið skemmtilegar. Síðan hafa menn árlega beðið þess með eftirvæntingu hvert væri^ Nafn rósarinnar fyrir næstu jól. í fyrra var það Ilmurinn eftir Patrick Siis- kind. Núna gæti það orðið Uns sekt er sönnuð eða Presumed Innocent eftir Scott Turow. Bækumar þijár sem nefndar eru hér að ofan eiga í rauninni ekkert annað sameiginlegt en að vera er- lendar metsölubókmenntir sem nota form sakamálasagna til að fjalla um manneskjuna og mannfélagið. Sakamálasagan í öllum sínum margbreytilegu myndum beitir rann- sóknartækni til að leita að Iq'arna hvers máls; fyrrgreindar bækur nálgast heimspekileg, félagsleg og sálfræðileg viðfangsefni sín með sömu tækni svo úr verður spenn- andi leiðangur um rangala manns- hugarins og umhverfis hans, hættu- leg veiðiferð þar sem bráðin er eitt- hvað sem við getum kallað sannleik- ur. Oftar en ekki gengur bráðin veiðimanhinum úr greipum. Stað- gengill sannleikans verður þá sektin. Presumed Innocent, sem kemur hér út fyrir jólin hjá nýju forlagi, Birtingi og nefnist Uns sekt er sönnuð í þýðingu Gísla Ragnarsson- ar, er skrifuð af manni sem gjör- þekkir slíka rannsóknartækni. Scott Turow er tæplega fertugur lögfræð- ingur, men ntaður í Harvard og fyrrum aðstoðarsaksóknari í Chicago. Eitt af fyrstu verkefnum hans í því starfi var að sælqa til saka sjálfan dómsmálaráðherrann í Illinois, William Scott með þeim árangri að ráðherrann var dæmdur fyrir skattsvik á meðan hann var enn í embætti. Turow vakti þó ekki minni athygli þegar hann stýrði rannsóknum saksóknara á glæp- samlegu athæfi og fjársvikum í embættiskerfinu í Cooksýslu, þar sem 26 manns voru fundnir sekir, og á spillingu í réttarfarskerfinu í Chicago, þar sem tíu dómarar og fyöldi starfsbræðra hans úr lögfræð- ingastétt hlutu makleg málagjöld. En Turow var einnig rithöfundur í laumi. Tíu árum áður en Pres- umed Innocent tók bandarískan bókamarkað með trompi hafði hann sent frá sér bókina One L. (1977). Þar lýsir hann með óvægnum hætti kennurum og nemendum í Harvard, þ.á m. sjálf um sér. Bókinni var vel tekið og hún seldist í rúmlega hundrað þúsund eintökum. í hinu annasama og erfiða starfi saksókn- ara í Chicago fann Turow síðan stolnar stundir á kvöldin og um helgar eða í lestinni á leið í vinnuna til að punkta hjá sér drög að nýrri skáldsögu; hann hugsaði um hana í tvö ár og skrifaði hana á sjö. Presumed Innocent er unnin beint upp úr lífsreynslu höfundarins þótt hann harðneiti því að bókin sé sjálfsævisöguleg. Sögumaðurinn, Rusty Sabich er aðstoðarsaksókn- ari í stórborg á borð við Chicago. Hann er kvæntur og ástríkur faðir en lend ir í þeirri hremmingu að halda við metnað- arfulla samstarfs- konu sína. Þegar ástkonan finnst myrt á mjög við- kvæmum tíma- punkti fyrir yfir- mann Sabich kárnar enn gamanið því honum er falið að rannsaka morðið. Og af því vont getur yfir- leitt versnað uppgötvar Sabich að böndin berast að honum sjálfum. Á þessa reyfarakenndu grind spinnur Turow þykkan vef persónu- legrar og pólitískrar spillingar af mikilli fimi og stílrænum aga. Það er ekki einfalt mál að skammta les- anda upplýsingar gegnum fyrstu persónu frásögn þannig að hann Scott Turow - lögfræðin og listin. upplifí rannsókn sögumanns sem smátt og smátt verður sjálfur mið- punktur hennar. Þetta tekst Turow án þess að Sabich glati trúnaði og samúð lesanda og einnig án þess að hinar flölmörgu aukapersónur verði útundan; þvert á móti er sag- an stútfull af litríku og lifandi fólki. En Presumed Innocent væri vita- skuld ekki hér til meðferðar ef hún væri einvörðungu faglega byggð- ur krimmi. Bókin er í grunninum um þá flóknu siðferðilegu refílstigu sem maðurinn getur sífellt ratað inná með hversdagslegri breytni sinni. Um þetta móralska munsÆ fjallar vitaskuld lögfræðin líka. Scott Turow hefur sagt að hann hafí haft mestar áhyggj- ur af því að sagan væri of bók- menntaleg sem krimmi og of mikill krimmi til að geta talist ^ bókmenntir. Áhyggjumar reynd- ust ekki á rökum reistar. Það bókaforlag bandarískt sem þykir gera hvað hæstar listrænar kröfur, Farrar, Straus & Giroux og einbeitir sér mest að höfund- um eins og Singer og Solzhenit- iyn, greiddi honum stærstu upphartíp sem það hefur nokkurn tíma greitt fyrirfram þegar fyrsta skáldsaga r annars vegar, og hefur ekki þurft að iðrast þeirrar ákvörðunar. Bókin fékk afbragðs viðtökur gagnrýn- enda, varð metsölubókin í Banda- ríkjunum í fyrra/bg hefur að auki selst grimmt í hátt í tuttugu öðram löndum. Þá hefur Oscarsverðlauna- leikstjórinn Sydney Pollack borgað milljón dollara fyrir kvikmyndarétt- Á meðan gegnir Scott Turow störfum verjanda hjá lögmanns- stofu í Chicago, safnar efni í sarp- inn og punktar hjá sér í Iestinni leiðinni í vinnuna. Sú bók á að fy'alla - undarlegt en satt - um lög- fræðinga. Vandaðar Volvo-viðgerðir Vandaðar Volvo-viðgerðir ★ Vetrarskoðun Við viljum minna á vetrarskoðunartilboð okkar, sem gildir til 1. desember, aðeins kr. 5.450 (+ varahlutir). Munið 5% staðgreiðsluafsláttur afallri vinnu og varahlutum. s. Qtlversf. Smiðjuvegi 60, simi 46350. alleg mynd er góð jólagjöf Afgreiðum myndatökur og stækkanir fyrirjól ví))«nii LJÖSMYNDASTOFA GUÐMUNDUR KR JÓHANNESSON _ LAUGAVEGI17B SlMI 689220 Vönduð vinna og góð þjónusta skiptir máli. NORRÆNA RADHERRANEFNDIN Framkvæmdanefndin auglýsir stöðu RITARA Robert Cray - fleytir blúspoppið honum upp vinsældalistana? Norræna ráðherra- nefndin er samvinnu- stofnun fyrir ríkis- stjórnir Norðurlanda. Samvinnan nær yfir alla meginþætti fé- lagsmála. Framkvæmdanefnd ráðherranefndarinnar hefur bæði frumkvæði og annast fram- kvæmdir fyrir nefnd- ina. Framkvæmdanefnd- inni er skipt í 5 sér- deildir: Fjárhags- og stjórnunardeild, upp- lýsingadeild og skrif- stofu aðalritara. Störf ritarans eru við eina af deildum fram- kvæmdanefndarinnar og eru í aðalatriðum venjuleg ritarastörf svo sem textavinna og að- stoð við fundarhöld o.s.frv. Ef til vill felur fram- kvæmdanefndin ritar- anum önnur störf hjá nefndinni. Umsækjandi verður að hafa viðeigandi fræði- legan og notadrjúgan bakgrunn. Starfið krefst mikillar samvinnuhæfni og sjálfstæðis jafnframt nauðsynjar á að tjá sig skýrt á einhverju af þeim tungumálum sem notuð eru: Dönsku, norsku eða sænsku. Framkvæmdanefndin býður góð starfsskilyrði og góð laun. Ráðning- artíminn er 4 ár með möguleika á framleng- ingu. Ríkisstarfsmenn eiga rétt á fríi frá störf- um á ráðningartíman- um. Vinnustaðurinn er Kaupmannahöfn. Fram- kvæmdanefndin er hjálpleg með útvegun á húsnæði. Norrænar samvinnu- stofnanir vinna að jafn- rétti kynjanna og vænta umsókna jafnt kvenna sem karla. Harald Lossius starfs- mannaráðunautur eða Leena Lumes ritari stjórnarinnar veita nán- ari upplýsingar í síma í Kaupmannahöfn 1-114711. Umsóknar- frestur er til 10. des- ember 1988. Skriflegar umsóknir sendist til: Nordiska Ministerrádet Budget- och administr- ationsavdelningen Store Strandstræde 18 DK-1255 Köbenhavn Danmark

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.