Morgunblaðið - 20.11.1988, Page 39
MORGUNBLAÐŒ) VELVAKANDI SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1988
39 C
Bernd Trutenau
Morgunblaðið/Sverrir
Ágúst Haraldsson
son og var hann spurður álits á
málinu.
Það á tvímælalaust að taka þetta
merki niður og setja íslenska skjald-
armerkið upp í staðinn, sagði hann
en vildi ekkert frekar um málið
segja.
En ekki voru allir á þeirri skoðun.
Konungsmerkið má alveg vera
þarna á sínum stað, sagði Óskar
Mikaelsson. Svo mætti íslenska
skjaldarmerkið vera þarna líka, t.d.
yfir svölur.um fyrir ofan gluggann.
Annars hef ég ekki hugleitt þetta
mál sérstaklega.
fyrir henni, sagði Loftur.
Svo mörg voru þau orð.
Merki Kristjáns 9.
Að undanfömu hefur skapast
umræða um merki Kristjáns 9. á
þaki Alþingishússins, þykir sumum
óviðeigandi að þetta merki sé þarna
og vilja fá íslenska skjaldarmerkið
í þess stað.
Það var bjart veður en kallt og
alltaf er fólk á ferli Austurvelli. Þar
hittum við að máli Ágúst Haralds-
Það er sagt að íslendingar séu
viðkvæmir mjög fyrir áliti útlend-
inga á málefnum þjóðarinnar. Hvað
skyldu útlendingar hafa að segja
um þetta mál? Á Austurvelli hittum
við Bernd Trutenau, Þjóðverja sem
stundar nám hér á landi.
Mér finnst allt í lagi að hafa
þetta merki þama, sagði hann.
Auðvitað er það dáh'tið skrýtið að
hafa merki annars ríkis á íslenska
Alþingishúsinu en þetta er fallegt
merki og setur mikinn svip á húsið.
Alþjóðasamtök ITC;
Þjálfun í mann-
legnm samskíptum
Til Velvakanda.
IVelvakanda 10. nóvember sl. biðja
tvær vinkonur um upplýsingar um
starfsemi ITC á íslandi.
Að ganga í ITC-deild er hvorki
háð aldri, menntun eða kyni. Hver
sem tekur þátt í ITC-þjálfuninni ger-
ir það með ósk um sjálfsþroska í
samfélagi við aðra, sem finna hvöt
hjá sér til að halda áfram að læra
með ástundun og æfingum.
Alþjóðasamtök ITC — Intemat-
ional training in communication —
voru stofnuð í Bandaríkjunum árið
1938, og í dag eru deildir starfandi
víðs vegar um heiminn. Hér á landi
voru samtökin í upphafi nefnd Land-
samtök málfreyja, en með samþykkt
Sameinuðu þjóðanna um jafnrétti var
ákveðið að breyta nafninu t Land-
samtök ITC. Samtökin eru því opin
jafnt körlum sem konum.
Hér á landi eru starfandi 23 deild-
ir, þar af 10 á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu. Fundir eru haldnir tvisvar í
mánuði, frá september til maí ár
hvert. Kostnaður mun vera u.þ.b.
5—6.000 krónur. Aðilatala takmark-
ast við 30 í hverri deild, svo hver
og einn njóti þjálfunar sem best, og
sé virkur þátttakandi.
• Innan deildanna fer
fram viðamikil þjálfun ein-
staklingsins til að geta
tjáð skoðanir sínar betur,
að flytja mál sitt, að vinna
í hóp og að vera virkur þátttakandi
í samfélaginu. ITC veitir einnig þjálf-
un í ræðumennsku og fundarsköpum.
Alþjóðasamtök ITC njóta virðing-
ar og viðurkenningar um allan heim,
og atvinnurekendur taka til greina
að einstaklingur sem nýtur þjálfunar
i félagsskap sem þessum hlýtur að
vera betri starfskraftur. Aukið sjálf-
straust og þekking gefur greiðari
aðgang að betra starfi. Fundarstaðir
eru auglýstir vikulega í dagbókum
dagblaðanna.
Vonandi verða tvær vinkonur og
aðrir lesendur einhvers fróðari um
ITC við þessar upplýsingar. Við bjóð-
um nýja félaga með löngun til fram-
fara velkomna.
Allar nánari upplýsingar veita
blaðafulltrúar ITC:
Hjördís Jensdóttir 91-28996
Guðrún Lilja Norðdahl 91-46751
Marta Pálsdóttir 91-656154,
Jónina Högnadóttir 94-3662.
F.h. Landssamtaka ITC
Hjördís Jensdóttir
SPURT OG SVARAÐ
H.P., REYKJAVÍK
»T l.Hve mörg böm em í
I gmnnskólum á Reykjavík-
ursvæðinu.
2. Hversu mörgu böm voru rekin eða
vísað úr skóla veturinn ’87-’88 og
hvemig skiptist það
niður á einstaka skóla?
Áslaug Brynjólfedóttir
fræðslustjóri.
l.Nemendur í grunnskólum
Reykjavíkur þetta skólaár eru
14.221.
2. Samkvæmt grunnskólalögum má
ekki reka nemendur alfarið úr skóla.
1 erindisbréfi fyrir skólastjóra
grannskóla segir í 26. grein:
„Hafi nemandi valdið traflun og
ekki látið skipast við áminningar kenn-
ara svo að hann hefur orðið að víkja
nemanda úr kennslustund skal skóla-
stjóri ræða málið við kennarann ef
ástæða þykir til og leitast við að sætta
aðila og ljúka málinu. Takist það ekki
má vísa málinu til fræðslustjóra. Valdi
nemandi hins vegar vandræðum í skóla
með hegðun sinni og viðleitni umsjón-
arkennara (bekkjarkennara) til að ráða
bót á ber ekki ámagur tekur skóla-
stjóri málið í sínar hendur og kannar
það frá öllum hliðum. Geti skóli og
heimili í sameiningu ekki leyst vand-
ann vísar skólastjóri málinu til sér-
fræðilegrar meðferðar fræðsluskrif-
stofu. Hann skal tilkynna forráða-
mönnum þá ákvörðun án tafar hafi
hún ekki verið tekin í samráði við þá.
Meðan málið er óútkljáð getur
skólastjórí vísað nemanda úr skóla
um stundarsakir enda hafi hann til-
kynnt forráðamönnum og fræðslu-
stjóra þá ákvörðun sína.“ Þessi grein
byggist á 54. gr. grunnskólalaga.
Fræðslustjóri í samvinnu við sína
starfsmenn reynir að fínna lausn á
málinu m.a. með einhverskonar sérúr-
ræðum, sem reyndar er mikill skortur
á. í sumum tilfellum er reynt að leysa
málið með því að láta nemandann
skipta um skóla og fá þá sérkennsluað-
stoð.
í 49. gr-. grannskólalaga segin
„Fræðslustjóri getur að höfðu sam-
ráði við foreldra eða forráðamenn auk
skólastjóra, heimilað nemanda að
hverfa frá grunnskólanámi að loknum
8. bekk í allt að eitt ár vegna þátttöku
í atvinnulífi, og lýkur nemandi þá
grannskólanámi þeim mun síðar.
Heimilt skal að meta þessa þátttöku
nemandans í atvinnulífi til jafns við
nám í tilteknum valgreinum 9. bekkj-
ar.“
Slíkar undanþágur hafa verið veitt-
ar í vissum tilfellum. Þá kemur fyrir
að mjög erfitt reynist að fá einstaka
nemendur til að sækja skóla, þrátt
fyrir viðtöl og ráðgjöf og þótt foreldr-
ar æski þess.
Það verður að segjast að sérstak-
lega á efri stigum grannskólans er
skólinn ekki í stakk búinn til að mæta
kennsluþörfum hinna ólíku nemenda
og miðast of mikið við bóknám fyrir
alla með sama hraða.
í 42. gr. grannskólalaga segir
„í samræmi við markmið grunn-
skóla skal að þvi stefnt, að nám í öll-
um bekkjum skólans tengist sem best
raunhæfúm athugunum og þroskandi
störfum utan skólaveggjanna. í 7.-9.
bekk verði val námsgreina fijálst að
hluta, og skal þar við það miðað, að
verklegt skyldu- og valnám geti sam-
anlagt numið helmingi námstímans
að hámarki, en fímmtungi hans að
lágmarki."
Þessi grein grannskólalaga hefur
ekki verið framkvæmd varðandi verk-
legt skyldu- og valnám. Hins vegar
höfum við verið að leitast við hér í
Reykjavík að koma á nokkram
„starfedeildum" á efra stigi, þar sem
meiri áhersla er lögð á slíka þætti.
En það hefur reynst þungt undir fæti
og verður að takast af sérkennslu-
magni, sem er af skomum skammti.
3. Samkvæmt ofanrituðu, verður
þriðja lið ekki svarað, því að ekki er
hægt að tala um fjölda þeirra nem-
enda, sem reknir era úr skóla, heldur
nemendur sem fást ekki til að sækja
skóla eða óskað er eftir undanþágu
frá námi.
Það skal einnig tekið fram að skól-
ar era mjög misstórir og félagslegt
umhverfi skóla misjafnt.
Batterýíkassatali.
Lítil 24 stk. 360 kr. kassinn
Miðsærð 24 stk. 480 kr. kassinn
Stór 12 stk. 360 kr. kassinn
Garparnir - áður 1.390 kr. Nú 690 kr.
Rokkbarbiedúkkur og allskonar fylgihlutir
20% afsláttur
Sindy-vörur 20% afsláttur
Jólin nálgast
Þúsundir leikfanga á gjafverði.
Komið, skoðið, hringið.
Sparið þúsundir króna
og kaupið jólagjöfina tímanlega.
Póstsendum
LEIKFANGAHÚSID
Skólavörðustíg 10. Sími 14806.
IEIKFÖNG - LEIKFÖNG
Stórkostleg
rýmlngarsala
10-70% afsláttur
Sirkus bílabraut. Áður2.750 kr. Nú 1.300 kr.
Brave star karlar. Áður 750 kr. Nú 250kr.
Dúkkursem skríða - Dúkkursem gráta