Morgunblaðið - 20.11.1988, Page 44
FI.JÓTT • FI.JÓTT - \l
*44 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1988
■1
Glæsileg hótel, góðar
strendur og frábær úti■
vistaraðstaða.
VEÐRIÐ?
- Betra en gott íslenskt sumar.
Meðalhitinn yfir jólin er 22-25 gráður.
MANNLÍFID?
- Þúsundir ferðamanna frá Norðurlöndunum og
Evrópu í bland við spænskt mannlíf.
- Tívolíið er opið, sundlaugin, ströndin,
tennisvöllurinn og dýragarðurinn.
15.000 kr. bárnaafsláttur að auki.
EKKERT AD GERA?
- Sameiginlegir veislukvöldverðir á aðfangadags-
kvöld og gamlárskvöld, sólbað á ströndinni, ferðir með
íslenskum fararstjóra til Granada, Gíbraltar, Afríku . ..
VERDID?
- Vegna áratuga viðskiptasambanda á Costa del
Sol bjóðum við frábært verð á frábærum gisti-
stöðum, Santa Clara og Benal Beach.
Oflft * * Verð miðað við 2 fullorðna og
Frá kr. 4l>OUUf* 2 börn í íbúð á Benal Beach.
það er ekki hægt annað
en að láta sér líða vel.
... og koma heim hlaöinn
sóiarorku.
Brottför: 17. desember.
18 daga.
Flogið í beinu leiguflugi.
ÚTSÝN
Ferðaskrifstofan Utsýn hf
Áifabakka 16, 109 Reykjavík, sími: 91-603060 • Austurstræti 17, 101 Reykjavík, sími: 91-26611
Ráðhústorgi 3, 600 Akureyri, sími: 96-25000 • Bæjarhrauni 16, 220 Hafnarfirði, sími: 91-652366 • Stillholti 16, 300 Akranesi, sími: 93-11799
BAKÞANKAR
Sunnudags-
ijóma-
pelinn
Kannast nokkur annar en
ég við það á landinu að
fá ekki nægan ijóma? Kann-
ast nokkur annar en ég við
þá örvæntingu sem er því
samfara að sjá
ijómapelann
fara hringinn
og vita að mað-
ur sjálfur verð-
ur síðastur.
Eða ijóma-
blandið? Er
ekki kominn
tími til að reisa
styttu með rauðum nebba af
þeim manni sem fyrstur lét
sér detta það í hug að kaupa
sér ijóma til þess eins að
halda á honum heim og byija
að blanda hann þar með
mjólk!
Hvers vegna drekkjum við
þessu landi í alls konar dóti
og drasli svo við liggur að sjálf
Esjan fari á bólakaf, hvers
vegna reisum við virkjanir
upp á virkum eldfjöllum og
spörum ekkert til, en þegar
kemur að ijómanum út á
sveskjugrautinn á sunnudög-
um þá segja mömmurnar og
pabbarnir við litlu börnin
sem þau eru að senda út í
búð, tíu potta af undanrennu
elskan mín og einn pela af
ijóma.
Og ef við bjóðum gestum í
mat þá látum við okkur líka
duga einn lítinn rauðan
ijómahlunk. Er það ekki
geggjun að raða átta manns
á einn pela af ijóma? Er þessi
ijómasparnaðarárátta eitt-
hvað sem við höfum fengið í
arf frá okkar forfeðrum? Við-
gangast þessi ósköp kannski
enn í Noregi? Væri rétt að
gera mann út af örkinni á
ríkisstyrk til að rannsaka
það? Var Agli Skalla-Gríms-
syni kannski sárara um
ijómann sinn en silfrið? Ég
heyrði eitt sinn sögu af
manni sem kom í mjólkurbú
og sá óslitna ijómasúlu gus-
ast úr röri og niður í stamp.
Nú get ég dáið sæll og glaður
varð honum að orði. Eg hef
séð allt sem vert er að sjá í
veröldinni.
Og tökum sjálfan mig til
dæmis. Ég fæ alltaf í magann
þegar ég fer út að versla inn
til helgarinnar og þarf að
taka ákvörðun fyrir framan
hilluna með litlu sætu rauðu
hlunkunum. Ég keypti eitt
sinn þijá heila lítra þegar
elsti sonur minn var fermdur
og varð svo mikið um að ég
þurfti að hátta þegar heim
kom. Mér er ijómavirðing svo
í blóð borin að jafnvel þó ég
hafi kjark til að kaupa mér
pela þá byija ég að spara og
spara þegar hann er kominn
inn í í skáp. Til dæmis í gær,
það var laugardagur og ég
herti upp hugann rétt áður
en lokað var og keypti mér
pela, en nú stendur hann
ósnertur frammi og næsta
sunnudag verður hann orð-
inn súr.
eftir Ólaf
Gunnarsson