Morgunblaðið - 11.12.1988, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 11.12.1988, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1988 11 - PARÍS - REYKJAVÍK - LONDON - NEW YORK - KAUPMA Kostnaðurinn við hans innkaup er á bilinu 8.800 krónur upp í 11.300 krónur, en fer í 16.500 til 19.000 krónur, ef glösin eru meðtalin. NEW YORK JAFNVEL ÓDÝRARI Loks verslum við á herrann í borginni sem gjarnan hefur verið nefnd höfuðborg alls heimsins, New York. Skyrtan hans kostar frá 2.000 krónum (Terry Ellis) upp í 3.600 krónur (Boss). Bindið er af gerðinni Boss, 2.400 krónur, eða Armagni, 2.800 krónur. Peysan er frá Boss og kostar 6.400 krónur, rakspírinn frá Aramis kostar 1.100 krónur og bókin hans er nýjasta bók Tom Clancy, spjaldbundin og kostar 900 krónur. Það sem verður einna dýrast handa herranum eru koníaksglösin, enda innflutt frá Evrópu. Við getum valið á milli sænskra glasa frá Orefors, á 6.825 krónur, sex glös, og austurrískra glasa frá Riedel, sem sex saman kosta 8.162 krónur. Hans hluti í New York kostar því frá rúmum 16 þúsund krónum upp í 19 þúsund krónur. HANDA HENNI ER MUN DÝRARA í REYKJAVÍK Karfan hennar hefur að geyma náttkjól (úr bómull eða nælon), slopp, úr velúr eða nælon, leður- handtösku, leðurstígvél, ilmvatn, hljómplötu og bók. Við getum valið sett af náttkjól og slopp úr nælon á um 6.000 krónur, eða fengið finnskan bómullamáttkjól með vel- úrslopp í sama lit. Náttkjóllinn kost- ar þá um 2.300 krónur, en sloppur- inn um 6,000 krónur. Glæsilegustu innkaupin á þessum nótum væru að sjálfsögðu sett úr silki, en þá er verð fyrir náttkjól og slopp lið- lega 14 þúsund krónur. Verðið á leðurhandtöskum er mjög mismun- andi. Hægt er að velja sér hand- tösku á bilinu 2.000 til 20 þúsund krónur. Algengt verð á handtöskum með dýrari merkjum, eins og Jill Sanders eða Etienne Aigner, er á bilinu 12 þúsund til 20 þúsund krón- ur. Leðurstígvél fást frá um 7 þús- und krónum og allt upp í 20 þúsund krónur (Etienne Aigner). Frúin fær líka lítið ilmvatnsglas, og þá erum við að tala um ekta ilmvatn. Al- gengasta stærð er 7,5 millilítrar, og ér verðið frá um 1.300 krónum upp í tæpar 9.000 krónur fyrir glas- ið. Þannig getur lítrinn af ilmvatn- inu kostað allt að 1,2 milljónum króna! Þá fær frúin nýútkomna hljómplötu og mun algengasta verð á þeim vera um 1.200 krónur og loks fær hún bók, sem við verðleggj- um á 3.000 krónur. Að ógleymdum hennar hlut í koníaksglösunum, þá kostar hennar hluti af körfunni, ef við höldum okkur við dýrari kant- inn, um 70 þúsund krónur, en ef við veljum það sem ódýrara er þá leggur hennar hlutur sig á 30 þús- und krónur. PARÍS AOEINS HÁLFDRÆTTIMGUR I VID REYKJAVÍK í París gerum við sömu innkaup á frúna og við gerðum hér í Reykjavík, en þau koma vægar við pyngjuna, því há leðurstígvél, af gerðinni Charles Jourdan (sem er merki í dýrara lagi) kosta 12.200 krónur, handtaskan, frá sama hönnuði kostar 9.500 krónur, nátt- kjóllinn og sloppurinn í setti, kosta 8.700 krónur, ilmvatnið, Chanel No 5, kostar 2.000 krónur, hljómplatan 560 krónur (geisladiskur 840 krón- ur) og bókin 900 krónur. Hennar hlutur kostar því um 35 þúsund krónur, en gæti orðið eitthvað ör- lítið ódýrari, ef valin væru ódýrari stígvél og handtaska. I kóngsins (drottningarinnar?) Kaupmannahöfn verður verslunin á frúna með eftirfarandi hætti: Eti- enne Aigner-handtaska á bilinu 6 til 10 þúsund krónur, leðurstígvél frá 3 til 6 þúsund krónur, náttkjóll og sloppur frá Priunth úr þunnu bómullaijersey á 5.000 krónur, ilm- vatn frá Chanel No 5 (7 ml) á 3.500 krónur, geisladiskur á 700 krónur (hljómplata væri talsvert ódýrari) og bók á 1.500 krónur. Hennar inn- kaup kosta þá í Köben frá 22 þús- undum upp í um 30 þúsund krón- ur, að koníaksglösunum meðtöld- um, en hennar hlutur í þeim er lið- lega 1.000 krónur. í London fær frúin satínnáttkjól og slopp frá Eulalle fyrir 8.100 krónur, en til er sett allt niður í 4.500 krónur. Ilmvatnið hennar, Chanel No 5, kostar 4.300 krónur, hljómplatan 500 krónur (meðal- l\lew York Jólaljósadýrðin í New York er slík, að flestar borgir blikna í samanburðinum, enda allt svo stórt í henni Ameríku. verð), bókin 1.600 krónur, Leður- stígvélin frá 5.400 upp í 8.000 krón- ur (allt vönduð stígvél) og leður- handtaskan frá Jane Shilton kostar 5.000 krónur, en dýrari merki allt upp í 9.000 krónur. Hennar hlutur, að glösunum undanskildum, er því á bilinu 21 þúsund krónur, upp í 33 þúsund krónur, en ef hún fær glösin líka þá þarf hún að greiða frá 28 þúsund krónum upp í 41 þúsund krónur. DIOR OC OUCCI I NEW YORX í New York fær frúin náttkjól frá Dior á verði frá 3.800 krónum upp í 6.300 krónur og slopp af sama merki frá 4.500 krónum upp í 7.700 krónur. Hún fær handtösku frá Gucci fyrir 10 þúsund krónur og Bandolino-leðurstígvél fyrir 6.700 krónur. (Bandolino er talið hlið- stætt merki við Etienne Aigner, og Gucci fínna, ef eitthvað er). Hún fær líka Chanel 5, 7 millilítra, og fyrir þá greiðum við 2.700 krónur. Við getum valið hvort við gefum henni hljómplötu fyrir 400 krónur HVAÐ KOSTA JÓLAGJAFIRNAR í HEIMSBORGUNUM í SAMANBURÐIVIÐ REYKIAVÍK ? Handa honum Reykjavík París Kaupmannahöfn London New York Skyrta 3.980 3.000 2.5-4.700 1.7-2.700 2-3.600 Hálsbindi 2.900 1.4-2.500 2.5-3.000 1.000 2.4-2.800 Ullarpeysa 5.5-9.000 6-7.000 4.8-10.200 3-4.200 6.400 Rakspíri 1.300 1.150 2.700 1.500 1.100 Jólabók 2-3.500 900 1.500 1.600 900 3 koníaksglös 1.2-3.000 1.000 1.000 7.700 3.4-4.100 Samtals 20-25.000 12.7-16.000 15-24.000 16.5-18.700 16-19.000 Handa henni Náttkjóll Náttsloppur >6-14.000 >8.700 >5.000 >4.5-8.100 3.8-6.300 4.5-7.700 Leðurtaska 2-20.000 9.500 6-10.000 5-9.000 10.000 Leðurstígvél 7-20.000 12.200 3-6.000 5.4-8.000 6.700 llmvatn 1.3-9.000 2.000 3.5000 4.300 2.700 Hljómplata 1.200 6-840 700 500 4-680 Jólabók 3.000 900 1.500 1.600 900 3 koníaksglös 1.2-3.000 1.000 1.000 7.700 3.4-4.100 Samtals 30-70.000 u.þ.b. 35.000 22-30.000 28-41.000 32-40.000 Handa barninu Fjarstýrður bfll 3-7.000 2.3-2.800 2-3.400 3.7-6.000 1.3-4.000 ■o Leikfangabfll 2-5.000 4-500 1.300 0.5-1.700 0.7-1.000 ■o Dúkka 1.5-4.000 2.000 1-1.400 1.300 1.3-3.000 ! ! eða geisladisk fyrir 680 krónur og bókin hennar kostar um 900 krón- ur. Hennar hluti í körfunni verður því frá 32 þúsundum (þijú koníaks- glös reiknuð með) upp í 40 þúsund krónur. EITTHYAB HAHDA SMÁFÓLKINU Af ásettu ráði nær könnunin ekki til jólagjafa til unglinga, þar sem íjölbreytnin virðist nánast óendanleg og sömuleiðis fjölbreytni í verðlagi. En við könnuðum lítillega hvað þyrfti að greiða fyrir jólagjaf- ir handa smáfólkinu í þessum fimm borgum og kynntum okkur þá verð á íjarstýrðum leikfangabílum, venjulegum leikfangabílum og dúkkunum sígildu. Ejarstýrðir bílar í Reykjavík af stærri gerðinni eru á bilinu 5 til 7 þúsund, en hægt er að fá minni gerðir, fyrir um 3.000 krónur. Venjulegir, meðalstórir bílar eru hins vegar frá um 2.000 krónum og allt upp í 5.000, eftir iburði og gæðum. Dúkkumar eru einnig á margbreytilegu verði, en meðalstór dúkka (45 til 50 senti- metra löng) í fínum fötum kostar frá 1.500 krónum og allt upp í 4.000 krónur. í París fáum við millistærð af fjarstýrðum leikfangabíl handa stráknum fyrir 2.300 til 2.800 krón- ur, en hefðbundinn tmkk eða kapp- akstursbíl fyrir 4 til 500 krónur. Dúkkan sem við kaupum í París getur ýmislegt, svo sem talað, grát- ið, pissað og þar fram eftir götunum og fyrir hana gefum við um 2.000 krónur. í Kaupmannahöfn fáum við þessa hluti handa börnunum og borgum fyrir fjarstýrða bílinn frá 2.000 krónum upp í 3.400. Fyrir hefð- bundinn, meðalstóran tmkk borg- um við um 1.300 krónur og fyrir dúkkuna 1.000 til 1.400 krónur. Fjarstýrði bíllinn sem strákurinn fær í London er af gerðinni Prime- line, rúmlega í meðallagi stór og kostar 3.700, en er til upp í 6.000 krónur. Venjulegur tmkkur er frá 500 upp í 1.700 krónur. Dúkkan hennar kostar um 1.300 krónur, en er fáanleg á ýmsu verði, bæði fyrir ofan og neðan. Strákurinn getur fengið glæsi- legan íjarstýrðan bíl í New York, Turbo Hopper frá Tayo, fyrir 4.000 krónur, en mun minni, einnig fjar- stýrðan, Mini Aero, frá Nikko fyrir 1.300 krónur. Venjulegur leik- fangabíll kostar oft á bilinu 700 til 1.000 krónur. Mjög vönduð dúkka, og í fallegum fötum kostar um 3.000 krónur, en minni og einfald- ari gerðir fást fyrir um 1.300 krón- ur S New York. í ljósi ofangreinds kann því ekki að vera svo ijarstæðukennt að bregða undir sig betri fætinum og skreppa í jólainnkaupin til útlanda, jafnvel þótt aðeins sé um dagsferð að ræða. Tilbreytingin frá daglegu amstri er næsta trygg og ef umfang innkaupanna á að verða mikið, einkum banda kvenþjóðinni, er ávinningurinn augljós. Miðað við verðlagið hér í Reykjavík, þá virð- ast innkaup á frúna, þegar kaupa á eitthvað „fínt og elegant“, borga sig hvað best í „útlandinu". Innkaup á herrann eru einnig hagkvæmari í borgunum sem notaðar eru til samanburðar, samkvæmt því sem kemur fram hér á undan, þótt mun- urinn sé ekki jafnmikill og á dömu- vörunum. Þrátt fyrir staðhæfingar kaupmanna um sambærilega álagn- ingu, miðað við það sem tíðkast annars staðar, er það vel skiljanlegt að á þessu hausti hafi þegar um 1% þjóðarinnar brugðið sér í snögga innkaupaferð til meginlands Evr- ópu, Bretlandseyja eða vestur um haf. Rétt er að geta þess í lokin að helgarferðir þær sem boðið hefur verið upp á í haust og er enn boðið upp á kosta fyrir einstaklinginn með þremur gistinóttum frá 21 þúsundi króna (Kaupmannahöfn og London) upp í 25 til 26 þúsund krónur (New York).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.