Morgunblaðið - 11.12.1988, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.12.1988, Blaðsíða 31
an af að glettast. Þó hann hafi ekki náð tvítugsaldri, þá hafði lífið vissulega reynt hann á ýmsan hátt, en Kjartan Ragnar var heilsteyptur persónuleiki og tók sem lífið bauð upp á eins og fullþroska maður. Hans tími var kominn. Aðfaranótt sunnudagsins 4. des- ember lézt Kjartan Ragnar í hörmu- legu bílslysi í Hafnarfjarðarhöfn. A morgun, mánudaginn 12. des- ember, fylgjum við frænda okkar til grafar. Svo fari þeir í friði, er frá oss skiljast hér, og hjá því dimma hliði, sem holdið inn um fer, skal frelsis engill fríður oss flytja huggun þá, að Drottins dýrð vor bíður, ef Drottin trúum á. (Bjöm Halldórsson frá Laufási) Við biðjum fyrir ástvinum hans. Frændsystkinin Á sunnudagsmorgni berast þær fréttir í útvarpi að bifreið hafi verið ekið fram af bryggju í Hafnarfirði. I henni voru fimm unglingar og komust þau öll út nema einn sem fórst. Ósjálfrátt verður okkur hugs- að til alls þess unga fólks sem við umgöngumst daglega. Ollum eru orðnar ljósar hætturn- ar sem stafa af bifreiðum, en gagn- vart þeim erum við ráðþrota. Á örskotsstund breytist gleði í sorg, þunga sorg. Það kemur á daginn að þessi ungi maður er einn af nem- endum okkar á viðskiptasviði Fjöl- brautaskólans í Breiðholti, Kjartan Ragnar Kjartansson. Hann er annar nemandi skólans sem ferst í bifreiðarslysi á þessari önn. Erfitt er að koma orðum að hugs- un sinni á slíkum stundum. Mynd- um úr kennslustundum bregður leiftursnöggt fyrir, minning um góðan dreng, vingjarnlegan og al- vörugefinn nemanda. Við eigum öll ánægjulegar minn- ingar um samverustundir og við- kynningu við Kjartan. Hann var ljúfur og kurteis í allri framgöngu. Við sjáum mikið eftir honum. Hann stundaði námið vel og tók góðum framförum. Við kennarar á viðskiptasviði Fjölbrautaskólans í Breiðholti send- um foreldrum, systkinum og öllum ástvinum Kjartans okkar inni- legustu samúðarkveðjur og minn- umst þess með þakklæti að hafa kynnst þessum góða pilti. F.h. kennara á viðskiptasviði FB, María Sigurðardóttir. Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með frjóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt, lit og blöð niður lagði, líf mannlegt endar skjótt. (Hallgr.P) Skólafélagi okkar, Kjartan R. Kjartansson, er látinn. Dauðinn vitj- aði hans í blóma lífsins. Eftir sitja kærar minningar sem ávallt eiga eftir að lifa með þeim sem hann þekktu. v Félagar Kjartans vita að hann var sérlega ljúfur og heiðarlegur í samskiptum sínum við annað fólk. Hann var lífsglaður og lét ekkert standa í vegi fyrir sér ef hann var ákveðinn í að ná settu marki. Hann var virkur í félagslífi skólans og hafði mikil áhrif á þá sem með honum voru. Sérstaklega hafði hann mikinn áhuga á skák og stóð sig vel á þeim roótum sem hann tók þátt í á vegum skólans. Óvænt brotthvarf hans minnir okkur á nálægð dauðans hvar sem við erum og hvað sem við gerum og að hann gerir ekki boð á undan sér. Minnumst samt þess að dauð- inn er ekki endir alls, heldur aðeins upphafið. Minningin lifir um góðan dreng. Hvorki með hefð né ráni hér þetta líf ég fann. Sálin er svo sem að láni samtengd við líkamann. I herrans höndum stendur að heimta sitt af mér. Dauðinn má segjast sendur að sækja, hvað skaparans er. (Hallgr.P) Skólafélagar MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR tltflrtrmiw ci n.;m ! [- SUNNUDAGUR1T. ‘DESEMBER'1988 Systraminning: Guðrún Magnúsdóttir Guðbjörg Magnúsdóttir Guðrún Fædd9.júní 1896 að Múlakoti Dáin 17. júií 1988 Guðbjörg Fædd 12. febrúar 1899 að Tindum Dáin 19. nóvember 1988 Eitt er það býli í Barðastrandar- sýslu austanverðri, sem fleiri kann- ast við af afspurn eða eigin reynslu en sem samsvarar stærð jarðarinn- ar eða umfangi búskapar þar. Á ég þar við Kinnarstaði við Þorska- fjörð. Ástæða þess hversu þekkt býli þetta er í nútímanum eru ábú- endurnir, sem þar hafa búið í nær- fellt 6 áratugi, en það eru systurn- ar Guðrún, Guðbjörg og Ólína Magnúsdætur. Þær Guðrún og Guð- björg féllu frá á þessu ári eins og að ofan greinir. Af ýmsum ástæðum langar mig til að minnast þeirra nokkrum orðum í blaði þó að ég finni mig ekki mann til þess svo sem vert væri. Magnús Sigurðsson, f. 6. sept. 1862 í Hólum, d. 22. júlí 1935, hóf búskap á Kinnarstöðum í Reyk- hólasveit á árinu 1902. Hann hafði áður búið í Múlakoti (1891-1898), svo á Tindum í Geiradal í 4 ár og síðan á Kinnarstöðum frá 1902 eins og áður segir. Kona Magnúsar var Ingibjörg Einarsdóttir, f. 22. júlí 1860 á Kollabúðum, d. 17. nóv. 1937. Þau hjón áttu 4 dætur, Jó- hönnu, f. 15. maí 1892 að Múla- koti, d. 14. apríl 1973, en hún var gift Guðmundi Helgasyni bónda á Skáldstöðum í sömu sveit og bjuggu þau hjón þar til æviloka, Guðrúnu og Guðbjörgu, sem hér er minnzt, svo og Ólínu, f. 1. apríl 1904 á Kinnarstöðum, sem ein lifir af systr- unum frá Kinnarstöðum. Þau hjónin Ingibjörg og Magnús voru alltaf leiguliðar en eru sögð hafa búið gagnsömu og snyrtilegu búi alla tíð með þeim hætti sem þá tíðkaðist með dugnaðar- og mynd- arfólki. Þegar halla tók undan fæti hjá þeim Kinnarstaðahjónum vegna aldurs þeirra tóku yngri systurnar 3 smám saman við búsumstangi og búsforræði, en Jóhanna hafði þá stofnað heimili með manni sínum. Eftir lát foreldra sinna um miðjan íjórða áratuginn bjuggu þær syst- urnar þrjár á Kinnarstöðum í meira en hálfa öld við vaxandi reisn og velsæld allt fram undir það að ellin dró úr starfsþreki þeirra, en þá nutu þær eins og löngum fyrr stuðn- ings Steinunnar Magnúsdóttur, fósturdóttur á heimilinu, og fjöl- skyldu hennar. Undir lok ijórða áratugar þessar- ar aldar var orðið akfært á bifreið- um vestur í Reykhólasveit. Náði bílvegur að Þorskafirði. Fólk sem nota vildi hina nýju samgönguleið þurfti að skipta um flutningstæki á þessum slóðum ef leiðir þess lágu til eða frá vestanverðri Barða- strandarsýslu eða ísafjarðarsýslu. Ferð suður hófst snemma að morgni en ferð vestur lauk að kveldi. Gist- ing í Reykhólasveit var því óhjá- kvæmileg og því nær enda bílvegar- ins því betra. Málin snerust því á þann veg, að systurnar á Kinnar- stöðum urðu að hýsa ferðamenn þótt þær hefðu síður en svo sótzt eftir því að stunda þann atvinnu- veg. Á Kinnarstöðum var torfbær, sem með smávægilegum breyting- um og lagfæringum var hægt að nota til þess að hýsa næturlangt bílfarm af fólki og veita mat og annan viðurgjörning. Var mjög rómuð sú fyrirgreiðsla sem systurn- ar veittu við frumstæð skilyrði á nútíma vísu og sú snyrtimennska sem ástunduð var þar á bæ. Þessa þjónustu veittu þær systur árum saman eða allt til þess tíma er Bjarkarlundur var reistur sem veit- inga- og gistihús og raunar áfram í samvinnu við þá sem Bjarkarlund ráku, er gestafjöldi varð meiri en gistihúsið réði við. Þegar ég sem þessar línur rita kom í fyrsta sinn að Kinnarstöðum snemma sumars 1941 var upp- bygging á jörðinni þegar hafin af fyrirhyggju og myndarskap. Yngsta systirin, Olína, hafði keypt jörðina og þær systurnar þijár þá fyrir all löngu tekið við búskap eftir foreldra sína. Það sem þær systur komu í verk á næstu 2—3 áratugum er með ólíkindum. Allt var byggt upp, bæði íbúðarhús og skepnuhús, tún ræktuð og áin virkjuð árið 1949, þannig að jörðin sjálf gaf bæði ljós- meti og hitaorku. Það er athyglis- vert, að þær systur létu rafmagns- virkjunina ganga fyrir nýju íbúðar- húsi, en það var reist af miklum myndarskap 1955-1956. Vélakost- ur búsins sýndist mér vera eins og hann var beztur á öðrum búum miðað við bússtærð. Meðferð allra tækja og vetrargeymsla var til fyrir- myndar. Yngsta systirin, Ólína, sem er lærður kennari, var talsvert fjar- vistum því hún kenndi aðallega í annarri sveit, Geiradal. Eins og áður segir hefur Stein- unn Magnúsdóttir verið uppeldis- dóttir á Kinnarstöðum frá bernsku. Hún er dóttir Magnúsar Sigurðs- sonar frá Múlakoti, sonar Sigurðar bónda þarj sem var bróðir Magnús- ar á Kinnkrstöðum. Magnús faðir Steinunnar, bóndi í Hólum í Reyk- hólasveit, féll frá á bezta aldri frá konu og börnum og varð Steinunn þá þegar fósturdóttir á Kinnarstöð- um. Hún hefur tengzt Kinnarstaða- heimilinu þeim böndum að nánari gætu tæpast verið þó að einhver systranna hefði átt hana. En það eru fleiri en Steinunn sem hafa notið manngæzku Kinnar- staðafólksins þótt ekki hafi verið með þeim hætti sem var um hana. Mörg ungmenni hafa notið ástúðar og aðhlynningar, sum öll sín bemskuár. Ég er ekki nógu kunn- ugur til að nefna nöfn, þar sem einhver kynni að vanta, en vil leyfa mér að geta þess sem mínir nán- ustu eiga þessu heimili að þakka, í fjórar kynslóðir. Faðir minn missti móður sína þegar hann var á átt- unda ári og leystist þá eða um það leyti upp bernskuheimili hans. Hlut- skipti hans þá á eftir var slæmt, með einni undantekningu þó. Það varð svo úr að hann komst að Kinn- arstöðum til frændkonu sinnar Ingi- bjargar Einarsdóttur og Magnúsar Sigurðssonar er þau höfðu rétt haf- ið búskap á þeirri jörð. Þar leið honum vel og þar átti hann heimili 31 þar til hann fór að heiman til þess að bijótast í því að afla sér mennt- unar. Mörgum ámm seinna, er afi minn var þrotinn að kröftum, varð Kinnarstaðaheimilið hans skjól, og þar dvaldist hann fram undir ævi- lokin, en átti þó að síðustu heima hjá syni sínum og tengdadóttur í næstu sveit. Fyrir rúmum 3 áratug- um heillaðist eldri sonur minn svo af sveitalífinu og Reykhólasveit- inni, er við vorum þar á ferð sem oftar, að hann bað mig eða afa sinn, þann sem ólst að nokkm leyti upp á Kinnarstöðum, að fara þess á leit •við þær systur, að þær tækju hann í vist eða vinnu. Þær tóku hann til reynslu í 2 vikur fyrst en úr varð dvöl hjá þeim í átta sumur við mikla ánægju unga mannsins og að við foreldrarnir teljum mikinn þroska og uppeldisáhrif. Þó að ég hafi sjálf- ur eða mín kynslóð ekki notið langdvala á þessu heimili þá leyfi ég mér samt að telja kynslóðirnar fjórar af mínu fólki sem eiga Kinn- arstaðaheimilinu þökk að gjalda, þar sem ég tel mér gert það sem gert er fyrir ástvini mína. í þessum línum sem ritaðar hafa verið hér á undan er ekki mikið fjallað um hinar látnu systur per- sónulega eða viðkynningu mína við þær hvora um sig. Sú er ástæða þess, að líf þeirra systra allra var svo samofið, að erfitt er að fjalla um eina án þess að fjalla um þær allar. Fyrir mínum sjónum var Guð- björg blíðust, Guðrún mestur „húm- oristinn“ og Ólína alvörugefnust, en drengskapurinn og manngæzkan með sama hætti hjá þeim öllum. Um leið og við Kjartan sonur minn færum þeim Guðrúnu og Guð- björgu síðbúnar þakkir, vottum við og okkar fólk Ólínu, Steinunni og öðrum ástvinum þeirra innilega samúð. Sigurgeir Jónsson. VERÐ KR. 42 PR. STK.* JOLAKORT EFTIR ÞÍNUM EIGIN MYNDUM Sendu vinum og vandamonnum skemmtilega og persónulega jólakveðju með jólakorti, eftir þínum eigin myndum. Skipholti 31, sími 680450 ^l Æfj/ hnnisi ‘MINNSTA PÖNTUN 10STK.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.