Morgunblaðið - 11.12.1988, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.12.1988, Blaðsíða 23
8881 -43ÍÍMSohM n ÍTUÖAtmMWim 0MieYJOUA aioiuiáWJUHnM' tt l I bl 22 »mt ssríiwtaöya .rt mre>AQUMmra dMlðYJOUA OTfíAJímcrerrrnM " MÖRGUNBLÁÐIÐ SUNNUDÁGUR 11. DESÉMBER 1988 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1988 23 ÍHtiripmMuMí Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. MatthíasJohannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. 'Þorbjörn Guðmundsson, BjörnJóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst IngiJónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 70 kr. eintakið. Arafat og Bandarí kj amenn Sú staðreynd, að höfuðstöðv- ar Sameinuðu þjóðanna eru í New York, leggur Bandaríkja- mönnum ákveðnar skyldur á herðar, bæði vegna samninga milli þeirra og Sameinuðu þjóð- anna og af siðferðilegum ástæðum. Þótt þær reglur gildi þar í landi, að þeir sem þangað vilja koma í heimsókn verði að hafa vegabréfsáritun frá bandarískum yfírvöldum, geta Bandaríkjamenn ekki leyft sér að beita þeim reglum til þess að draga þá í dilka, sem erindi eiga við Sameinuðu þjóðimar. Ákvörðun Schultz, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, um að neita Arafat, leiðtoga Pal- estínumanna, um vegabréfs- áritun og koma þar með í veg fyrir, að hann gæti ávarpað allsheijarþing Sameinuðu þjóð- Ég sat þama og reyndi að skilja á milli ein- kennilegs draumsins sem ég var nývaknaður af og þess veruleika sem við mér blasti. Hann hafði lítil sem engin áhrif á mig og engu líkara en mér kæmi hann ekki við. En draumurinn, það var annað mál. Ég hafði verið þátttak- andi í honum og eftir á að hyggja held ég að ég hafi stjómað þeim veruleika sem þar birtist. D.H. Law- rence segist að vísu ekki vita, hvort draumar stjómi hugsunum hans, eða þær draumunum. Og líklega veit ég það ekki heldur. Enginn snjór á skjánum, engar truflanir; allt skýrt og áþreifanlegt á þessum marglita skjá draumsins. Líklegast óvænt hugsun úr heim- kynnum þess veruleikalausa skáld- skapar sem fer skynjun okkar dul- arfullri eftirvæntingu morgundags- ins. Þannig hefjast öll ævintýri. En í sjónvarpinu einhvers konar samtal við eina af þessum ham- ingjusömu leikkonum sem halda uppi Golden girls einsog hafíð marglitri hvelju gagnsærra draum- fiska, mig minnir hún hafi verið kölluð Clannahan án þess ég þori að ábyrgjast það og hana skorti lýsingarorð til að fullnægja frá- sögnum af hamingju sinni og raun- ar ekki laust við ég öfundaði frægð hennar sem er þó einnig í ætt við andartakið sem öllu tortímir og hún hló einsog konur gera í óþægilegum draumum og minnti á Vigfús Víga- Glúmsson og manninn sem hafði móðgað hann. Hveiju svaraði Vig- fús Víga-Glúmsson, var sá spurður sem hafði móðgað hann. „Hann hló aðeins," var svarið. „Gættu þín þá vel,“ var honum ráðlagt. Nei, það var ekki leikkonan sem hló, heldur þau örlög sem voru per- sónugerð í Vigfúsi og þeim frænd- anna í New York, hefur með réttu verið gagnrýnd um heim allan. Þótt Bandaríkjamenn líti á Arafat sem hryðjuverkamann eða óbeinan aðila að hryðju- verkum, er ljóst að önnur aðild- arríki Sameinuðu þjóðanna, þ.á m. bandamenn Banda- ríkjanna í Evrópu, telja fráleitt að koma í veg fyrir ávarp Ara- fats á þessum forsendum. Hryðjuverk eru af hinu illa hver svo sem fremur þau. Það er enginn eðlismunur á þeim ofbeldisverkum, sem framin hafa verið í Sovétríkjunum á undanfömum áratugum og þeim sem framin hafa verið í Suður-Afríku. Bandarískum ut- anríkisráðherra hefur hingað til ekki komið til hugar að neita sovézkum ráðamanni um vega- bréfsáritun til Bandaríkjanna, um. Þannig upplifði ég þennan skringilega vökudraum þama á skerminum, en gat þó einbeitt mér að einu nafni; Susan Harris sem ég vissi gat stund- um breytt sápu í marglitar sápukúl- ur. En það skiptir þó minnstu máli því ég var nú altekinn af þeirri hugsun að framhaldslífið væri loks komið í leitimar. Clannahan var ekki á skerminum í eigin persónu, heldur einungis mynd af henni sem hreyfðist fyrir tækni og kunnáttu þeirra sem stjómuðu uppákomunni. Kannski var hún ekki lifandi — og þó! Fréttamaður CNN var í Was- hington, sjálf var hún sögð einhvers staðar í Kalifomíu. Pyrst kom hún fram á stóru tjaldi í fréttastofu hans, svo á skjánum hjá mér. Þann- ig var hún tvöföld í roðinu meðan hún talaði um kynþokka sinn, til- neydd að vísu, og sagði frá því gervilífi sem ein sjónvarpssápa er; saman sett úr mörgum tökum og þær valdar saman sem beztar þykja. Þannig lifír enginn lífí sínu. Og svo áhættulaus getur listin ekki verið, fór ég að hugsa þama í morguns- árið, og hvaða erindi þetta atvik ætti eiginlega til Bolonía? Var heim- urinn orðinn ein samfelld martröð, klippimyndir úr þessum sjónvarps- brotum sem koma og fara einsog önnur draumkennd reynsla sem við emm sýknt og heilagt að upplifa, án þess upplifa neitt í raun og veru. Og mér varð hugsað til draumsins sem hafði verið veruleiki minn þessa löngu nótt, einkennilegur og nánast óskiljanlegur veruleiki því ég hafði lengi nætur verið önnum kafínn og kófsveittur við að lagfæra vatns- leiðslu hjá forsetanum á Bessastöð- um, ásamt einvalaliði úr landhelgis- gæzlunni, án þess okkur tækist að komast fyrir lekann, og þegar útlit- jafnvel ekki þegar glæpir stalín- ismans voru alvarlegastir. Hver er munurinn á þeim ofbeldis- verkum, sem arabar hafa fram- ið í Miðausturlöndum á undan- fömum áratugum, og þeim unglingadrápum, sem ísraels- menn hafa stundað undanfama mánuði? Hver er munurinn á þeim manndrápum, sem Pal- estínumenn hafa staðið fyrir á undanfömum áratugum og þeim manndrápum, sem framin vom af hálfu ísraelsmanna fyr- ir nokkmm áratugum, þegar þeir vom að beijast fyrir lífí sínu og sjálfstæði? Rök bandaríska utanríkis- ráðherrans fyrir því að neita Arafat um vegabréfsáritun til Bandaríkjanna standast ekki. Bandaríkjamenn verða að sætta sig við, að forystumenn af ýms- um toga komi til Sameinuðu þjóðanna. Að öðmm kosti verða þessi alþjóðasamtök að flytja höfuðstöðvar sínar til annars lands. Hörmungar í Armeníu að er óhugnanlegt að fylgj- ast með þeim fréttum, sem berast frá Armeníu eftir jarð- skjálftana þar. Nú er talið að jrfír 100 þúsund manns hafi týnzt og farizt í þessum ham- fömm. Leitarmenn heyra hljóð- in í fólkinu, sem grafízt hefur undir rústunum, og vonin um björgun verður stöðugt veikari. Geta okkar íslendinga til þess að veita aðstoð, þegar slíkir atburðir gerast, er lítil. En við eigum að leggja fram okkar skerf. Við höfum reynslu af því til hvers náttúmhamfarir geta leitt. Samúð okkar er með þeim, sem nú eiga um sárt að binda í Armeníu. ið var orðið skaplegt sprungu allar vatnsleiðslur og kjallarinn fylltist af vatni og við stóðum 5 vatnsagan- um miðjum þegar forsetinn kom niður í könnunarferð og hlógum einsog Vigfús Víga-Glúmsson. Þá vaknaði ég. Engu líkara en allt væri þetta ópera eftir Ravel. Svo áþreifanlegt að það var einsog eftirminnilegur skáldskapur. Og ég fór að velta því fyrir mér að það væri engu líkara en tvöþúsund ára gamall draumur Chuang-tzu hefði snert hugsun mína og vakið kínverskan gærdag í vitund minni: „Mig dreymdi eina nóttina að ég væri fiðrildi sem flögr- aði um, ánægt með hlutskipti sitt! Þá hrökk ég upp og ég var aftur Chuang-tzu. Hver er ég í raun? Fiðrildi sem dreymir það sé Chu- ang-tzu eða Chuang-tzu sem ímyndar sér hann hafí verið fíðr- ildi?“ Allt var þetta svo raunverulegt að mér dettur ekki í hug að bera brigður á að leiðslumar hafí brostið á Bessastöðum þessa nótt og ég hafí staðið í ströngu með land- helgisgæzlunni, þótt ég væri víðs fjarri í Bolonía. Én ég var áreiðan- lega á einhveijum skermi heima, rétt eins og Clannahan var hlæj- andi í Washington þegar hún var í álitlegu holdi sínu vestur í Kali- fomíu, þessu líka holdi(!) En þrátt fyrir allt þetta vissi ég þann veruleika einan að konan mín stóð við hliðina á mér og var að þvo þvott til að hengja út á snúru á svölunum. Hann er enga stund að þoma, sagði hún, og ég verð fljót ef þú nennir að vinda gallabux- umar fyrir mig. Og ég fór að vinda mig inn í veruleikann. M. (Meira næsta sunnudag.) HELGI spjall REYKJAYÍKURBRÉF Laugardagur 10. desember Um þessar mundir ríkir hefðbundið desember- öngþveiti í stjórnmál- um. Að venju eru störf Alþingis síðbúin og nú er vaxandi umtal um, að ekki takist að af- greiða fjárlög fyrir jól. Það er dálítið erfítt fyrir þá, sem utan við standa, að skilja, hvers vegna þetta þarf að vera svona, en á það ber að líta að okkar þing er ekki eina þjóðþingið, sem situr á fundum dag og nótt skömmu fyrir þinghlé. Slíkt er t.d. algengt á Bandaríkja- þingi. Þótt þinghald sé þannig með hefð- bundnum hætti eru aðstæður aðrar en oft áður. Nú stendur þjóðin frammi fyrir alvar- legum vandamálum. Hávaðasamt gaspur þingmanna og ráðherra dugar skammt til lausnar á þeim djúpstæða vanda. Eini ráð- herrann í núverandi ríkisstjóm, sem talar um þessi vandamál af festu og ábyrgð um þessar mundir, er Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra. í sjónvarpsviðtali fyrir nokkrum dögum sagði hann þann sannleika umbúðalaust, að enginn grund- völlur væri til nokkurra kauphækkana á næsta ári. Þvert á móti væri óhjákvæmi- legt að skerða kjör fólks og eina spuming- in væri sú með hvaða hættí þaðyrði gert. Þetta er rétt hjá Halldóri Ásgrímssyni og þetta er kjami málsins, þótt ljóst sé að sjálfsögðu, að láglaunafólkið getur ekki tekið neinum áföllum. Þessi alvarlega staða gerir miklar kröfur til ráðherra og þingmanna stjómarflokkanna en einnig til þingmanna stjómarandstöðuflokkanna og tíölmiðla. Um þessar mundir er t.d. um það rætt, hvort samstaða náist um tekju- öflunarfmmvörp ríkisstjórnarinnar. Fyrst þarf að nást samstaða innan stjórnarflokk- anna. Síðan þurfa þeir að afla tillögum sínum fylgis hjá einhveijum þingmönnum stjómarandstöðunnar til þess að fá þær samþykktar í þingdeildum. Augljóst er, að núverandi ríkisstjóm stefnir að umtalsverðum skattahækkun- um. Þeim hugmyndum hefur verið tekið fálega af stj ó m arandstö_ðu. Nú er auðvitað ljóst, að stjómarflokkamir hafa ekki verið hugmyndaríkir í tillögugerð um aukna skattheimtu. Hugmyndir þeirra þar um em gamlar lummur. Hitt fer ekki á milli mála, að annað hvort verður að skera ríkisút- gjöld niður í stórum stíl eða afla ríkissjóði aukinna tekna. Ábyrgir stjómmálamenn og fjölmiðlar geta ekki neitað þessum vem- leika. Reynsla undanfarinna ára hefur sýnt, að það virðist ótrúlega erfítt að ná fram nokkmm niðurskurði á útgjöldum ríkisins, sem máli skiptir. Þeir, sem geta ekki með rökum sýnt fram á hvemig draga eigi úr útgjöldum, verða að segja til um hvemig mæta á útgjöldum ríkisins, hvort sem þeir em í stjóm eða stjómarandstöðu. Stjómarandstaðan getur að vísu hafnað tillögum ríkisstjómarinnar um tekjuöflun en sú tíð er liðin, að stjómarandstaða geti gert það án þess að skýra almenningi frá því, hvemig viðkomandi stjómarandstöðu- flokkar vilja mæta vandanum. í þessu sambandi ber þó að geta þess, að einn af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, Eyjólf- ur Konráð Jónsson, hefur nú um nokkurt skeið haldið fram þeim sjónarmiðum, að óhætt sé að reka ríkissjóð með halla, ef sá halli er fjármagnaður með lántökum hjá fólkinu sjálfu. Þessar skoðanir Eyjólfs Konráðs hafa hins vegar ekki hlotið stuðn- ing ráðherra eða meirihluta Alþingis, hvorki nú né fyrr. Þrátt fyrir allt hefur þekking fólks á opinberum efnahagsmálum aukizt mjög og sú þekking veldur því, að stjómmála- menn geta ekki leyft sér þá tegund af ábyrgðarleysi, sem áður tíðkáðist hjá þeim, sem vom í stjómarandstöðu. Það er gerð krafa um ábyrgan tillöguflutning stjórnar- andstöðuflokka ekki síður en ríkisstjómar- flokka. Þetta sama á við um fjölmiðla. Þeir verða að temja sér ábyrgari vinnubrögð en áður var algengt, hver svo sem afstaða þeirra kann að vera til ríkisstjómar hveiju Á LEGUNNI í HRÍSEY. — Morjfunblaðið/Rúnar Þór Einn að fara í róður, annar ætlar að fara að undirbúa bátinn sinn fyrir veturinn. sinni. Ungur háskólakennari velti því fyrir sér í grein hér í blaðinu fyrir þremur vik- um, hvort Morgunblaðið mundi fara í grimma stjómarandstöðu vegna þess, að nú situr vinstri stjórn í landinu. Það er auðvitað ljóst, að Morgunblaðið stendur ekki undir nafni, sem sjálfstæður, óháður og ábyrgur fjölmiðill, nema blaðið fjalli af ábyrgðartilfinningu og þekkingu um þau vandamál, sem efst em á baugi hveiju sinni, hver svo sem afstaða þess kann að vera til ríkisstjórnarinnar. í stuttu máli sagt verður að líta svo á, að breyttir tímar og annað þjóðfélagsum- hverfí kalli á ný vinnubrögð bæði stjóm- málaflokka og fjolmiðla. Hitt er svo annað mál, að enn sem komið er hefur mynd núverandi ríkisstjómar ekki skýrzt nægi- lega mikið til þess að hægt sé að fjalla um stefnu hennar og störf að nokkm ráði. Sennilega verður það ekki fyrr en þetta ár er liðið og í ljós hefúr komið, hvernig til hefur tekizt um fjárlagaafgreiðslu og hvemig ríkisstjórnin hyggst taka á vanda- málum atvinnuveganna. FYRIR skömm Vnvtíi var uPP*ýst, að vii 'iLv, . skiptahalli Bret pÓiltlkin væri margfalt mei en búizt hafði verið við. Viðbrögð Ijármál; ráðherrans brezka, Nigel Lawsons, vor þau, að hann hækkaði yexti umsvifalaui um eitt prósentustig. Ástæða hins mikl viðskiptahalla var talin ofþensla í brezk efnahagslífi á undanfömum misserun Fyrr á þessu ári kom til hálfopinberi deilna milli fjármálaráðherrans og brezka forsætisráðherrans, en Margrét Thatcher vildi hækka vexti sl. vor til þess að draga úr þenslunni en fékk því ekki framgengt. Nú er það almenn skoðun, að hún hafi haft rétt fyrir sér þá, en fjármálaráðherr- ann hafí haft á röngu að standa. Bretar em ekki einir um það að hafa hækkað vexti á þessu ári. Þannig hafa 6 mánaða Libor-vextir af dollaralánum hækkað um tvö prósentustig á þessu ári úr 7,5% í upphafi þessa árs í 9,5% í lok nóvembermánaðar. Libor-vextir af lánum í sterlingspundum hafa hækkað maira eða úr 9,1% í 13,06% og sömu vextir af lánum í þýzkum mörkum hafa hækkað úr 3,6% í 5,18%. Nú má segja, að nánast öll afurðalán sjávarútvegsins séu í erlendri mynt. Eins og menn kannski muna vom þessi afurða- lán fyrir nokkmm ámm í íslenzkum krón- um og vom þá fjármögnuð með bindi- skyldu Seðlabankans. Þá kom fram ein- dregin krafa frá sjávarútveginum þess efnis, að öll afurðalán atvinnugreinarinnar skyldu vera í erlendum gjaldeyri, þar sem tekjur sjávarútvegsins væm í gjaldeyri og eðlilegt að tekjur og afUrðalán fylgdust að. Meginástæðan fyrir þessari kröfu sjáv- arútvegsins var hins vegar sú, að vextir vom lægri á erlendum lánum en innlend- um. Vaxtaþróunin á hinum erlendu afurða- lánum hefur orðið sú, að vextir af lánum í SDR hafa hækkað frá 1. marz sl. úr 7,75% í 9% hinn 1. desember sl. Vextir af afurðalánum í Bandaríkjadollurum hafa hækkað á sama tíma úr 8,75% í 10,5% og vextir af sömu lánum í sterlingspundum hafa hækkað úr 11% í 13,5%. Eins og sjá má em þetta býsna háir vextir miðað við vexti hér á landi nú. Vextir af hinum erlendu afurðalánum eru að verða jafnháir eða jafnvel hærri en vextir af innlendum afurðalánum, sem em nú 12-12,5%. Þegar þar við bætist að lán- taka í erlendum gjaldeyri felur í sér geng- isáhættu, þyrfti engum að koma á óvart, þótt fram kæmu kröfur frá sjávarútvegin- um um að afurðalánin yrðu í íslenzkum krónum á nýjan leik einfaldlega vegna þess, að þau eru að verða ódýrari. Þessar tölur sýna annars vegar, að ekki er lengur hægt að tala um hærri vexti hér en í nágrannalöndum okkar en hins vegar vekja þær upp spurningar um vaxtastefnu ríkisstjórnarinnar. Á sama tíma og vextir hækka annars staðar vegna efnahags- ástands lækka þeir hér vemlega. Banka- mönnum ber saman um, að aukning inn- lána hefur stöðvazt. Spariskírteini ríkis- sjóðs seljast ekki með þeim vaxtakjömm, sem nú em boðin og a.m.k. tveir aðilar em byijaðir að selja þessi skírteini með afföllum, þannig, að ávöxtun kaupandans verður meiri en að er stefnt með vaxta- ákvörðun fjármálaráðherra. Þessi sala spariskírteina með afföllum sýnir líka, hversu erfitt er að lækka vexti með handafli, eins og það hefur verið kall- að. Hveijum dettur í hug, að leggja pen- inga inn í banka og fá fýrir það þijú og hálft prósent umfram verðtryggingu, þeg- ar hægt er að kaupa ýmis konar verðbréf með mun hærri ávöxtun, jafnvel skulda- bréf ríkissjóðs sjálfs. Það er því ekki að ástæðulausu að enn er spumingamerki við vaxtastefnu núverandi ríkisstjómar og álitamál, hversu lengi hinir tiltölulega lágu vextir halda. Þær vaxtalækkanir, sem orðið hafa að undanfömu, byggjast á því, að verðbólgan þessar vikurnar er nánast engin. Ástæðan fyrir því er sú verðstöðvun, sem í gildi er. Ollum er hins vegar ljóst að snemma á næsta ári brestur þessi stífla. Hvað ætlar ríkisstjómin að gera með vextina þá? Hækka þá? Og hver hefur þá orðið árang- urinn af vaxtalækkuninni þessar vikurnar? Þetta eina dæmi sýnir, að stefna núver- andi ríkisstjómar er enn svo óskýr, að ekki em forsendur til þess að leggja mat á hana enn sem komið er. ÞÓTT ríkisstjórn og Alþingi hafi enn ekki fótað sig á horf breyttri stefnu í ríkisfjármálum og efnahagsmálum er hins vegar margt, sem bendir til þess, að fólkið í landinu hafi gert sér glögga grein fyrir breyttum aðstæðum. Það fer ekkert á milli mála, að almenningsálitið er á þann veg um þessar mundir, að einstaklingar, fýrirtæki og opinberir aðilar eigi að draga saman seglin. Verulegur samdráttur hefur orðið í viðskiptum á flestum sviðum, sem engin ástæða er til að harma vegna þess, að það er samdráttur í kjölfar mikillar ofþenslu. Þessi samdráttur sýnir, að fólk hefur áttað sig á því, að óhjákvæmilegt væri að draga úr útgjöldum. Einstaklingar hafa dregið úr eyðslu og lagt áform um fjárfest- ingar á hilluna og í langflestum fyrirtækj- um er nú unnið að þvi að takmarka út- gjöld og minnka eyðslu. Þetta kemur m.a. fram í því, að bankamenn muna tæpast jafn litla eftirspurn eftir nýjum lánum til framkvæmda og annarra útgjalda. Þótt mesti útgjaldamánuður ársins sé genginn í garð eru ótvíræðar vísbendingar um, að kaupæði þjóðarinnar verði minna um þessi jól en oft áður. Þessi þróun er af hinu góða og hún er heilbrigð. Við íslendingar höfum byggt svo mikið upp á undanfömum áratugum, að það er tími til kominn að hægja á og byija að borga niður skuldir af því, sem byggt hefur verið upp. Þess vegna er ekki ástæða til að líta á samdráttinn, sem merki um að kreppa sé að ganga í garð, heldur á að líta á samdráttinn, sem jákvæðan árangur af því, sem gert hefur verið á undanförnum misserum. Það er t.d. enginn vafi á því, að samdráttur í neyzlu og fjár- festingu nú er árangur af þeim aðgerðum, sem ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar beitti sér fyrir á síðasta ári og fyrr á þessu ári. Fyrr í þessu Reykjavíkurbréfi var vikið að aðgerðum Breta til þess að ná tökum á umframeyðslu og vaxandi viðskiptahalla, sem em sömu vandamál og við höfum átt við að stríða. í umræðum þar í landi hefur komið fram, að það taki þijú til fjögur misseri fyrir efnahagsaðgerðir að skila árangri. Þannig gera Bretar ráð fyrir því, að vaxtahækkun Nigels Lawsons, fjár- málaráðherra, byrji að skila verulegum árangri síðari hluta árs 1990 og jafnvel 1991. Ef við reiknum með, að efnahagslíf okkar lúti svipuðum lögmálum og efna- hagslíf Breta að þessu leyti, er ljóst, að við þurfum að hafa nokkra þolinmæði til þess að bíða eftir árangri af efnahagsað- gerðum hveiju sinni. I þeim efnum má spyija, hvort það hafi verið fljótræði að lækka vextina eins mikið og gert hefur verið á skömmum tíma. Telja má víst, að samdrátturinn í viðskiptum og fjárfestingu hafi ekki sízt orðið vegna hinna háu vaxta og að lítil eftirsókn eftir lánsfé nú sýni, að menn séu orðnir hræddir við að fara út í ijárfestingar, sem eru ekki þeim mun tlYggari, vegna þess hvað peningar hafa kostað mikið. Alla vega má ekki til þess koma að vextir verði neikvæðir á nýjan leik. Breytt við- „Eini ráðherrann í núverandi ríkis- stjórn, sem talar um þessi vanda- mál af festu og ábyrg’ð um þessar mundir, er Hall- dór Asgrímsson, sjávarútvegsráð- herra. I sjón- varpsviðtali fyrir nokkrum dögum sagði hann þann sannleika um- búðalaust, að eng- inn grundvöllur væri til nokkurra kauphækkana á næsta ári. Þvert á móti væri óhjá- kvæmilegt að skerða kjör fólks og eina spurning- in væri sú með hvaða hætti það yrði gert. Þetta er rétt hjá Hall- dóri Asgrímssyni og þetta er kjarni málsins, þótt ljóst sé að sjálfsögðu, að láglaunafólkið getur ekki tekið neinum á£öllum.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.