Morgunblaðið - 11.12.1988, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 11.12.1988, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1988 Þorleifur Skagfjörð Jóhannesson Fæddur 23. maí 1913 Dáinn 6. nóvember 1988 Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þen tregatárin stríð. (V.Briem) Með nokkrum fátæklegum orð- um vil ég minnast tengdaföður míns, Þorleifs Skagfjörð Jóhann- essonar, Leifa frá Hvammi í Svart- | árdal. Hann fór að líta eftir kindunum sínum og lést við það snöggt, öllum að óvörum. Hvað getum við sagt, Leifi er farinn til æðri staða, hann sem okkur þótti svo vænt um. Þorleifur fæddist 23. maí árið 1913 og varð því 75 ára síðastlið- ið vor. Foreldrar hans voru Helga Þorbergsdóttir og Jóhannes Páls- son frá Garði á Skagaströnd. Þau eignuðust 16 börn, 12 þeirra kom- ust til fullorðins ára og var Leifi 5 í röðinni. Eftirlifandi systkini eru Elín, Sigríður, Páll, Hrefna, Guðjón, Guðmundur, Bima, og Guðrún. 8 ára var Leifi sendur í sveit að Barkarstöðum í Svartárdal og dvaldi hann lítið í foreldrahúsurry eftir það. Að Barkarstöðum elst hann upp og þar með var hann kominn í dalinn sinn kæra, sem átti eftir að fóstra hann alla tíð. Um tvítugt dvelur Leifi á Krist- nesi í Eyjafirði í eitt og hálft ár vegna veikinda og náði hann sér aldrei að fullu eftir það. Upp úr 1940 kaupir Leifijörðina Hvamm í Svartárdal, þar sem hann bjó alla tíð. Þann 18. ágúst 1951 kvæntist Leifi mikilli mannkostakonu, Þóru Sigurðardóttur frá Leifsstöðum í Svartárdal. Þau eignuðust 5 börn en þau eru: Guðbjörg, býr með Sigurvalda Siguijónssyni, Sigurður Gísli kvæntur Ingibjörgu Á. Hjálmars- dóttur, Ingibjörg, býr með Finni Baldurssyni, Helgi Jóhannes, býr með Olmu R. Guðmundsdóttur, og Sigríður Soffía, býr með Sigurði Baldurssyni. Bamabömin em orðinn 14, Leifa þótti mjög vænt um Þóru og bömin og gerði allt sem hann gat til að þeim liði sem best, og eins fengu tengdaböm og bama- böm að njóta þess. Að Hvammi var sérstakt að koma, á móti var tekið með inni- legri hlýju og gestrisni. Oft dvaldi ég vikum og mánuð- um saman þar og þá fann ég hversu góður heimiiisfriður þar var. Og eftir að bamabömin komu, þá var alveg sama þó allt væri undirlagt. Þau hlífðu sér hvoragt og hjálpuðust vel að. Rafmagnið kom ekki þangað fyrr en um jólin 1980 svo þægind- in vora ekki alltaf við hendina. En ekkert var gefið eftir þar til yfír lauk. Ég minnist þess ætíð, þegar ég kom í Hvamm haustið 1976, þegar Leifí tók upp vasa- hnífínn sinn og skóf klakann af buxnaskálmum mínum, þannig var Leifí tilbúinn að hjálpa ef hann gat. Leifi hafði sérstakt yndi af hest- um og fengum við sannarlega að njóta þess. Síðastliðið sumar skrapp hann með mér á hestbak, ekki óraði mig fyrir því, að þetta væri síðasta skiptið. Margar góðar minningar eiga bömin úr sveitinni, sérstaklega þegar þau vora ein. Gaman fannst þeim að afi lof- aði þeim að vera hjá sér, er hann var að girða og þau fengu að sulla í Hvammsá. Sérstaklega var Leifí næmur ef eitthvað mikið var að, og á ég honum mikið að þakka í því sambandi. Hljóma skal harpan mín „Hærra minn guð til þín hærra til þín,“ Þessi orð hljóma svo oft í eyram mér, þau voru sungin svo sterkt við útför Leifa, það sýndi að hann átti marga góða vini. Elsku Þóra og fjölskylda, algóð- ur guð gefí ykkur kraft og styrk á þessum erfíðu tímum. En minningamar um góðan mann munu ylja okkur um ókomin ár. Ég kveð tengdaföður minn með söknuði og virðingu, og bið góðan guð að varðveita hann og blessa. Þökk fyrir allt og allt. Jólagjafirnar færðu á horni Bankastrætis og Ingólfstrætis Austurlenskar gjafavörur austurlensk húsgögn fatnaður jólaskraut leikföng skartgripir skór snúrulausarborvélar, \______) lóðbolta, skrúfuvélar, ryksugur, útvörp og sjónvörp. / HORNMARKAÐURINN Bankastræti 7a, sími 19530 (þar sem Herrahúsið var áður). Inga 1AE á betra verði i i 1 Rafhlöðuvél ABS 13 RL með auka rafhlöðu í tösku kr. 15.495,- Rafskrúfjárn ABS 6 RL í tösku frá kr. 5.495,- Höggbor og skrúfuvélar SBE 500 í tösku Stingsög STS 380 STPE 400 kr. 7.561, kr. 5.495,- SBE 420 RL kr. 4.995,- SB2E 16 RL kr. 11.995,- Fæst í byggingavöruverslunum um land allt. AFKOST ENDING GÆÐI BRÆÐURNIR ORMSSON HF LÁGMÚLA 9, SÍMI: 38820. 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.