Morgunblaðið - 11.12.1988, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 11.12.1988, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SljNNUDAQUR 11. DESEMBER 1988 t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, HERDÍS KARLSDÓTTIR, Grýtubakka 20, andaöist á Reykjalundi 9. desember sl. Jarðarförin auglýst siðar. Karl Sigurhjartarson, Kristín Hrönn Vigfúsdóttir, Sigfús Sigurhjartarson, Hrönn Einarsdóttir og barnabörn. t Konan mín og móðir okkar, SÓLVEIG MARÍA ANDERSEN, Ljósheimum 6, lést í Landspítalanum að morgni sunnudagsins 4. desember. Jarðarförin fer fram frá Langholtskirkju mánudaginn 12. desem- ber kl. 13.30. Magnús Jónsson, börn, barnabörn og barnabarnabarn. t Útför ALBERTS JÓNSSONAR frá ísafirði, fer fram frá Fossvogskapellu þriöjudaginn 13. desember kl. 13.30. Aðstandendur. t Útför eiginkonu minnar, ÞURÍÐAR GUÐJÓNSDÓTTUR, Vesturvallagötu 1, Reykjavik, fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 12. desember kl. 13.30. Sigurvaldi Björnsson. t Útför mannsins míns, SIGURÐAR ÞORBJÖRNSSONAR, Neðra-Nesi, fer fram frá Stafholtskirkju miðvikudaginn 14. þ.m. kl. 14.00. Bílferð verður frá Umferðarmiöstöðinni í Reykjavík kl. 11.00 Jórunn Jóhannsdóttir. t Minningarathöfn um móður mína, MARGRÉTI ÁRNADÓTTUR frá Gunnarsstööum, Hrlngbraut 91, fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 15. desember kl. 13.30. Krlstfn Gfsladóttir. t Elskulegur sonur okkar, bróðir og dóttursonur, KJARTAN RAGNAR KJARTANSSON, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni f Reykjavík mánudaginn 12: desember kl. 15.00. Mergrét Kolbeinsdóttir, Kjartan Kjartansson Guðmundur Ingvason, Guðrún Guðmundsdóttir, Elfsabet Kjartansdóttir, Halldór S. Kjartansson, Pótur Ó. Guðmundsson, Inga Björg Kjartansdóttir, Guðrún E. Halldórsdóttir. t Útför SÆMUNDAR L. JÓHANNESSONAR skipstjóra, Hverfisgötu S2b, Hafnarfirði, sem andaðist 8. desember í St. Jósefsspitala; Hafnarfirði, fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 13. desember kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag íslands. Sigurveig Guðmundsdóttir, Guðrún Sæmundsdóttir, Jón Rafnar Jónsson, Margrét Sæmundsdóttir, Þorkell Erlingsson, | Gullveig Sæmundsdóttir, Steinar J. Lúðvfksson, Hjalti Sæmundsson, Jenný Einarsdóttir, Logi Sæmundsson, Jóhanna Gunnarsdóttir, Frosti Sæmundsson, Dagbjörg Baldursdóttir, Margrét Thorlacius, barnabörn og barnabarnabörn. Kjartan Ragnar Kjartansson Fæddur 3. mai 1969 Dáinn 4. desember 1988 Með örfáum orðum vil ég minn- ast frænda míns, Kjartans Ragnars Kjartanssonar, Dalseli 13 Reykjavík, en hann lézt sviplega 4. desember síðastliðinn. Kjartan kom aðeins tíu ára gam- all ásamt systur sinni, Elísabetu, hingað að Odda, til skammrar sum- ardvalar. Þau systkinin báru þess glöggt vitni, að þau komu frá menningar- heimili og að siðfágun hafði sízt verið vanrækt í uppeldi þeirra. Síðan komu þau systkinin aftur næsta ár og hann síðast hið þriðja. 011 árin þtjú til nokkurra daga sum- ardvalar í senn. Þegar eftir fyrstu kynni var ætíð ósvikin tilhlökkun hjá bömum okk- ar hjóna, þegar þeirra var næst von, og líka hjá okkur, foreldrum þeirra, því við fundum svo glöggt, að þau bæði tvö færðu með sér góðan andblæ í húsið okkar. Því þau voru bæði gleðinnar og birtunn- ar böm. Vegna þessara löngu liðnu sam- verustunda, er m.a. bundu heimili okkar og þeirra vináttuböndum, búa okkur ríkar þakkir í huga. En árin eru fljót að hverfa á braut og aðeins örsjaldan síðan hefur fundum okkar og Kjartans borið saman. Og nú þegar hann svo óvænt og í blóma lífsins hefur.verið kvaddur yfir um mærin miklu, mæri lífs og dauða, þá er ég sannfærður um, að hjálp Drottins Jesú er honum og ástvinum hans nærri, já öllum þeim er líða vegna hins hörmulega atburðar. Ég trúi því að ljósið eilífa muni hrekja á braut það tregans hyldjúpa myrkur, er þessa skammdegisdaga byrgir ástvinum Kjartans sólarsýn. Eg votta Kjartani föður hans, Margréti móður hans, systkinum hans, Elísabetu og Halldóri Sig- urði, og öðrum ástvinum öllum, dýpstu samúð mína, konu minnar ogbarna. í bjargfastri trú og óbilandi von um sigur ljóssins yfir myrkrinu, lífsins jrfir dauðanum, tek ég undir þetta bænarmál trúarskáldsins bjartsýna og sterka: „Alheimsvald, vort eilíft líf og kraftur, sem eftir hvelja nóttu sendir dag, þín heilög ásján lýsi aftur, aftur, á eftir þetta blinda reiðarslag." Stefán Lárusson Oss héðan klukkur kalla, svo kallar Guð oss alla til sín úr heimi hér, þá söfnuð hans vér sjáum og saman vera fáum í húsi því, sem eilíft er. (Vald.Briem) Við systkinin biðum með tals- verðri eftirvæntingu — allt eftir aldri og þroska hvers og eins — eftir fæðingu litla barnsins hans Kjartans Kjartanssonar, föðurbróð- ur okkar. Kjartan frændi var mikil bamagæla og gaf sér alltaf tíma til að leika við okkur. Ósjaldan fór hann með alla krakkahrúguna — 6 talsins — í bíltúra á bláa Willys- jeppanum sínum og þótti okkur það hin mestu ævintýri. Við vorum á aldrinum 3ja—12 ára vorið 1969 þegar Kjartan Ragn- ar fæddist og koma hans í þennan heim er atburður, sem geymist vel í hugskoti okkar. Hann var einstak- lega fallegt bam, þó okkur krökk- unum þætti það kannski sjálfsagt mál, því Kjartan átti sinn sess í hugum okkar og Margrét Kolbeins- dóttir, eiginkona hans, var falleg- asta konan, sem við höfðum nokk- um tíma séð. Angdofa horfðum við á litla frænda okkar og þegar hann deplaði augunum sínum, með löngu, dökku augnhámnum, vomm við viss um að þetta bam væri það bezta og fallegasta í öllum heimin- um. Tíminn leið. Litli frændi óx úr grasi. Fjölskyldan bjó fyrst á Lang- holtsvegi 2 í kjallaranum hjá ömmu og afa. Þá fluttist hún til Hafnar- Qarðar í eigið húsnæði og svo í stærri íbúð í Kópavoginum. Glókoll- ur var nú orðinn stóri bróðir; þeirra Elísabetar, fæddrar 6. apríl 1972, og Halldórs Sigurðar, fædds 27. júní 1975. Við systkinin gerðum okkur raunhæfari mynd af tilver- unni, en samt sem áður þótti okkur sem alltaf væri bjart og fagurt yfír þeim systkinunum. Það var því með söknuði sem við horfðum á eftir fjölskyldunni út fyrir landsteinana. Til Svíþjóðar lá leið þeirra Kjart- ans og Margrétar með bömin árið 1976. Kjartan Ragnar var þá 7 ára og í Svíþjóð fór hann í skóla. Hon- um gekk vel að læra og þegar fj'öl- skyldan sneri heimleiðis eftir 2ja ára útivist hóf hann skólagÖngu í Kópavoginum. Þegar að því kom að jafnöldrum hans var kennt fyrsta erlenda tungumálið, dönsku, sótti hann kennslutíma í sænsku, það kom af sjálfu sér. Hratt flýgur stund. Unglingsárin nálgast. Það hefur teygst rækilega úr litla frænda okkar og fallegu augun hans eru hálf falin á bak við gleraugu. En nú emm við frænd- systkini hans meira fyrir að vera með grín og gamanmál en að skyggnast um í spegli sálarinnar. Okkur er það mikið ánægjuefni að finna að Kjartan Ragnar hefur tek- ið spaugsemi föður síns að erfðum. Seinni hluta árs 1982 slitu for- eldrar Kjartans Ragnars samvistir. Yngri systkinin, Elísabet og Halldór Sigurður, vom í umsjón móður sinnar, en þeir feðgar, Kjartan og Kjartan Ragnar, fylgdust að. Skiln- aðir em tíðir í okkar samfélagi og okkur er ljóst að þeir em bömunum alltaf erfiðir. Þau Margrét og Kjart- an lögðu sig fram við að gera þeim Kjartani Ragnari, Elísabetu og Halldóri Sigurði hann eins létt- bæran og þeim frekast var unnt, þó foreldramir ættu ekki lengur samleið. Systkinin vom saman um helgar, til skiptis hjá móður sinni og föður. Búskapur þeirra feðga gekk vel. Við höfðum fyrst áhyggjur af því að heimilisstörfin gætu vafist fyrir þeim, en þeir urðu fljótlega sjálf- bjarga hvað það varðaði. Sum okk- ar komu með meðlæti með sér í fyrstu heimsóknina í Gmndargerði 17, hið nýja heimili Kjartananna, en áður en kvöldið var úti höfðu nöfn bragðgóðra kextegunda og osta af margvíslegustu tegundum verið lögð á minnið, svo við gætum sjálf borið fram jafn gimilegt með- læti. Það var kært með Kjartani og t Sambýlískona mín, móðir okkar og tengdamóðir, GUÐMUNDÍNA BJARNADÓTTIR, Háteigsvegi 22, sem lést í Landakotsspítala þriðjudaginn 6. desember verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 14. desember kl 15.00. Ketill Sigfússon, Sigriður Ágústsdóttir, Hörður Árnason, Úlfar Ágústsson, Jósefina Gísladóttir, Anna Jóna Ágústsdóttir, Birgir Ólason. Kjartani Ragnari. Þeir höfðu sam- eiginlegan áhuga á handbolta, fót- bolta, bifreiðum og bifreiðaíþrótt- um. Þegar vel lá á þeim bmgðu þeir sér gjaman á völlinn til að horfa á íþróttakappleiki. Þá tóku þeir oftsinnis myndbandssnældur á leigu og vom eigin dagskrárstjórar — löngu áður en það orð komst í tízku. Kjartan og Margrét fundu sér nýja lífsfömnauta. Þau Kjartan og Guðrún Guðmundsdóttir, sambýlis- kona hans, fluttust í Dalsel 13 ásamt Kjartani Ragnari. Þar bjuggu þau sér fallegt heimili og undu sér vel saman. Um þetta leyti eignaðist Kjartan Ragnar tvö lítil systkini; Pétur Guð- mupdsson, sem móðir hans eignað- ist með sínum maka og er hann nú á 4. ári, og Kjartani og Guðrúnu fæddist dóttir 4. nóvember 1985 og var hún skírð Inga Björg. Fjölskylda Kjartans Ragnars og þeirra systkina stækkaði mjög við það að foreldrar þeirra komu sér upp nýrri fjölskyldu hvort um sig. Þau systkinin aðlöguðust hinum nýju kringumstæðum fljótt og vel og gerðu gott úr öllu saman. Kjartan Ragnar átti hauk í horni þar sem Guðrún var. Hún reyndist honum vel og við sáum að hún ljóm- aði af stolti í hans garð oft og tíðum, rétt eins og hann væri hennar eigin sonur. Þá tóku móðir Guðrúnar og aðrir í fjölskyldu hennar honum opnum örmum og kunnu vel að meta kímni hans og létta lund. Eins og gengur og gerist með íslenzka unglinga vann Kjartan Ragnar á_ sumrin þegar frí voru í skólum. Á þrettánda ári fór hann að vinna á Landspítalanum við garðyrkjustörf á lóðinni, sem til- heyrir spítalanum. Eitt sumarið út- vegaði Guðrún honum starf hjá jámvöruverzlun Zimsen, en á Landspítalanum vann hann öll sum- ur þess utan, rétt eins og fjögur okkar systkinanna. Afl, Kjartan Páll Kjartansson, málarameistari, stundaði sína iðn þar. Kjartan, sonur hans, hafði á árum áður ekki einasta numið pípu-. lagningar heldur og málaraiðnina og starfaði nú ásamt föður sínum á spítalanum. Þá var það og svo að pabbi okkar systkinanna var einnig lærður málari, þó hans aðal- starf væri á öðram vettvangi og hafði hann lengi vel aukavinnu við málningu á Landspítalanum. Yngri bróðir okkar vann hjá afa á sumrin og lærði hjá honum iðnina með menntaskólanáminu og þannig unnu þeir feðgar, bræður og frænd- ur hlið við hlið um hríð. Kjartan Ragnar stundaði nám við Fjölbrautaskólann í Breiðholti á við- skiptabraut. Hann átti talsvert af kunningjum, en gerði sér fyllilega grein fyrir því, að raunveraleg vin- átta er vandfundin. Þegar hann bjó í KópaVoginum eignaðist hann traustan og góðan vin — þó vega- lengdir væra stundum talsverðar þeirra á milli, létu þeir Kjartan Ragnar og Halldór í Kópavoginum það ekki á sig fá og hittust í góðu tómi og fóra til dæmis saman í bíó. Þá bundust þeir Steini og Svenni vináttuböndum við Kjartan Ragnar, en þeim kynntist hann í skólanum. Þessir traustu og góðu drengir eiga þakkir skyldar fyrir að hafa auð- sýnt Kjartani Ragnari vinarþel; slíkt er ómetanlegt þeim er nýtur. Kjartan Ragnar var heimakær og artarlegur við fyilskyldu sína. Hann var glaðlyndur og hafði gam-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.