Morgunblaðið - 11.12.1988, Qupperneq 25
ö«t HaaMaaaa .n aifiJAíiuwMuf! aiUAjaMUDHOM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1988
25
Koskotas:
skjótur frami.
: 'X'- '
Koskotas mætirtil
yfirheyrsiu fyrir flóttann:
hver hjálpaði honum að flýja?
Að neðan: Koskotas á myndum
í safni FBI, eftirlýstur fyrir
skattsvik.
Margaret
Papandreou:
neitar að veita
skilnað
Georg
Papandreou:
dreginn inn
í málið.
bauðst einnig til að segja af sér vegna ásak-
ana um að hann hefði tekið þátt í yfír-
hylmingu.
Segja má að stjórnin hafi lamazt vegna
þess álitshnekkis, sem hún beið. Þingmenn
PASOK voru ekki síður hneykslaðir en full-
trúar stjórnarandstöðunnar. Papandreou
reyndi allt sem hann gat til að bjarga stjórn-
inni þrátt fyrir veikindin. Þótt læknar skip-
uðu honum að hafa hægt um sig kom hann
nokkrum sinnum fram opinberlega til að
sýna að hann færi enn með stjórnina og
mundi binda enda á glundroðann.
Papandreou hélt því strax fram að um
samsæri væri að ræða. Hann sagði í sjón-
varpsviðtali 13. nóvember að uppi hefðu
verið ráðagerðir um að fá nokkra þingmenn
PASOK til að hlaupast undan merkjum, svo
að fiokkurinn missti þingmeirihluta sinn.
PASOK hefur 156 þingsæti af 300.
Daginn eftir sagði einn virtasti þingmað-
ur PASOK, Apostolos Lazaris, af sér þing-
mennsku og tilkynnti um leið úrsögn sína
úr flokknum. Hann sakaði Papandreou um
að leyfa yfirhylmingu og að skálda upp
andlýðræðislegt samsæri til að kveða niður
gagnrýni.
Forsætisráðherrann varð við kröfu sljórn-
arandstöðunnar um þingrannsókn og komst
ekki hjá því að gera breytingar á stjórn-
inni. En ýmsir þingmenn flokksins höfðu
takmarkaðan áhuga á því að taka sæti í
stjórn nema því aðeins að hann losaði sig
við þá menn, sem hefðu haldið illa á málum.
Helzta krafa þeirra var sú að Koutsoyorgas
yrði rekinn.
Þegar Papandreou gerði minniháttar
breytingar á stjórninni 16. nóv. var Koutsoy-
orgas ekki látinn víkja úr henni, en settur
yfír annað ráðuneyti. Fleiri ráðherrar, sem
höfðu verið gagnrýndir vegna banka-
hneykslisins, fengu að sitja áfram í stjórn-
inni. Breytingamar sættu harðri gagmýni
og gerðu aðeins illt verra. Síðan hefur stjórn-
arandstaðan krafízt þess að efnt verði til
kosninga nú þegar.
Skömmu eftir breytingarnar á stjóminni
sagði einn af upprennandi leiðtogum PA-
SOK, Costas Laliotis, af sér embætti ráð-
herra án stjórnardeildar og Papandreou rak
tvo ráðherra fyrir að gagnrýna stjómina
opinberlega. Síðan lýsti Antonis Tritsis fv.
menntamálaráðherra því yfir að „miðstjórn
flokksins nyti ekki trausts óbreyttra flokks-
manna og ætti að segja af sér“. Um leið
rak Papandreou Stefanos Tzoumakas
menntamálaráðherra og aðstoðarráðherra
hans. En allar tilraunir Papandreous til að
endurvekja traust almennings vom unnar
fyrir gýg. Margir sögðu að honum væri
farið að förlast, e.t.v. vegna veikindanna.
Handtekinn
Koskotas var handtekinn í Bandaríkjun-
um þegar hann kom þangað;23. nóv. eftir
stutta dvöl í Brazilíu. Hann lenti í einka-
þotu sinni á flugvelli nálægt Boston og lög-
fræðingur hans sagði að hann hefði óttazt
um líf sitt í Brazilíu.
Að sögn konu hans gmnaði hann að
starfsmenn grísku leyniþjónustunnar væm
á hælunum á honum og ætluðu að koma í
veg fyrir að hann nafngreindi spillta emb-
ættismenn. Frú Koskotas segir að hann
hafí farið til Bandaríkjanna svo að hún og
börn þeirra yrðu óhult. Þau hafa banda-
rískan borgararétt, en hann ekki.
Að sögn yfírvalda í Aþenu tilkynnti þeim
enginn annar en sonur gríska forsætisráð-
herrans, Nikos Papandreou, að Koskotas
væri á leið til Bandaríkjanna. Þau kváðust
þegar í stað hafa gert ráðstafanir til að
tryggja að Koskotas yrði handtekinn þegar
þessar upplýsingar hefðu legið fyrir.
Grískur auðjöfur, Afyris Sariarellis, er
sagður hafa smyglað Koskotas frá Grikk-
landi 7. nóvember í Lear-þotu sinni. Hann
hefur verið handtekinn í Aþenu fyrir að
„skýla glæpamanni".
Þremur dögum áður en Koskotas Var
handtekinn, 20. nóvember, barst íslenska
dómsmálaráðuneytinu fyrirspurn frá Interp-
ol um ferðir hans eins og Morgunblaðiö
hefur greint frá. Nokkmm dögum áður
hafði Koskotas dvalizt hér á landi í rúman
sólarhring ásamt fámennu fylgdarliði og
gist á Hótel Loftleiðum.
Enn í haldi
Koskotas er enn í haldi í Bandaríkjunum
og gríska stjórnin hefur farið fram á að
hann verði framseldur. Á stormasömum
fundi sósíalista 30. nóvember virtist Pap-
andreou gefa i skyn að Koskotas-málið
gæti leitt til þess að stjóm hans sliti viðræð-
um við Bandaríkjastjóm um framtíð fjög-
urra bandarískra herstöðva í Grikklandi.
Á þessum fundi endurtók Papandreou að
málið væri liður í ráðagerðum um að bola
stjórn sósíalista frá völdum, en útskýrði það
ekki nánar. Stuðningsblöð stjómarinnar
gefa hins vegar í skyn að Koskokas-málið
°é liður í CIA-samsæri um að steypa stjóm-
inni. Þær ásakanir hafa haft lítil áhrif á
almenning og stjómarandstæðingar hafa
hæðzt að þeim.
Mörgum spurningurp um hlutverk grísku
stjómarinnar í Koskotas-málinu hefur ekkf
verið svarað, þótt ljóst sé að hún reyndi að
torvelda rannsókn málsins. Flestum spurn-
ingum'um viðskiptahætti Koskotas er líka
ósvarað. Málinu er hvergi nærri lokið.
Nokkrir leiðtogar sósíalista hafa tekið
undir kröfur stjórnarandstæðinga um að
þegar í stað verði gengið til kosninga.
Stjórnin virðist staðráðin í að þrauka þar
til kosningar eiga að fara fram eftir hálft
ár. Þrátt fyrir mikla óánægju í röðum sósía-
lista er ekki talið líkiegt að vantrauststillaga
frá stjómarandsöðunni yrði samþykkt á
þingi. En vegna bankahneykslisins, veikinda
Papandreous og erfíðleika hans í einkalífi
er hæpið að stjóm hans haldi velli í næstu
kosningum.
erfiðleikar í einkalífi
því að hann hefði týnt vegabréfínu, en án
árangurs. Að lokum var honum leyft að
snúa aftur til Grikklands gegn einnar millj-
ónar dollara tryggingu. Seinna var skatt-
svikamálinu vísað frá vegna skorts á sönn-
unum.
Rannsókn
Þrátt fyrir þetta hélt Koskotas stöðu sinni
hjá Krítarbanka. Grikklandsbanki lagði til
að tjaldabaki að rannsókn yrði látin fara
fram, að hann yrði leystur frá störfum
meðan á rannsókninni stæði og að settar
yrðu strangari reglur um það hvernig menn
gætu komizt yfir einkabanka. Tillögumar
fengu engan hljómgrunn hjá stjóm Pap-
andreous.
Andstæðingar Koskotas í röðum blaðaút-
gefenda sökuðu Agamemnon Koutsoyorgas,
aðstoðarforsætis- og dómsmálaráðherra, um
undanbrögð. Um leið reyndu þeir að gera
áhrif Koskotas að engu með því að krefjast
þess að fjármál hans yrðu könnuð. Þrýsting-
ur þeirra varð að lokum til þess að efnahags-
ráðuneytið fól Grikklandsbanka að rannsaka
málið í júní sl. \
Nokkmm dögum eftir að rannsóknin
hófst var frá því skýrt að stjórnin væri reiðu-
búin að samþykkja að Krítarbanki fengi
42,5% hlut í fyrirhuguðu þróunarfyrirtæki
á Eyjahafssvæðinu. Þessi fyrirætlun vakti
svo mikla reiði að stjórnin hætti við hana.
Rannsóknin fór á skjön vegna þess að
Koskotas vitnaði í lög um bankaleynd til
að meina Grikklandsbanka aðgang að einka-
reikningi hans í Krítarbanka, sem hann var
granaður um að nota til að færa fé úr bank-
anum. Þrír mánuðir liðu áður en stjórnin
bar fram tillögu um breytingu á þessum
lögum, en hún gekk ekki nógu langt. Þá
höfðu starfsmenn Grikklandsbanka gefízt
upp við að komast til botns í skuldum Grikk-
landsbanka og snúið sér að því að rannsaka
eignir hans.
Grikklandsbanki hafði Ioks heppnina með
sér 18. októþer. Þá staðfesti stjórnin að
skjal, sem Koskotas hafði látið í té og sýndi
um 13 milljóna dala inneign Krítarbanka í
stóram erlendum fjárfestingabanka, væri
falsað. Með þessu falsaða skjali reyndi Ko-
skotas að sýna að Georg Papandreou og
fleiri leiðtogar PASOK hefðu þegið margra
milljóna dollara mútur og að fénu hefði
verið komið fyrir í Bandarílqunum. Þannig
taldi hann að harm gæti stöðvað rannsókn-
ina. Þetta bragð mistókst og sönnunargag-
nið nægði til þess að stjórnin samþykkti að
fulltrúa Grikklandsbanka yrði falið að taka
við stjórn Krítarbanka og stjóma rækilegri
endurskoðun á fjárreiðum bankans.
Það vora fyrst og fremst tveir menn, sem
komu því til leiðar að flett var ofan af Ko-
skotas, að sögn Financial Times. Þeir voru
bankastjóri Grikklandsbanka, Dimitris Cha-
likias, og staðgengill hans, Stathis Papage-
orghiou. Án þeirra hefði rannsóknin engan
árangur borið. Báðir hafa opinberlega sakað
stjórnina um að teijja rannsókn málsins.
Lömuð stjórn
Stjóm Papandreous komst í alvarlegan
bobba þegar stjórnarandstaðan sakaði hana
um að hafa hjálpað Koskotas að flýja 6.
nóv. til að koma í veg fyrir að hann af-
hjúpaði opinbera spillingu. Anastassios Se-
hiotis lögreglumálaráðerra baðst lausnar.
Koutsoyorgas dómsmálaráðherra, sem er
nánasti trúnaðarvinur forsætisráðherrans,
HEFURÐU
HEYRT ÞAÐ NÝJASTA?
Öllum
TOSHIBA örbylgjuofnum fylgja
3 valin áhöld fram til jóla.
Og eins og áður án endurgjalds:
★ íslenskar leiðbeiningar og
uppskriftir.
★ Matreiðslunámskeið hjá
Dröfn H. Farestveit, hús-
stjórnarkennara, sér-
menntaðri í matreiðslu í
örbylgjuofnum.
★ islensk námskeiðsgögn.
★ Þér er boðið að ganga í
Toshiba uppskriftaklúbb-
inn.
Meira en 14 gerðir ofna - Verð við allra
hæfi. Góð greiðslukjör. Kaupið fullkominn
ofn til framtíðarnotkunar.
Einar Farestveit&Co.hf.
BORGARTÚN 28, SÍMAR: (91) 16995 OG 622900 - NffiQ BÍLASTÆÐI