Morgunblaðið - 11.12.1988, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 11.12.1988, Qupperneq 33
S»í H3&M3ííSfl II AltpACRIHUOe MAð 11111/1 lllflfl GIQAiaWJOHOM __ MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUtSÁGUR 11. DESEMBER 1988 33 Þuríður Guðjóns- dóttir — Minning Fædd 3. júlí 1898 Dáin 4. desember 1988 Nú er hún horfin yfir móðuna miklu mín elskulega móðursystir. Hún var mér og bróður mínum sem önnur móðir eftir að faðir okkar dó. Þura frænka var alltaf kát og hress og hrókur alls fagnaðar jafnt innan sem utan heimilis. Hún hafði sérstakt lag á að hæna börn að sér. Þau voru komin í fang hennar um leið og þau sáu hana. Oft var bankað í kjallaragluggann hennar af börnunum við Vesturvallagöt- una. Þau fengu bros og gott í munn- inn, hún var alltaf að gleðja aðra. Þuríður Guðjónsdóttir fæddist 3. júlí 1898 í Nefsholti, Holtum, Rang- árvallasýslu. Hún var dóttir hjón- anna Guðjóns Jónssonar, bónda, og Sólveigar Magnúsdóttur. Þau eign- uðust 8 börn, þar af komust sjö til fullorðinsára. Þau eru: Benedikt, bóndi í Nefsholti, Þuríður, sem hér er kvödd, Málfríður, dáin 1966, Júlía, húsfreyja á Þingshólum, Rangárvöllum, Halldóra, búsett í Reykjavík, Eyfríður móðir mín, bú- sett í Reykjavík, og Páll, trésmiður, einnig í Reykjavík. Arið 1924 fluttist Þura ásamt móður minni til Reykjavíkur og má segja að hér hafi hún búið öll sín ár. Mamma og Þura réðu sig í vist- ir og gættu þess að fá sama frídag í vikunni, sem þær eyddu svo sam- an. Gengið var um bæinn og hann skoðaður og er ég viss um að þær hafi haft gleði af samverunni, því að þær voru góðar systur og vinir. Þura frænka bjó nokkur ár með Jóhannesi Sveinssyni kaupmanni á Öldugötu 41 og störfuðu þau þar í verslun hans í kjallara hússins. Þangað kom ég oft sem barn og fékk gott í munninn. Foreldrar mínir bjuggu í næsta húsi, Bræðra- borgarstíg 18, svo stutt var á milli okkar. Er Jóhannes lést 1942 flutti Þura til foreldra minna. A dánar- beði föður míns bað hann hana að líta til með okkur og hún brást ekki bón hans. Eftir lát föður míns fluttum við úr húsinu og neðar í sömu götu, Bræðraborgarstíg 4, í eitt herbergi og eldhús. Ég man ennþá hvað það var gaman að hlusta á þær systur tala saman um menn og málefni fram á nótt. Ég átti að vera sofnuð, en hélt mér vakandi. Þetta var eini tíminn sem þær höfðu, því báðar unnu mikið. Á þessum árum var frænka í vist hjá Jóni Símonarsyni, bakara- meistara, og konu hans, Hannesínu Sigurðardóttur, á Bræðraborg- arstíg 16. Hún hélt tryggð við þau hjónin meðan bæði lifðu. Sumarið 1951 flutti Þura frænka frá okkur og hóf búskap með Sigur- valda Björnssyni á Gauksmýri, Vestur-Húnavatnssýslu. Þau giftu sig 20. nóvember 1952 í Melstaðar- kirkju. Ég heimsótti Þuru og Valda á hveiju sumri og dvaldi í góðu yfirlæti hjá þeim. 1956 fluttu þau að norðan og bjuggu í eitt ár hjá Dóru syst.ur hennar. Ári seinna keyptu þau íbúð á Vesturvallagötu 1 og þar voru þau meðan heilsan leyfði. Mér þótti gott að koma í heimsókn til þeirra. Ég var alltaf velkomin og svo var setið í eldhúsinu og spjallað um alla heima og geima. Hún var ein hreinskilnasta mann- eskja sem ég hef kynnst, talaði hreint út og stundum sveið svolítið undan orðum hennar, en ávallt var hægt að fyrirgefa vegna þess að hún hafði rétt fýrir sér. Núna, er jólin nálgast, minnist ég allra jólagjafanna sem þau gáfu. Ekki aðeins okkur í fjölskyldunni, heldur öllum sem minna máttu sín. Hún frænka mátti ekkert aumt sjá og tók ævinlega málstað þeirra sem minna máttu sín. Allir höfðu sínar ástæður til að breyta eins og þeir gerðu. Síðustu átta árin voru Þuru erf- ið. Hún fékk kölkun í aðra mjöðm- ina og eftir það var húri í hjóla- stól. Fyrir tveimur og hálfu ári voru kraftarnir búnir og þá lagðist hún inn á Landakotsspítalann og þar lést hún sunnudagsmorguninn 4. desember. Þegar ég kveð þetta líf vonast ,ég til að elsku frænka mín verði á meðal þeirra sem taka á móti mér með útbreiddan faðminn. Guðni bróðir og Þóra þakka henni fyrir allt sem hún var þeim og sonum þeirra. Góði Guð, blessa þú hana um eilífð. Kæri Valdi minn, Guð blessi þig og haldi verndarhendi sinni yfir þér. Minningin um góða konu mun fylgja þér um ókomin ár. Mamma mín, ég samhryggist þér við lát systur þinnar og vinkonu. Sigga Ásta Móðir mín, tengdamóöir og amma, MARTA JÓNSDÓTTIR, er lést á Sólvangi 4. desember sl., verður jarðsungin frá Fríkirkj- unni í Hafnarfirði mánudaginn 12. desember kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaöir, en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Styrktarsjóð Sólvangs. Minningarkort fást á skrifstofu Sólvangs og í Bókabúð Olivers Steins. Skúli Gunnar Böðvarsson, Laufey Jóhannsdóttir, Marta Marfa Skúladóttir, Hjördfs Ýrr Skúiadóttir, Jóhann Böðvar Skúlason. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö, vináttu og kærleika við andlát og útför VALGERÐAR H. SIGURÐARDÓTTUR. Guðlaugur Eyjólfsson, Þorbjörg Guðlaugsdóttir, ISigurður Guðiaugsson, Magna Baldursdóttir, Ingólfur Guðlaugsson, Jón Gunnar Guðiaugsson, Lára Jónsdóttir, | Bárður Guðlaugsson, Guðný Einarsdóttir, barnab&rn og barnafjarnabörr.. VÍKURÚTGÁFAN Land minna mæðra. Ný Ijóðabók eftir Gunnar Dal. Allir Ijóðavinir munu fagna útkomu þessarar bókar. Hún á erindi til allra. í gegnum árin. Hér eru á ferð- inni frásögur um minnisstæð at- vik tólf einstaklinga, sem sumir hverjir eru þjóðkunnir. Ólöf J. Jónsdóttir hefur séð um útgáf- una. Forvitnileg bók, sem marg- ir munu hafa ánægju af að lesa. Ceymdar stundir FRÁSACNIR AF AUSTURLANDI Geymdar stundir. Frásögu- þættir af Austurlandi í saman- tekt Ármanns Halldórssonar frá Eiðum. Þar er að finna margvíslegan fróðleik um líf fólks, atvinnuhætti og lífsbar- áttu á liðnum tímum. Hió frábæra tungumálaspil, Polyglot, er nú loks komið til íslands. POLYGLOT er andlega þroskandi og menntandi leikur sem hefur verið hannaður til þess að örva skilning og þekkingu á erlendum tungumálum. Hér er valió tækifæri til að efla tökin á ensku, frönsku, íslensku, ítölsku, spænsku og þýsku. Happaglof ffylgir hverju spili. í vinninga eru: ferð fyrir tvo fil Florída med Flugleióum og Hexaglot - nýjasta tungumálatölva í heimi. Verókr. 3.390.- Fæst m.a. í Pennanum og hjá Magna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.