Morgunblaðið - 11.12.1988, Side 44
SYKURLAUST FRÁWRIGLEY’S
MORGUNBLAÐIÐ, ADALSTRÆTI 6. 101 REYKJAVlK
TBLEX 2127, PÓSTFAX 681811, POSTHÓLF 1655 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
Ekkertjóla-
glögg á þingi
GUÐRÚN Helgadóttir, forseti
sameinaðs þings, lagði til á fundi
með forsetum Alþingis og þing-
fiokksformönnum sl. miðvikudag
að Alþingi e&idi til jólaglöggs
fyrir þingheim, áður en þing-
menn hverfa í jólafrí. Var tillaga
hennar felld, eftir nokkurt þóf,
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins.
Þingforsetinn gerði þessa tillögu,
samþingforsetum og þingflokks-
formönnum til mikillar undrunar, í
ljósi þeirrar miklu umræðu sem átt
hefur sér stað að undanfömu um
áfengismál ákveðinna embættis-
manna.
Var forseta sameinaðs þings bent
á hversu óviðeigandi slíkt væri,
jafnframt sem riíjað var upp að það
hefði aldrei tíðkast að veitt væri
*^*S.fengi í húsakynnum Alþingis.
Sættist forsetinn á þessi sjónarmið
að lokum.
Sjá Dagbók/stjórnmál bls. 6.
Þrettán dag-
artiljóla
ÞRETTÁN dagar eru til jóla
og jólasveinamir byijaðir að
koma til mannabyggða.
Stekkjarstaur kemur fyrstur
og heimsækir hann Þjóð-
minjasafnið í dag klukkan
11.
Bræður Stekkjarstaurs
heimsækja svo Þjóðminjasafnið
einn af öðrum á sama tíma,
allt til jóla. Skólaböm taka á
móti þeim með söng, hljóð-
færaslætti og leik. Jólasveina-
brúðum í fullri stærð verður
dreift um safnið og safngestir
geta skemmt sér við að leita
þær uppi. Morgunblaðið mun
birta myndir af íslensku jóla-
sveinunum jafnóðum og þeir
koma til mannabyggða.
Sky-Channel
í 500 íbúðum
SENDINGAR sjónvarpsstöðvar-
innar Sky-Channel nást nú í 500
íbúðum á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu og áskrifendum fjölgar jafnt
jpg þétt, að sögn Vals Kristófers-
sonar hjá Verkbæ, öðrum um-
boðsaðila stöðvarinnar.
Samgönguráðuneytið hefur að-
eins gefið út leyfi fyrir sex móttöku-
diskum, sem em nauðsynlegir til
að ná sendingum Sky-Channel.
Diskurinn kostar um 120-130.000
krónur en ekkert áskriftargjald er
— - jrreitt-
Sjá grein bls. D 26-27.
100 tonn afjólaeplum Morgunb,að,ð/RAX
Sala á ávöxtum er að venju mikil fyrir jólin, og fer íjöldi tegunda sem á boðstólum eru sífellt
vaxandi. Á myndinni sést hvar starfsstúlka í Hagkaup var að koma eplum fyrir í ávaxtaborðinu
á fostudaginn, en samkvæmt upplýsingum Kolbeins Ágústssonar innkaupastjóra hjá Hagkaup er
áætlað að um 100 tonn af eplum seljist í verslunum Hagkaups í desember.
í Reykjavík eru gjafir
kvennanna dýrastar
ÞEGAR borið er saman verð á hefðbundnum jólagjöfúm til kvenna í
Reykjavík, London, New York, París og Kaupmannahöfn, kemur á
daginn að verðið er lang hæst í Reykjavík. Þetta er niðurstaða úr
könnun sem blaðamaður Morgunblaðsins, með aðstoð fréttaritara blaðs-
ins f viðkomandi borgum, gerði nú í vikunni.
Um mun minni mun virðist vera
að ræða í verði á hefðbundnu
jólagjöfunum til karlmannsins og
bamsins, en hlutur karlsins virðist
vera hvað ódýrastur í París, því þar
kostuðu innkaupin handa honum frá
12 til 16 þúsund krónur, en í
Reykjavík frá tæpum 20 til 25 þús-
und krónum. Þær vörur sem valdar
voru handa karlinum voru góð
skyrta, gott bindi, ullarpeysa,
rakspíri, bók og 3 koníaksglös.
Niðurstaðan í samanburðinum á
kvenvörunum, sem eru m.a. nátt-
kjóll, náttsloppur, leðurstígvél, leður-
handtaska og ilmvatn leiðir eftirfar-
andi í ljós: Hlutur konunnar í inn-
kaupakörfunni kostar í Reykjavík frá
30 til 70-þúsund krónur; í London
frá 28 til 41 þúsund krónur; í New
York frá 32 til 40 þúsund krónur; í
París u.þ.b. 35 þúsund krónur og í
Kaupmannahöfn 22 til 30 þúsund
krónur.
Jólagjafir handa henni
Sjá „Ódýrt, dýrt, rándýrt" bls.
10-11.
Nýtt korta-
tímabil
að heQast
í Kringlunni og hjá mörgum
öðrum verslunum á höfúðborgar-
svæðinu hefst nýtt greiðslukort-
atímabil á morgun, 12 desember.
Að sögn Einars I. Halldórssonar
framkvæmdastjóra Kringlunnar
verða nótur vegna greiðslukorta-
viðskipta geymdar, og koma því
ekki til greiðslu fyrr en 2. febrúar.
Einar sagði að tilgangurinn með
tilfærslu greiðslukortatímabils-
ins væri fyrst og fremst sá að stuðla
að dreifíngu jólaverslunarinnar á
lengra tímabil, og koma með því í
veg fyrir að hún lendi öll á síðustu
dögunum fyrir jól.
Grænfriðungar:
Aðgerðir
framundan
GRÆNFRIÐUNGAR í Banda-
ríkjunum ætla að ráða sérstakt
starfsfólk í næsta mánuði til þess
að fá skóla og stofúanir til að
hætta að kaupa islenskan físk.
Um 50 skólaumdæmi í Massa-
chusetts-fylki og 19 í Connec-
ticut-fylki hafa þegar hætt kaup-
um á fiskafúrðum frá Islandi.
Ástæðan er barátta grænfrið-
unga gegn hvalveiðum íslend-
inga í vísindaskyni.
Könnun, sem samtök grænfrið-
unga í Sviss hafa gert, leiðir
í ljós að flestir félaga hafa lokið'
námi sem jafngildir stúdentsprófi.
Flestir eru á aldrinum 30-40 ára
og yfir helmingur ógiftur. „Það
þykir benda til að grænfriðungar
kjósi óvígða sambúð fram yfir
hjónaband. Þeir endurnýta gler,
pappír og álumbúðir, spara orku
og ferðast helst með almennings-
samgöngutækjum. Aðeins 10% fé-
lagsmanna eru meðlimir í stjóm-
málaflokki en meirihluti styður
stefnu jafnaðarmanna og græn-
ingja.“
Sjá grein bls. D 1-4.
Heildarfískaflimi stefnir
í 1,7 milljónir tonna í ár
Lýkur á því að útflutningsverðmæti verði svipað og í fyrra
eftir Hjört Gíslason
ÁRIÐ í ár færir íslendingum að öllum likindum meiri afla úr sjó
en nokkru sinni áður. Miðað við aflabrögð til þessa og spá Fiskifé-
lags íslands verður aflinn rúmlega 1,7 milljónir tonna og verður
það þá i fyrsta sinn, sem afli fer yfir það mark. Botnfiskafli verð-
ur svipaður þrátt fyrir samdrátt í þorskafla og loðnu- og síldar-
afli eykst talsvert. Minna hefúr hins vegar veiðzt af skelfiski nú en
i fyrra. Verðmæti aflans upp úr sjó eykst verulega og þrátt fyrir
verðlækkanir á frystum fiski erlendis má áætla að heildarverð-
mæti útfluttra sjávarafúrða verði svipað og á síðasta ári, um 42
milljarðar króna. Þar skiptir mestu veruleg verðhækkun á loðnuaf-
urðum og um 100.000 tonna aflaaukning í heildina.
Opinberar tölur
um aflabrögð til
nóvemberloka
liggja ekki fyrir, en
í október var afli
landsmanna tölu-
vert meiri en árið áður. Afli í nóv-
embermánuði er einnig talinn meiri
en í sama mánuði í fyrra, þó tölur
liggi ekki fyrir nema frá Norður-
landi og reyndar fyrir um alla
loðnuveiði. Fiskifélag íslands áætl-
ar botnfískaflann á þessu ári um
685.000 tonn, sem er svipað og í
fyrra. Þorskur af því verður nú um
365.000 tonn, en var 390.000 í
fyrra. Afli annarra helztu botnfisk-
tegunda eykst nokkuð, en ýsuaflinn
eykst langmest eða um 13.000
tonn. Síldveiði er áætluð nálægt
100.000 tonnum á móti 75.000 í
fyrra og loðnuafli gæti farið í
900.000 tonn á árinu. Nú í upp-
hafi desember hafa um 850.000
lestir borizt á land og líklegt að
50.000 til viðbótar náist fyrir ára-
mót. Skelfískafli er talinn dragast
saman um 13.000 tonn, hann falli
úr 55.000 í 42.000. Humarafli er
áætlaður 2.200 tonn, rækjuafli
29.000 og hörpudiskur 11.000.
Að loknum ágústmánuði hafði
verðmæti þorsks upp úr sjó aukizt
um 11% miðað við sama tíma í
fyrra, verðmæti ýsu um 64%, loðnu
um 61% og heildarverðmæti aflans
um 14%. Það var þá 20,4 milljarð-
ar króna, en 1987 17,8. Áður fyrr
mátti áætla útflutningsverðmæti
tvöfalt aflaverðmæti, en það er
hæpið nú, bæði vegna útflutnings
á ísuðum fiski og verðlækkunar á
dýrustu afurðunum. í júlílok var
útflutningsverðmæti sjávarafurða
að lagmeti meðtöldu um 25,4 millj-
arðar króna og var þá 6,7%_lægra
en á sama tíma árið áður. Á þeim
tíma er veruleg verðhækkun á
loðnuafurðum ekki farin að skila
sér enda veiðar og vinnsla ekki
hafin. Með aukningu heildarafla
um 100.000 tonn, megnið af því
loðna og síld, og verðhækkun á
loðnuafurðum má því reikna með
því að heildarverðmæti útfluttra
sjávarafurða verði svipað og á
síðasta ári, um 42 milljarðar króna.
Verðmætið hefur því aldrei verið
meira, reiknað á verðlagi hvers árs
fyrir sig.