Morgunblaðið - 31.03.1989, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1989
s
Herra Pétur Sigurgeirsson, biskup:
Óska Ólafí heilla og
Guðs blessunar í starfí
„ÉG ÓSKA hinum nýkjörna biskupi heilla og Guðs blessunar í starS
hans þegar hann tekur við því. Hann er hæfileikamaður og mikill
áhugamaður um málefiii kirkjunnar og hefiir sýnt það í starfi sínu,“
sagði herra Pétur Sigurgeirsson biskup yfir íslandi í samtali við
Morgunblaðið í gær, þegar hann var inntur álits á úrslitum biskups-
kjörsins.
„Þessi úrslit voru skýr og af-
dráttarlaus, þau láta í ljósi ótvíræð-
an vilja og sýna að hann nýtur
trausts jafnt lærðra sem leikra. Ég
óska honum til hamingju," sagði
biskup. Hann sagði að það styddi
að einingu kirkjunnar að úrslitin
urðu svo afdráttarlaus þegar í
fyrstu umferð biskupskjörsins. „Ég
tel að það sé mikilvægt fyrir kirkj-
una í heild að innan hennar ríki
eining," sagði hann.
„Við höfum átt gott samstarf
þessi ár sem ég hef verið biskup
sem og fyrr á árum, allt frá því að
hann var fyrsti æskulýðsfulltrúi
kirkjunnar og það varð mikil sam-
fögnuður í Bústaðakirkju þegar við
hjónin fórum þangað að óska hon-
um til hamingju og frú hans, Ebbu
Sigurðardóttur," sagði herra Pétur
Sigurgeirsson biskup.
Biskupskjör:
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ólafiir Skúlason og fjölskylda hans í safiiaðarheimili Bústaðakirkju í gær. Frá vinstri: Ólafiir Skúlason
með Brynhildi, Ebba Sigurðardóttir kona hans með Ólaf Hrafii, Sigríður Ólafsdóttir með Ásgerði,
Skúli Sigurður Ólafsson, og loks Guðrún Ebba Ólafsdóttir með Hrafiihildi sér við hönd.
Reiðubúiim að leggja mig all
an fram í kreflandi embætti
- segir sr. Ólafiir Skúlason, næsti biskup íslands
„ÞAÐ er mikill léttir að þessi
kosning er nú afstaðin, og í huga
okkar hjónanna býr mikið og
djúpt þakklæti fyrir þann ein-
dregna stuðning sem við höfiim
fengið. Það voru margir sem töldu
það útilokað að við hefðum meiri-
hluta í fyrri umferðinni, en við
létum okkur þó samt alltaf
dreyma um að það yrði. Það hefði
orðið mjög erfitt að fara í aðra
kosningaorrahríð að þessari lok-
inni, ekki eingöngu fyrir okkur,
heldur fyrir stéttina í heild og þá
sem hér fjalla um mál,“ sagði sr.
Ólafur Skúlason, vígslubiskup og
dómprófastur, sem hlaut tilskilinn
meirihluta atkvæða í nýloknu
biskupskjöri.
Biskupslqöri lauk 22. mars síðast-
liðinn, og voru atkvæði talin í dóms-
og kirkjumálaráðuneytinu í gær-
morgun. Á kjörskrá var 161, en 159
greiddu atkvæði. Niðurstaða at-
kvæðagreiðslunnar varð sú að sr.
Ólafur Skúlason hlaut 89 atkvæði,
sr. Heimir Steinsson, prestur og þjóð-
garðsvörður á Þingvöllum, hlaut 31
atkvæði, sr. Sigurður Sigurðarson,
sóknarprestur á Selfossi, hlaut 20
atkvæði og sr. Jón Bjarman, sjúkra-
húsprestur, hlaut 11 atkvæði. Aðrir
sem atkvæði hlutu voru sr. Ámi
Bergur Sigurbjömsson, sem hlaut
tvö atkvæði, og þeir sr. Sigurður
Guðmundsson, sr. Þórhallur Hö-
skuldsson og sr. Einar Sigurbjöms-
son, sem hlutu 1 atkvæði hver. Þrír
atkvæðaseðlar voru auðir. Sr. Ólafur
Skúlason hlaut þannig tilskilinn
meirihluta greiddra atkvæða, eða
56%, til þess að verða næsti biskup
íslands. Hann verður væntanlega
settur í embætti biskups sunnudag-
inn 25. júní næstkomandi í Dómkirkj-
unni, en ekki þarf að vígja hann þar
sem hann er vígður vígslubiskup.
Pétur Sigurgeirsson biskup íslands
hefur fengið lausn frá embætti frá
og með 1. júlí.
Eftir að úrslit í biskupskjörinu
lágu fyrir sagði sr. Ólafur Skúlason
að hann væri ekki síst þakklátur
fyrir þann stuðning sem hann hefði
fengið hjá þeim sem hann hefði unn-
ið mest með. „Stuðningurinn var
mestur og sterkastur hjá þeim sem
ég hef unnið hvað mest með, til
dæmis hér í Reykjavíkurprófasts-
dæmi og meðal prófasta, svo teknir
séu tveir hópar út úr. Þykir mér það
óhemjumikils virði. Annars er ég
auðvitað fullur auðmýktar á þesssari
stundu, því þetta er mikið embætti
sem bíður. Eg hef þó kynnst því af
töluverðri nálægð þar sem ég var á
Biskupsstofu í fimm ár, þegar Sigur-
bjöm Einarsson gegndi embætti
biskups, og ég veit því að þetta er
krefjandi embætti. En því aðeins gaf
ég kost á mér að ég er reiðubúinn
að leggja mig allan fram og það
ætla ég að gera með guðs hjálp.“
Sr. Heimir Steinsson sagðist vilja
þakka stuðningsmönnum sfnum um
land allt hjartanlega fyrir góðan hug
og styrkan stuðning. „Ég óska sr.
Ólafi Skúlasyni innilega til hamingju
með þennan glæsilega sigur og áma
honum allra heilla."
Sr. Sigurður Sigurðarson sagði að
úrslit í biskupskjörinu hefðu ekki
komið sér vemlega á óvart og hann
væri ánægður með kosninguna. „Það
tapar enginn í svona kosningu. Sá
sem fær flest atkvæðin hann tekst
á við allan vandann, en hinir hljóta
ba'ra vegsemdina sem felst í því að
vera orðaðir við þetta embætti. Þessi
úrslit hafa annars þann meginkost
að vera mjög afgerandi."
Sr. Jón Bjarman sagði að úrslitin
í biskupskjörjnu væru afgerandi. „Ég
vil óska sr. Ólafi Skúlasyni heilla og
blessunar, og þakka þeim sem veittu
mér stuðning."
Sóknamefnd Bústaðakirkju hafði
móttöku í safnaðarheimili kirkjunnar
í gær, og kom þangað fjöldi gesta
sem hyllti verðandi biskupshjón, sr.
Ólaf Skúlason og Ebbu Sigurðardótt-
ur, og fagnaði úrslitum með þeim.
Við það tækifæri fluttu ávörp þeir
Ásbjöm Bjömsson, formaður safnað-
amefndar Bústaðakirkju, sr. Guð-
mundur Óskarsson, sóknarprestur í
Árbæjarsókn, sem flutti þeim hjónum
heillaóskir frá prestum Reykjavíkur-
prófastsdæmis, og sr. Þórir Stephen-
sen, staðarhaldari í Viðey.
Sr. Ólafur Skúlason er fæddur 29.
desember 1929 í Birtingarholti í
Hrunamannahreppi. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Verslunarskóla íslands
1952, og guðfræðiprófi frá Háskóla
íslands 1955. Sr. Ólafur var sóknar-
prestur í Mountain-prestakalli í
Norður-Dakota í Bandaríkjunum
1955-59, en var settur til að þjóna
Keflavíkurprestakalli 1. október
1959 til 31. janúar 1960. Hann var
æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar
1960-64, hinn fyrsti er gegndi því
starfi. Hann hefur verið sóknarprest-
ur í Bústaðaprestakalli frá 1964,
dómprófastur í Reykjavík frá 1976
og vígslubiskup frá 1983.
Frá talningu atkvæða sem fram fór í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu í gær. Á myndinni eru, talið frá
vinstri: Ólafur Walter Stefánsson, varafulltrúi dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, sr. Valgeir Ástráðs-
son, fulltrúi Prestafélags íslands, Þorsteinn Geirsson, fulltrúi dóms og kirkjumálaráðuneytisins og form-
aður kjörstjórnar, sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, varafulltrúi Prestafélags tslands, Vilhjálmur Hjálmar-
son, skipaður af dóms- og kirkjumálaráðherra og Ragnhildur Benediktsdóttir, ritari kjörstjórnar. Á
innfelldu myndinni sést Þorsteinn Geirsson tilkynna úrslit biskupskjörsins.
Rogsherferð haldíð áfram
- segir Sjöfíi Sigurbjörnsdóttir skólastjóri
„ÞETTA kom mjög á óvart en ég hef löngum vitað að þessar að-
farir eru pólitískar," sagði Sjöfh Sigurbjörnsdóttir skólastjóri Öldus-
elsskóla, en menntamálaráðherra hefur ákveðið að staða hennar
verið auglýst laus til umsóknar frá 1. ágúst næstkomandi. Ráð-
herra ber við samskiptaerfíðleikum innan skólans og uppsögnum
selsskóla. Nú þegar er brostinn mik-
ill flótti í kennaralið skólans og ekki
orðum aukið að stefnir í upplausnar-
ástand. Ákvörðun menntamálaráð-
herra er tekin eftir umfangsmikla
og tímafreka könnun starfsmanna
ráðuneytisins. Fræðsluráð hefur
fjallað um vandamál Ölduselsskóla á
ótal fundum undanfama mánuði og
hefur haft ærin tækifæri til að hlut-
ast til um gang mála. Menntamála-
ráðherra hefur nú tekið hárrétta
ákvörðun og hefur þar augljóslega
haft í huga hagsmuni nemenda,
kennara og foreldra í umræddu
skólahverfi."
Áheymarfulltrúar kennara í
fræðsluráði lögðu einnig fram bókun
þar sem segir: „Varðandi það mál
sem hér liggur fyrir viljum við benda
á að samskiptaörðugleikar í Öldus-
elsskóla í vetur hafa margoft verið
til umræðu á fundum fræðsluráðs.
Ráðherra hefur valið þá leið að aug-
lýsa stöðu skólastjóra.
Við leggjum ekki dóm á þá aðgerð
í sjálfu sér, en teljum að óhjákvæmi-
legt sé að leysa þessi mál.“
kennara.
„Ég átti síst von á að fólk sem
predikar sjálfstæði sveitarfélag-
anna tæki fram fyrir hendurnar á
fræðsluráði Reykjavíkur,“ sagði
Sjöfn. „Það hafa margir foreldrar
komið til mín og lýst yfir ánægju
með skólastarfið, enginn hefur
komið og verið óánægður. Þetta
fólk sem hefur verið í ráðuneytinu
núna er sama fólkið og var þar í
sumar áður en ég tók við starfinu.
Rógsherferðinni í vor er haldið
áfram. Ég hef ekki hugmynd um
hveijir það eru af kennurunum sem
ekki vilja vinna með mér, þeir hafa
ekki komið til mín og kvartað und-
an skólastarfinu. Dags daglega
gengur allt vel en því er ekki að
leyna að ef skólinn er alltaf í fjöl-
miðlum hefur það áhrif á blessuð
bömin.
Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra lætur starfsmann sinn
segja að 17 kennarar af 38 hafi
gefið til kynna með „leyniskjali“,
að þeir muni hætta ef staða skóla-
stjóra verði ekki auglýst þegar hún
losnar 1. ágúst næstkomandi. Hér
er um vísvitandi tilraun til rang-
færslu að ræða því að við skólann
starfa að minnsta kosti 55 kennar-
ar og skiptir ráðningarformið þar
engu máli, allir kennarar við skól-
ann eru þar fullgildir sem slíkir.
Það er leitt að menntamálaráðherra
skuli beita svo billegum vinnu-
brögðum þegar hann er að reyna
að láta starfsmenn sína bera blak
af mjög svo óprúttnum starfsað-
ferðum sínum.
Auk 55 kennara era 13 aðrir
^tarfsmenn við skólann fyrir utan
ræstingarfólk. Þessa fólks lætur
ráðherra að engu getið þegar hann
er að reyna að gera sem mest úr
hinum leynilegu uppsögnum sínum
eða hótunum um uppsagnir. Mjög
margir kennarar hafa haft sam-
band við mig í vetur og óskað eft-
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir
ir starfi við skólann, þar af nokkrir
í gær, þannig að ég kvíði engu þó
nokkrir hætti.“