Morgunblaðið - 31.03.1989, Síða 10

Morgunblaðið - 31.03.1989, Síða 10
10 : MORGUftBLiÁÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1089 Júlíana Sveinsdóttír Júlíana Sveinsdóttir Myndlist Bragi Ásgeirsson Á þessu ári eru hundrað ár liðin frá fæðingu hinnar gagnmerku myndlistarkonu Júlíönu Sveins- dóttur. Hún fæddist að Sveinsstöðum í Vestmannaeyjum hinn 31. júlí 1889, en lést í Kaupmannahöfn hinn 17. apríl 1966. í því tilefni stendur yfir sýning á þeirri hlið listar hennar, er að landslagi laut, í einum sal Lista- safns íslands. Júlíana Sveinsdóttir var einn þeirra íslenzku brautryðjenda í myndlist er fundu sér starfsvett- vang í Kaupmannahöfn og naut þar þeirra menningarsamskipta sem löndin höfðu sín á milli fram að sambandsslitunum. íslenzkir listamenn áttu þá-skiljanlega mun greiðari aðgang að skólum, styrkj- um og sýningarsölum og um leið hvers konar frama en seinna varð, enda höfðu Danir hér skyldum að gegna. Og framtíðarhorfumar voru ennþá ákaflega bágbomar í hei- malandinu, hvað myndlistarmenn og rithöfunda snerti, enda mætti jafnvel orða það svo, að hver einn myndlistarmaður fullnægði mark- aði þess tíma og hinum væri ofauk- ið. Því var það, að svo margir íslenzkir myndlistarmenn freistuðu gæfunnar í Kaupmannahöfn um lengri eða skemmri tíma, gerðu það margir mjög gott og málaramir Júlíana Sveinsdóttir og Jón Stef- ánsson ílentust þar allt lífið. Enn fleiri hefðu og vafalítið gert það, ef seinni heimstytjöldin hefði ekki brotist út, enda frami þeirra þá svo gott sem gulltryggður. Heima beið þeirra hins vegar hörð lífsbarátta og tómlæti mestan hluta lífsins auk annars mótlætis, en það er önnur saga, sem ekki verður sögð hér, en er einungis drepið á til lær- dómsríkrar viðmiðunar. Jafnvel fann sá, er hér ritar, til þessa bestu hliðar Dana gagnvart Islendingum á námsárum sínum í Kaupmannahöfn, uppúr 1950, og reyndar enn áþreifanlegar síðar á lífsleiðinni og metur mjög mikils. Það einkenndi þessa íslenzku strandhöggsmenn á danskan lista- vettvang, var nær undantekningar- laust, hve íslenzkir þeir voru eða urðu smám saman í myndefnavali sínu svo og útfærslu þess. Það mun og senniega hafa kynt undir það, að Danir voru mjög forvitnir um íslenzkt landslag og náttúru, og sjálfir áttu þeir af ríkri landslags- hefð að ausa í sínu málverki, sem í eðli sínu hlaut að vera framandi fyrir íslenzk augu í allri sinni flatn- eskju, skóglendi og blíðu, þar sem hver lárétta línan tók við af ann- arri. Danskir listrýnendur lögðu og óspart út af þessum þætti í skrifum sínum um íslenzka myndlist frá upphafi og fylltust lotningu, andakt og hrifningu af hinum miklu and- stæðum í málverkum íslending- anna. Ég tel, að okkur megi ekki yfir- sjást þetta atriði, er íslenzk lista- saga er krufin, en ýmsum hættir til að gleyma þessu eða gera lítið úr fyrir vanþekkingu, sem er enn verra, því að hér þurfum við á engan hátt að fyrirverða okkur. Þvert á móti felst í þessu reisn okkar og styrkur. Við eigum einnig vel að meta það, að Danir áttu marga prýðilega einkaskóla á þeim árum, sjálfstæða eða til undirbúnings inngöngu í Listaháskólann, er veittu þýðingar- mikla grunnmenntun, og þangað rötuðu margir íslendingar. Og Listaháskólann sjálfan við Kóngs- ins Nýjatorg gat hver og einn, sem inn komst, notað sem lærdómsrík- an starfsvettvang, ef vildi — og þótt hann hentaði ekki öllum, skal hann ekki vanmetinn, enda var þetta meira og minna námsbraut velflestra þekktustu myndlistar- manna Danmerkur og íslands og þar á meðal heimsþekktra núlista- manna tímanna. Þetta var og sá grunnur, sem list Júlíönu Sveinsdóttur byggðist á og sem hún kunni betur að meta og rækta en aðrir landar hennar og samtíðarmenn. Enginn þeirra var í öllu falli jafn snortinn af danskri erfðavenju í málverki og hún, né kunni betur að ávaxta hana í eigin vinnubrögðum, og enginn náði jafn Iangt sem áhrifa- valdur í dönsku listlífi, en hún átti um margra ára skeið sæti í hinni föstu dómnefnd Charlottenborgar- sýninganna og að auki var hún meðlimur Akedemíuráðsins, sem var í senn stjóm listaháskólans og ráðgjafi um mörg mál, sem að myndlistum lúta. I þessum störfum gustaði af henni og slíkur var veg- ur hennar, er frá leið, að orð henn- ar vom lög, er blaðamenn skoðuðu hinar stóm sýningar fyrir opnanir þeirra. Fylgdist ég með því úr fjar- lægð, hve, ótakmarkaðrar virðing- ar hún naut þau ár, sem ég var við nám í Höfn og þótti á stundum með ólíkindum, næsta skoplegt, enda lituðust frásagnir blaðanna mjög af ummælum hennar, sem var náttúmlega takmarkaður sómi fyrir sjálfa blaðamenninga, er komu þar upp um ósjálfstæði sitt og fáfræði. En gaman var það óneitanlega fyrir okkur íslending- ana. Danir reyndust Júlíönu þannig frammúrskarandi vel í einu og öllu, og vinnustofa hennar og heimili í Nýhöfn og næsta nágrenni Lista- háskólans var svo sannarlega í nafla borgarinnar, hvað myndlist- um viðkom, ekki síður en vinnu- stofa Jóns Stefánssonar á Store Kongensgade og heimili á Bredgade. Myndefni sín sóttu þau bæði að stómm hluta til íslands, þar sem þau dvöldust svo til hvert sumar eða hluta úr sumri, en myndefna- valið var iðulega annað, hér var um ólíkar manngerðir að ræða, og stórar í sniðum hvor á sinn hátt. Júlíana sótti mjög til æskustöðv- anna, Vestmannaeyja, og gerði þar stórbrotin málverk, einföld og ris- mikil í myndbyggingu, er hlutu óspart lof danskra gagnrýnenda, og verða sumar hveijar að teljast til lykilverka ferils hennar. Hinir hrikalegu, nöktu klettar, er gnæfa upp úr hafinu og ríku andstæður, vom kjörið viðfangsefni fyrir mál- ara af hennar upplagi, og hér náði hún mjög persónulegum tökum á annars gamalgróinni danskri myndhefð. En einnig sótti hún mik- ið til Þingvalla, svo sem svo marg- ir starfsbræður hennar á þessum ámm, en í stað þess að bíða sólar- innar eins og þeir velflestir var það dumbungurinn og votviðrið, sem var hennar vettvangur. En það væri nokkur misskilningur, að álíta að hún hafí þar með leitað að dap- urlegu hliðinni á íslenzkri náttúm því að einmitt í slíku veðri njóta ýmsir eiginleikar hennar sín best og landið getur verið hrífandi fag- urt. Og slík fegurð höfðar til margra málara sem eitthvað sérs- takt og mikilfenglegt — myndrænt út og í gegn. Það verða að teljast með bestu eðliskostum íslenzkra málara að hafa sótt myndefni sín heim til ís- lands og unnið úr þeim í stað þess alfarið og samlagast list útlands- ins. Og vitaskuld var hér ytri byrði landslagsins nærtækast fyrir brautryðjenduma, og það var þeim til sóma, að þeir urðu þó aldrei málrar neinnar sveitarómatíkur, heldur var hér myndbyggingin og sjálft rismikið málverkið það, sem allt snérist um. Átthagalist, svo sem hún skilgreinist almennt, var einna minnsta atriðið, þótt tilfinn- ingin til heimslóðanna væri fima- sterk, en hún dreifðist réttlátlega um allt landið að segja má. Auðvitað hafa menn til margs annars að sækja til íslands en fjall- anna og sjóndeildarhringsins, en ef einhveijir vilja sveija þetta full- komlega af sér, þá em þeir um leið að sveija af sér uppruna sinn og blóðböndin við íslenzka gróður- mold. Útlendir skilja þetta kannski ekki alltaf, en við emm nú einu sinni að mála fyrir okkur sjálfa og notum til þess handbær verkfæri okkar og hugarflug gagnvart um- hverfinu, á sama hátt og skáldin og rithöfundarnir skrifa á íslenzku en t.d. ekki ensku og kemur ekki par við, hvað útlendir sjá með sínum eigin augum eða í gegnum sín eigin gleraugu. Þeim hefur og tekist með ágætum að tengjast heimsbókmenntunum á sinn hátt. Hins vegar meiga útlendir fá hlut- deild í myndhugsun okkar líkt og í bókmenntunum, leiki þeim hugur á. íslenzkir rithöfundar kæra sig ábyggilega lítið um, að útlendir leiðrétti þá í málfræði og segi: „við gemm þetta svolítið öðmvísi". Slíkt hefði ekki þýtt við Snorra Sturluson né nokkum annan mikinn rithöfund í samanlagðri íslandssögunni, og þótt gmndvallaratriðin séu þau sömu, þá á uppmninn jafnan að skína í gegn. Og í \jósi þessa var Júlíana Sveinsdóttir jafn sannur íslendingur og þó málari með al- þjóðlegu sniði í landslagmyndum sínuim og t.d. Svavar Guðnason í sínum huglægu eldgosum. — Sýningin á landslagsmyndum Júlíönu Sveinsdóttur í einum sal Listasafns íslands er að sjálfsögðu stórmerkur listviðburður og ber að skoðast af gaumgæfni og íjalla vewl um. Ég hef kosið þessa hlið á málinu, því að sýningin er alltof lítil í sniðum, sé tekið tillit til tíma- mótanna. Hundrað ára afmælissýningjafn mætrar listakonu og merkilegs brautryðjenda hefði átt skilið að vera yfirgripsmeiri, til þess að stærð hennar og umfang listar hennar hefði orðið öllum ljós. Hefði hér íslendingar varla sýnt Júlíönu nægilegan sóma til þessa, svo að hún virkar um sumt sem utan- garðsbam. Mikilvægt tækifæri til að gera myndarlega úttekt á ævi Júlíönu Sveinsdóttur, og virkja hér ýmsa samtíðarmenn hennar, sem enn eru á lífi og gætu veitt okkur fróðleik um persónu hennar og hugarþel telst þar með hafa farið forgörðum. Listsögulegar þemasýningar eru ágætar, og af þeim á eðlilega að vera sem mest, auk annars, en við- komandi íslenzkir málarar eiga ekki að þurfa að fylla hundrað ár til að verðskulda slíka úttekt á list sinni, í Ijósi þess að nær allri eign safnsins er vísað til geymslurek- kanna í mánuðum saman um há- sumarið, ef rækta skal útlend við- horf. Og vegna þess, að um þemasýn- ingu er að ræða, hefði þurft ítar- legri krufningu listar Júlíönu í sýn- ingarskrá, sem að öðru leyti er prýðilega úr gerði gerð. Ég læt þá sem sækja þessa sýn- ingu um að fylgja ferli Júlíönu frá fyrstu þroskaárunum, er hún var eðlilega undir dijúgum áhrifum frá rökfræðingnum Jóni Stefánssyni, til hennar síðari ára, er hún var ekkert annað, en það sem hún gaf þjóð sinni, hin eina og sanna lista- kona, Júlíana Sveinsdóttir. Mississippi brennur Willem Dafoe og Gene Hackman i hlutverkum sínum í myndinni Mississippi Burning. Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Háskólabíó: í Ijósum logum — “Mississippi Buming“ Leikstjóri Alan Parker. Hand- rit Chris Gerolmo. Kvikmynda- taka Peter Biziou. Aðalleikend- ur Gene Hackman, Willem Dafoe, Frances McDorman. Bandarísk. Orion l988. Spumingin sem í ljósum logum vekur er fyrst og fremst sú: borg- aði ferðin sig? Við skulum vona að svo sé, en árið 1964 sköpuðu afskipti missnjallra Norðanmanna af kynþáttabölinu í Suðri oft ógæfulegar afleiðingar fyrir nán- ast réttlausa negrana. Á þeim hundrað ámm sem liðin eru frá lokum Þrælastríðsins hefur frels- isbarátta þeirra farið fetið, hug- sjónamenn og blómaböm Kennedysljómarinnar bættu lítið úr skák, vom illa séðir gestir hjá hinum engilsaxnesku mótmæ- lendum í Mississippi og víðar. Þeir töldu (og telja) sig æðri fólki með annan litarhátt, og ekki nóg með það, heldur höfðu megnustu andúð á kommum, gyðingum, og ekki síst kaþólikkum — þar með falla Kennedýamir útí ystu myrk- ur. En mest af öllu hötuðu þeir líklega Jankana, Norðanmennina sjálfa, á heilli öld hefur ekki gróið um heilt sú niðuriæging að tapa fyrir þeim stríði um allt það sem þeir stóðu fyrir. Og enn er verið að skapa hvítar frelsishetjur. Afleiðingar rann- sóknar FBI-mannanna Hackman og Dafoe á hvarfi þriggja mann- réttindabaráttumanna vom ekki sístar þær að á meðan á þeim stóð brann Mississippi, þ.e. fátæ- krakumbaldar þeldökkra, en Kla- nið, öfgasinnamir, stöppuðu sér saman og yljuðu á eigin vítiseldi. Sú afstaða Parkers að fjalia sem minnst um samstöðu svartra en gera því meira úr djöfulskag hinna hvítu mótmælenda gerir í logandi ljósi enn óhugnanlegri og næstum óbærilega á köflum. Mér þykir þó þessi dramatísering held- ur ósmekkleg, svipaðar raddir berast frá hvíta meirihlutanum í Suðurríkjunum, vitaskuld stein- aldarmönnunum sem enn dreymir um mektardaga Dixie, ég á ekki við þá, heldur hinum almenna, sómakæra borgara og ekki síst frá þeldökkum sem þykir harla Iítið gert úr jafnréttisbaráttu þeirra. Eftir stendur þungskýjað- ur þriller um miðaldamyrkur Suð- ursins, þar sem Parker grípur til allra meðala að ýta við samvisku áhorfandans. Og hann fær eftir- minnilega hjálp frá tónlistarhöf- undinum Trevor Jones, kvik- myndatökustjóranum Biziou, sjónarhomin, áferðin, lýsingin eru einn sterkasti þáttur myndarinn- ar. Stórleikarinn Hackman er í formi, að venju, Dafoe gefur hon- um lítið eftir, Suðurríkjaskúrkam- ir aldeilis einkar vel valdir, þ.e. manngerðirnar og fram á sjónar- sviðið stígur stórkostleg leikkona, Frances McDormand (hefur að- eins sést áður í Blood Simple). Grimm mynd og áhrifamikil, hvemig svo sem á efnistökin er litið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.