Morgunblaðið - 31.03.1989, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1989
17
Islenska hljómsveitin;
Tvö íslensk tónverk frumflutt
ÍSLENSKA hyómsveitin heldur
einsöngstónleika í Menningar-
miðstöðinni Gerðubergi, sunnu-
daginn 2. apríl og hefjast þeir
klukkan 16. Aðgöngumiðar
verða seldir við innganginn.
Þetta eru fímmtu tónleikar
hljómsveitarinnar á áttunda starfs-
ári. Á fyrri hluta efnisskrárinnar
flytja þau Sigurður Bragason, barit-
ónsöngvari og Þóra Fríða Sæ-
mundsdóttir, píanóleikari, innlend
og erlend einsöngslög og óperuar-
íur, m.a. eftir Áma Thorsteinsson,
Björgvin Guðmundsson og Ludwig
van Beethoven, Franz Schubert og
Giuseppe Verdi.
Á síðari hluta tónnleikanna verða
flutt tvö söngverk eftir þá Þorkel
Sigurbjömsson og Atla Heimi
Sveinsson og er í báðum tilfellum
um fmmflutning verkanna að ræða
hér á landi.
Verk Þorkels heitir Ballade
(1960) og er samið við ljóðið Ballade
von der „Judenhure" Marie Sand-
ers, sem Bertold Brecht orti árið
1935 og birtist í ljóðabókinni Svend-
borg Gedichte árið 1939, nánar til-
tekið í öðmm hluta bókarinnar sem
ber svohljóðandi yfirskrift: „Verður
einnig sungið á tíma myrkursins?
Þá verður einnig sungið um tíma
myrkursins.“ Ljóðasafnið er kennt
við hafnarborg þá í Danmörku er
Brecht gisti í útlegð eftir að hafa
hrökklast frá Þýskalandi nas-
ismans. „Judenhure" vom þær kon-
ur nefndar er áttii í ástarsambandi
við gyðinga.
Marie Sanders er ofsótt fyrir þær
sakir, hár hennar er skorið og ekið
með hana um stræti borgarinnar
öðmm til viðvöranar. Elísabet F.
Erlingsdóttir, sópransöngkona,
flytur verkið ásamt þeim Gunnari
Gunnarssyni, flautuleikara, Kjart-
ani Má Kjartanssyni, lágfiðluleikara
og Páli Eyjólfssyni, gítarleikara.
Verk Atla Heimis heitir Karin
Mánsdatters vaggvisa för Erik xiv
(1979). Það er samið við samnefnt
ljóð Zacharias Topelius. Eiríkur
XIV var gjörvulegur en gæfulaus
konungur Svíþjóðar og Finnlands
er hrökklaðist frá völdum og eyddi
síðustu dögum ævi sinnar hlekkjað-
ur og hæddur.
Katrínu drottningu tókst einni
að sefa hinn geðhijáða konung með
vöggulagi sínu. Það er Jóhanna V.
Þórhallsdóttir, altsöngkona, sem
flytur verkið, ásamt þeim Gunnari
Gunnarssyni, flautuleikara, Birki
Þór Bragasyni, saxafónleikara, Páli
Eyjólfssyni, gítarleikara og Eggerti
Pálssyni, slagverksleikara.
(Fréttatilkynning)
Jóhanna Sigurður
Þóra Fríða Þorkell
Elísabet Atli Heimir
Forsetinn vel-
ur í ljóðasafn
MÁL og menning hefur sent frá
sér safii íslenskra ljóða, sem for-
seti Islands, Vigdís Finnboga-
dóttir, tók saman og hefiir hlotið
nafiiið Islensk kvæði.
í fréttatilkynningu frá útgefanda
segir: „Bókin geymir tæplega eitt
hundrað ljóð eftir þijátíu og sjö
skáld, auk nokkurra þjóðkvæða.
Kvæðin spanna vítt svið íslenskrar
ljóðlistar, en em þó flest frá 19.
og 20. öld. Skáldin em öll látin,
nema Halldór Laxness, sem Vigdís
valdi fulltrúa þeirra skálda sem nú
yrkja á íslensku.
Tildrög þessarar útgáfu em þau
•að Vigdís Finnbogadóttir hefur á
undanfömum ámm oft vikið að
nauðsyn þess að efla málvitund
manna, ekki síst með ljóðalestri.
Af því tilefni fór Mál og menning
þess á leit við hana að hún tæki
saman ljóðasafn sem einkum
geymdi ljóð sem hún hefði hrifist
af ung og enn væra líkleg til að
höfða til æskufólks. Vigdís varð við
þessari beiðni og leitaði víða fanga
í þetta fjölbreytta ljóðasafn. í for-
málsorðum sínum segir hún: „Ég
hef lengi litið svo á að ljóðalestur
og ljóðasöngur sé hin ágætasta leið
til að efla málvitund manna, auðga
orðaforða og treysta samhengið í
sögu okkar, auk þess sem skemmti-
leg og falleg ljóð veita huganum
gleði sem enginn getur frá honum
tekið.“
íslensk kvæði er 226 bls. að
stærð og er bókin unnin í Prent-
smiðjunni Odda hf.
Aðgerðir gegn kjúkl-
ingaframleiðendum
algjört neyðarúrræði
- segir Jóhannes Gunnarsson for-
maður Neytendasamtakanna
Þjóðleikhúsið:
London City
Ballet sýnir
LONDON City Ballet sýnir sígild-
an ballet í Þjóðleikhúsinu, í dag,
föstudaginn 31. mars, og á morg-
un, laugardaginn 1. april.
Sólódansarar í sýningunni hafa
dansað aðalhlutverk í helstu
klassísku ballettum víða um heim,
en þeir em: Steven Annegam, Bev-
erly Jane Fry, Jane Sanig og Jack
Wyngaard. Aðrir dansarar em aðal-
dansaramir Tracey Alvey, Mandy
Brak, Nigel Brown og Joss Urch og
listdansaramir Tracey Lorraine,
Angela Murdoch, Judith Roose, Mel-
anie Rousos, Dincer Solomon og
Stefan Umhey.
Á dagskránni verða Dansar úr
Hnotubijótnum. Höfundur tónlistar:
P.I. Tsjaíkovskíj. Dansskáld: Peter
Clegg. Búningar og leikmynd: Peter
Framer.
Ummynduð nótt — Transfigured
night. Höfundur tónlistar: Arnold
Schönberg. Dansskáld: Frank Staff.
Sviðssetning: Veronica Paeper. Bún-
ingar og leikmynd: Peter Farmer.
Hátíðahöld — danssvíta — Cele-
brations — a dance suite. Höfundur
tónlistar: Giuseppe Verdi. Dans-
skáld: Michael Beare.
Sýningar á föstudags- og Iaugar-
dagskvöld hefjast klukkan 20 og á
laugardag klukkan 14.30.
FYRIRHUGAÐAR aðgerðir
Neytendasamtakanna gegn
kjúklinga- og eggjaframleið-
endum hafa enn ekki verið
ákveðnar, en að sögn Jóhannes-
ar Gunnarssonar, formanns
Neytendasamtakanna, verður
ákvörðun um framkvæmd
þeirra tekin á stjórnarfúndi
samtakanna næstkomandi laug-
ardag. Jóhannes segist vona að
fyrir þann tíma takist að finna
einhverja leið sem báðir deilu-
aðilar geti sætt sig við. Aðgerð-
ir gegn þessum framleiðendum
séu algjört neyðarúrræði.
Neytendasamtökin gáfu út yfir-
lýsingu 15. mars síðastliðinn þar
sem segir, að ef kjúklinga- og
eggjaframleiðendur láti ekki af
einokun sem þeir hafi komið upp
samhliða miklum verðhækkunum
á kjúklingum og eggjum, þá muni
Neytendasamtökin grípa til ákveð-
inna aðgerða gegn þeim.
Að sögn Jóhannesar Gunnars-
sonar höfðu kjúklingaframleiðend-
ur óskað eftir viðræðum við full-
trúa Neytendasamtakanna, en þeir
hefðu síðan afboðað þann fund.
Bjami Ásgeir Jónsson, varafor-
maður Félags kjúklingabænda,
sagði að kjúklingaframleiðendur
hefðu hætt um fyrirhugaðan fund
með Neytendasamtökunum vegna
yfirlýsinga formanns þeirra í íjöl-
miðlum. „Við höfðum óskað eftir
að fá að ræða þessi mál við Neyt-
endasamtökin og fá skýringar á
hvemig stæði á þessum aðgerðum
þeirra, og hafði formaður samtak-
anna samþykkt það. Eftir það var
haft eftir honum í fjölmiðlum að
Neytendasamtökin hvetji almenn-
ing til að hætta að kaupa kjúkl-
inga, og því ákváðum við að fresta
þessum fundi og skoða okkar mál
betur. Krafa Neytendasamta-
kanna er að við lækkum verð á
kjúklingum, en við teljum verðið
í dag vera í algjöru lágmarki og
ekkert frekara svigrúm sé þvi til
frekari lækkunar. Okkur finnst
eðlilegt að Neytendasamtökin leyti
eftir fundi með okkur og kynni sér
okkar gögn, en allur málflutningur
þeirra í þessu sambandi hefur
byggst á mikilli vanþekkingu á
framleiðslukostnaði í þessari bú-
grein. Þá fá staðhæfíngar þeirra
um að heildsöluverð á kjúklingum
hafi hækkað langt umfram fram-
færsluvísitölu allt frá árinu 1982
engan vegin staðist, því að þrátt
auknar skattaálögur á framleiðsl-
una er staðreyndin sú að heildsölu-
verðið hefur hækkað minna en
framfærsluvísitalan. “
Að sögn Bjáma Ásgeirs er al-
gengasta verð á kjúklingum nú
609 krónur kílóið úr verslun. Skila-
verð til framleiðenda er 241 króna
samkvæmt verðlagsgrundvelli í
kjúklingarækt frá 1. mars síðast-
liðnum, en heildsöluverð er 406
krónur og hefur það ekki hækkað
frá 24. október síðastliðnum, þrátt
fyrir 5,1% hækkun á skilaverði til
framleiðenda um síðustu mánaða-
mót.
Sinfóníuhljómsveitin:
Tónleikar
fyrir alla
íjölskyldima
Sinfóníuhljómsveit íslands
heldur fiölskyldutónleika laugar-
daginn 1. aprU í Háskólabíói og
heQast þeir klukkan 15.
Þijú verk verða á efnisskránni;
Hljómsveitin kynnir sig eftir Benja-
min Britten, Bamaleikir eftir George
Bizet og að lokum Pétur og úlfurinn
eftir Sergei Prokofiev.
Sögumaður í Pétri og úlfinum
verður Þórhallur Sigurðsson leikari
en Anthony Hose verður hljómsveit-
arstjóri. í frétt frá Sinfóníuhljóm-
sveit íslands segir m.a.: „Þessi efnis-
skrá tryggir hina bestu skemmtun
fyrir alla fjölskylduna og um leið fá
bömin tækifæri til að kynnast hljóð-
fæmnum og innviðum hljómsveitar-
innar. Verkin em sérstaklega vel til
þess fallin að glæða þannig áhuga
bama sem fullorðinna á sinfóníu-
hljómsveitum og verkum sem slíkar
hljómsveitir flytja.
Verkin em sitt úr hverri áttinni:
Benjamin Britten, lávarður, var eitt
ástælasta tónskáld Breta og lést
hann 1976. Eftir hann liggja Qöl-
mörg verk, stór og smá. Frakkinn
George Bizet var af tónlistarfólki
kominn. Hann var góður píanóleik-
ari og skrifaði m.a. á annað hundrað
alls konar píanóverk. Hann lést
rúmri öld á undan Britten, árið 1875.
Sergei Prokofiev var af rússnesku
bergi brotinn. Mörg verka hans, eins
og t.d. Pétur og úlfurinn, em heims-
þekkt og spiluð reglulega um allan
heim. Prokofíev lést 1953 og þrátt
fyrir að kynnast nútímatónlist hélt
hann alltaf tryggð við þá hefð-
bundnu.
Hljómsveitarstjórinn á tónleikun-
um, Anthony Hose, er Breti, sem
hefur undanfarin misseri starfað
töluvert hérlendis. Hann hefur bæði
stjómað Sinfóníuhljómsveitinni í vet-
ur og í íslensku ópemnni undanfama
vetur.“
Listasafti íslands:
Sýning- Júlí-
önu að ljúka
SÝNINGU á landslagsverkum
Júlíönu Sveinsdóttur lýkur
sunnudaginn 2. aprU.
Almenn leiðsögn, í fylgd sérfræð-
ings, verður um sýninguna á sunnu-
dag kl. 15. Tvær aðrar sýningar
standa yfir í safninu, kynning á
verkum Jóhannesar S. Kjarvals,
Jóns Stefánssonar og Gunnlaugs
Ó. Schevings auk sýningar á nýjum
aðföngum. Listasafn íslands er opið
alla daga nema mánudaga klukkan
11—17 og veitingastofa á sama
tíma.
ÁS-TENGI
Allar gerðir
Tengið aldrei
stál - í - stál
SftUBtaMgwir & O®
VESTURGÓTU 16 SIMAR 14680 ?1480
Blomberq
Uppþvottavélar
Úrvals vestur-
þýskarvélar
5 gerðir, 5 litir.
Hagstættverð.
Góð greiðslukjör.
Einar Farestveit&Co.hff.
BORQARTÚNI28, SÍMI1889B.
LaM 4 stoppar vlA dymar
Ódýr, kraftmikill og sterkur
fjölskyldubíll. Lada Luxhefur
reynstmjög vel, enda lætur
hann sig árstióir og aðstæður
litlu skipta.
Veldu þann kost,
sem kostar minna!
opið 9-18,
laugard. 12-16.
Bifreiðarog
landbúnaðarvólar hf.
Ármúla 13,
Suðurlandsbraut 14.
Sími681200.